Tíminn - 19.06.1959, Side 7
1 M I N N, föstudaginn 19. júní 1959.
7
Pétur Sigfússon frá Halldórsstöðum:
„Segið þjóðinni sannleikann
u
1. Óla.ur Thors krefst þess að
sagður sé sannleikurinn einber, —
lunnið fyrir sannleikann og
tryggður sess hans.
2. Jóhann Hafstein segir: „Eg
leyfi mér að segja, að það er ó-
hjákvæmilegt að hætta að blekkja
fólkið“. —----„Við þurfum nýjar
og mannsæmandi leikreglur í
stjórnrnálabaráttunni." |
3. Ólafur Björnsson setti ofaní
við fyrrverandi ríkissjórn, fyrir
blekkingar.
4. Emil Jónsson segir: „Eg vil
ætla að mörgum þyki það heiðar.
legra, að ganga beint framan að
mönnum og segja hvers sé þörf.“
etc. — „heldur en hitt, að læð-
ast aftan að fólki.“
5. Björn Ólafsson krefst: „Segja
þarf þjóðinni sannleikann umbúða
!aust.“
6. Höfundur Staksteina, sem okk
ur er sagt að sé Bjarni Benedikts.
son, sonur Þingeyingsins Bene.
dikts Sveinssonar, fyrrverandi al-
þingisforseta o.g landvarnarhetju
segir: „Skröksögur og rógur er til
skammar hverjum þeim, sem gerir
sig sekan um slíkt.“
Hér ganga fimm leiðtogar Sjálf.
stæðisflokksins með kröfuspjöld,
sem sannarlega eru þess verð að
eftir þeim sé tekið. Inn á milli
þeirra er svo sjálfur forsætisráð-
'herra íslands, Emil Jónsson með
fremur lítið spjald, og þekkist það
kröfuspjaldið ekki úr í göngunni
að þessu sinni, enda kannski ekki
von, því hann mun þurfa að vera
sem samlitastur verndurum sínum
nú, á hinum „nýjustu og beztu“
tímum í ævi hans, enda er hér um
að ræða mjög.„mannsæmandi“ og
athyglisverðar kröfur, sem hæfa
vel hvaða stjórnmálaleiðtoga sem
er — ef hann stílar þær til sjálfs
sín jöfnum höndum og til andstæð.
inga sinna.
— Og í trausti þess ætlum við
nú — þessi þrjú — að snúa okkur
beint að alvörumálunum. í leiðara
Moggans þ. 18. janúar sl, rákum
við okkur á mjög eftirtektarverða
setningu. „Hún hljóðar svo: „Al-
menningur fylgir Sjálfstæðismönn
um, ekki vegna þess að þeir hafi
reynzt honum illa, heldur af því,
aö þeir hafa reynst honum vel.“
Nú vorum við svo kúnstug að
telja sjálfsagt að „almenningur“
sá sem styður Sjálfstæðisflokkinn
og lær honum atkvæði, væru
„'Sjálfjtæðismenn", en það virðist
nú ekki þurfa að vera, — tegund.
irnar geta verið tvær, og munu
vera það. Önnur, „Sjálfstæðismenn
irnir“, sem ræður og stjórnar, út.
hlutar og veitir þ. e. „reynist vel“,
en hin „almenningurinn", sem
hlýðir, — þjónar og fylgir, og kýs,
oft fyrir margs konar annarleg at.
vik, sem við komum að seinna. —
Ja, — „svo lengi lærir sem lifir.“
Þetta er þá hin mikla réttlætisfylk
ing, hinn stórfenglegi sjálfstæðis
mannsöfnuður, sem heimtar „rétt“
sinn — fyrst og fremst siðferði-
legan — til þingfulltrúa í fullu
höfðatölusamræmi við hin löngu
staðfestu og rótgrónu^ kjördæmi
hinna dreifðu bygða íslands.
Við iþessar kröfur um „rétt“
hins stóra flokks er rétt að stanza
iítillega — og hugsa til kröfu.
göngumannanna sex, og allra
hinna mör.gu, ,sem þeir ætla að
„reynast vel“.
Við — þessi þrjú — teljum bæði
rétt og skylt að snúa okkur beint
til hinna sannleikselskandi kröfu-
manna og bera fram við þá nokkr
ar spurningar, því það er ekki að.
eins að okkur sé bráð nauðsyn að
fá þeim svarað, heldur er það
nokkurs konar sáluhjálparatriði
fjölda fólks1 á íslandi, þ. e. alls
þess „almehnings sem flokksmenn
irnir hafa í hendi sér — v.jlla um
með alls konar áróðri og ;-,láta
kjósa“ á einn og annan fullkom.
lega annarlegan hátt — löngum,
og „reynist vel“, — Undan þessum
Kröfuganga um „musteri sannleikans
u
ósköpum þarf „almenningurinn“
að losna. Fyrr getur hann ekki tal-
izt til frjálsra manna, þeirra, er
bera á herðum sér kosningarétt og
kjörgengi. Og hér eru spurning.
arnar:
1. Hversu margir eru hinir réttu
o.g hreinu Sjálfstæðismenn?
2. Hversu margmennur er „al-
menningur1 sá sem talinn er fylgja
gefur, ljær, eða veðaetur atkvæði
sín Sjálfstæðisflokknum við kosn.
ingar?
3. Kaupa „Sjálfstæðismennirn-
ir“ atkvæði almennings á einn og
annan hátt?
a) með gjaldi?
b) með vinnu eða vinnuloforð.
um?
c) með brennivíni eða slíku?
d) eru notaðar ógnanir um at.
vinnumissi eða t. d. uppljóstran-
ir? o. s. frv.
4 Hvernig stendur á því að Mbl.
flytur þ. .5. febrúar algerlega kinn
roðalaust, að því er virðist — svo-
hljóðandi Ávarp til Reykvíkinga:
„Vegna undirbúnings alþingis-
kosninga í vor munu fulltrúar
Sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík
leita til borgaranna um margvís-
legan stuðning og aðstoð eins og
jafnan áður. M. a. verður hafin
fjársöfnun í kosningasjóð með sér
stökum hætti, en fulltrúaráð Sjálf
slæðisfélaganna hefir forgöngu
um þessa söfnun og munu full.
trúar ræða tilhögun hennar við
hvern og einn eftir því sem atvik
standa til. Verður leitað eftir því
við þá, sem vilja styðja og styrkja
Sjálfstæðisflokkinn að þeir heiti
tilteknum mánaðargreiðslum í
flokkssjóð, fram yfir kosningar. —
Þess er vænst að hver og einn,
sem hefir áhuga og vilja til þess
að veita Sjálfstæðisflokknum
brautargengi, taki á sig nokkra
fjárhagslega skuldbindingu eftir
því, sem ástæður leyfa. Sam.
stæður vilji Sjálfstæðismanna er
sterkasta aflið í þeirri kosninga-
baráttu, sem nú fer í hönd.“
5 Hvað á að gera með féð sem
safnast? j
6. Eru það fulltrúaráð Sjálf.
stæðisfélaganna, þ. e. „Sjálfstæðis-
mennirnir“, sem veita þessu fé
mótttöku, og úthluta því?
Morgunbiaðshöilin.
7. Hverjum og hvernig er gerð
skilagrein þessarar stórkostlegu
fjársöfnunar?
8. Er það satt, sem borið hefir
verið fram á opinberum vettvangi
og stendur ómótmælt, að við höld.
um, að um kosningar og fyrir,
starfi í Reykjavík, ekki tugir, ekki
mörg hundruð, heldur þúsundir
launaðra kosnin.gasmala — þ. e.
útsendarar „mannanna“ .sem reyn-
ast „almenningnum vel“. Hvað
eru þessir menn að aðhafast ef
sannleikurinn er í fullum heiðri
hafður?
9. Er fjársöfnun slík, sem hér
um ræðir, og tilgangur hennar,
löglegt', mannsæmandi, drengilegt
lýðræðislegt og þjóðlegt athæfi?
10. Eiga ekki kosningar á fs.
landi að vera leynilegar, og eru
þær það ef útsendurum stjórn-
málafélaga er heimilt að fara hús
úr húsi og festa atkv. alls almenn-
ings fyrirfram með ýmis konar ann
arlegum meðulum t. d. eins og
spurt er um undir lið 3. hér að
framan?
11. Lítur sveitafólk á íslandi —
bændur — svona vinnubrögð bros
mildum vina-, tiltrúar- og réttlæt
isaugum?
12. Á ekki „almenningurinh“ ó-
skoraðan rétt á því að vera óáreitt
ur hvað síjórnmálaskoðanir snert
Framhald á 11. síðu
SJálfsagðasta kjördæmiö
Það hefir rekið hval á fjör.
ur hjá einni stétt í þessu þjóð
félagi og það er hjá blaða-
mönnunum. Kjördæmamálið
er meiri hvalreki á þær fjörur
en ég minnist að hafa heyrt
áður. Þó að ég sé á móti kjör
dæmabreytingunni, er ekki á.
stæða til að fara langt út í það
sem svo er þaulrætt. Mér Iief-
ir líka alltaf þótt heldur leið.
inlegt að taka í þyngri bagg.
ann, þegar hallast á trunt.
unni, og ég minnist varla að
liafa hlustað á málfærslu, þar
sem menn hafa verið eins kag
hýddir hæls og linakka á milli
eins og þeir menn, sem halda
með kjördæmabreytingunni.
Það er heldur ekki heigl-
um hent að halda fram röng.
um málstað, ef skeleggir
menn eru til varnar. Þó tek-
ur ut yfir, þegar verja á mál,
ef einu rökin í málinu eru
þannig, að það má ekki minn.
ast á þau, eins og hér á sér
stað. Aðeins hin ejnu rök fyr.
ir kjördæinabreytingunni eru
þau að efla flokksvaldið, og
auðvtiað stikla mennirnir í
kringum það eins og kettir í
kringum heitan graut, en í
þess stað eru þeir að búa til
liinar og aðrar forsendur til
að leggja út af, sem alls ekki
eru fyrir hendi, og sumar svo
fáránlegar, að engu tali tekur
eins og t. d. það, að sýsluskipt
ing á íslandi sé danskt fyrir.
bæri og því lítil eftirsjá að
henni. Ekki er nú söguþekk-
ingin á marga fiska, þar sem
þetta skipulag hefir verið að
smáþróast í þetta horf frá því
að Alþingi var stofnað 930
og fram á þennan dag. —
Minnsta félagseiningin í okk.
ar þjóðfélagi eru auðvitað
sveitarfélögin með sinn sam-
eiginlega fjárhag. Næst kem.
ur sýslan, venjulega skýrt af_
mörkuð af vatnsföllum eða
öðrum skýruin mörkum, sömu
leiðis með sérstakan fjárliag.
Þetta hefir líka fólk fundið á
umliðnum öldum, að er eðli.
leg skipting. Sveitungar eru
tengdir nánustum böndum og
sýslungar koma næst, eða
hvað um öll átthagafélögin í
höfuðstaðnum? Það eru menn
úr sömu sýslu, sem mynda
með sér félag, af því að þeir
finna skyldleikann. Það er kát
legt, að inenn skuli deila um
svona augljósan hlut.
Sýslan liefir þótt, og er það
sjálfsagðasta kjördæmi, sem
fundið hefir verið, enda veit
ég ekki til þess, að sveita-
menn hafi kvartað undan
þessari skipan málanna. Sann
Ieikurinn umbúðalaus er
þetta: Það eru nokkrir óvitar
og ófy~irleitnir flokksforingj.
ar í Reykjavík, sem liafa kom
ið þessu fargani á stað, þvert
ofan í vilja þeirra, sem eru í
kjördæmunum. Finnst bænd-
um ekki skönnn að því, að
láta ekki merkilegri perónur
en Bjarna Benediktsson og
Ólaf Thors etja sér saman
eins og kapalhestum uin mál,
sem enga úrslitaþýðingu get.
ur haft á gang þeirra mála,
sem nú eru mest aðkallandi?
Finnst bændunum sjálfum, að
þeir séu aðeins kalineyrðir
öræfagemsar, sem flokksfor.
ingjar í Reykjavík geti réttað
eins og hverju öðru óskilafé?
Spyr sá, scm ekki veit.
(Úr grein eftir Helga Har.
aldsson, Hrafnkellsstöðum).
Á víðavangí
Verk vinstri sfjórnarinnar
Vegna sífelldra rógskrifa í-
haldsblaðanna um vinstri sljófn.
ina, þykir rétt að rifja upp eför-
greindar staðreyndir:
Skýrslur Efnahagsmálastofn.
unar Evrópu sýna, að íslending.
ar bjuggu í tíð hennar við bezt
lífskjör allra þjóða í Evrópu.
Aðstaða sjávarútvegsnus var
stórkostlega bætt með hækkun
fiskverðsins. Útgerðin var rekin
stöðvunarlaust í fyrsta sinn iiiii.
langt skeið. Sjómönnum fjolgaði
að nýju vegna bættra kjara.
Fiskiskipastóllinn var stórauk.
inn.
Framfarir á sviði landbúnaðar-
ins urðu enn meiri en þær höfðu
nokkru sinni áður verið. Ekki
sízt ber að nefna nýt’t átak, sem
var gert til að stækka liin minni
býli.
Á sviði iðnaðar og rafvæðing.
ar voru unnin hin stærstu verk.
Lokið var smíði Sementsvérk.
siniðjunnar og hafizt handa um
byggingu nýrrar stórvirkjunar
við Sogið. Meiriháttar orkuver
voru reist á Vestfjörðum og Aust
urlandi. Margvíslegur iðnaður
var efldur, ekki sízt fiskiðnaður
inn.
Séjrstakar ráðstafanir vlom
gerðar til að auka atvinnu í þorp.
um og bæjum út um land.
f Reykjavík var gert stærra
átak en nokkru sinni áður til að
útrýma liúsnæðisleysinu meS
byggingu nýrra íbúða.
Síðast en ekki sízt, er svo
að nefna stærsta verk stjórnar-
innar, útfærslu fiskveiðilandhelg
innar, sem augljóslega liefur
bjargað vetrarvertíðinni að þessu
sinni.
Góður viðskilnaður
Þrátt fyrir þennan árangur af
stefnu vinstri stjórnarinnar, var
viðskilnaður hennar hagstæðari
en hjá nokkurri annarri ríkis.
stjórn um langt skeið.
Ríkið skilaði mjög sæmilegum
tekjuafgangi á árinu sem leið.
Útflutningssjóður liélt vel í
horfinu.
Afkoma sjávarútvegsins var
með allra bezta móti á síðastl.
ári. Togaraútgerðin var rékin
með hagnaði í fyrsta sinn' lim
langt skeið.
Við síðustu áramót voru fisk
birgðir í landinu með mesta móti
og mun það mjög bæta gjaldeyris
afkomuna út á við á þessu.ári.
Samkvæmt áliti helztu liag
fræðinga Sjálfstæðisflokksins,
sem var birt í desember síðastl.,
var hægt að halda hinum blóm.
lega rekstri framleiðslunnar á-
fram, án allra nýrra skattaálaga,,
ef tekin væri aftur sú 6% kaup.
hækkun, er Sjálfstæðisflokkur.
inn og fylgifiskar hans höfðu
knúið frarn á síðastl. sumri.
Slæm umskipti
Alþýðustéttir landsins thafa
vissulega mikla ástæðu til að
harma verk þeirra manna, sein
áttu mestan þátt í því að fella
vinstri stjórnina.
Afleiðingar þess óhappaverks
blasa nú svo glöggt við.
Lífskjörin hafa óneitanlega
farið versnandi síðan Sjálfstæðis
flokkurinn tók við stjórninni í
nafni Alþýðuflokksins. Verðlag
hefir staðið í stað eða hækkaffi
verulega, — þegar undan eru
skildar niðurgreiðslurnar, sein
fólkið verður að borga aftur,—
en kaupið hefir stórlækkað.
Framkvæmdirnar eru einnig
byrjaðar að dragast saman. Fram
lög hins opinbera til verklegra
framkvæmda hafa verið verulega
lækkuð. Miklu minni bygginga.
framkvæmdir eru nú í Undir-
búningi en verið hefir um lang't
skeið. Ef þannig heldur áfram,
er atvinnuleysi á næstu grösum.
Ef þjóðin vill stöðva þessa
öfugþróun, liefir hún ekki nema
eitt ráð. Ráðið er að hnekkja
völdum og áhrifum Sjálfstæðis.
flokksins og fylgifiska hans, én
efla þann flokk, sem einn stóð
óskiptur um framfarastefnu
vinstri stjórnarinnar, Frámsókn.
arflokkinn.