Tíminn - 30.04.1959, Blaðsíða 6
6
T í M I N N, fininitiidaginn 30. apríil 1959.
Útgefandi : FRAMSÓKNARFLOKKURINN
Ritstjóri: Þórarinn Þórarinsson.
Skrifstofur í Edduhúsinu við Lindargötu
Síraar: 18 300, 18 301, 18 302, 18 303, 18 304.
(skrifstofur, ritstjórnin og blaðamenn)
Auglýsingasími 19 523. - Afgreiðslan 12323
Prentsm. Edda hf. Sími eftir ki. 18: 13948
Samsærið gegn raforkuáætluninni
EINS og skýrt var frá hér
i blaðinu í gær, gerðust þau
tíðindi á Alþingi í fyrradag
við þriðju umræðu fjárlaga,
að upplýsingar komu fram
um það frá forsætisráðherra,
íjármálaráðherra og fram-
sögumanni stjórnarliðsins í
fjárveitinganefnd, að uppi
væru fyrirætlanir meðal
stjórnariiösins um 'að ger-
breyta 10 ára rafvæðingará-
ætluninni, svo að segja má
að jafngildi þvi aö afnema
hana og taka upp nýj a áætl-
un, sem felur i sér stórfelld
undanbrögð frá framkvæmd
10 ára áætlunarinnar. Er
hér um að ræða svo fáheyrð
ar aðfarir, að fáa mun hafa
órað fyrir því, þó að vitað
væri, að stjórnarflokkarnir
höfðu i hyggju að skera raf
væðingaféð niður og ekki
væri toúizt við allt of góðu.
Tíu ára rafvæðingaráætl-
unin gekk í gildi 1954 og á að
ijúka 1963. Er þar um að
ræða mestu framkvæmd,
sem þjóðin hefir í ráðizt til
þessa, og í henni fólst það
átak að rafvæða landið nær
allt. Þar var framkvæmdum
á skipulegan hátt skipt nið-
ur á árin, svo að þessu marki
yrði náð.
Fólkið í landinu er farið
að treysta þessari áætlun.
Mörg byggðarlög hafa þegar
fengið rafmagn, en önnur
toiða þess og hafa gengið út
frá því, að þau fái rafmagn
á næstu árum samkvæmt á-
ætluninni. Ef nú á að ger-
bylta áætluninni eru það
hrein og bein svik við fólkið,
sem biður rafmagnsins og
hefir lagt fram sinn hluta af
almannafé til þess að aðr-
ar byggðir fengju rafmagn
1 því trausti að röðin kæmi
að því á næsta eða næstu ár
um eins og áætlunin gerði
ráð fyrir.
Nú er það hins vegar boðað
að umturna þessari áætlun
i miðjum klíðum fram-
kvæmda. Það á að hætta við,
eða fresta að leggja ýmsar
þýöingarmestu tengilínur
sem tengja eiga sveitir og
heil héruð við orkukerfi stór
virkjana ríkisins, en þessar
linur voru og eru grundvöllur
rafdreifingarinnar. í þess
stað á samkvæmt hinum
nýju tillögum að lappa upp
á dísilrafstöðvar hér og
hvar og tengja rieiri byggð
ir og bæi við slík kerfi. Meö
þessu segist stjórnariiðið
ætla að „spara“ 88 millj. kr.
á rafmagnsáætluninni. Þó
er í öðru orðinu viðurkennt,
að þetta sé aðeins frestur,
tengilínurnar verði aö koma
síðar.
Það, sem hér er að gerast,
er auðvitaö alls enginn
„sparnaður“. Hér er aðeins
um að ræða undanbrögð við
að framkvæma áætlunina.
Stjórnarliðið hefir gripið til
þessa ráös eins og neyðar-
útgangs. Strax á þessu ári á
að .skera raforkuféð niður
um 30—40 millj. kr. og síðan
halda áfram á sömu braut.
Niðurstaöan verður sú og
engin önnur, að toaslað verð
ur við dísilrafstöðvar með
ærnum erfiðleikum um sinn,
en þegar framkvæmdatimi
10 ára áætlunarinnar er úti,
veröur eftir að vinna af
henni íramkvæmdir, sem nú
kosta a. m .k. 90 millj. kr.
Tíu ára áætlunin er m. ö. o.
þá úr sögunni og framkvæmd
um hennar skotið á frest.
Framkoma Sjálfstæðis-
flokksins 'í málinu er þó með
mestum endemum. Hann hef
ir hælt sér af að eiga þátt i
þessari áætlun og' talið hana
eitt helzta skrautblóm sitt,
en nú svíkur hann áætlun-
ina og þar með þau heit, sem
fólkinu víða um land hefir
verið gefið með henni. Kem-
ur flokkurinn því þarna fram
í réttu Ijósi.
Eysteinn Jónsson gagn-
rýndi þessar aðfarir í hvassri
ræðu á Alþingi í fyrrakvöld,
eins og sagt var frá hér í
blaðinu í gær og sagði aö
lokum m. a. á þessa leið:
„Eg mótmæli þessum óþing
ræðislegu vinnubrögðum, að
umturna áætlun, sem búin
er að vera í gildi í mörg ár
og er í miðjum klíðum fram-
kvæmdar og fólkið í landinu
er farið að treysta. Eg mót-
mæli þessum vinnubrögðum
bráðabirgðastjórnar á bak
við Alþingi, alveg eins þótt
stærsti flokkur landsins sé
samábyrgur. Eg krefst þess,
að framkvæmdir í raforku-
málum fari fram á grund-
veDi 10 ára áætlunarinnar.“
Undir þau mótmæli mun
þjóðin taka.
Yfirlýsing einhuga þjóðar
ÞINGSályktunartillaga sú,
sem utanríkismálanefnd
lagði fram á Alþingi í gær,
mun öllum íslendingum fagn
aðarefni. Að henni standa all
ir flokkar þingsins, svo að
vafalaust verður hún sam-
þykkt einróma, og er það
fuilu samræmi við eindreg-
inn þjóðarvilja, að Alþingi
gefi skýlausa viljayfirlýsingu
um það, að ekki komi til
mála hið minnsta hvik frá 12
mílna fiskveiðilögsögu og
minni fiskveiðilandhelgi frá
grunnlínum komi ekki til
mála. Jafnframt er því lýst
yfir ,að íslendingar telji sig
eiga fullan rétt til land-
grunnsins alls, og vinna beri
að viðurkenningu á því á al
þjóðavettvangi.
Það voru fulltrúar Fram-
sóknarflokksins í utanríkis-
málanefnd, Gísli Guðmunds-
son, Steingrímur Steinþórs-
son og Sveinbjörn Högnason,
sem hreyfðu því í utanríkis-
málanefnd fyrir nokkru að
nefndin leggði sameiginlega
tillögu í landhelgismálinu fyr
ir Alþingi. Framsóknarflokk
Frá starfsemi Sameinuðu þjóðanna:
Hagskýrslur S. Þ. veita merkilegar
upplýsingar víða að úr heiminum
í lok ársins 1957 voru um
60 milljónir sjónvarpstækja
í notkun í öllum heiminum,
þar af voru 50 milijónir
tækja í Norður-Ameríku. —
í Englandi, Hollandi, Kan-
ada, Nýja-Sjálandi og í Ástr-
alíu er helmingur allra
ibúða 5 herbergi eða meira,
en í hinum svonefndu van-
yrktu löndum er allur fjöldi
íbúða 1—2 herbergi.
Þessar upplýsingar eru teknar
af handahófi úr Hagskýrsluárbók
Sameinuðu 'þjóðanna 1958. sem ný
lega er komin út í tíunda sinn.
Hagfræðingar Sameinuðu þjóð-
anna hafa samband við 150 lönd
og lendur tbeims. í þessari útgáfu
eru hvorki meira né minna eri
187 töflur.
Barnadauðinn í heiminum
Skýrslumar um barnadauðan í
heiminum eru einkar athyglisver'ð-
ar. Smábarnadauðinn hefir minnk
að víðast hvar í heiminum hin
síðari árin. í hagákýrslum S.Þ. eru
upplýsingar um- þetta efni frá 90
löndum. Hæstur er barnadauðinn
í Chile í Suður-Ameríku, eða
117,2 af hverjum 1000 börnum, er
fæðast. Næst kemur Rúmenía
með 82,1 og Póliand með 76,9. 1
þessum löndum var smábarnadauð
inn þó enn hærri fyrir 10 árum
og hefii- farið minnkandi æ síðan.
í nokkrum löndum, þar sem
barnadauðmn v.ar lágur fyrir eins
og t.d. í Finnlandi jókst hann á
ný 1957. Árið 1956 var barnadauð
inn í Finnlandi 25,4 af 1000, en
árið eftir 27,9. Lægstur er smá-
barnadauðinii í Hollandi, 17,2 og
þar næst í Svíþjóð', 17,4. í Sví-
þjóð var samsrvarandi tala árið
1948 23,2. Tilsvarandi tölur um
barnadauða í öðrum löndum:
Ástralía 21,4, Svissland 22,9, Stóra
Bretland 23,9 og Nýja Sjáland
24,3.
Meginútgjöld manna
til matar
Malur er mannsms megin, einn-
ig hvað sneitir útgjöldin. 1 Níg-
eríu nota menn að meðaltali 7I7o
urinn hefir lagt á þaö höfúð
áherzlu að fullkomin sam-
staða væri með öllum flokk
um í þessu máli. Honum var
ljóst, að löng þögn af hálfu
Alþingis og íslenzkra stjórn-
arvalda, einkum nú eftir
stjórnarskiptin, gæti orðið
málstað þjóðarinnar hættu-
leg og túlkúð erlendis á þá
lund, að eitthvert lát væfi á
íslendingum, og gæti það
haft m. a. þær afleiöingar,
að Bretar hertu ofbeldisað-
gerðir sínar.
Þess vegna taldi flokkurinn
nauðsyn á skýlausri yfir-
lýsingu Alþingis. En hann
taldi réttara að hreyfa því
máli í utanríkismálanefnd og'
ná um orðalag tillögunnar
samstööu, fremur en kasta
henni inn í þingið með þá
hættu í för að togstreita yrði
þar um máliö.
Nú hefir orðið fullt sam
komulag um orðalag tillög-
unnar, og ber mjög að fagna
því. Þjööin stendur sem
einn maður að þessari yfir-
lýsingu, og nú ætti Bretum
og öðrum þjóðum að vera
það fullljóst, að íslendingar
hvika ekki um hársbreidd frá
rétti sínum í þessu máli. Of-
beldið mun allra sízt breyta
nokkru í því efni.
60 miíljónir sjónvarpstækja — Barna-dauSinn
lækkar — Bretar mestir bíaÓaíesendur :—
Isiand íramaríega í hagnýtingu hveraorkunnar
— SaltframleiíSsIa og þungt vatn á Islandi
aí tekium sínum til matar og tób-
aks. Lifsnauðsyniar kosta nienn að
meðaltali 57% ai' tekium i Ghana
og Kóreu. í Svíþjóð, Norcgi, Stóra
Brotlmdi, Belgíu, Holland; og Lúx
emborg fara 27% af tekjum
manna til kauna á lífsnauðsynjum.
I Bandarikjunum 23%, Kanada
23% og Ástralíu 34% af tek.iun-
um.
Hagskýrslúrnar geta einnig um
lne.margar hitaei.ningar nienn fái
í mat sírium að meðaltali í lnnuin
ýrrLsu löndum heims. Í Danmörku,
Noregi, Finnlsndi og á íslandi fá
meom 30Ö0 . hitaeiningar daglega
og 2800—3000 í Svíþióð. Sama er
að se.gia um Stóra-Bretland, Svi.vs,
Band.aríkin, Kanada,. írland og
Ástralíu. En í Indlandi og á Fil-
ippseyjum er hitaelningatalan,
sem menn fá daglega í mat sín-
ttm innan við 2000. í þessum lönd-
um fá merin að'eins 6Ö grömm af
eggjahvítu í mat sínum daglega.
Ef reiknað ér í kjöti þá koma 2
kg að meSaltali á mann allan árs-
ins hrtng á móti 100 kg á mann
í kjötframleiðslulöndunum, t.d.
Ástralíu og Argentínu.
Heimspekibækur vinsælar
í Japan
I hagskýrsluárbók Sameinuðu
þjóðanna eru skýrslur um fjölda
lækna, tannlækna, lyfjafræðinga
og ljósmæðra í nær öllum löndum
heims. Þá eru upplýsingaT um
bókaútgáfu, þýðingar, dagblaða-
fjölda og tímarita, útvarpsstöðvar
og viðtækjafjölda í hverju laridi
fyrir sig. Einnig eru birtar skýrsl-
ur um fólksfjölda, atvinnu- og at-
vinnulcysi, framfærslukostnað.
Lesa má um fjölda sjónvarps-
tækja í hverju landi og t.d. að á
árunum 1951—1957 fjölgaði sjón-
vairpstækjum í Bandaríkjunum úr
15,8 milljónum í 47 milljónir og
í Englandi úr 1,16 milljónum i
7,76 milljónir tækja. Þessar tvær
þjóðir höfðu samtals 86% alira
sjónvarpstækja í heiminum.
Bretar eru enn mestu blaðales-
endur heims því þar í landi koma
út 573 blaðaeintök fyrir hverja
1000 íbúa. Svíar koina næstir
með 462 eitntök á hverja 1000,'
Danir 376 og Norðmenn 374.
I Japan eru gefnar út fleiri
bækur um heimspeki en í nokkru
öðiu landi veraldar. 1 Indlandi
flestar bækur um trúarbrögð, en
Bretar eru sú þjóð er gefur úit
flestar bækur um vísindaleg efni.
Isiand framarlega í hag-
nýtingu hveraorkunnar
Möguleik'ar til hagnýtingu hvera
orkunnar á íslandi eru nefndir í
nefndarskýrsilu alþjóðaséírfræð-
inga, sem ran nsakað hafa hagnýt-
ingu nýrra orkuliinda í heiminum
á vegum Sameinuðu þjóðanna.
Skýrsla þessi hefir verið lögð
íyrir Efnahags- og félagsmálaráð
Sameinuðu þjóðannia, sem kom
saman tii þinghalds fyrir skömmu
í Mexíkóboi-g.
Meðal annars er á það bent í
skýrslunni, að fyrir aðeins fjór-
um árurn hafi ítalir verið eina
þjóðin í heiminum, sem beizlað
hafði hveragufu til orkufram-
ieiðslu. Nú hafa bæði Sovétríkin
og Nýja Sjáland nýtt hveragufu
til orkuframleiðslu og fleiri þjóð-
ir hafa ráðagerðir á prjónunum
um að hagnýta hveragufuna betur
en hin.gað til hefiir verið gcrt.
Salfframleiðsla og þungt
vafn á íslandi
íslenzkur jarðhitasérfræðingur
(Gunnar Böðvarsson verkfræðing-
ur) hefir rannsakað jarðhitasvæði
í Mexíkó og í Vestur-lndlands-
cyjum fyrir. tilstilli Tækhiiaðstoð-
ai Sameinuðu þjóðanna, Árangur
inn af þeim rannsóknum er nú að
koma í ljós i því, að jarðhitinn
á þessum stöðum verð'ar nú beizl-
sður.
Á íslandi, segir í. skýrelunni,
þar sem menn hafa um. niargra
ára skeið nýtt hveravatn'.tií eipp-
hitunar ibúðarhúsa, -gróðurhúsa
og til sundiauga, er .nú yer.ið að
undirbúa hagnýtingu hveragufunn
ar sem aflgjafa. Meðal annars er
í ráði að nol-a hveragufp 4il að
framleiða salt. lir sjó, ep íslend-
ingar nota mikið af aðfluttu salti
í fisk sinn. Einnig eru uppi ráða-
gerðh' um framieiðslu þungs valns
á ísla.ndi og gæti komið til mála
að nota hyeragufu til jK's.s.
Alþjóðlegur fundur uom
nýjar orkulindiir
Auk hveraorkunnar ' fjallar
skýrsla' sérfræðingan.n'a um hag-
nýtmgu sólarhitans og aCl vinda
loftsins. Skýrslan verður nú send
til aðalforstjóra Sameinuðu þjóð-
anna Dags Hammarskjölds með
tillögu frá Efnahags- og félags-
málaráðinu, að boðað verði til al-
þjóðaráðstefnu á vegum Samein-
uðu þjóðanna til þess að ræða
um nýtingu n.ýrra orkulinda í
heiminum.
Alþjóðaráðstefna fiskvesðá-
samvinnufélaga
Pagana 12. til 21. maí n.k. verð
ur haldin alþjóðleg ráðstefua fisk
veiði-samvinnuféliaga. Ráðsitefnan,
sem haldin er íyrir tilstilli. Mat-
væla- og iandbúnaðarstofnu nar
Sameinuðu þjóðaimna (FAO) fer
fram í Napólí á Ítalíu.
Búizt er við fulltrúum víða að
til ráðstefnunnar, þar sem mikill
áhugi er ríkjandi fyrir samvinnu-
félags'skap um fiskveiðar. .
Framkvæmdastj óri ráðstefnu n n
r.r, Colin Beever, telur að mikið
gagn kunni að verða af því, að
menn beri samau bæktir sínar og
ræði um reynsiu sína í; þessu
efni.
samvinnufélaga
Finnland hefir gerzt aðili að al-
þjóðasamþykkt Sameinuðu þjóð-
anna, sem baniiua hvers- konar
þrælahald. 26 þjóðir hafa til
þessa gerzt aðilar að samþykkt-
inni en 20 undirritað haiiia.
Noregur er þrítugasta laJidið,
sem gerist aðiili að alþjóðasam-
þykkt Menntuniar, menningar- og
vísindastofnunar Sameinuðu þjóð-
anna — UNESCO — um niður-
færslur eða afnám tolla af bókum
og öðru menntarndi upplýsinga-
'efrii.
Kaupstefna Parísar
borgar 1359
Fertugasta og átt'unda Kaup-
stefna Parísanborgar verður liald
in frá 1. til 18. maí 1959. Við það
tækifæri munu koma saman yfir
13 þús. sýnendnr. Meir en 3 þús.
sýnendur eru frá öðrum löndum
en Frakklandi.
í öllum deildum Kaupstefnunn
ar fyrirfinnast ótal nýjungar, eink
um í bygigingarlist, húsgagnasmíði,
trésmíðavélum, leikfangagerð,
málmbræðslu, fyrirkomulagi á ný
tizku skrifstofum, útilegubúnaði
og tónlist. Þessi háþróaða fram
leiðsla, sem á boðstólum er,
gerir það að verkum, að hi« al-
þjóðlega kaupstefna Parísarborgar
uppfyllir nú, eins -og áður, þær
vonir, er við hana eru bundnar.