Tíminn - 07.04.1959, Síða 6

Tíminn - 07.04.1959, Síða 6
6 T í M I N N, þrigjndaginn 7. april 1959. Úfgefandl : FRAMSÖKNARFLOKKURIMN Ritstjóri: Þórarinn Þórarinsson. Skrifstofur í Edduhúsinu vid Llndargötu Símar: 18 300, 18 301, 18 302, 18 303, 18 304. (skrifstofur, ritstjórnin og blaBamenn) Auglýsingasími 19 523. - Afgreiðslan 1232S Prentsm. Edda hf. Sími eftir kl. 18: 1394S Grein Gunnars Dal GREIN GUNNARS DAL um kjördæmamálið', er birtist í seinasta blaði Tímans, hefur að sjálfsögðu vakió mikla at hygli. Hún er rituð af manni, sem er kunnur fyrir að hafa sjálfstæðar skoðanir og fara sínar eigin götur, svo að eigi verður honum borið á brýn, að flokksleg sjónarmiö marki afstöðu hans. Afsta'ða hans í kjördæmamáhnu er jafn- framt svo glögg og ákveðin, að ekki veröur komizt hjá því, að eftir henni sé tekið. í upphafi greinar hans sagði svo: ,X nafni réttlætis og lýð- ræðis hyggjast nú hrír stjórn málaflokkar landsins breyta stjórnarskrá íslands, og leggja niöur öll hin forn- helgu kjördæmi utan Reykja víkur. Einmenningskjördæm in, .sem eðli sínu samkvæmt hljóta að vera ílokksvaldinu helztur Þrándur í Götu, og tryggj a þvi ilýðræðið bezt, eiga að leggjast niður, en í þeirra stað að koma fá og stór kjördæmi með hlutfalls kosningum. Eg fæ því ekki skilið á hvern hátt slíkar breytingar yrðh til styrktar lýðræðinu. Lýðræði í hinu fyrsta lýð- ræðisríki álfunnar, íslandi, jafnt og í hinum helztu lýð- ræðisríkjum nútímans, Eng- landi og Bandaríkjunum, hef ur alltaf byggzt á valdi hér aða, ákveðinna hagsmuna- hópa, sem markast af land- fræðilegum og sögulegum rétti, — til að veija sér fulltrúa." Qunnar segir, að með þessu sé ekki sagt, að núv. kjör- dæmaskipun þurfi ekki end urskoðunar með. Nauðsynleg ar leiðréttingar sé hins vegar hægt að gera, 4n þess að fremja það glapræði að leggja niður hin fornhelgu kjördæmi landsins og brjóta þannig niður sjálfan grund- völl þess lýðræðis, sem bezt hefur reynzt með vestrænum þjóðum. GUNNAR DAL lýsir síðan þeim hættum fyrir lýðræðið sem hljótast myndu af hinni fyrirhuguðu kjördæmabreyt ingu. í )ok greinarinnar vík- ur hann svo að þeirri hættu sem henni myndi fylgja fýr ir landsbyggðina. Hann seg- ir: „Ef flokksbiindan fær í- búa þessa lands og þá ekki sízt þá, sem búa utan Reykja nesskagans — til að koma á kjördæmabyltingunni með atkvæði sínu, verður afleið- inganna skammt að bíöa. — Áhrif allra byggða utan Reykjanesskagans fara að sjálfrögðu stórlega minnk- andi, og landsbyggðín afsal- ar sér völdum, sem hún get- ur aldrei encíurheimt. Hags- munir Reykjavíkur o.g Suður nesja mundu þá mestu ráða, og dregið verður úr öllum framkvæmdum út um land Þetta mun aftur vaida nýjum og auknum fólksflutningum til Reykjanesskagans og raska enn jafnvæginu í byggð landsins. í þessu felst mikil og aug- ljós hætta ekki aöeins fyrir héruð landsins, heldur einn ig fyrir Reykjavík. Þeir tím ar hljóta að koma, að íslend ingar geta ekki lengur Iifað á hermangi og erlendum lán um, heldur verða að byggja líf sitt á sinni eigin fram- leiðslu. Hætt er þá við, að dansinn kringum gullkálfinn í Reykjavík og á Suðurnesj- um verði að lokum hruna- dans, þar sem þúsundir manna verða atvinnulausar og bíða efnahagslegt skip- brot. Að stuðla aö þessari þró un, er þvi vafasamur greiði við höfuðborgina. — Með því að reka þjóðina í einn hnapp á Suðurnesjum, er ekki að- eins menningu okkar stefnt í voða, heldur felst einnig í því framtíðarhætta fyrir efnahagslegt sjálfstæði lands ins. Við erum vaxandi þjóð og verðum því fyrst og fremst að rækta landið og nytja auð lindir þess. Því má ekki binda starfsorku íslendinga við dauð og ónýt störf, hvorki á Keflavíkurflugvelli né i skrif stofubáknum Reykjavíkur.“ GREIN sinni lýkur Gunn ar Dal með þessum orðum: „Þannig yrði hin fyrirhug- aða bylting á kjördæmaskip- uninni sízt til að leysa vanda atvinnuveganna, þar sem þær mundu enn auka á mis- ræmið i byggð landsins og draga enn fleiri hendur frá framleiöslunni að dauðum störfum. Þá ætti það atvinnuleysi, sem sívaxandi fólksflutning- ar til höfuöborgarinnar hljóta fyrr eða síðar að skapa, a'ð vera Reykvíkingum lítið tilhlökkunarefni, Hin geigvænlegasta hætta í sambandi við afnám kjör- dæmanna er þó sú eins og fyrr segir, að hún felur í sér dauðadóm hins íslenzka lýð- ræðis og gerir að engu áhrif dreifbýlisins á stjórn lands- ins. Því verður þess vegna ekki trúað, fyrr en í lengstu lög, að íslenzkir bændur og íbúar sjávarþorpanna dragi nú svefnhött fiokksblindninnar yfir höfuð sér og fylgi böðl- um sínum eins og þæg og hlýðin fórnardýr. Ef héruð landsins afsala sér lífsrétti sínum, tákna þær kosningar, sem nú fara í hönd, fall og endalok hinnar íslenzku bændamenningar, þeirrar menningar, sem ein hefur réttlætt sjá'fstæða til- veru þessarar þjóðar.“ HÉR er vissulega mörk- uð ákveðin og einbeitt af- staða. En hverjir eru þeir glöggir menn og óháðir, sem íhuga kjördæmamálið, er ekki komast að sömu niður- siöðu? ERLENT YFIRLIT: Stefna Vesturvetdanna VerSur SameinutJu þ.ió'ðunum falin gæzla og eftirlit í Berlín? EFTIR rúman mánuð munu ut- anríkisráðherrar Bandai'íkjanna, Bretlands, Frakklands og Sovétríkj anna hittast í Cenf til að undirbúa fund æ'ðstu manna. Af hálf u vestur veldanna er nú unni'ð kappsamlega að því, >að þau samræmi stefnu sína fyrir utanríkisráðherrafund- inn. Alveg sórstakiega hefur verið unnið að þessu í sambandi við ut- anríkisráðherrafund Atlantshafs- bandalagsins, er var haldi.nn í, Washington um síðustu helgi. Líklegt þykir inú, að vesturveldin séu húin að samræma stefnu sína í aðalatriðum o.g úr þessu verði ekki nema um smávægilegar breyt Ingar að ræða á henni. Þótt enn hafi að sjálfsögðu ‘ekki verið gefn ar út neinar sérstákar yfirlý.singar um það, hver afsta'ða vesturveld anna á utanríkisráðherrafundi.n- um verði, telja 'bTaðamenn, sem vel fylgjast með, isig geta gizkað á það í aðalatriðum, hvernig þau mun leggja málin fyrir. Á utanríkisráðherrafundi vestur veldanna og Sovétríkjanna, sem kemur saman í Genf 11. maí, verð ur í fyrsta lagi rætt -um hvenær og hvar fundur æðstu tmamn verði hald in.n og hverjir skuli taka þátt í honuin. í öðru lagi verður svo rætt um, hver dagskrá fundarins skuli vera og hvaða möguleikar eru til j samkomulags um hin >einstöku dag ' skrármál. Sennilega mun utanrík isráðherrafundurinn snúast fyrst og fremst um þetta, þar sem bæði Eisenhower og de •GauTle hafa sett það sem skilyrði fyrh- þátttöku sinni í fundi æðstu manna, að iík- ur verði fjmir því, að fund- urinn beri nokkui'n árangur, því að ella verði hetur heima setið en á stað farið. BLAÐAMENN þeir, sem áður eru nefndir, telja liklegt, að vest- urveldin muni Teggja meginá- herzlu á tvö dagskrármál. Annað er Þýzkalandsmálið o-g verði BeiTínar deilan rædd í sambandi við það. Hitt er bann við kjannorkusprengj um í tilraunaskyái, jen sérstök ráð- s-tefna vesturveldamna og Sovétríkj anna hefur fjallað um það mál síðan í desember, án þess að telj andi árangur hafi náðzt. Fullvist er talið, að vesturyeldin séu sammála um að gera engar til- slakanir í þessum málum, nema Rússar geri hliðstæðar tilslakanir, svo að hið hernaðarlega og póli-; tíska jafnvægi, sem nú er, raskist! ekki við þær breytmgar, >er samið verði um. Þess vegna sé t. d. tómt mál að tala um, að vesturveldin flytji herlið sitt frá Vestur-Berlín eða breyti stöðu Vestiu--Ber]inar, nema Rússar geri ‘einhverjar til- svarandi tilslakainir á móti og frelsi Vestur-Berlínai'húa verði örugg- lega tryggt. Hingað 'til hafa Rússar ekki boðið upp á meinar slíkar til slakanir, en krafizt þess, að her- lið vesturveldauna yrði flutt frá Vestur-Berlín og hún gerð að óháðu borgríki. Vesturveldin ótt- ast, að eftir það yrrði hún fljóllega inhlimuð með valdi í Austur-Þýzka land. Þess vegna 4negi ekki rétta kommúnistum litla fmgur nú með tilslökun, sem þeir endurgjalda ekki jafnharðan. AF hálfu vesturveldanna verð-' ur lögð áherzla á, að Berlínarmáiið ' verði ekki rætt sórstaklega, held- ur í 'sambandl við Þýzkalandsmál ð, er verði aðalmál ráðstefnunnar. Þar munu vesturveldiin leggja á- fram megináherzlu á, að Þýzkaland yerði sameinað sem fyr.st á grund vielli frjálsra kosniinga og' síðan gerðir við það fri0arsamningar. Tan>gi Rússar hins vegar ekki að bessu, munu þau sennilega bjóða upp á sameiningu Þýzkalands í á- föngum, t. d. þamniig, að Vestur- Þýzkaland og Austur-Þýzkaland byrji að semja um ýmis sameigin leg mál sin á miffi með sameiningu fyrir augum síðar meir. Vestur- veldin munu þó vilja liaga HERTER, settur utsnríkisráðherra Bandaríkj-: anna, hefur getið sér mjög gott orð í viðræðum vesturveldanna að und- anförnu. þessu þannig, að ekki felist í því viðurkenning á Austur-Þýzkalandi isem sjálfstæðu líki. YFIRLEITT eru menn ekki bjartsýnjr á, að samkomulag náist um sameiningu Þýzkalands að ! sinni. Mjög ólíklegt er, að Rússar ] vllji missa þá afstöðu, er þeir ■ hafa í Austur-Þýzkalandi, bæði af ihernaðarlegum og efnahegslegum | ástæðum. Itússum, Pólverjum og Tékkum stendur stuggur af samein uðu Þýzkalandi og það alveg eins, þótt það verði að nafninu til hlut laust. Svipað gildir um Frakka. Áður en sameining Þýzkalands getur orðið, þarf að draga- úr tor 'trýggn; sem nú er í garð Þjóðverja, og úlfúð milli austurs og vesturs. í því sambandi hefur mjög verlð rætt um einskonar meira og minna afvopnuð belti i Evrópu. Allar tillcgur un það hafa hins vegar verið mjög á reiki. Pól- verjar hafa verið með tillögur, sem vesturveldin telja. óhagkvæmari sér em Rússum, og enskir jafr.aðar menn hafa verið með tillögur, sem Rússar telja óheppilegri s§r >en ves'turveldumun. Vesturveldin munu vafalítið fallast á, að þetta mál verði rætt á fundi æðstu manna, en óvíst er, hvort þau bera fram ákveðnar t.llögur um það. í þessu sambandi hafa tiliögur, sem Mendes-France bar fraim ný- lega, vakið taiverða athygli, -en þær eru á þessa leið: Við íandam'ærin milli austurs og vesturs 'kpmi mjótt alveg afvopnað helti. Síðán komi breiðara belti, þar sem istað setning kjarnorkuvopna verði ekki 'leyft, og loks briðja beltið, sem engar hömlur nái til. Mandes- France gerir ráð fyrir, ,að hiin af- vopnuðu belti verði ekki breiðari e.u svo, að þau úíiloki ekkL 'örlenda hersetu í Vestur-Þýzkalandi og Austur-Þýzkaiandi. Mendes-France ■telur málin énn ekki komin <á J;að stig, að stórv'eldin vilji draga theri sina frá Þý-zkaiandi og þvi sé rétt að byrja á því að hafa hin afvopn uðu belti litil; Lítil ibyrjun sé betri en engin byrjun, Margt bendir til, að Mendes- Fra’ice bafi hér rétt fyrir sér, og eigi eitthvert .samkomukg' að geta náðst um þetta efni, geti það því aðeins orðið, að byrjáð sé nógu lítið. Hlns vegar gæti velfar- ið svo, að mjór reyndist hér mTkils vísir. ÞAR ,sem almemnt er 'ekki itrúað á sameiningu Þýzkalands í náínni framtíð, verður óhjákvæmiiegt >að iná einhverju samkomúlagi um Vestur-Berlin, ef hótanir Rússa eiga ekki að ieiða til hættulegustu átaka. Berlínarmálið verður því raunvérulega aðalmál ráðsteiinunn ar. Vesturveidbi eru staðráðim í þVí að kjósa heldur hörðustu átök við Rússa en að slaka þanmig 'til, að þau gefi meira eftir en Rússar eða að freisi. íbúa Vestur-BerMnar' verði stefnt tt hættu. Sú afstaöa er vafalaust rétt. Hims vegar er jafn rétt og sjálfsagt að halda hér samn ingaleiðinni opinni og bjóða upp á einhverja já'kvæða lausn. í því samhandi hefur nokkuð verið rætt um þá lausn málsims, að Sameimuðu (Framhaid á 8. síðuL g ÁfbrýSissemi veldur ómak- legri árás í Reykjavíkurbréfi Morg- unbiaðsins á sunnudaginn er ráðist mjög ósmekklega á sendilierra íslands í London, dr. Kristinn Guðmundsson, og fai'ið niðrandi orðum unx starf hans. M.a. er sagt, að liann geri lítið gagn, en ein- hvers staðar verði maðurinn þó að vera. í greininni eru ekki færð nein rök fyrir þessum dylgj- um, enda hefur dr. Kristinn leyst af höndum vandasamt starf í London mt j miklum ágætum. Umrædd ummæli í hans garð eru því í fyllsta máta tilefnislaus. Hitt er annað mái, að höf- undur þessara ummæia hef- ur um alllangt skeið verið mýög afbrýðisamur í garð dr. Kristins. Þegar dr. Kristinn Guðmundsson tók við stjórn utanrfkis- og varnarmálanna sumari'5 1953, voru varnar- málin í hinni herfilegustu niðurníðslu. V arnarliðsvinna var þá mörgum sinnum meiri en nú og virtist á góð um vegi að soga allt vinnu- afl þjóðarfnnar til Suður- nesja. Auk þess vann við liana margt er- lendra verkamanna, er ekki vorxx aiíir af betri endanum, en höfíðu þó fullt ferðafrelsi. Enigar hömlur voru heldur á ferðunx varnar liðsmanna sjálfa. Erlendir • verktakar sáir um ixelztu framkvæmdir og fóru mjög að eigin geðþótta. Með slíku áframhaldi hefðu íslending- ar orðið undiirþjóð í sínu eig in landi á skömmum tíina og helztu atvinnuveigir þeirra lagst. í rústir. Undir forustu dr. Kristins var gerbreytt um stefnu í þessum efnimx og komið á allt annari o-g betri skipan, sem síðan hefur haldist. Dr. Kristin vann hér mikið og merkilegt starf, sem síðar mun þakkað í sögunni að yerðleikuni. Af liálfu þess manns, sem bar meginábyrgið á því ó- fremdarástamli vamarmál- anna, sem ríkjandi var, er dr. Kristinn tók við stjórn þeirra, hefur jafnan síðan ríkt afbrýðisemi í gaið hans. Ekki vex þó hlxxtur þessa manns við slik asnaspörk og hina ósmekklegu og tilefnis- lausu árás hans á dr. Krist- inn í Reykjavíkurbréfinu. ISI

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.