Tíminn - 17.03.1959, Blaðsíða 6

Tíminn - 17.03.1959, Blaðsíða 6
6 T í M I N N, þriðjurtaginn 17. marz 1959 Útgefandi: FRAMSÓKNARFLOKKURINN Ritstjóri: Þórarinn Þórarinsson. Skrifstofur í- Edduhúsinu við Llndargðtn Símar: 18 300, 18 301, 18 302, 18 303, 18 304. (skrifstofur, ritstjórnin og blaðamenn) Auglýsingasími 19 623. - Afgreiðslan 12323 Prentsm. Edda hf. Simi eftir kl. 18: 13948 Stefán Kr. Vigfússon, Arnarhóli: Allir þeir, sem unna sögulegum réíti og frelsi munu sameinast gegn afnámi kjördæma Gegn landeyðingarstefnunni I LOK hinnar snjöllu ræðu, er Hermann Jónasson flutti við setning-u 12. flokks þings Framsóknarflokksins, fórust honum orð á þessa leið: hefi af ásettu ráði sneitt hjá, að bera fram margorð rök gegn hinni fyrir huguðu kjördæmabreytingu. Þetta hefur verið gert, ekki sízt í aðsendum greinum til Tímans, og svo vel, að ég finn mig vanmáttugan til að bæta þar um. Fyrir þessar greinar vil ég þakka. Þær hafa ýmsar vakið aðdáun okkar flokksmanna og and- stæðinga einnig. Það er okkur kunnugt. ÉG EFAST ekkert um, að margir þeirra, sem standa nú fremstir í baráttunni fyrir hinni nýju stefnu, eru sannfærðir um að þeir hafa rétt fyrir sér. Trúleysi þeirra á að veita fjármagn til fram- fara út um land — og of- trú þeirra á það, að allt eigi að gerast hér á Suð-vestur- horninu, er svo grómtekin að furðu sætir. Sumir trúa aöeins á bláhornið. Þetta er i augum okkar Framsóknar- manna þjóðarógæfa. Það er ógæfa fyrir landsbyggðina ógæfa fyrir þóðina í heild — ógæfa fyrir suð-vesturhluta landsins — aðallega Reykja vík, sem á að taka við fólks fjölguninni og aðstreyminu án þess að hafa möguleika til þess. Fátt er nauðsynlegra velmegun stórs höfuðstaðar i litlu landi en að landið sé allt vel setið og velmegun almenn um landið allt. Af landeyðingarstefnunni, ef framkvæmt yrði, leiddi upp- lausn í þjóðfélaginu, atvinnu leysí' og margháttuð vand- ræði. VIÐ Framsóknarmenn er tim sannfærðir um það, að heilbrigðasta leiðin er að byggja upp atvinnuvegina um landið allt. Þannig getur þjóðin öll bezt lifað farsælu lífi við batnandi hag. Við bendum á, að úti um landið eru framleidd meiri verð- mæti, meiri útflutningsvörur og neyzluvörur, að tiltölu við fólksfjölda, en á öðrum svæð um landsins. Þetta er vegna þess, að þar vinnur miklu fleira fólk tiltölulega við framleiðslustörf. Við bend- um á að þetta fólk hefir og fram á þennan dag reynzt þess megnugt að leggja að minnsta kosti sinn skerf til menningarmála þjóðarinnar. Við bendum á, að það upp- byggingarstarf, sem hafið er seinni árin út um landið, þarf að halda áfram sam- kvæmt skipulagðri áætlun, sem stefni markvist að því, að landsmenn, hvar sem þeir eru búsettir á landinu, búi við svipuð lífsþægindi og kjör og hafi sem jafnasta að stöðu til bess að stunda fram leiðslu og önnur störf. ÞETTA er lifsskoðun okk ar Framsóknarmanna og stefna, og samkvæmt því höf um við reynt að vinna með nokkrum árangri. Þeir sem nú beita sér fyrir landeyð- ingarstefnunni, vita, mæta vel, að það væri öðruvísi um horfs út um land í dag, ef kjördæmin þar hefðu ekki sent marga menn á Alþing, sem beittu sér ótrauðir fyrir framförum úti um landið. En þeir vita. líka, að þeir væru færri milljónatugirnir, sem til þessa hefir verið varið. Við íslendingar verðum mik ið á þriðja hundrað þúsund eftir 50 ár — og þurfum að bygg'ja það allt. Það er ömur legur og kotungslegur hugs- unarháttur, sem nú er að ryðja sér til rúms hjá and- stæðingum okkar, að við þurf um ekki og getum ekki byggt og bætt landið allt. — Það er sýnt og sannaö, að við getum leiðrétt efnahagsmálin, ef við viljum gera það meö sam stilltu átaki — og neita okk ur um skemmdarverk. Og á þessum grunni eig- um við að halda áfram þeirri framfaraöldu, sem Framsókn arflokkurinn hefir reist síð- ustu ár um allt landið. Það er hin eina rétta leið. FLOKKSÞINGIÐ er fyrst og fremst kallað saman til þess að sameina kraftana og skera upp herör gegn gjör- byltingu í kjördæmamálinu og þeirri landeyðingarstefnu, sem verða mundi afleiðing þeirrar byltingar. — En það er enn á valdi fólksins út um landið að stöðva þetta. Til þess að stöðva framgang þess ara mála þarf það eitt, að kjósendur úti um landið, í sveit og við sjó, skilji hvað er að gerast, opni augun, en láti ekki starbiindu flokksagans gera sig að' eigin böðlum. Hlutverk okkar i þeirri hörðu og örlagaríku baráttu, sem nú er framundan, er að fá nógu marga til að skilja þetta, vilja hið rétta og snúa vopnum sinum gegn stefnu, sem er öllum til tjóns og þeim sjálfum þó mest.“ ÞANNIG mæltist Hermanni Jónassyni í lok setningar- ræðu sinnar á flokksþinginu. Þessi ummæli hans túlka vel þá stefnu, sem frá upphafi til loka mótuðu allt starf flokksþingsins. Baráttan gegn afnámi kjördæmanna — baráttan gegn landeyðing arstefnunni hefur verið mönnum langt um ríkari í huga en nokkuð annað. — Flokksþipgsmönnum var ljóst, að hér er ekki aðeins verið að berjast fyrir rétti héraðanna, heldur er miklu fremur verið að berjast fyrn* því, að landið verði allt byggt og nytjað, en það er undir- staða þess, að þjöðin haldi efnahagslegu og menningar- legu sjálfstæði sínu — að hér búj í framtíðinni frjáls þjóð í frjálsu landi. J Slefán Kr. Vigfússon bóndi á Arn- arhóli í Núpasveit: „Vér mótmælum allir“. Þessi orð hafa orðið sögufræg með íslenzku þjóðinni, þau hafa orðið henni ímynd staðfestu og þrautseigju, og tákn einingar og samstöðu á örlagastund, og þeirra sigursælu afleiðinga sem slík sam- staða veitir. Þau eru uphaflega sögð, er erlent riki vildi beita oss kúgun og ranglæti í frelsisbaráttu vorri. En það hefir oft síðan verið til þeirra vitnað, 'er samstöðu hefir verið sérstök þörf, til varnar dýr- mætum réttindum, og gegn hvers konar misrétti. Það er því ekki með ólíkindum, að mér hafa þá einnig komið þessi orð í hug nú, í sambandi við breytingu þá á kjör- dæmaskipun landsins, sem nú er fyrirhuguð. Mér finnst að þar sé full þörf á öflugri samstöðu, og sameinuðum mótmælum, ekki ein- ungis frá hinum dreifðu byggðum, heldur allra, sem sögulegum og lýð ræðislegum rétt'indum unna. Auðvitað eru það fyrst og fremst kjördæmin úti um land, sem verða fyrir barðinu á þessari fyrirhuguðu tilskipan, ef að lögum verður, þar sem ætlunin er að steypa saman fleiri kjördæmum, og rugla þannig gjörsamlega þeim sögulega og hefðbundna rétti, sem núverandi kjördæmaskipan byggist á. Þó þing mannatala dreifbýlisins verði e. t. v. svipuð og áður, þá er það ekki nóg. Öll viðhorf í þessum málum gjörbreytast þannig, að áreíðan- lega verður til stórtjóns byggðun- um, og þjóðfélaginu í heild. Það er áreiðanlega mikilsvirði, að sýslu* og bæjarfélög, sem mynda raun- verulega sérstæða heild í þjóðfé- laginu, með a'llmikið sjálfstæði, og fjölda sérmála, hafi sérstakan full- trúa fyrir sig á þingi þjóðarinnar. Þá eru það kynnin milli kjósenda og þingmanns, sem hafa mikla þýð- ingu, en mundu stórum réna við hina fyrirhuguðu breytingu. Það hefir verið venja frambjóðenda við alþingiskosningar, að hafa fram- boðsfundi sem víðast í kjördæmun- um, helzt í hverjum hreppi, og veit- ir það kjósendum tækifæri til að hafa af þeim persónuleg kynni, og þá um leið til að geta lálið í ijósi sínar eigin skoðanir. Með samsteypu fleiri kjördæma yrði þetla óframkvæmanlegt. Ann- að tveggja yrðu allir frambjóðend- ur sama kjördæmis að halda hóp- inn, og gæfist þeim þá að sjálf- sögðu ekki tími til að hafa fundi nema á fáum stöðum, sem aðeins litill hluti kjósenda hefði tækifæri til að sækja, eða þá að þeir skiptu með sér kjördæmum til funda- halda, og yrði þá útkoman þannig, að kjósendur hefðu aðeins kynni af þeim frambjóðendum, sem hefðu fundi í þeirra umhverfi, en engin af hinum. Þá mundi og niður falla sú venja, sem rnargir þingmenn Flokksþingið var öruggur vitnisburður þess, að hvar- vetna út um landið verður tekin upp skelegg barátta gegn landeyðingarste.fnunni. Flokksþingið bar einnig svip þess, að þessi barátta verður ekki tekin upp með minni þrótti í Reykjavík og á Suður nesj um — því að fólki þar er ljóst, að það er ekki hags- munamál þess, að önnur byggð landsins eyðist og þjóð in öll verði búsett á einu horni landsins. Það er enn á valdi fólksins að stöðva landeyðingarstefn tma, er felst i ráðgerðu af- námi kjördæmanna. Tólfta flokksþing Fram- sóknarmanna markaði mik- ilvægan áfanga i þeirri þjóð nauðsynlegu baráttu. hafa haldið, að hafa árleg leiðar- þing í öllum hreppum kjördæmis- ins. Þannig mundi það að miklu l!eyti útilokað, að náin kyimi og samstarf' myndist milli þingmanns og kjósenda, en það er einmitt mjög mikilsvert atriði. Þingmaður- inn kynnir þau nrál, sem uppi eru á hverjum tínia, fyrir kjósendum, og hlustar eftir röddum þeirra og áliti. Þetta eykur skilning og víð- sýni kjósenda á þjóðmálum, en lýð- ræðisskipulagið byggist fyrst og fremst á stjórnmálalegum þroska einstaklinganna, og kunnugleika þeirra og skilningi á þjóðmálum. Þá getar.og margt leynzt úti um byggðirnar, sem hinu háa Alþingi ■er gott að vita, cg það er þing- mannsins að koma því á framfæri. Þannig verður hin gagnkvæma kynning til hagsbóta fyrir báða að- iia. En hvað svo um þeita mál frá lýðræðislegu sjónarmiði? Ég mun í þessum línum ekki fara langt út í það mál, en minna má á reynslu þá, sem fengizt hefir af hlutbundnr um kosningum í sumuni ríkjum Evrópu. Þá mætti og benda á for- dæmi þeirra stórþjóða, þar sem lýðræðisskipulagið hefir náð niest- um þroska sem eru hinar engil- saxnesku þjóðir. Þessar þjó<Lr eru oss skyldar, og því eðlilegt, að við tökum þeirra dæmi til hiiðsj'inar, og við þær höfum við mikil menn- ingarleg tengsi. En þessar þjóðir hafa haldið einmenningskjördæma- fyrirkomulaginu, og mun þó kjós- endatala sízt jafnari í kjördæmum þar en hér. í Bretlandi. hefir sósí- alistaflokkur haft meirihluta <að- stöðu, og hefði þá vafalaust getað komið fram breyttu kosningafyrir- komulagi, en hann hefir ekki gert það, og hvers vegna? Vegna þess að hann hafði það á meðvitundinni, að með því væri verið að grafa 'iind an lýðræðis- og þingræðisfyrir- komulaginu, og þá um 1-eið, að leiða yfir sig það öngþveiti, sem í fyllingu tímans leiddi rtil einræð- isstjórnar, með öllu 'því ófrelsi og höli sem því yrði samíara. Ættum við ekki að íhuga þessi dæmi vaud- lega, áður en við ráðumst i 'oreyt- Það er trúa min, að allir þeir al- þingiskjósendur, til sjávar og sveita, sem sögulegum réttindum og lýðræðislegu frelsi unna, s.núi saman bökum, og segi á kjördegi í vor: Vér mótmælnm allir! Stefán Kr. Vigfússen. Sjötugnr: Eyjólfur Jóusson, bóudi í Sólheimum Jörðin Sóiheimar er fremmst í Laxárdal i 'Dölum. Þar frammi í Laxárdalnum er vetrarhart, einnig afskekkt, að talið var áður, og erf- iðar samgöngur, sem breytist þó, og vonandi sem fyrst, þegar góður vegur kemur yfir Laxárdalsheiði. Ekki tjáir að nefna ókosti eina, þessar jarðir þar framfrá hafa líka til síns ágætis nokkuð. Þær eru víðlendar og þar eru góðir fjár hagar, enda koma þaðan vænir dilkar á haustin. Laxveiði er í ánni, sem rennur eftir miðjum dalnum. Flestir bændur sem þar húa nú, hafa verið þar lengi, og eru ekki gjarnir á að flytja burtu. Skyldi það vera tilviljun, að meðal manna er 'hyggðu þennan harðbýla dal, væri jafnan menn, frá því ég man fyrst til, sem orð lék á að væru dugiegir ferðamenn og ættu fleiri og betri reiðhesta en aðrir menn? Skyldi það ekki vera and- svar við tilbreytingarleysi og fá- sinni. .afskekktrar hyggðar, að þeir voru félagslyndir, fóru gjarn- an 'i kaupstaðinn margir saman, glaðlyndir í vinahóþi og þótti þá gott að njóta dýrra veiga? Þeir þóttu lika fljótir til að gera öðrum greiða ef á lá. Húsbóndinn í Sólheimum, Eyjólf ur Jónasson, varð sjötugur á sunnu daginn var, er fæddur í Sólheim- um 15. marz 1889. Foreldrar hans voru hjónin Jónas Guðhrandsson og Ingigerður Sigtryggsdóttir, er þar Ibjuggu, og var Eyjólfur eldri tveggja sona þeirra, en yngri hróð- irinn Guðbrandur, er búsettur í Reykjavík. Evjólfur hóf búskap á næstu jörð við Sófheima, Sval- höfða, þá nýléga kvæntur fyrri 'konu sinni, Sigríði Ólafsdóttur, ætt aðri úr Borgarfirði. Svalhöfði hafði þá ekki verið í byggð, svo 'inikils þurfti þar við í byrjun, en þar bjuggu þau hjón ekki lengur en til vors 1919, fluttu þá að Sólheimum, er Guðbrandur flutt- ist til Reykjavíkur. Konu sína missti Eýjólfur árið 1925, og hafði þeim orðið fjögurra barna auðið, sem öll eru n lífi: Ingigerður, hús- freyja að Kjörseyri, Ólafur Ingvi, toýr á móti föður sínuin í Sól- hcimum, Guðrún, gift í Reykjavík og Una, húsfreyja að Stórudfvalsá. iVleð siðari konu sinni, Ingiríði Guðmundsdóttir frá Leiðólfsstöð- um eignaðist Eyjólfur tvö börn: Stein, sem nú er uppkominn og Sigríði, niun vera rétt innan við fermingu, hæði til heimilis að Sól heimum. Eyjólfur hefur alla tíð notið vin sælda nágranna sinna og á auk þess stóran kunningja- og vinahóp víða um landið. Hann er gæddur í ríkum mæli hæfileikum þeim, sem hér að framan voru nefndir í sambandi við „framdælinga“, sem okkur var tamt að kalla þá, íbúanna fremst í Laxárdalnúm. Hann hef ég ætið 'heyrt nefndan fyrstan, þegar rætt er um 'heáta- mennsku, hvort sem um er að ræða tamningu thesta eða ferðalög, 'livort heldur á sumri eða vetri. — Sem góður hestamaður á hann það til að bregða fyrir sig stöku: ef svo ber undir, og thefir mör.gum reynzt samfylgd hans minnisstæð vegna dugnaðar hans, þióttaa* og kyngimagnaðs gáska og léttleika. Svo fór hinum danska vini hans, Martin Larsen, sem er mörgum kunnur. Hann var í Dölum er hesta menn undirbjuggu ferð sína ýfir Langavatnsdal á hestamannámót í Borgarfirði. Ekki íhafði hann þá kynnzt Eyjólfi, en sótti fast • að komast í ferð þessa, og sagði meðal annars í því tilefni: „Þó svo ég verði að stela hestum, skal ég komast í þessa ferð.“ Honum gekk greiðlega að fá hestana, en ckki gleymi ég því er Martin Larseu kom síðla kvölds heim fu* ferða- lagi þeirra Byjólfs, örþreyttur, en (Framhald á 8 síðui.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.