Tíminn - 17.03.1959, Blaðsíða 1
r> g s i o
Kjördæmamáiiö
bls. 5 og 6.
43 árgangur.
Reykjavík, þriðjudaginn 17. marz 1959.
„Lyktarmyndirnar", bls. 3.
íþróttir, bls. 4.
62. blaft.
Stjórnmálayfirlýsing 12. flokksþings Framsóknarmanna:
Flokksþingið lýsir það tilræði við þjóðfélagið að
leggja niður öll núverandi kjördæmi nema Reykjavík
Borð framkvæmdastjórnar flokksins á flokksþinginu. Frá vinstri: Sigurjón Guömundsson, gjaldkeri; Eysteinn
Jónsson ritari og Hermann Jónasson formadur flokksins.
Hinu glæsilega flokksþingí
F ramsóknarmanna lauk í gær
Kosning í miístjórn flokksins í gærmorgun
Fundur hófst á flokks-
þingi Framsóknarmanna kl.
10 í gærmorgun. Fundar-
stjóri var lón Steingrímsson,
I-
!
Alyktun flokksþings-
ins um kjördæmamálið
tekið sé eðlilegt tillit til aðstöðuniuiwr kjósenda í ein
stökuin byggðarlögum til áhrifa á þing og stjórn.
II.
Flokksþingið telur að stefna beri að því að skipta land
inu í cinmenningskjördænii utan Reykjavíkur og þeirra
kaupstaða annarra, sem rétt þykir og þykja kann að
kjósi fleiri en einn þingmann. Með hæfilegri fjölgun
kjördæniakjörinna þingmanna falli niður uppbótariand
kjörið.
Telur flokksþingið að einmenningskjördænii sem aðai
regla sé öruggastur grundvöllur að traustu stjórnorfari.
III.
Flokksþingið telur að sk.vlt sé að ljúka sem allra fyrst
endurskoðun stjórnarskrórinnar í heild og að þar þurfi
fleiru að breyta, en kjödænwskipan.
Telur flokksþingið þjóðinni hollast að sem víðtækast
samkomulag geti orðið uin öll: grundvallaratriöi stjórn-
skipunarktganna.
VI.
Flokksþingið skírskotar til ályktana fyrri flokksþinga
Fraiiisóknarmanna um að a-skilegast væri að sérstaklega
kjörnu stjórntagaþingi, sem ekki liefði öðruin ináliim að
sinna, væri fengið ákvörðunarvald um gerð stjórnarskrár-
innar og að hin nýja stjórnarskrá tæki síðan gildi, er
liún liel'ði lilotið samþykki við þjóðaratkvæð'igreiðslu.
sýslumaður í Borgarnesi. í
fundarbyrjun fór fram kosn-
ing miöstjórnar.
Miðstjórnarmenn fyrir Reykja-
vík og nágrenni voru kjörnir
þeir: Erlendur Einarsson. Ólafur
Jóhannesson, Daníel Ágústínus-
son, Villijáljnur Þór, Þórarinn
Þórarinsson, Guðbrandur Magn-
ússon, Þorsteinn Sigurðsson,
Vatnsíeysu, Sigtryggur Klemenz-
son, Þórður Björnsson, Benedikt
Guttormsson, Jón Kjáfrtansson
og Hilinar Stefánsson. Fjórir
efstu varamennirnir eru: Sigur-
jón Guðniundsspu, Benedikt Sig-
urjónsspn, Rannveig Þorsteins-
dóttir og Ilannes Pálsson.
Miðstjórnarnienn ungra
manna fyrir Reykjavík og ná-
greiini voru kjörnir þcir: Björn
Ilcrmannsson, Jón Skaftason og
Jón Rafn Guðmundsson.
Að kosningum loknum voru tek
in íyrir álit fólagsmálanefndar,
verkalýðsmál, atkvæðagreiðsla og
var álitið samþyklit samhljóða. Þá
voru tillögur stjórnmálanefndar
og stjórmnálayfirlýsing þingsins
einnig samþykkt sam.hljóða.
Komu þá til umræðu lillögur
félagsmálanefndar, húsnæðismál,
framsögumaður Hannes Pálsson,
tillögur félagsniálanefndar um heil
brigðismál, framsögumaður Val-
borg Bentsdóttir, tillögur efnahags
málanefndar, framsögumaður
Skúli Guðmunds'son. Til ínáls tóku
auk framsögumanna: Eysteinn
Jónsson, alþingismaður, Ólafui1
Jensson, Kópavogi, llróbjartur
Jónasson, Hamri, Skagafirði, Hörð
ur Gunnarsson, Reykjavík, Daníel
Ágúslínusson, Akranesi, Guðlaug
Narfadóttir, Reykjavík, Jón Snæ-
björns'son, Reykjavík, Sveinbjörn
Dagfinnsson, Reykjavík, Jóhannes
Sölvason, Kópavogi, Eiríkur Páls-
son, Hafnarfirði og Þórarinn Þór-
arinsson, Reykjavík.
(Framhald á 2. siðu).
Kjördæmamálið má ekki leysa sem
fiokkshagsmunamál eins og stjórnar-
flokkarnir ætla sér að gera
Á fundi flokksþings Framsóknarmanna fyrir hádegi i gær
var stjórnmálayfirlýsing flokksins samþykkt og- einnig sér-
stakar ályktanir um stjórnarskrána og kjördæmamálið, svo
og ályktanir um landhelgismálið og utanríkismál. Verða þær
ályktanir þirtar hér í blaðinu á morgun og næstu daga, en
hin almenna stjórnmálayfirlýsing flokksþingsins fer hér á
eftir í heild:
„Framsóknarflokkurinn vill vinna. a8 jafnrétti einstaklinga
til athafna og lífsafkomu. Hann byggir fyrst og fremst á hug-
sjón félagshyggju og samvinnu, en styður jafnframt heilbrigt
einkaframtak. Flokkurinn telur eðlilega samkeppni æskilega,
en beitir sér eindregið gegn myndum auðhringa og einokun,
sem miða að því að draga sér fé á kostnað almennings. Flokk-
urinn vill, að sem allra flestir geti átt þess kost að vera beinir
þátttakendur í atvinnurekstri, annaðhvort í félagsskap eða
einkalega, og telur það líklegast til bess að auka framleiðsl-
una og afköstin, hækka þjóðartekjurnar og bæta þar með
lífskjörin og mynda traustan grundvöll framfara og velmeg-
unar.
Flokksþingið heitir á alla þá, sem unna frelsi og framför-
um og stuðla vilja að öflugu atvinnulífi, byggðu jöfnum hönd-
um á samtökum í anda samvinnunnar og sjálfstæðu starfi ei-n-
staklinga, alla þá, sem vilja vinna gegn ofveldi auðs og sér-
réttinda, þar með ofurvaldi ríkis, að sameinast til sóknar
undir merki Framsóknarflokksins.
2.
Þegar Framsóknarflokkurinn
árið 1956 beitti sér fyrir stofn-
un Umbótabandalagsins mcð Al-
þýðuflokknum og síðan fyrir
myndun ríkisstjórnar með hon-
um og Alþýðubandalaginu, var
ein af meginástæðum til þess j
sú, að hann leit svo á, að ríkis-1
valdið gæti helzt fyrir milli-1
göngu þessara flokka náð nauð- j
synlegu samkomulagi viff stétta- j
samtökin um aðferðir og sam- j
stillt átök til þess að lcysa vanda ,
efualiagsmálanna á þann vcg,1
sem hagfelldast væri fyrir þjóð- j
ina.
Vinstri sljórnin kom mörgu
góðu til leiðar. llenni tókst að
stöðva vcrðbódguskriðuna 1956,
er yfir vofði, þegar liún hól'
störf. Umbætur til lands og
sjávar voru sóttar af kappi og
studdar af ríkisvaldinu. Frani-
leiðslan um land allt örvaðist
og óx stórlega og atvinna hvar-
vetna um leiff. Tekjur manna
uröu jafuari en áffur, ef boinar
eru samau landsbyggffir. Fólks-
flutningar til Reykjavíkur
miiinkuffu. í stuttu máli sagt:
Mikil breyting varff í jafnvægis-
átt fyrir byggffir landsins.
3.
Á starfstima vinstri stjórnar-
innar var: Aukinn stuðningiiir
viff stofnun nýbýla og ræktun
á býlum, sein skammt eru á veg
komin. Búuáffarbankanum útveg
aff mikiff fé til aff sinna lians
verkefnuin. Fiskveiðasjóffur efld
ur, skipastóll útgerffarinnar stór-
aukiiiii, síldarverksmiffjur reist-
(Framhald á 7. síðu)
Aðalfundur
miðstjórnar
Aðalfundur miðstjórnar
Framsóknarflokksins verð-
ur haldinn í Framsóknarhús
inu í dag og hefst kl. 2 e.
h. Verður þar kosin fram-
kvæmdastjórn flokksins og
aðrar fastar starfsnefndir
miðstjórnar. Allir aðalmenn
miðstjórnar í Revkjavík og
nágrenni og úr öðrum kjör-
dæmum mæti á fundinum
stundvíslega.
Amer ræðst harka
legaákommúnista
BAGDAD—NTB 16. 3.: Yfirhers
höfffingi Arabíska Sambandslýð-
veldisins Abdel Amer markskálk
ur sagði í ræðu í Kairo í dag,
aff koniniúnistarnir í írak lilytu
öriög heimsvaldasinnanna. Raiffa
markskálksins var flutt í sam-
bandi við minningarathöfu uin
þá er biðu bana i uppreisninni í
Mosul fyrir skömniu. Ainer sagffi
aff útsendarar konnnúnista hefffu
reynt að íni fótfestu í Sýrlandi og
Egyptalandi, en það liefffi mis-
tekizt. Kassem forsætisráðlierra
Irak fagnaði liins vegar komrn
únistum með opniun örmum.