Tíminn - 26.04.1959, Blaðsíða 6

Tíminn - 26.04.1959, Blaðsíða 6
6 T í M I N N, sunnudagiim £6. april 1959 Útgefandi : FRAMSÓKNARFLOKKURINN Ritstjóri: Þórarinn Þórarinsson. Skrifstofur í Edduhúsinu við Lindargötu Símar: 18 300, 18 301, 18 302, 18 303, 18 304. (skrifstofur, ritstjórnin og blaðamenn) Auglýsingasími 19 523. - Afgreiðslan 12323 Prentsm. Edda hf. Sími eftir kl. 18: 13948 Til a8 forSast hið verra Alkunnug't er, að þeir, sem í málefnalegar ógöngur komast með einhver j um hætti grípa gjarnan til hinna fáránlegustu örþrifaráða í því skyni að leiða athyglina frá aðstöðu sinni. Svo hefir þeim stjórnarliðum farið í umræSum um kjördæmamál- ið og eru sumar axarskafta- smiðar þeirra í þvl sambandi orðnar landsfrægar Þegar biöð Framsóknar- manna birtu yfirlýsingu flokksþings þeirra í kjör- dæmamálinu, þar sem bent var á m. a. að eðlilegt væri aö fækka uppbótarþingmönn- um jafnhliða því, sem kjör- dæmakjörnum þingmönnum væri fjölgað, þá þótti stjórn arliðinu það hin mesta ó- hæfa og bera vott um frek- lega ósanngirni. Mætti glöggt af því marka, að ó- gerlegt væri að ná nokkru samkomulagi um lausn kjör dæmamálsins við þvílíka menn. Þegar svo sýnt þótti, að Framsóknarmenn myndu ekki skilyrðislaust krefjast afnáms uppbótarsæta ef ann aö það fengist fram, sem enn þýðingarmeira var að þeirra dómi, því var ný plata sett á fóninn. Nú geta menn séð, að Framsóknarmenn hefðu enga stefnu í kjördæmamál- inu, sögðu stjórnarblöðin og þóttust hafa komizt lag- lega að orði. En mætti spyrja: Hefur ekki stefna Alþýðuflokksins verið sú, að gera landið' allt að einu kjördæmi: Vissu- lega. Þaó kom þegar fram i umræðum um kjördæma- skipunlna á Alþingi 1930. í útvarpsumræðunum á dögun um, sagði Emil Jónsson m. a.: Alþýðuflokkurinn gerir sér ljóst, að með þessu frv. er ekki náð fullu jafnrétti allra þegna þjóðfélagsins til þess að hafa áhrif á gang þjóð- mála, sem þó hlýtur að vera stefnt að. Enn er ætlazt til að heilir landhlutar hafi helm- ingi minhi rétt en aðrir og ekki einu sinni það. — Þó er þetta merkur og þýðingarmik ill áfangi,1 o. s. frv. „Áfangi1 segir Emil. En því að binda sig við þenn- an áfanga? Því ekki að taka skrefið allt? Jú, Alþýðublað- ið mun sjálfsagt svara því, að um það náist ekki sam- komulag. Og eflaust er það rétt. Stökkið er of stórt fyr ir stóra flokkinn. Hann verð ur að sniðskera brekkuna og taka sér smákvíld. Þroskinn er svo hægfara. Væri nú ekki reynandi fyr ir hin réttsýnu og samvizku sömu málgögn stjórnarflokk anna að líta á tillögur Fram sóknarmanna í ljósi sinnar eigin afstöðu. Stefna Fram- sóknarmanna kom vissulega fram i yfirlýsingu flokks- þingsins. Eri kjördæmamálið verður ekki leyst nema með samkomulagi, eigi stjórmála flokkarnir á annaö borð að fjalla um iausn þess. Af því leiðir, að enginn flokkur tel ur sig geta fengið fram þá lausn, er hann helzt kýs. Til lögur Framsóknarmanna nú er þvl samkomulagsgrund- völlur frá þeirra hendi en alls ekki sú lausn sem þeir t.eiia æskilegasta. Og þær til lögur eru með þeim hætti, að auðgert ætti að vera fyrir aðra stjórnmálaflokka að fa’last á þær ef fyrir þeim vekti þð eitt, að rétta hlut þéttbýlisins. Gutlað á grunnmiðum BENEDIKT GRÖNDAL heit ir einn heizti kjördæmaspek- ingur stjórnarliðsins. Honum rennur til rifja, hvað þing- menn þjóðarinnar eru litlir. Hann langar til þess að verða stærri en Pétur Ottesen. En hann sér réttilega að það muni ekki verða annað en einskonar draumur hjarð- sveinsins, nema gripið verði til -sérstakra „tilfæringa“. Og þá minntist hann þess, að hafa heyrt það eftir ein- hverjum Frakka, að lítil kjör dæmi skapi litla þingmenn en stór kjördæmi störa þing- menn. Því þá ekki að prófa stækkunina? Eins og að líkum lætur kom Benedikt Gröndal fram í útvarpinu fyrir sinn flokk í umræðunum um kjördæma- máliö. í ræðu sinni tíndi hann til flest þau „rök“ sem „byltingarmenn“ hafa reynt að verja sig með í viðureign ílokkanna um þetta mál. Öll eru þau ámóta haldlaus. *— Skal hér, af handahófi grip- ið á dæmum: Benedikt Gröndal segir: „En samkvæmt skipan ein- menningskjördæma hér á landi sigrar sá, sem fær flest atkvæði, þótt minna sé en helmingur.“ Þetta er rétt svo langt sem það nær. En veita hlutfallskosningar tryggingu fyrir því, að úr þessu sé bætt? Engan veginn. Við höfum horft upp á það árum sam- an í sambandi við kosningar hér og þar um land, að minni hluti kjósenda kjósenda hafi hlotið meiri hluta kjörinna fulltrúa, þótt kosið hafi verið hlutfallskosningu^Og líkurn- ar fyrir þeirri útkomu auk- ast en ekki minnka eftir því sem flokkar eru fleiri, en einmitt hlutfallskosningar gefa flokkafjölgunartilhneig- ingunni undir fótinn, eins og dæmi sanna. Benedikt Gröndal segir um „lit’u kjördæmin“. „Möguleik ar á að misnota fjármagn eða yfirráð fyrirtækja og atvinnu fólksins eru miklu meiri en í stærri kjördæmum. Það er h^et að fylgjast með hverri sái í smákjördæmum svo að varla verður ságt að kosn- ingar séu leynilegar." : 33si staðhæíing fer ekki Þjóöin getur enn bjargað kjördæmunum með afstöðu sinni í næstu kosningum Við 2. umræðu um kjör- dæmafrumvarpið í neðri deild í fyrradag flutti Eirík- ur Þorsteinsson, þingmaður V-ísfirðinga, ræðu og fer hér á eftir ýtarlegur útdrátt ur úr henni. Þegar samstarf tókst f.vrir síð- ustu kosningar milli Frauisóknar- og Alþýðuflokksins, var það mikið áfall fyrir Sjálfstæðisflokkinn, en til þess að revna að gera sig gild- andi gegn bandalaginu uppnefndi Sjálfslæðisfl. það og nefndi þa'ð Hræðslubandalag. Átti himi al- menni kjósandi að líta svo á, að þetta bandalag vinstri flokanna væri sprottið af ótta þeirra við íhaldið. Eg fyrir mitt leyti el ekki né taldi þá, neitt óeðlilegt þótt hugsandi fól'k í la-ndinu væri á verði gegn því ,að Sjálfstæðisflokk urin.n fengi meiri hluta vald á Alþingi íslendinga. Skipulagt kaupstríð Sjálfstæðisfl. hafði síðan forustu fyrir þvf, að skipuleggja akup- hækkanir hinna ýmsu stétta í tið vinstri stjórnarinnar og auka þar með dýrtíð og útgjöld rikissjóðs. Sporgöngumenn þessara. afla urðu ofaná á Alþýðusambandsþingi í nóvember s.l. Var þar með burtu kippt þeim grundvelli, sem sa:n- starf Framsóknarfl. og „verkalýðs flokkanna" var reist á, enda ollu viðbrögð „ver'kalýðsforkólfinna"1 algjörum friðslitum innan ríkis- stjórnarinnar og afleiðingin varð sú, að Hermann Jónasson baðst iausnar fyrir ráðuneyti sitt í des. byrjun s.l. Ótti íhaldsins Forustulið Sjálfstæðisfl. lagði hart að sér og flokki sípum til þess að rjú£a vinstri stjórnina svo og til þess að mynda' stjórn að nýju, og enda þótt fyrra áform ið tækist, misheppnaðist hið síð- ara. Olli sú misheppnaða tilraun forystuliði Sjálfstæðisfl. allmikl- um áhyggjum svo ekki só meira sagt og voru nú feldir breiddir yfir höfuð og mikil plön sögð. — Ekki mátti Framsókn sleppa svo frá þessu, að henni yrði ékki eitt- hvað klórað enda greip mikill ótti ýmsa forystumenn íhaldsins, um að Framsóknarfl. fengi nú bætta aðstöðu eftir þetta getuleysi Sjálfstæðisfl. kom í ljós. Greip ótinn um sig dag frá degi og leiddi loks til þess, að nú var í fyrsta sinn myndað hræðslubanda lag stjórnmálaflokka á íslandi. —- Var hræðslan af ýmsum toga spunnin. Eins og alþjóð veit v^ar vinstri stjórnin athafnamesta ríkisstjórn, sem nokkru sinni Iiefur farið með völd í la'ndinu. Hú.n efldi alhliða atvinnuvegi þjóðarinnar til lands og sjávar. Skapaði nýjan og bætt- ari verðlagsgrundvöll fyrir allar útflutningsvörur og gerði mögu- legan útflutning á afurðum, sem áður fókkst ekki fyrir inægjanlegt verð. Þetta gerðist með lögunum um Útflutningssjóð vorið 1958. — Sjálfstæðismenn óttuðust þær vin sældir, sem vinstri stjórnin aflaði illa á pappír, en hún er bara röng. Hvergi er kosningabar- áttan harðari né ófyrirleitn- ari en í Reykjavík. Hvergi er fjármagninu beitt með skefjalausari hætti. Hvergi er nákvæmar fylgzt með af stöðu hvers einasta kjósenda. Hvergi eru kosningar fjær því að vera leynilegar. — Og allt þrífst þetta einmitt í langfjöimennasta kjördæmi landsins og undir verndar- væng hlutfallskosninganna. Er þetta ekki að seilast full langt til lokunnar, Benedikt sæil? Ör ræðu Etríks Þorsteinssonar, aiþingisnianns við 2. umræftu um kjördæmáfrumvarpi$ í n.d. EIRIKUR ÞCRSTEÍNSSON sór. Með þassum aðgerðum á- rannst það, að áhugi manna óx á land'oúnaði og sjávarútvegi og fólksflótt'inn stöðvaðist frá arð- bærum störfum til öræfagöngu i von-lítilli gæfuleit á mal'bikuðum borgargötum. Þessi straumhvörf og önnur sem fylgt hefðu í stórum stil í kjölfarið ef auðnast hefði með festu og öryggi ,að gera þess- ar og áframhald£>ndi aðgsrðir þings og stjórnar að uppistöðu í gróandi þjóðlífi, voru ekki í anda bess glundroða og stefnu.ley.3is, sem nú auðkennir allar aðgerðir hæstv. núverandi ríkisstj., sem er leppstjórn Sjálfstæðisfl. og ber helzt á sér blæ hins framliðna, sem tekist hefur að vekja utpp að nýju. Eru nú allar aðgerðir upp- vakningsins óþekkjanlegar frá fyrra lífi, eruia fljótséð, að hvorki hugur né hönd -stjómast af eigin æða- né taugakerfi. E.t.v. er hqr aðeins um dáleiðslu að ræða. Er pá vonandi að hinir viiluráfandi losni sem fyrst undan áhrifavaldi iávaldsins, áður en þjóðin öll ligg- ir óbælt hjá garði fyrir aðgerðir þeirra. Því er nú vcr að allt er þetta með • ráði gert. SjálfstæðisfL va'r svo hrædur við vinsældir vinstri stjórnarinnar, að hann var til í ailt, sem stuðlað gat ,að falli henn a'r, en kálfar Qauna sjaldan ofeldið og það sannaðist á kratabroddun- um. Flokkur þeirra var að ýmsu leyti andstæður þeirri stefnu, sem hans menn í ríkisstjórninni sam- þykktu og sem var í þvi fólgin, að ha,lda niðri kaupgjaldi og verð- lagi. í stað þess að standa með | ríkisstjórninni samþykkti-.Alþýðu- (Framhald a 8. siðu) Svik stjórnarflokkanna rafvæðingarmálunum 1 Á miðvikudaginn birti Tíminn útdrátt úr ræðu þeirri, er Karl Iíristjánsson alþingismaður flulti sem framsögumaður 3. minnihluta fjárveitinganefndar (Framsóknar- niannanna) við 2. umræðu fjárlag- anna. Ræðan var löng og rækileg og útdrátturinn því aðeins ágrip, u náði ekki nema til nokkurs Jiluta af því, sem hann gerði að umtalsefni og var í ýmsum atrið- um endursögn. Einn ræðukaflinn, sem ekki seg- ir frá í útdrættinum, var um raf- orkumálin og skal hans nú getið. Karl vítti harðlega þá tillögu stjórnarliðsins að fella niður úr f.;árlagafrumvarpinu allt framlag ér ríkissjóði á árinu, 10 millj. kr., „til nýrra raforkuframkvæmda". laldi hann. að á þessari tillögu sæist glögglega, hve st.jórnarliðið bugsaði kuldalega til dreifbýlisins o.g kauptúnanna úti um land. Rík- isstjórnin gæfi að vísu í skyn, að hún teldi róttara að taka lán til Lamkvæmda þessara en að veita fé úr ríkissjóði, en ræðumaður taldi, að sú lánlaka mundi hjal eitt, því að svo mikið lánsfé væri treyst á, að tekið vrði þar að auki vegna rafvæðingarinnar. Fram- kvæmdaáætlun byggðist í svo stór- um stíl á lántökum. Las hann sfð- an upp eftirfarandi skýrslu, c.r raf- orkumálaskrifstofan hafði látið fjárveitinganefnd í té um það, hvernig afla'ð haf'ði verið þeirra' rúml. 90 millj. kr., sem varið var lil nýrra raforkuframkvæmda 1958: Framlag frá ríkissjóði 29 millj. kr. Innlendir bankar (eldri samningar) ca. 13 millj. kr. Heimtaugagjöld ca. 4 millj. kr. Erlend lán fyrir millig. ríkissj. ca. 32 millj. kr. Bráðabirgðalán og eigið fé ' 13 millj. kr. io) til nýrra xaforkuframkvæmda og vegna rekstrarhalla rafveitna ríkisins í stórum dráttum: I«.ekstrarhalli (áætl.) 15 millj, kr. Afborgun erl. bráðabirgðalána 6 millj. kr. I ramkvæmdir í fram- kvæmd samkv. 10 ára áætlun og ályktun raforkuráðs 78 millj. kr. 99 millj. kr. Áætlaðar tekjur 1959 sagði ræðumaður að hefðu aðallega ver- ið þessar: Frá ríkissj. á fjár). samkv. tillögum 14.250 millj. kr. Heimtaugagjöld 4.000 millj. kr. Irml. bankar, eldri samn. 14.000 millj. kr. Óútvegað lánsfé er því 66.750 millj. kr. 99 millj. kr. Alls. ca. 91 millj. kr. Þá las K. K. skýrslu um fjárþörf ina 1959 eins og hún hefði verið áaétluð (í sambandi við frumvarp- Undirstrikaði ræðumaður, að samkvæmt áætluninni væri gert ráð fyrir að útveigað yrði nýtt láns- fé 66 millj. og 750 þús. kr. Nú ætlaði stjórnin og stuðningslið hennar að bæta þar við 10 málljón- unum. Engar miranstu líkur væru til þess að stjórninni tækist að út- vega lánsféð — og mjög vafasamt líka, að hún vildi gera það, af því sð sveitir og kauptún úti á landi ættu í hlut. Með tiljögunind taldi ræðumað- ur að eðlilegt væri að íbúar sveita og kauptúna, sem biðu eftir raf- magni, teldu að verið væri að stofna til hreinna og beinna svika við sig, sbr. 10 ára áætlunina og það, sem búið er að gera fyrir aðra. | Þetta 10 millj. kr. ríkissjóðs- i íramlag, sem fyrrverandi fjármala- ' ráðherra, sem samdi fjárlagafrum- ! varpið, ætlaði til rafvæðingarinnar | ætla nú menn landeyðingarslefn- j unnar ,að taka og henda í niður- I greiðslusvelg sinn, sem verður jjafn tómur og gleypigjarn áfram, 'þrátt fyrir þetta.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.