Tíminn - 22.04.1959, Blaðsíða 3

Tíminn - 22.04.1959, Blaðsíða 3
^ÍUÍI-NN, miSvikudaginn 22. apríl 1959. SCHiRRA GLENN CARPENTER Einn af sjö mönnum valinn til að fara fyrstu geimferðina Amerískur negra-kvintett skemmtir hér á vegum Blindrafél. á næstunni Five Keys eru einn vinsæiasii söRgkvintettinn í Bandaríkjunum Blindrafélagið hvggst fá hingað til lands amerískan söngkvintett og efna til hljómleikahalds til ágóða fyr ir byggingu Blindraheimilis. Blindraheimili félagsins er komið undir þak, en enn skortir mikið fé svo Ijúka •i N y.r ■rK'íy X'&S /í 1 , Nýlega hafa veriS valdir sjö menn úr hópi þeirra umsækjenda, sem vildu verða fyrstu mennirnir, er könnuðu hið óþekkta rúm geimsins. í síðustu vriku gengu hinir sjö útvötdu fram fyri-r skjöldu til að takast þetta hœttulega hiutverk á Margs kotsar filraunir geröar fiS þess að rann- saka líkamlegt atgervi fseirra SHEPARD |g| COOPER hendur. Þessir menn eru höggnir úr sama steini cg Columbus. Magellan, Daniel Boone og Orville og Wilbur Wright, en þó með nokkrum öðrum hætti. Tæplega ihafa ,,landkönnuðir“ sögunnar nokkru sinni verið svo algjörir leik soppar örlaganna sem þessir sjö menn eru nú. Áður en um það bil 2 ár hafa liðið mun einn þess- ara sjö verða valinn — ef til vill með hlutkesti — -til að prófa. hvort unnt sé að skióta mannlegri veru út úr gufuhvolfinu, og láta | hana snúast umhverfis iörðu á hraut, sem væri í 125 milna f.jar- lægð frá miðju jarðar, og snúa síðan ,,heim“ aftur og vera „nægjanlega lifandi ‘ til þess -að geta sagt ferðasöguna. Kannski lil tunglsins Ef hinn fyrsti lifir þetta af, munu hinir sex halda tilrauninni áfram. Ef h3nn deyr, munu þeir samt sem áður verða sendir út í geiminn í þeirri von að einhver þeirra væri ,,í standi" til að segja ferðasöguna er heim kæmi. Ef árangur verður -góður af tilraun- unum er vel hugsanlegt, ,að ein- hver hinna sjö verði sendur í heimsókn til tunglsins. j Hinir sjö útvöldu hafa það sarn eiginlegt, að þeir eru allir meðal menn að hæð o -geru allir á svip- uðurn aldri (32—37 ára). Þeir eru allir fyrrverandi tilraunaflug- menn og þrautþjálfaðir í meðferð hvers konar flu-gtækja. Allir voru þeir fæddir í smábæjum og allir giftir og feður (einn þeirra á fjögur börn). Þeir eru allir mót- mælendur. Allir elska þeir loftin og hafa óbilandi trú á himninum. Kvaiafull próf Enginn verður óbarinn biskup, og hinir siö útvöldu urðu rð ganga undir meira og minna kvalafullar tilraunir, rannsóknir og próf, áður j en þeir voru útnefndir. 1 tvær vikur var þeim snúið og hringlað, látnir þola ægiþungan þrýsting, steiktir í hitasvækju og látnir ganga undir hin hræðilegustu GS'^OM .'TON kvala-próf, sem áttu að fyrirstilla svipaða líðan hiá fórnardýrunum og þá, sem þeir yrðu að lí-ða, er þeim yrði skotið út í g-eiminn. Og hinir sjö útvöldu eiga ekkert sæld- arlíf fyrir höndum, því þeir munu verða þjáífaðir stöðugt og mark- visst til þess að vera sem bezt undir það -búnir að mæta hinum óþekktu örlögum sínum. Hinir sjö útvöldu eru: John Herschel GLenn Jr. 37 ára, 86 kg., 5 fet og 10 þumlungar, græn eygður, rauðhærður. Gekk í herinn 1942. Er mjög reyndur tilrauna- flugmaður, einkum í þotum. Glenn er mjög gamansamur og lætur glensyrði gjarna fjúka: Ég er ef til vill að þessu vegna þess að ég mun aldrei komast nær himnum á ann- an hátt! Macohn Scott Carpenter, 33 ára, 77 kg., 5 fet og 10 þuml., græn- eygður, dökkhærður. Margreyndur þotuflutmaður úr Kóreustríðinu. Þegar auglýst var eftir umsækjend- um til þessa sérstæða starfa var Carpenter úti á sjó og það var konan hans, sem sótti um starfið fyrir ,hann! VValter Marty Schirra, 37 ára, 90 kg., 5 fet og 10 þuml., brún- eygður, dökkhærður. Orrustuflug- maður úr Kóreustríðinu. Marg reyndur tilraunaflugmaður. Alan Eirtlett Shepard, 35 ára, 76 kg., 5 fet og 11 þuml., bláeygður, dökkhærður. Var orrustuflugmaður í seinni heimsstyrjöld, og hefur síðan starfað við flug og verið lengi tilraunaflugmaður. Konan hans lét svo ummælt: Hann er einn af þessum hamingjusömu mönnum. Starfið er hans lif og yndi. Leroy Gordon Cooper, 32 ára, 73 kg., 5 fet og 9 þuml., bláeygur, dökkhærður. Tilraunaflugmaður á þotum flughersins. V'irgil Ivan Grissom, 32 ára, 74 kg., 5 fet og 7 þuml., ‘brúneygur, dökkhærður. Vbt þotuflugmaður í Kóreustríðinti og hefur siðan verið tilraunaflugmaður. Donald Kent Slayton, 35 ára, for- megi byggingu þess. Eru væntanlegir hljómleikar einn liðurinn í tekjuöflun félags- ins svo byggingu blindra- heimilis megi ljúka sem fyrst. Söngkvintett sá. er hér um. ræð- ir, ber nafnið Five Kevs og er skipaður fimm ungum negrum, sem sugnið hafa saman í nokkur ár. Five Keys eru um þessar mund ir einn allra vinsælasti og þekkt- asti söngkvintett Ameríku. Hafa þeir sungið inn á margar hljóm- plötur, sem náð hafa metsölu. Syngja þeir jöfnum höndum sí- gild dægurlög og lög í rokistíi, svo að segja má, að á efnisskrá þeirra sé eitthvað fyrir alla, unga sem aldna. Þeir eru mjög eftirsóttir í Ameríku og hafa gert samninga út þetta ár um að skemmta víðs vegar en það var fyrir tilviljun að þeir fengust hingað, því að sam- konnihús það, er þeir höfðu verið ráðnir til að skemmta í fyrstu vik- una í maí, brann og fyrir bragðið gátu þeir komið hingað í eina viku. Hljómleikar Five Keys hefjast í Austurbæjarbíói föstudaginn 1. maí og verða kl. 7 og 11,15 á hverju kvöldi. Forsala aðgöngu- miða hefst í bíóinu nokkrum dög- um áður. Það er orðið nokkuð langt siðan að við höfum birf tizkumyndir hér á síðunni. Hér er mynd af kjól frá Díor teiknaður af St. Laurenf. Á meðan allir kjólaframleiðendur senda frá sér knéstutta kjóla, heldur St. Laur- ent fast við, að faldurinn skuli ekki vera meira en 36 cm frá gólfi. ingi í flughernum, 78 kg., 5 fet og 10 þuml., bláeygur, dökkhærður. Orrustuflugmaður í heimsstyrjöld- inni. Þrautreyndur tilraunaflug- maður. Hann segir: Við erum komnir eins langt og við getum komizt á þessum hnetti. Við verð- um að fara eitthvað annað, og það er ekki annað að venda en út í igeiminn, og hann bætir við: Ég mundi vilja gefa vinstri handlegg minn til þess að verða fyrsti mað- u-' -’t í geiminn. Dýrir aðgöngu- miðar Það mun ekki kosta neina smá- peninga að sjá leikinn um heimsmeistaratitilinn i þunga- vigt í hnefaleikum milli hvert- ingjans Floyd Patterson oq Svians fngemar Johannsson, en leikurinn fer fram i New York hinn 25. júní naestkom- andi. — Aðgöngumiðar í saln- um kringum hnefaleikapailinn munu kosta 100 dollara stykh- ið, og aðeins einu sinni áður í sögu hnefaleikanna hafa mlð- ar kostað jafn mrkið. Það var einnig í New York 1946 hinn 19. júni, þegar Joe Louis barð- ist við og sigraði Ðilly Conn. Kjarnorkukafbáturinn Skate yndir norðurpólinn aftur Báturinn skemmdist nokkuð, en þó ekki alvarlega — 7. apríl síðast liðinn kom kjarnorku-kafbáturinn „Skate" úr annarri ferð sinni undir Norðurheims- skautið. Heppnaðist ferðin mjög vel. Kafbáturinn bar mörg merki i eftir baráttuna við heimsskauts ! ísinn. Hliðar hans voru risp- \ aðar eftir ísinn og ryð hafði setzt í sárin. Þó urðu skemmd- ir á kafbátnum minni en bú- izt hafði verið við. 10 sinnum upp á yfirborðið í viðtali við blaðamenn sagði skipstjórinn, Jam.es F. Calvert, að ferðin hefði sannað, að íheimsskautin gætu haft mikil- væga þýðingu fyrir sjóherinn, hvort heldur væri á sumri eða vetri. Ferðin undir ísinn tók 12 daga og kaf'báturinn kom 10 sinnum upp á yfirborðið og í eitt skiptið beint undir heims skautinu. Notuð voru sjónvarps tæki til þess að finna, hvar ísinn væri þynnstur, og kaf- báturin nvar útbúin hsérstök- um tækjum til þess að brjóta ísinn fyrir ofan. Calvert skip- stjóri sagði, að kjarnorku-kaf- bátar væru mikilvæg tæki til eftirlits með Rússum á vissum svæðum.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.