Tíminn - 22.07.1959, Side 6
s
T f M I N N, miðvikudaginn 22. júli 1059.
Uli
Útgefandi: FRAMSÓKNARFLOKKURINN
Ritstjóri: Þórarinn Þórarinsson.
Skrifstofur í Edduhúsinu við Lindargötu
Símar: 18 300, 18 301, 18 302, 18 303, 18 305 og
18 306 (skrifst., ritstjórnin og blaðamenn).
Auglýsingasími 19 523. - Afgreiðslan 12 323
Prentsm. Edda hf. Sími eftir kl. 18: 13 948
Blekkingin mikla
í FORYSTUGREIN Mbl.
í gær, er rætt um aukaþingið,
sem hóf störf sín í gær, og
lögð á það megináherzla, að
kjörd.æmamálið verði höfuð-
verkefni þingsins. í Reykja-
víkurbréfi Mbl. var enn
lengra gengið, því að þar var
svo komizt að orði, að óeðli-
legt væri, að þingið tæki fyr
ir önnur mál en kjördæma-
málið, þar sem kosningarnar
hefðu snúizt um_ það mál
fyrst og fremst.
Hjá því getur varla far-
ið, að margir þeirra kjós-
enda, sem kusu Sjálfstæðis-
flokkinn 28. júní síðastl.,
verði nokkuð mikið forviða,
þegar þeir lesa þessi ummæli
Mbl. Svo gersamlega stinga
þau í stúf við það, er for-
kólfar flokksins sögðu fyrir
kosningarnar.
ÞAÐ var höfuðuppistað-
an í áróðri íhaldsforingjanna
fyrir kosningarnar að kjósa
ætti um flest mál önnur en
kjördæmamálið og þó fyrst
og fremst um herópið:
Aldrei aftur vinstri stjórn.
Á þennan og annan hátt, var
reynt að draga athygli
manna frá því, að kosning-
arnar snerust um kjördæma
málið fyrst og fremst, eins
og stjórnarskráin mælti þó
fyrir. Þegar Tíminn birti þau
ákvæði stjórnarskrárinnar,
er fjalla um þetta atriði,
brást Mbl. hið versta við og
rak upp mikið óp um það, að
Timinn gerði þetta til að
komast hjá því, að kosið væri
um verk vinstri stjórnarinn
ar, sem kosningarnar ættu þó
að snúast um fyrst og fremst.
Menn geta leitað með log-
andi ljósi á síðum Mbl. frá
þeim tíma, sem kosningabar
áttan stóð yfir, og þeir munu
ekki finna þar nein ummæli
um það, að næsta þing eigi
aðeins að fjalla um kjör-
dæmamálið og því eigi kosn
ingarnar að snúast um það.
Menn munu hins vegar finna
fjölda ummæla um, að kosn
ingarnar eigi frekar að snú-
ast um flest annað en kjör-
dæmamálið.
NU er hins vegar komið
annað hljóð í strokkinn í
Mbl. Nú á þingið eingöngu
að fjalla um kjördæmamál-
ið. Nú eiga kosningarnar að
hafa snúizt um kjördæma-
málið fyrst og fremst. Nú er
talið, að allir þeir kjósendur,
sem kusu þríflokkanna 28.
júní, hafi gert það til að
lýsa yfir fylgi sínu við kjör-
dæmabyltinguna, enda þótt
þeir gerðu það vegna þess
áróðurs aö kjósa ætti um önn
ur mál miklu fremur, eins og
t.d. afstöðuna til vinstri
stjórnarinnar. Allir þeir
kjósendur, sem voru andvígir
kjördæmabyltingunni, en
kusu samt þríflokkana vegna
framangreinds áróðurs, fá
nú að sjá svart á hvítu, hve
herfilega þeir hafa verið
blekktir. Nú er talið, að þeir
hafi verið aö lýsa stuðningi
við kjördæmabyltinguna, er
þeir kusu þríflokkanna vegna
þess áróðurs, að kjósa ætti
um allt önnur mál.
EF kjördæmabyltingin
verður knúin fram á þessu
þingi, gerist það eingöngu
vegna þess, að þriflokkunum
— og þó Sjálfstæðisflokkn-
um fyrst og fremst — tókst
í kosningunum 28. júní að
blekkja kjósendur með þeim
áróðri að kjósa ætti miklu
fremur um önnur mál en
kjördæmamálið. Það verður
í skjóli þeirrar stórfelldu
blekkingar, sem kjördæma-
byltingin hefst fram, ef þrí-
flokkarnir láta sér ekki
segjast, þrátt fyrir þá miklu
andstöðu, er hún hefur
mætt.
Fyrir kj ósendur hlýtur
þetta að verða mjög lær-
dómsríkt um vinnubrögð þrí
flokkanna og þó Sjálfstæðis
flokksins fyrst og fremst. —
Þeir hafa hér glöggt dæmi
um þá stórkostlegu blekk-
ingastarfsemi, sem sá flokk-
ur rekur fyrir kosningar, og
hvernig hann snýr svo alger
lega við blaöinu eftir þær.
Það mun áreiðanlega verða
þeim til aðvörunar um að
treysta ekki loforðum hans
og málflutningi of vel, þeg-
ar hann fer aftur á stúfana
fyrir næstu kosningar. Og
ekki ættu andstæðingar kjör
dæmabyltingarinnar að
verða fúsari til stuðnings
við þríflokkanna eftir en
áður, þar sem henni hefur
þá verið hrundið fram í skjóli
einhvers mesta blekkinga-
starfs, er íslenzk saga þekk-
ir.
AukaJnngiS og
Hér í blaðinu var því haldið
fram fyrir kosningarnar, að
þær ættu samkvæmt fyrir-
anælum stjórnarskrárinnar að
snúast um kjördæmamálið
fyrst og fremst, og störf
næsta þings hlýtur því að
snúast um það öðrum mál-
um fremur.
En þótt aukaþingið eigi
einkum að fjalla um kjör-
dæmamálið, hlýtur það einn-
ig að sinna öðrum aðkallandi
málum. Þar kemur land-
helgismálið í fyrstu röð. AI-
þingi, sem er nýkjörið, verð-
landhelgistnáiiS
ur að gera grein fyrir af-
stöðu sinni til þess máls.
Það verður að árétta, að
stefnan í því máli sé óbreytt.
Það verður að gera sitt til
þess að kveða niður þann á-
róður í erlendum blöðum, að
íslendingar geti hugsað sér
eitthvert undanhald í land-
helgisdeilunni.
Á seinasta þingi náðist al-
gert samkomulag milli flokk
anna um yfirlýsingu í land-
helgisdeilunni. Vonandi verð
ur sú raunin ennig á þessu
þingi.
VÍÐSJÁ: ...
111111111111111111 ■ 11 ii 11111111111 ■ 111111111111111 ■■ 11111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111,1111111111 m 1111111*
Japanar rétta ilr kútnum
Japanskra vara gætir æ meira á markafönum — einkum í Evrópii
| EFNAHAGSSÓKN Japana á
| heimsmarkaðinum hefur löng-
1 um verið öðrum iðnaðarþjóðum
= þyrnir í augum. Eihmitt um
I þessar mundir eru Japanar að
| lyfta grettistökum á þessum
1 vettvangi, þrátt fyrir harða sam
| keppni frá hinu kommúnistíska
| Kína á markaðinum í Suðaust-
| ur-Asíu.
1 Stefna Japana fyrir styrjöld-
| ina gagnvart Asíu mótaðist af
= hinni ríku þörf landsins fyrir
H hráefni og samsvarandi þörf fyr
1 ir örugga markaði fyrir iðnað-
| arvörur á meginlandinu. Með
I heimsvaldastefnu sinni heppn-
| aðist Japönum sem kunnugt er,
1 að ná stórum landsvæðum und-
| ir vald si-tt og innlima heil ríki
1 í efnahagskerfi sitt, meðal ann-
i ars Mansjúríu.
ALLT ÞETTA gekk þeim úr
1 greipum við ósigurinn 1945 og
i Japan var takmarkað við eyj-
1 arnar, hið eiginlega Japan. Á
1 Bandungráðstefnunni 1955
| iögðu þeir fram tillögur sínar
| um sameiginlega efnahags-
| stefnu fyrir hin vanþróuðu lönd
| Asíu. Lögðu þeir til að sameig-
i inleg fjárfesting þessara ríkja
| gengi í gegnum aðalbanka í
1 Tokíó, japanskii- tæknifræðing-
| ar og vísindamenn yrðu sendir
| til þessara landa, og buðu auk
| þess fram tilboð um japönsk
| lán. Heimsvaldastefna þeirra
| var þá mönnum enn fersk í
| minni og tillögur þeirra hlutu
= ekki byr á ráðstefnunni. Síðan
| hafa þeir aukið og endurbætt
| þessar tillögur sínar og tekið
5 upp fordæmi Evrópuþjóða og
| stungið upp á sameiginlegum
| markaði Ásíu, með Japan sem
| efnahagssterkasta rikið, líkt og
= Þýzkaland á hinum sameigin-
i lega markaði Evrópu.
i Á síðustu árum hafa Japanar
1 einnig veitt fjölda ríkja Suð-
| austur-Asíu efnahags aðstoð, en
| með því hyggjast Japanar ætla
| að tryggja iðnaðarvörum sínum
I markaði og öðlast að nýju fót-
| festu á meginlandi Asíu.
MARGAR ÁSTÆÐUR liggja
i að þessari stefnu Japana. Þeir
| eru mjög háðir utanríkisverzl-
= un og útflutníngi iðnaðarvara.
i Þeir verða að kaupa hráefni
i sín inn í stórum stíl. Aðallega
í ílytja þeir inn frá_ Bandaríkj-
| unum, Kanada, Ástralíu og
| Vestur-Þýzkalandi eða löndum
I með stöðugan gj-aldeyri og hátt
| verðlag, en útflutningsvörur
i Japana fara til landa með óstöð-
111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111
ugan gjaldeyri og lægra verð-
lag. Það er því ekki að undra,
þótt Japanar vilji veita hinum
vanþróuðu löndum lækni og
efnahagsaðstoð í því augnamiði
að sjálfsögðu að afla sér ódýr-
ari hráefna.
SAMHLIÐA ÞESSU reyna
Japar.ar að auka útflutning iðn-
aðarvara til annarra hluta
heims, t. d. Evrópu, og hinnar
japönsku samkeppni hefur orð
ið vart á flestum sviðum allt
frá leikföngum til hafskipa.
Menn ásaka Japana fyrir „dump
ing“, þ. e. að selja útflutnings-
vörur sínar undir kostnaðar-
verði, en það sést strax að er
rangt, ef borið er saman verð
þessara vara á innanlandsmark-
aðinum í Japan og verð þeirra á
markaðinum í Evrópu. Þeim
verður einkum vel ágengt með
eftirlíkingar sínar á evrópskum
og amerískum vörum, því að
þar hafa þeir upp á að hlaupa
hin lágu laun og framleiðslu-
kostnað í Japan.
Japönskum iðnaði hefur
fleygt fram eftir styrjöldina, og
aukning þjóðarframleiðslunnar
hefur orðið ótrúlega ör. Aukn-
ing á þjóðarframleiðslu Japana
hefur stigið úr vísitölu 100 árið
1950 í vísitölu 228 árið 1956.
Á sama tíma kcmst Vestur-
Þýzkaland í 199 stig, og hefur
framþróun Vestur-Þjóðverja þó
þótt saga til næsta bæjar, svo
menn skilja gjörla hve Japanar
hafa tekið hraustlega á.
EN JAPANAR EIGA skæða
keppinauta í Suðaustur-Asíu.
Kína hefur stöðugt verið að
Kishi, forsætisráðherra Japans.
iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiin iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuioiiimi
vinna á í samkeppninni um =
markaðinn í Ásíu, Einkum hafa |
Japanar farið halloka fyrir Kín- |
verjum um verzlun vefnaðar- |
vara, en Kínverjar búa sig und- |
ir nýja sókn með vélar og önn- §
ur framleiðslutæki. I
Japanar horfast því í augu =
við geysilega erfiðleika á næstu =
árum. |
ÞETA HEFUR HAFT sín á- I
hrif á stjórnmálin í Japan. Ekki I
hefur verið unnt að ná sam- =
komulagi við Kínverja, því að i
þeir setja ákveðnar pólitískar =
kröfur fram um hlutleysi Jap- |
ans ef af samstarfi á að verða. =
Evrópuríkin hafa hvatt Japana f
til að hækka vinnulaun verka- |
manna og auka þannig kaup- i
getu almenning og þar af leið- |
■andi innanlandsmarkaðinn, en 3
hin íhaldssömu öfl landsins |
hafa skellt við því skollaeyrum. |
Verkalýðssamtökin eru hins 1
vegar vinveitt kommúnistum a
og heimta hærri laun og betri |
kjör, uppsögn varnarsamnings- |
ins við Bandaríkin og samstarf 1
og samband við Kína. i
AF ÞESSU SEM HÉR hefur í
verið sagt um þróun mála og |
ástand í Japan, verður mönnum i
ljóst, að Japanar eiga við örlaga =
þrungna erfiðleika að etja ekki 1
síður á pólitíska sviðinu en |
hinu efnahagslega. Aðstaða |
þeirra er erfið, en hagur þeirra |
mun líklega samt fara vaénk- i
andi, ef ríkjandi ástand helzt, |
enda eiga þeir góða möguleika |
á mörkuðum utan Asíu. En |
hvernig sem þróunin verður í =
Japan á komandi árum, er 1
nokkurn veginn óhætt að full- |
yrða, að Japan muni aldrei f
verða aftur hið sterka forystu- f
ríki Asíu eins og það var fyrir f
styrjöldina. i
GREIN ÞESSI er lauslega i
endursögð úr Politiken og skrif- 1
ar hana hinn kunni blaðamað- |
ur John Danstrup. Greinin er f
athyglisverð fyrir margra hluta f
sakir, og sýnir okkur ljóslega, i
hve þau ríki, sem byggja af- =
komu sína á útflutningsverzlun, f
eru háð mörkuðum sínum, f
verða að gæta þeirra vel, og f
hafa úti aliar klær til að afla i
sér nýrra. íslendingar eru einn- =
ig mjög háðir erlendum mörk- f
uðum, og hafa ef til vill ekki f
gætt þeirra sem skyldi, eða f
lagt nógu ríka áherzlu á að i
vinna sér nýrra og traustra f
markaða. i
Sinfóníuhljómsveitin komin heim
Tónleikaför Sinfóníuhljómsveit'-
ar íslands um Norður- og Austur
land lauk með tónleikum í sam-
komuskálanm í Vémörk í Egils-
staðaskógi föstudagskvöldið 17.
júií. Fyrr um daginn hafði hljónt
sveitin leikið fyrir heimamenn á
Eiðum og fólk úr nágrenninu í
þakklætisskyni fyrir þá velvild
Þórarins Þórarinssonar iskóla-
stjóra að skjóta skjólshúsi yfir
hljómsveitarmenn, meðan þeir
dvöldust á Austurlandi. Tónleik-
ana á Eiðum.sóttu allir á istaðn-
um svo og fólk af flestum bæjum
í Eiðaþinghá, alls á annað hundr-
að rnanns, og voru þeir þó haldnir
á miðjum virkum degi og í brak-
andi þerri. Ármann Ilalldrósson,
kennari flulti hljómsveitinni þakk
ir áheyrenda og árnaði henni farar
heilla. — Tónleikarnir í Egilsstaða
skógi voru einnig mjög vel sóttir,
og voru meðal áheyrenda allmarg
ir, sem einnig höfðu sótt tónleik-
ana að Eiðum fyrr ttm daginn. —
Undirtektir voru á báðum stöðum
ágætar. Að loknum tónleikunum
í Egilsstaaðskógi bauð Sveinn Jóns
! son bóndi á Egilsstöðum öllum
j hijómsveitarmönnum til kaffi-
drykkju, en síðan var flogið til
|Reykjavíkur um nóttina.
Þriðjudaginn 14. júií voru tón
leikar haldnir í barnaskólanum í
Neskaupstað. Þeir voru fjölsóttir,
þrátt fyrir mikið annríki við síldar
og fiskvinnslu, og undirtektir frá-
bærar. Bjarni Þórðarson bæjar-
stjóri ávarpaði hijómsveitarmenn
í lok tónleikanna og framkvæmda
stjóri hljómsveitarinnar þakkaði
, með nokkrum orðum sérlega rausn
; arlegar móttökur. Menningarnefnd
. Neskaupstaðar bauð hljómsveitar ]
: mönnum til kvöldverðar, áður en
tónlcikarnir voru haldnir, og bauð
Jón Karlsson, varaformaður nefnd
arinnar, gestina velkomna, og að
tóleikunum loknum þágu þeir
kaffi, áður en ekið var að Eiðum
til gistingar.
j Næsta dag voru tónleikar í sam
komuhúsinu Herðubreið á Seyðis-
firði. Að þeim loknum bauð
bæjarstjórn Seyðisfjarðar til kaffi
drykkju og fluttu þar ávörp Gunn
þór Björnsson bæjarstjóri og
Steinn Stefánsson skólastjóri. —
'Fimmtudaginn 16. júlí voru tón-
leikar í Félagslundi á Reyðarfirði
kl. 7 um kvöldið og í Valhöll á
'Eskifirði kl. 10. — í lok tónleik-
anna á Eskifirði flutti Kristján
Ingólfsson skóla.stjóri ávarp, og
síðan þágu hljómsveitarmenn
kaffiboð Tónlistarfélags Eskifjarð
ar. Allir þessir tónleikar voru vel
sóttir, nema tónleikarnir á Reyðar
firði, sem voru á mjög óheppileg-
um tíma, og undirtektir áheyrenda
undantekningarlaust ágætar.
Þetta er önnur meiri háttítf tón
leikaför Sinfóniuhljómsveitarinn-
■ar til Norður- og Austurlands. —
Hin fyrri var farin sumarið 1957,
og voru þá heimsóttir margir sömu
staðir og nú. Viðíist hvar var að*
sókn meiri nú en þá, nema sér-
stakar atvinnuástæður hömluðu,
og munu fáir, sem sóttu tónleik-
ana í fyrra skiptið, hafa setið sig
úr færi H5 hlýða einnig á hina
fFranihald á h mðu),