Tíminn - 25.09.1959, Page 2
I IWINN, fostudaguin 25. september 195$*
Bókauppboð í dag'
I dag klukkan 5 e.h. hefst npp-
-böö á fágætum og eftirsóttum bók
um hjá Lístmunauppboði Sigurð
'ir’iBenediktssonar. XJppboðið verð
ir.haldið í Sjálfstæðishúsirub litla
.alrtum, og er þetta fyrsta uppboð
tiigurSaj.’ á bessiPiausti,
:UI.O(' " - 'inarrá. bóka, sem þar
• 'éfífn oónar -upp, eru Sýslumanna
esíir .Benediktssónar, „Feðg-
aijfaifcí* ■’ttí.r sáma höfund, Ferða-
r,)ðk V-.or-vaÍdar Thoroddsens, Ann-
áljff Biörns á Skarðsá, prentaðir
: firappséy, rnagi.sterritgerð Gríms
Tjtornstns iiffl Lörd Byron, Gátur,
pfilLCr tsi; skeémtanir eftir Jón
.V£h£sort, ;pg Gl. Daviðsson, og
lifeiJtshíplPT .
iSökiHTevfV i: boðið upp af tíma-
vftuó Hfcö B' '.nda og.Tímarit Bók
iné'aiitáfeuasv'S og Arbók Ferða
: éiáásins.' . ..... ;
•TrSí.f-r-.v _
tf'dílaaTii
(Framhald af 12. gfðu).
An-ás-flátiti''::. sem sprakk, til
■ un'gísius. .Tá" i 3. október næst-
[comanoi, en 'pá verður tunglið í
skemmstri íjarlægð frá jörðu. Átti
rt'laugin að bera með sér gerfitnngl,
sem skyidi ienda á braut umhverfis
’tunglið, og átti það að vera útbúið
tækjum til að sjónvarpa hina
óþekkt-u bakhlið tunglsins.
Sættir munu
takast
— segir de Gaulle
NTB—Caíais 21 sept. —
De Gaulle Frakklandsfiorseti
sagSi í ræðu í Calais í dag, a'ð
Frakkar yi'ðu að taka virkan
þátt í lausn deilumálanna
milli áusturs og vesturs. Sagði
hann að Frakkar yrðu að
verða þess verðugir, að fullt
tillit yrði tekið til þeirra í
sáttargerðum stórveldanna.
Sættir hlytu að takast fyrr eða
síðar, því að manrikyriið ætti ekki
annarra kosta völ. Styrjöld myndi
hafa í för með sér allsherjartor-
tímingu. De Gaulle vék að við-
læðum þeirra Eisenhowers og
Krustjoffs og sagði að vel gæti
verið að þeir kæmu sér saman
um lausn heimsvandamálanna, en
samkomulag þeirra á milli væri
ekki nóg. Þrð yrði að tryggja að
allar þjóðir tækju tillit til þess.
Systkinin í Skíðaskálanum
Frú Jóhanna G. Bjarnadóttir, fyrrym
húsfreyja í Viðey á Kollafir'ði, og nú
til heimilis a3 Skipasundi 79, er 65
ára í dag. Hún dvelst um þessar
mundir að Skálholti.
Kosningaskrifstofa B-!istans er í Framsóknarhúsinu
II. hæð og er opin frá ki. 9,30—18.30 alla virka daga.
Áríðandi er að stuðningsmenn listans athugi eftirfar-
Trvdi:
1.. Hvort þeir séu á kjörskrá.
2. Tilkynni ef þeir verða fjarverandi á kiördag. eða
aðrir sem þeir þekkja.
3. Gefi uppiýsingar um fóik er dvelur erlendis, t.d.
námsfólk.
4. Hafi samband við skrifstofuna varðandi starf á
kjördag.
Sími: Vegna kjörskrár 12942
— — Annarra uppl. 19285
— — — 15564
B-USTINN
Fíokksstarfiö uti á iandi
HúsnætSismálastjórn
(Framhald af 1. síðu)
og fremst sú, að undanfarið hefur
það verið altítt, að ófullkomnar og
jafnvel óhæfar teikningar fylgdu
lánaumsóknum til stofnunarinnar,
hafa þær oft verið sniðnar eftir
■eldri húsum, járnateikningar og
lagnateikningar vantað o.s.frv.
Haía menn því oft fengið lakari hús
■qn þurft hefði að vera, fyrir sama
fjármagn. Hefur því húsnæðismála
stjórn ákveðið að veita þeim einum
lán, sem byggja eftir teikningum
verkfræðinga, iðnfræðinga og arki-
tekta eða þeirra ófaglærðra manna,
■er hafa hlotið viðurkenningu stofn-
unarinnar.
Samkeppni
Stjórn húsnæðismálastofnunar-
innar skýrði blaðamönnum frá
’ þessu í gær. Þá var einnig frá því
; sagt, að stofnunin hafi samið við
j Arkitektafélag íslands, Verkfræð-
I ingafélag íslands og Iðnfræðinga-
félag íslands um þátttöku í sam-
keppni um teikningar að smáhús-
um. Verða þær, sem viðurkenn-
ingu hljóta, gefnar út í heftum á
þriggja ára fresti, til að ekki verði
stöðvun í teikningum stofnunarinn-
ar. — Á morgun verður nánar sagt
frá starfsemi Húsnæðismálastofn-
un'ar rikisins, hér í blaðinu.
(Framhald af 12. slðuj
Þreytt
— Við hættum um mánaðamótin
sagði Steingrímur, og lokum núna
á sunnudagskvöldið. Við flytjum
til Reykjavíkur.
— Hver er ástæðan?
— Við erum orðin þreytt á
þessu. Þetta hefur verið erfiður
rekstur, sérstaklega á veturna.
Rafmagnsleysið hefur líka gert
olckur erfitt fyrir. Skammdegið
og veturnir.
— Hvað hyggist þið fyrir í
Reykjavík?
—Það er nokkuð óákveðið, Við
höfum Golfskálann að einhverju
leyti til að byrja með. Svo seljum
við veizlumat eins og við höfum
gert undanfarin ár.
—- Hvernig hefu,. skíðaskálinn
borið sig?
— Ágætlega. Sérstaklega á
sumrin. Þá hefur alltaf verið
mikið að gera. Á veturna er þetta
stopult. Það getur verið mikið að
gera ef vegurinn er opinn, Sem
sagt, þag er undir duttlungum
veðurfarsins komið.
— Er búið að ráða hér nýja
menn?
I — Já, ég held það. Tvo unga
menn. Eg veit ekki betur.
— Ekki hverjir það eru?
— Ekki fyrir vist.
— Ætli ■ þeir hafi einhverja
reynslu í þessum efnum?
— Eg hugsa það. Einhverja að
minnsta kosti.
— Telur þú ekki, að mikla
reynslu og hagsýni þurfi til að
reka þennan skála?
— Það er ágætt fyrir unga
J menn að reyna sig á því.
— Eg heyrði minnzt á einhvern
•stórlax í Reykjavík, sem hefði
komið því inn lijá Skíðafélaginu
að byggja hér stórhýsi.
— Eitthvað heyrði maðu,. tim
það í fyrra vetur, en það hefur
verið hljótt um þag núna.
500 í mat
l
KOSNINGA
5KRIFSTOFURNAR
Kosningaskrifstofa Fram-
sóknarflokksins vegna kos»
inganna úti á landi er í
Edduhúsinu, Lindargötu
9a, 3. hæð.
Stuðnmgsmenn Fram-
sóknarflokksins eru beðuir
að hafa samband við skrif-
stófúna sem allra fyrst og
gefa^upplýsingar um kjós-
endur, sem dveljast utan
kjörstaðar, innan iands eða
trtan/ á kosningadag. —
Símíir: 16066 — 14327 —
19613.
XOSNINGASKRIFSTOFAN
Á AKUREVRI
Fraivtsóknarfélögin á Akur-
eyri- hafa opnað kosninga-
skrlfstofu í Hafnarstræt 95,
og eru símar hennar: 1443
og 2406. Þá hafa félögin efnt
til 50 kr. veltu til fjársöfn-
unár í kosningasjóðinn, og
eru stuðningsmenn hvattir
ti| að koma í skrifstofura og
taka þátt i veltunni,
KOSNINGASKRIFSTOFA .
Á SELFOSSI
Framsóknarfélögin í Árnes
sýslu hafa opnað kosninga-
skrifstofu að Austurvegi
21, Selfossi, og er sí»i
hennar 100. Flokksmenn
eru beðnir að hafa sam-
band við skrifslofuna sem
ailra fyrst og gefa uppiýs-
ingar um kjósendur, sem
dvelja utan kjörstaðar inn-
anlands eða utan.
KÓPAVOGUR
Fulltrúaráðsfundur og
hverfisstjórnafundur í kosn
ingaskrifstofunni, Álfhóls-
vegi 11, föstudag 25. sept.
kl. 8,30.
Áríðandi mái á dagskrá.
Mætið stundvíslega.
HAFNARFJÖRÐUR
Framsóknarflokkurinn efn-
ir til kjósendafundar í Góð-
templarahúsinu sunnudag
27. sept kl. 4 e. h.
Ræðumenn verða Her-
mann Jónasson, fyrrv. for-
sætisráðherra, Guðmundur
Þorláksson og Jón Skafta-
son.
Ailt stuðninasfólk vel-
komið meðan húsrúm
ieyfir.
KEFLAVÍK—SUÐURNES
Framsóknarflokkurinn efn
ir til kjósendafundar í Ung
mennafélagshúsinu í Kefla
vík mánudag 28. sept. ki
9 e. h.
Ræðumenn verða Ey
steinn Jónsson, fyrrv. fjár
málaráðherra, Valtýr Guð
jónsson og Jór Skaftason
Allt stuðningsfólk vel
komið meðan húsrúm
leyfir. í
Leitarmannakofi
(Framhald a£ 1. síðu)
Evindarstaðaheiði. Er þelta all-
mikil bygging hlaðin úr einangruð
um hraunsteini með járnþaki. Gólf
ílötur er um 30 ferm., vegghæð
2 m og ris 1,50 m. Ætlazt er til,
að þarna geti 20 gangnamenn hafzt
við. Er þarna ráðin bót á brýnni
þörf húsaskjóls fyrir gangnamenn
á þessum stað, því gamli kofinn
var orðinn mjög ófullnægjandi
skýii,
180 vinnustundir
Þinna við hina nýju byggingu
var um 180 klst., og sáu þeir Jón
Tryggvason, Ártúnum, og Sigurjón
GUðmundsson, Fössum, fyrirsvars-
menn fjallskila í sveitinni, sáu
um bygginguna og unnu riiest að
henni. G.H.
Umferíarmálin
(Framhald af 12. síBu)
Þá sagði lögreglustjóri, að
lögreglan myndi nú gera
ajllt, sem í hennar valdi
stæði til að herða á eftirlit-
inu og ganga hart fram í því
að kæra þá sem orsaka
hættu með ógætilesum og ó-
löglegum akstri. Dómstól-
arnir myndu og herða á refs
ingum og beita ökuleyfis-
sviftingu meira en gert hef-
ur verið.
I
Bréf til ökumanna
Umferðanefnd mun um næstu
mánaðamót hafa lokið því verki
að senda hverjum atvinnubíl-
stjóra bréf, þar sem skorað er á
þá að hafa samvinnu við opin-
f bera aðila um umferðarmenningu
og auknar slysavarnir. Úrdráttur
úr umferðárlögum og flejri ábend
inga,. fylgja. Aðrir bífreiðaeig-
endur munu .fá slík bréf síðar, en
hér er um miklar póstsendingar
að ræða- Tryggingarfélögin hafa
slutt þessar bréfasendingar fjár-
hagslega.
Bréf tii ailra ökumanna:
Ljósabúnaður sé í iagi..
Umferðarnefnd Reykjuvíkur sendir um þessar mundir
bréf til allra atvinnubifreiðarstjóra i Reykjavík. Bréfið
er áminping um fyllztu aðgætni við akstur og áskorun
um samvinnu til að skapa umferðarmenningu. Þar er
að finna' úrdrátt úr umferðarlögunum og' nokkrar vís-
bendingar, er varða miklu um umferðaröryg'gi. í dag'
og neestu daga verða birtir kaflar úr þessu bréfi.
1. Tala árekstra og slysa hækkar venjulega, þegar
haust kemur með myrkri og misjöfnum veðurskilyrð-
um. Þá þurfa ökumenn að sýna sérstaka varúð. Gæta
ber þess, að ljósabúnaður sé 1 fullkomnu lagi. Óheim-
ilt er að nota háa ljósgeisla á vel lýstum vegi eða
þegar ekið er á móti öðru ökutæki Hefur slíkt atferii
oft valdið slysum. Áríðaudi er og, að ökumenn haldi
rúðum vel hreinum og möðulausum. þannig að útsýni
úr bifreiðinni sé nægjanlega gott.
— Þú átt sjálfsagt riiargar
'Skemmtilegar minningar eftir 17
ára starf hér í skálanum?
— Já, méP hefur nú alltaf fund
izt skemmtilegast á veturna þótt
þeir hafi oft verið þungir í skauti,
Einkum þegar fólk hefur verið að
brjótast yfir fjallið í ófærð. Það
hefur verið skemmtilegt að geta
hjálpað því, þegar það hefur ko'm
ið hrakið og kalt á næturnar. Fyrir
tveimur árum borðuðu hór 500
manns sömu nóttina. Þá sofnuð
um við ekki dúr. Daginn áður
voru hér fleiri hundruð manns
á skíðum, en svo varð ófært
skyndilega.-
— Hafið þið oft átt svona vöku
nætur?
—• Mjög oft á veturna. En þrátt
fyrir erfiðleikana hefur okkur
fundizt þetta skemmtilegasta
stax-fið. Við höfum þurft að lána
þessu fólki mikið af fötum; það
hefur oft verið illa klætt. Einu
sinni þurftum við að lána af okk-
ur öll utanyfirfötin — og skóna
líka. Þá var skíðamót á Kolviðar-
hóli, margt fólk og mikil ófærð.
Við ætluðum að fara á mótið, en
m'ðum að hætta vig það, því við
vorum búih að lána af okkur fötin.
Svo koma hér gangnamenn á
haustin. Við höfum mjög gamam
af þeim. Eg kann nú bezt við þá
af öllum gestum sem koma. Þeir
komu hér fjörutíu um helgina síð
■ustu og voru í tvær nætur.
Engin óregla —
góður beini
— Eg hef heyrt að ykkur hafi
tekizt að bægja óregllb frá skál-
anum.
— Já, þag kemur yfirleitt ekki
fyrtr, að fólk hafi hér slíkt í
frammi. Svo getur verið, að sum
um finnist ég einum of strangur
með þetta, en ég kæri mig ekkert
um svoleiðis gesti.
— Þá hefup maður heyrt að maf
urinn hjá ykkur hafi líkað vel.
— Við höfum að minnsta kosti
oft haldið veizlur fyrir fólk úr
bænum og selt veizlumat þar.
— Hvað getið þið tekið á móti
mörgum til gistingar?
— Það eru milli 50 og 60, sem
geta sofið hér.
— Er ekki þefcta hils í fullu
lagi til þessara nota?
— O, jú. Herbergin eru náttúr
lega orðin gamaldags.
— Teldii- þii rétt að endurbyggja
eða breyta þessu húsi?
— Það þyrfti að byggja við
það. Aðstaða fyrir skíðafólk er
mjög slæm. Ekkert svefnpoka-
pláss og ekkert fyrii* unglinga,
■sem eru með mat með sér. Það
er nauðsynlegt að fá svefnpoka-
pláss fyrir skíðafólkjð og þá, sem
búa sig með nesti að heiman.
Þeir eiga ekki að þurfa að^kaupa
dýrar veitingar. Svo: væri æskilegt
ag hafa nokkur góð herbergi fyrir
þá sem vilja hvíla sig hér nokkra
daga og jafnvel um lengri tíma.
— Margir sem gera það?
— Já, þó nokkrir, vanalega á
hverju ári. Menn sem þurfa að
vinna og vera í friði, koma hér
líka með verkefni. Rithofundar
og aðrir. Halldór Kiljan Laxness
var hér lengi áður en hann
byggði á Gljúfrasteini.
— Og hefu,. skrifað hér?
— Þó nokkrar sínar bækur.
Margir þakklátir
Ingibjörg, systir Steingríms,
tekur í sama streng og bróðiP
hennar og segir, að ■skemmtilegast
af öllu haíi sér þótt að taka á
móti hi'öktum ferðamönnum og
liðsinna þeim. Hún segir þau hafa
verið heppin nieð reksturinn og
sérstaklega með starfsfólkið, sem
þau hafa haldið mörgu hvérjú
frá ári til árs. Hún er lærð mat-
reiðslukona og á heiðurinn af
þeim góða mat, sem þau systkin
hafa jafnan haft á boðstólum.
Hún segist nú yfirgefa þetta starf
með nokkurri' effcirsjá.
Margir munu vera þeim systkin
um þakklátir fyrU' góðar viðtökur
í skíðaskálanum og myndu ef-
laust vilja láta það í ljós nú, er
þau yfirgefa þann stáð.