Tíminn - 25.09.1959, Blaðsíða 3
T í M IN N , föstudaginn 25. september 1959.
3
Börn snillingsins eiga
ekki sjö dagana sæla
Það eru ritaðar margar bæk
Ur um smllinga mannkynsins.
Nýlega hefur verið rituð ævi-
saga Eugene O’Neill, sem er
að því leyti frábrugðin ævi-
sögum merkra manna að hún
fjallar engu síður um börn
hans en hann sjálfan, en börn-
in vilja oftast glevmast í ævi-
sögum snillinganna. Bókin
heitir „The Curse of the Mis-
begotten“ og er eftir Cros-
well Bowen.
Snillingurinn er einmana. Hann
situr eins og maður á hárri súlu
og það er ekki rúm nema fyrir
hann einsn. Snillingurinn er al-
tekinn hugsjón sinni, gefur sig all
an verkum sínum á vald og nán-
ustu vandamenn og ættingjar
skipa ekki það rúm í huga hans
sem þeim ber. Það er sagt að
Mozart hafi sctið við og samið lög
í óða önn meðan konan hans vein-
aði í barnsnauð í næsta her-
bergi....
Sjálfsrmcrð
Snillingurinn getur ekki lagað
sig eftir háttum borgaralegs lífs
og virðist sýna aðstandendum'sín-
um fullkomið tillitsleysi og
kulda, þótt hann gráti hins vegar
örvæntingarfullur yfir örlögum
alls mannkyns. Eugene O’Neill
komst aldrei í nána snertingu við
börn sín, hann var einn í heim-
inum og átti ekki samleið með
öðrum.
O’Neill átti þrjú börn. Elztur
var sonurinn Eugene Gladstone
O’Neill yngri. Móðir hans var
fyrsta kona skáldsins, Kathleen
Jenkins. Hann framdi sjálfsmorð
árið 1950 og lét eftir sig bréf
undir tómri viskíflösku þar sem
hann sagði: „Það skal aldrei verða
sagt um neinn af minni fjölskyldu
að hann hafi ekki getað tæmt
flösku í botn. Verið sæl og bless.
Næstelztur var Shane, en móðir
hans var 2. kona leikritaskáldsins,
Agnes Boulton. Shane fæddist í
október 1919.
Yngst var Oona, dóttir skálds-
dns og Agncsar, fædd 13. maí
1925. Þriðja hjónaband Eugenes
O’Neills var barnlaust. Þá var
hann kvæntur Carlottu Monterey.
Engar skáldagrillur
Bowen byggir bók sína að veru-
legu leyti á samtölum við Shane
og bréfum Það sýnir sig að
heimilisfaðirmn vann sér aldrei
traust barnanna sinna. Hann elsk
aði þau að vísu og lét ást sína í
í ævisögu O’NeiIIs
er sagt frá mis-
sætti hans og
barna hans - sneri
baki við dótturinni
þegar hún giftist
Chaplin - sonur
hans gerðist eitur-
lyfjaneytandi og
dryhkjuræfill
ljós en með ósköp hversdagslegum
og venjulegum orðum, sem virtist
raðað meira upp eftir forskrift
en tilfinningu. Samtöl milli hans
og barnanna gengu jafnvel svo
stirt og voru svo óeðiiieg að nærri
lá við að hann stamaði þegar hann
talaði við þau.
Shane varð að reikulum sveim-
huga, sem aldrei staðfestist við
neitt og að lokum lagðist líf hans
í rúst. Hann kennir sjáifum sér
um örlög sín að mestu leyti, hon-
um hafi aldrei tekizt að vekja til-
trú föður síns né brjóta þann múr
einangrunar sem um hann lukti.
Hann vildi líkjast föður sínum og
leit upp til hans, hann vildi verða
skáld og kom að máli við föður
sinn og sótti til hans ráð. í fyrstu
vildi gamli maðurinn ekkert við
hann tala, en að lokum þegar þau
mál bar á góma, þá ráðlagði Eug-
ene syni sínum að koma aldrei
nálægt skáldskap og leggja allar
slíkar grillur á hilluna.
Takfu sjálfur ákvörðun
í leit sinni að föðurást, sem
hvert barn á rétt á en honum var
synjað um, snerist Shane frá einni
ráðagerðinni til annarrar. Eina
stundina ætlaði hann sér að setja
upp búgarð og ráða til sín kú-
reka, aðra stundina vildi hann
ólmur hverfa frá öllu og fara á
sjóinn eins og faðir hans hafði
gert á sínum tíma. — Faðir hans
skrifaði honum bréf og sagði
honum að hann yrði að finna sjálf
an sig, enginn annar myndi gera
það fyrir hann, hann yrði sjálfur
að taka ákvarðanir í lífi sínu og
standa við þær.
Þegar hann var 21 árs að aldri
fékk hann enn eitt bréf frá föð-
ur sínum þar sem sagði á þessa
leið:
-— Þú ættir að dvelja í einveru
nokkrar stundir á degi hverjum.
Þú skalt tala opinskátt við sjálf-
an þig og komast að niðurstöðu í
vandamálum þínum. Þú getur
ekki valið tetri dag en einmitt
þennan. Taktu nú einu sinni á-
kvörðun í lífi þínu — og stattu
við hana. . ..
Með bréfinu fylgdi ávísun upp
á 15 dali. Sbane gekk lengi með
ávísunina í vasanum áður en hann
flcygði henrú brc.ti.
Drykkjuskapur
Nokkru síðar fékk hann atvinnu
ásamt vini sínum sem var bíl-
stjóri. Leikkena nokkur ætlaði til
Mexíkó og hún réði þá til að
hvíla sig við aksturinn. Þegar þeir
komu til Juarez fengu þeir sína
borgun og gengu út í bæinn. Áður
en leið á löngu voru þeir orðnir
ofurölvi og þegar þeir loksins
komust inn á ódýrt og sóðalegt
hótel sváfu þeir í heilan sólar-
hring. Þegar þeir röknuðu úr rot-
inu héldu þeir að morgunn væri
og urðu því meira en lítið hissa
þegar fór allt í einu að dimma.
Þeir fóru með áætlunarbíl til bæj-
arins Chihuahua og héldu þar á-
fram drykkjnnni unz þeir vissu
ekki sift rjúkandi ráð. Daginn
eftir komu þeir auralausir til
Mexíkó-borgar en tókst á einhvern
hátt að fá senda peninga fyrir far-
inu heim.
Þetta æviatýri og annað þessu
líkt — þar sem áfengi var þó
ekki með í spilinu — voru ósköp
svipuð þeim ævintýrum sem
O’Neill gamii sjálíur hafði stofn-
að til í sinni æsku. En þrátt fyrir
það brást hann hinn reiðasti við
þegar sonur hans lenti í þessu.
Hann sendi drengnum ávísun þeg-
ar hann varð í annað sinn stranda-
glópur í Mexíkó, en sú ávísun hljóS
aði aðeins upp á fargjaldið heim
og ekki eyri fram yfir það. Enn
fremur fvlgdi bréf þar sem Shane
var ráðlagt að leggja niður allan
stráksskap.
Snemma í samkvæmislífið
Oona systir Shanes, fann ef til
viH ekki fyrir föðurþörfinni. Hún
var 6 árum yngri og aldist upp
algerlega undir umsjá móður
sinnar sem gerði allt sem í henn-
ar valdi stóð til að veita dóttur-
inni þá aðhlynningu sem hún
þurfti.
En Shane var líkur föður sín-
um að því leyti að hann var dul-
SHANE
heroin og marihuana
ur, feiminn, óframfærinn og sjálf
um sér ónógur. Hins vegar kom
snemma í ijós að Oona var fögur
og gerfileg stúlka sem átti auð-
velt með að tjá hug sinn og um-
gangast annað fólk.
Hún var ekki skroppin úr skóla
þegar hún fór að taka þátt í
samkvæmislífinu í New York og
Eugene O'NeilI
— einmana snillingur
var ekki nema 16 ára að aldri
þegar hún kom í fyrsta sinn í
hinn fræga Stork Ciub.
O’Neill var afar stoltur og hreyk
inn af hinni fögru dótlur sinni.
Hann fékk Ijósmyndara til að
taka myndir af honum og dóttur-
inni saman og hann las henni
langt og mikið leikrit í handriti
þegar hún var ekki nema 16 óra
gömul. Hún segir sjálf að hún
muni ekkert úr því leikriti nema
titilinn: „Húmar hægt að kveldi.'“
En þó var samband þeirra aldrei
nema á ytra borði.
Oona var töfrum gædd yngis-
mey sem laðaði að sér alla unga
menn. En hún hafði engan áhuga
á jafnöldrum sínum. Hún kaus
heldur karlmenn sem voru komn-
ir á fertugsaldur. Og þegar hún
loksins varð ástfanginn, var elsk-
huginn maður sem var þrisvar
sinnum eldri en hún.
Hann hét Charlie Chaplin.
Eugene O’Neill varð bálreiður
þegar hann vissi um samdrátt
þeirra. Hann lagðist gegn giftingu
þeirra en Oona lýsti því yfir að
hún mundi aldrei elska nokkurn
annan í sínu lífi og henni fannst
ekkert undariegt við það þótt hún
— 18 ára gömul — giftist manni
sem var á sextugsaldri.
Frá þeirri stundu heyrði Oona
aldrei neitt frá föður sínum.
HataSi Hollywood
Vinir Eugene O’Neills hafa
sagt að gamli maðurinn hafi ekki
haft á móti Chaplin sem manni.
En hann kærði sig ekkert um neitt
sem skylt var Hollywood. Hefði
hann talað við Chaplin um þessi
mál, hefði hann komizt að raun
um að Chap,in var á sama máli
og hann sjálfur um Hollywood.
En sennilega hefði gifting Oonu
— hver svo sem eiginmaðurinn
hefði orðið — undir öllum kring-
umstæðum skilið þau mæðgin að.
í raun og veru hafði aldrei ríkt
trúnaður þeirra á milli. O’Neill
hafði að vísu verið hreykinn af
dóttuir sinni en það var aldrei
annað en föðurlegt stolt og Cros-
well Bowen heldur því fram að
harmleikurinn hafi verið í því
fólginn að Eugene O’Neiil missti
ekki dóttur sína þegar hún giftist.
Og það var af þeirri einföldu á-
stæðu að hann hafði ekki átt
neina dóttur fyrir.
Áður en Oona giftist hafði hún
reynt fyrir sér sem leikkona. Hún
hafði ætlað sér löngu áður en
hún lauk skóiagöngu að verða leik
kona og það skorti ekki girnileg
tilboð. Max Reinhardt vildi ráða
hana og Metro-Goldwyn-Mayer
reyndi mikið til að fá hana til
að leika austurlenzka stúlku í Suð
urhafskvikmynd, en hún hefur á
sér austurlenzkt yfirbragð. Úr
öðrum stöðum bárust henni jafn-
lokkandi tilboð. En faðir hennar
setti henni stólinn fyrir dyrnar og
fékk því til leiðar komig að hún
gat engu tilboðinu tekið.
Oona fékk þó um síðir dálítið
hlutverk í leikriti eftir Saroyan.
Veturinn 1942—3 kom hún til
Hollyvvood og það var þá sem hún
hitti Chaplin í fyrsta sinn. Móðir
hennar hefur eitt sinn sagt um
ást þeirra Oonu og Chaplins:
.... ef til vill dróst hún fyrst
og fremst að eldri körlum vegna
þess að hún hafði alla sína ævi
þráð föður sinn. Hún var aðeins
lítil stúlka þegar við Eugene skild-
um.“
Það var 16. júlí 1943 sem þau
voru gefin saman, Oona og Chapl-
in. Hún var sú fjórða í röðinni af
konum hans. Chaplin átti uppkom-
in börn sem voru eldri Oonu að
árum.
Ein orsökin til bess að brúðkaup
ið yar haldið af ýtrustu leynd var
sú, að um þessar mundir hafði
Chaplin einmitt verið stefnt fyrir
rétt, sakaður um legorðsbrot. Það
var ung leikkona, 23 ára að aldri,
sem kærði hann.
O’Neill hafði ekki nema tvennt
um brúðkaupið að segja: „Það
(Framhald á 5. sí&u).
Oona og Charlie Chaplin — eiginmaðurinn þrisvar sinnum eldri