Tíminn - 25.09.1959, Blaðsíða 1
auðhringa og
einokun,
bls. 7
13. árgangur.
E F N I
Börn snillingsins, bls. 3
Undrabarnið fór halloka, bls. 6
íþróttir, bls. 10
206. blaS.
þessi mynd væri betri. Hitt er svo
spurning út af fyrir sig, hvar fé
þetta er réttað. Áreiðanlega hef-
ur enginn eigandi hundrað krónu
seðils hugsað út í það, áður en
hann eyddi honum. Féð var réttað
í Stafholtsrétt í gærmorgun, en
síðan var meginhluti þess rekinn
í Skeiðarétt, og verður féð réttað
þar í dag.
Ljósm.: H. Pálsson.
Hundrað krónu myndin
Að líkindum eru hundrað krónu
seífar ekki orðnir þeir peningar í
augum margra, að verið sé að
rýna í þá sérstaklega, áður en
þeir eru látnir af hendi. En sé
litið við þeim á annað borð, sést
mynd á þeim af fjársafni á leið
niður Þjórsárdal. Og myndin, sem
við birtum hér í dag er að því
leyti athyglisverð, að hún er tekin
á sama stað, og er því næstum
alveg eins og myndin á seðlinum,
nema hvað þessi mynd var tekin
siðastliðinn miðvikudag. Hér er
þvi um aðrar kindur að ræða, og
ef nokkuð er, þá mætti segja að
Verður aukaþing?
arflokkuni'm, Sjálfstæðis-
Framsóknarflokknum hefur
enn ekki borizt svar frá for-
sætisráðherra, varðandi þá
kröfu flokkrins að kveðja sam
an aukaþing, en þess var kraf
izt í bréfi Framsóknarflokks-
ins til forsætisráðherra síðast
liðinn þriðjudag.
Þingflokkur Alþýðubanda-
lagsins hefur einnig tekið und
ir þá kröfu Framsóknarflokks
ins, að aukaþing verði kvatt
saman. Bréf þess efnis barst
forsætisráðherra í fyrradag
frá Alþýðubandalaginu.
Eftir þvi sem blaðið hefur
heyrt, hefur verið mikið um
fundahöld hjá báðum stjórn-
flokknum og Alþýðuflokkn-
um, eftir að þess hafði verið
krafizt að aukaþing yrði kvatt
saman, og hafa forystumenn
þessara flokka mjög' borið ráð
sín saman
Þar sem mjög er aökallandi
að fá úr því skorið hvort
aukaþing verður kallað sam-
an eða ekki, hlýtur svars að
vera að vænta í dag eða á
morgun.
Mýrdalssandur
að verða fær
ViSgerS að Ijúka á veginum, brátt hafizt
handa við að veita
L__________________
IB**-
Nú eru loks horfur á því
að umferð hefjist með eðlileg-
um hætti yfir Mýrdalssand.
Flestum stærri bílum hefur
verið fært yfir sandinn undan-
farið, og unnið er að því af
kappi að l.júka viðgerð vegar-
ins, en síðan verður hafizt
handa um að veita. vatni undir
nýju Blautukvíslarbrúna.
I haust hefur vatnsaginn á sand-
inum minnkað talsvert frá því sem
var í sumar, og fellur vatnið nú
austar um sandinn en áður var.
Vegamálastjóri tjáði blaðinu í gær,
að þegar væri búið að fylla upp í
stærsta skarðið í varnargarðinum
á sandinum, en vegurinn liggur á
sjálfum garðinum eins og kunnugt
er. Nú er unnið sleitulaust að því,
vatni í Blautukvísl
__________________*
að fylla upp í hitt .skarðrð. Og
standa vonir til að því ljúki á næst-
unni, og verður þá flestöllum bíl-
um fært um sandinn.
Nýr garður hlaðinn
Þegar viðgerð sjálfs vegarins er
lokið, verður tekið til við að veita
vatni í farveg Blautukvíslar og
úndir nýju brúna. Hefur farvegur-
inn þegar verið dýpkaður allmikið,
en til þess að hann komi að full-
um nolum, þarf að gera fyrir-
hleðslu og veita vatninu í hann.
Standa vonir til að það verk tak-
ist sæmilega greiðlega. Kvað vega-
málastjóri mesta áherzlu hafa ver-
ið lagða á að ljúka sjálfum vegin-
um þar eð mestu nauðsyn bar til,
að sandurinn væri fær flutninga-
bifreiðum um slálurtíðina, enda
hefur það tekizt.
Húsnæðismálastjóm
gefur út teikningar
Veitir þeim einum !án hér eftir sem byggja
eftir teikningum viíurkertndra a'&ila
Húsnæðit'málastjórn ríkis-
ins hefur ákveðið að taka upp
nýja aðstoð við húsbyggjend-
ur, gefa þeirn kost á vönduö-
um og ódýrum hústeikning-
um, unnum af viðurkenndum
arkitektum Hefur hún gefið
út sýnishorn af allmörgum
einbýlis- og tvíbýlishúsum í
hefti, sem sent verður bygg-
inganefndum úti um land.
Þessar teikníngar gela menn síð-
an pantað, og fylgja þá fullkomnar
vinnuteikningar að öllum lögnum
og innréttingu, og sömuleiðis getur
fylgt útreikningur að efniskostnaði.
Ófullkomnar teikningar
Orsök þessarar nýbreytni er fyrst
(Framhald á 2. síðu)
Gilchrist á
förum héðan
Að því er fréttastofufregnir
herma hefur Andrew Gil-
crist, sendiherra Breta á ís-
landi verið skipaður aðafræð-
ismaður Bretlands í Chicago.
Eftirmaður Gilchrist, sem sendi
herra á íslandi, verður Andrew
Stuart, núverandi aðalræðismaður
Breta í Jerúsalem, en hann hefur
skrifstofur í báðum borgarhlutun-
um, bæði ísraels og Jórdaníu
megin.
Nýr leitarmannakofi
á Eyvindarsta&aheiði
Leitarmannaskýli hefur nú
risið á Eyvindarstaðaheiði,
þar sem 20 gangnamenn geta
haft aðsetur sitt. Var betta
hin mesta nauðsyn, þar sem
garnli kofinn á þessum stað
var orðinn liarla lélegur.
Fyrir skömmu er lokið byggingu
leitarmannakofa við Ströngukvísl á
(Framhald á 2. síðu)
Húsíð og skriðan
Það þykir ekki meiri
tíðindum sæta, þótt
skriða falli á Sevðisfirði, að ekkert var getið um
það í fréttum, þegar skriða féll á húsið hér á
myndinni nú í sumar. Fólkið flutti strax úr hús-
inu og fer ekki í það aftur. Það stendur því autt
í hinu þrönga nábýli við skriðuna, sent evddi
garðinum undir stafni þess, en vann ekki ýkja
miklar skemmdir á því sjálfu
(Ljósm: G. Ágústsson)