Tíminn - 20.08.1959, Blaðsíða 10

Tíminn - 20.08.1959, Blaðsíða 10
10 T í M I N N, fimmtudaginn 20 ágúst 1959, Vestmannaeyjar og Akureyri keppa til úrslita IBV vann Reyni 3—0 Fáir af þeim 4—600 unn- eiidum knattspyrnunnar, er komu til a?5 sjá Vestmanna- eyinga og Sandgei'Singa keppa til undanúrslita í 2. dcildarkeppninni munu hafa gengið frá því sem vísu fyrir leikinn að Vestmannaeyingar myndu fara með sigur af hólmi. Flestir bjuggust við sigri Sandgerðinga. Að visu var lítið vitað um styrk Vest- mannaeyinga, því lítið hafði heyrzt um keppni þeirra sem gætu borið um styrkleika þeirra. Aftur á móti eru Sand- gerðingar mjög keppnisvanir og hafa oft staðið sig með hinni mestu prýði. Fyrstu mír.útur le;l;sins ætluðu að sanna þetta álit meginþorrans. Þá voru það Sandgerðingarnir, sem áttu" yfirburði í öllum tilþrif- um til leiks og ef þeim hefði heppnazt að skora á 10. mín., er þeir fvlgdu fast eftir upphlaupi, len markmanni Vestmannaeying- sr.na tókst að slá knöttinn yfir, þó er ekki að vita. hvernig farið hefði. Feimnin og taugaóstyrkurinn fór fljótlega af Vestmannaeying- unum og á 14. mín. sér maður fyrst að þeir kunna si'tthvað til með knöttinn og vita hver styzta leið sé að markinu. Þeir ná góðu upp- hlaupi og marktækifæri en skjóta yfir. Þ'etta er þó aðeins byrjunin, því nú virðast þeir allt í einu Ikomnir á strik og á 17. mín. skora þeir fyrsta mark leiksins. Hægri innherji, Ársæll Ársælsson, skaut föstu skoti af stuttu færi að mark inu. Markmaður Reynis var vel .staðsettur til að verja knöttinn, en knötturinn hitti varnarleikmann og hrökk af honum i mark, án þess að markmaður hefði nokkur tök á að verja. Eftir þetta mark faka Vestmannaeyingar leikinn að mestu í sínar hendur. Nokkuð ör- yggi og ákveðni fer að myndast í leiki þeirra. Tilraunir til sam- leiks verða aðalsvipur leiksins og góð knattmeðferð lcemitr í ljós hjá mörgum leikmannanna. Sandgerð- ÍsEand - Noregur á morgun Umdeift landslið Asbjörn Hansen, markm. (Sarpsborg), Edgar Falck, hægri bakv. (Viking), Roald Muggerud, vinstri bakv. (Lyn), Arnold Johannessen, hægri framv. (Pors), Thorbjörn Svenssen, miSvörSur (Sande- fjord), Svein Bergersen, vinstri framv. (Lilleström), Björn Borgen, hægri úthr. (Lyn), Age Sörensen, hægri innhr. (Valerengen), Rolf Björn Backe, miðframhr. (Gjövik/Lyn), Hans Sperre, vinstri innhr. (Sandef jord), Harald Hennum, vinstri úthr. (Frigg). Varamenn: Sverre Ander- sen, Viking, Arne Bakker, Asker, Arne Natland, Eik, Kjeld Krisíiansen, Asker, Steinar Johannessen, Frigg. Ekki er gert ráð fyrir að neinar breytingar verði á lið- inu, en þó má búast við að Hans Sperre verði ekki með vegna meiðsla í fæti og kem- ur þá annar hvor Kjell Krist- iansen eða Steinar Johannes- sen inn í hans stað, — ingar ná sór aftur á móti aldrei upp. Skyttan Eiríkur hittir ekki knöttinn fyrir opnu marki á 25. mín. Gunnlaugur er miður sín og Vilhjálmur hyggst vinna leikinn með handapati. Vel skorað mark Annað markið, sem Vestmanna-' eyingar skora gæti hvaða meistara flokkslið sem er verið hreykið af. Knötturinn er gefinn út á vinstra kant og útherjinn gefur fasta „spíss-spyrnu“ að vítateigshorninu, þar sem vinstri innh. Guðmundur Þórarinsson kemur hlaupandi að ’knettinum og spyrnir viðstöðulaust föstu og öruggu skoti í mark Reynis. Næstu mín. sækja Vest-| mannaeyingar mjög fast að Reyni og eru oft við að skora, en tekst þó ekki. Sandgerðingar hrista þó þessa sókn af sér síðustu mín. hálf leiksins, en dugnaður varnar IBV bægir allri hættu frá og endar hálf leikurinn með sigri IBV 2:0.. Síðari hálfleikur var aðeins bú- inn að standa í sjö mín. er Vest- mannaeyingar skora sitt þriðja mark. Var það gert úr þvögu og Ársæll Ársælsson var sá er kom síðast við knöltinn. Við þetta mark virtust Sandgerðigar missa allan mátt höfðu Vestmannaeyingarn- ir yfirhönd allan leikinn út. Marktækifæri sköpuðust þó ekki i þessum hálfleik eins og í þeim fyrra og fór leikurinn fram meira á miðjum vellinum. Lauk þessum leik því rneð sigri Vestmannaey- inga 3:0. Lið Vestmanneyinga er skipað sterklegum o,g myndarlegum mönn- um. Augðljóst er að liðiff vantar keppnisreynslu. Knattmeðferð er ekki mikil hjá megin þorra liðsins, þótt hún sé góð hjá einstaka liðs- manni, en liðið vinnur þann galla upp með einlægum tilraunum til samleiks. Áberandi beztu menn liðsins eru Guðmundur Þórarins- son v. innherji og markmaðurinn Sveinn Ólafsson. Framlína liðsins er betri helmingur þess, en auk markmannsins lofar miðframvörð- urinn góðu i vörninni. Jákvætt handbragS Glöggt er að kunnáttumaður hef ur þjálfað liðið og auðséð a'ð hann hefur leikið með þeim við æfing- ar. Sannaði þetta viðleitni sú til samleiks er leikmenn sýndu. ■Sérstaklega voru áberandi góð- ar sendingar út á kantana og fyrir gjafir útherjanna til samherja sinna. Þjálíari Vestmannaeying- anna hefur verið tvö sl. sumur hinn kiinni og dáði knattspyrnumaður Ellert Sölvason og er vissulega á- nægjulegt að sjá þetta jákvæða handbragð hans á liðinu. Dómari var Baldur Þórðarson og þótt hann hefði mátt fara fyrr í svörtu skyrtuna, þá sýndi hann að hann er í mikilli framför sem dóm ari. GAME. Leikm inn fer fram á Ullevalfleikvell- inum í Osló. Val norska landsliðs- ins mætir gagnrýni Val norsku Landsliðsnefndarinnar á liði því er hún stillir upp til að mæta íslenzka landsliðinu á Ullevallleikvellinum í Osfó á morgun, hefur vakið miklar og grimmar deilur í Noregi. Flestir voru þó á því að breytingar þyrfti að gera á norska landsliðinu, ef vænta ætti betri árangurs en liðið hefur náð í síðustu leikjum sínum á móti Danmörku og sér- staldega er liðið tapaði hér heima í sumar. Norsk blöð, svo og almannarómur, eru sammála um að landsliðsnefndin hafi gengið of langt. völdu séu þeir beztu af þeim tutlugu sem valdir voru í fyrstu. fslenzka liðið. En hefur ekki komið frétt um hverjir koma til með ag leika fyrir ísland í landsleiknum á morgun. En gera má ráð fyrir ag liðið verði hig sama og á móti Dönum. Ef um breytingar verða að ræða verður gerð grein fyrir því hér á síðunni á morgun. Fimrn nýliðar eru í liðinu. Hans Hennum, sem hefur leikið í stöðu miðframherja í liðinu er nú settur út á vinstri kannt og einn af betri sóknarmönnum Noregs Roald Muggerud er settur í bakvarðar stöðu. Það sem áhugamenn og blöð gagnrýna hvað mest í vali Landsliðsnefndarinnar er val Har alds Hennum sem útherja og Ro ald Muggerud sem bakvarðar. Eor maður norsku landsliðsnefndarinn ar svarar þessari gagnrýni eftir farandi: "4 í,- . að Muggerud er mun betri varnar leikmaður, en sóknar og skoðun landsliðsnefndar er hin sama. Ro ald Muggerud er mjög efnilegur bakvörður. I l Formaður landsliðsnefndarinnar Tho,. Hernes ber engan kvíðboga fyrir að valið hafi tekizt vel. — Við vonum að þetta komi til með að vera gott !ið. Við hyggj- um að við höfum fundið réttu mennina. Leikmenn með hina réttu skapgerð. iSamstillta menn gædd um óbilandi viljakrafti til að leika vel og ná árangri í landsleik. ís land er mjög erfiður andstæðing ur, en þrátt fyrir það vonum við að leikmenn okkar standi sig. Við erum alla vegana ekki taugaóstyrk ari fyrir þennan leik, heldur en vig höfum verið fyrir aðra lands leiki, sem við höfum leikið í sum- ar. Thorbjörn Svensen, fyrirliði von ar hið bezta. — Þetta gengur vonandi ágætlega, segir hann. Leik urinn á morgun verður sá 85. í röðinni, sem Thorbjörn leikur meg norska landsliðinu. Hann telur það mjög eðlilegt að val liðsins hafi komig nokkuð á óvart, en það sé bara staðreind að hinir ellefu i;t Thorbjörn Svensen 85 landsleiki. Madsen var með... Eftir skeytum og öðrum frétt um, sem borizt hafa frá lands leiknum við Dani í Idrætspark en í Kaupmannahöfn á þriðju daginn, hafa inei'ðsli landsliös mannanna dönsku þeirra Ole Madsen og Bent Hansen ekki verið ems alvarleg og dönsk blöð vildu meina, því þeir voru báðir með í landsleiknum. Bent Hansen virðist hafa átt góðan leik, eins og lians er venja. Ole Madsen hefur aftúr á móti ekki (Framhald á 11. síðu) Kvennamótiðíúti- handknattleik íslandsmótið í úti-handknattleik kvenna verður háð hór í Reykja- vík um næstu helgi. Fer mótið ;fra,m á hinum nýja leikvangi íþrótafélagsiniS Ármann við Sig- tún. Er þetta fyrsta mótið, sem háð er á leikvanginum. Keppni mótsins hefst á laugardag, heldur síðan á- fram á sunnudag og lýkur á-mánu- I dag. Fjögur félög taka þátt í mót- , inu, — öll úr Reykjavík — Ár- ! mann, K.R., Valur og Víkingur. i Unnendur handknattleíks harma því mjög að ekkert utanbæjarfé- lag skuli taka þátt í móiinu. Sú var tíðin, að glansi þessa móts ljómaði f utanbæjarstúikum öðrum fremur. Ilafa þar verig fremstir í flokki Hafnfirðingar, ísfirðingar og Vest- mannaeyingar, og var íslandsmótið í fyrra háð í Vestmannaeyjum, en þá urðu KR-stúlkurnar sigurveg- I arar. Arnold Johannessen, Pors, er einn af efnilegustu fram- vörðum Noregs og hefur leikiö í Pressuliðinu. — Það virðist sem við í lands liðsnefndinni séum ekki svo íkja snjallir. En gagnrýninni er fyrst til ag svara með þeirri staðreynd að Rolf Björn Backer er ekki af neinni tilviljun valinn sem mið framvörður, til þess höfum við séð félag hans leika of oft og höfum því haft góðan tíma til yfirvegun ar, hvag val hans snertir. Harald Hennum er ekki lengur sá gegnum brotsmaður Frigg liðsins sem hann var áður. Með vali hans sem út herja teljum við að megi nýta beztu hæfileika hans, svo framar lega sem samherjar hans gefa hon um sendingar, sem hann getur bezt unnig úr. Blöðin gagnrýna mikið val Roald Muggerrud sem bakvarðar, en val hans í þá stöðu var heldur enginn tilviljun. Bæði hann sjálfur og forráðamenn Lyn hafa komizt að þeirri niðurstöðu frá fyrri leikjum Norsku blöhlnsegja.. Norsku blöðin eru mjög gagnrýnin á val norsku landsliðs- nefndarinnar, og greina má á umsögn þeirra um valið, að þau hefðu búizt við nolckru öðru. MORGENPOSTEN: Við vonum innilega að landsliðsnefndin liafi náð að velja réttu mennina. Menn sem komi til með að verða menn framtíðarinnar í norska landsliðinu. Flestir munu samináia uni að ekki er liægl að ætlast íil að þetta lið smelli saman við fyrstu tilraun. MORGENBLADET: Landsliðsnefndin leggur þungar byrðar á herðar finun nýliðum. En mesta undrun vekur þó val Ro- alds Muggerud, sem bakvarðar. Þótt við séum allir af vilja gerðir getum við ekki lagt blessun okkar yfir þelta val nefnd- arinnar.... AFTENPOSTEN: Landsliðsnefndin hefur tekið afleiðingar síðustu landsleikja til greina, er liún valdi landsliðið sem mæta á íslandi, og komist að þeirri niðurstöðu að róttækra breytinga var þörf . . . En það sem við vonuðum eftir fyrst um stór breytingar á liðinu var að ræða, var að sjá Erik Johansen, vinstri innlir. Gjövik/Lyn með í valinu . . Og okkar áfit er að það sé allt að því lilægilegt að velja Roald Muggerud sem bakvörð. ARBEIDERBLADET: Val landsliðsnefndarinnar er í þetta sinn undravert. Sóknarleikmaðurinn Roald Muggerud er stillt upp sem vinstri bakierði og nýliðar eru í famvuðarstöðttmim og nýir menn skipa sömuleiðis „sóknar-tríóið". Þetta val mun óefað vekja sérstaka athygli á leiknum í Ulleval. Hver veit nema eittlivað óvænt muni ske. Álit VG er stutt og laggott: Okkur var Ijóst að breytinga var þörf, en landsliðsnefndin átti að láta sér nægja að gera þrjár til fjórar breytingar. Við erum sérstaklega óánægðir með val Roald Muggerud, sem bakvarðar. Harald Ilennum sem vinstri útherja og Hans Sperre (vegna þess að hann er raeidd- ur) sem innherja. Rolf Björn Back frá Gjörvik-Lyn leikur sinn fyrsta landsleik, sem miðherji Norska lands iiðsins. Hann hefur átt marga góða leiki í sumar. Beztu eiginleikar hans eru hraði og marksæknl, í ár hefur hann skorað 30 mörk fyrir félag sitt.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.