Tíminn - 06.10.1959, Page 1
samvinnu og framfarir,
bls. 7
43, árgangur.
Reykjavík, þriðjudaginn 6. október 1959.
Hefur þjónað tveim herrum, bls 6
Opið bréf Hannesar á Undirfelli,
bls. 8
íþróttir, bls. 10
215. blað.
Innheimta beinna skatta bitnar mjög rang
v j/
lega og iila á mörgum skattgreiðendum
Skattheimtan er orSin svo hömlnlans
að sumir skattgreiðendur hafa ekki
eftir fé til daglegra þarfa þegar vinnu
veitandi hefur dregið fyrirskipaðar
greiðslur af kaupi þeirra
Stjórnarflokkarnir láta blöð sín, Alþýðublaðið og Morg-
unblaðið, halda því fram að útsvör og tekjuskattur hafi ekki
hækkað á mönnum miðað víð afkomu þeirra á þessu ári.
Þessi blekkingarstarfsemi mun þó unnin fyrir gíg, þar sem
skattgreiðendur finna vel sjálfir, hver sannleikurinn er í
þessum efnum. Mjög margir þeirra greiða nú hærri beina
skatta en árið á undan, þrátt fyrir það að kjör manna eru
lakari í ár, þar sem tekjur manna eru minni vegna lækkaðs
kaups.
Við innheimtuna er ekkert til-
lit tekið til heimilisástæðna og
atvinnurekendur eru miskunnar-
laust krafðir um greiðslur á skött
um starfsfólksins. Þetta endar svo
með því að launaumslögin eru
næstum tóm. Erfiðast gengur
þetta orðið hjá þeim, sem ekki
hfa vinnu upp á hvern dag, en
hafa aftur á móti haft sæmilegar
tekjur síðastliðið ár.
(Framhald á 2. síðu)
kannig getur uppblásturinn
leikiS landiS, sem viö byggjum.
I margar aldir hefur gróðurtorfan
þykknað og aiið kjarnajurtir. Svo
sverfur að með beit og veður-
hörku. Lítið flag myndast og áður
en varir, nær stormurinn undir
grassvörðinn, sverfur, feykir og
grefur. Grastorfan fellur niður i
sárið, og eftir verður örfoka mel-
ur. Há moldarbörð blasa við, eða
stólpar með slútandi grashettu,
eins og myndin sýnir, hrópandi
tákn eyðileggingarinnar. Svo falla
þeir iíka fyrr en varir, og storm-
urinn sverfur grjótið, nema
mannshöndin og melgrasskúfur-
inn harði hefji þar saman nýtt
landnám — landgraeðsluna. Verl<-
efni hennar eru mörg og kalla
aiia fil starfa.
Vinnustéttirnar sam
einist gegn gerræði
S.l. sunnudag efndu Frarn-
sóknarmenn í Borg'arfirði íil
almenns kjósendafundar að
Brún í Bæjarsveit. Var fund-
urinn mjög fjölmennur, á
annað hundrað ' manns, og
hi,nn bezti í alla staði.
Framsögumenn á fundinum
voru Daníel Ágústínusson, Ásgeir
Bjarnason, Gunnar Guðbjartsson,
Haildór Sigurðsson og Ingimund-
ur Ásgeirsson, Hæli.
Fuudarstjóri var ,Þórir 'Stein-
þórsson, Reykholti, og flutti hann
einnig ræðu á fundinum.
(Framhald á 2. síðu)
Hreiðslugeta fólks hefur minnk
að stórlega vegna kauplækkunar
laganna. En þrátt fyrir fyrirsjáan
lega örðugleika af þeim sökum,
hafa stjórnarflokkarnir ekki sýnt
sig í því að hafa í huga minnkandi
gjaldgetu við álagningu beinna
skatta í ár.
Ag sjálfsögrð'u bar stjórnarflokk
unum að samræma skatístig-
ann þeim samdrætti í tekjum
manna, sem óhjákvæmilegnr
var vegna kauplækkunarlag-
anna. En í þess sta'ð var skatí-
stigiim láíinn standa óbreyttur
frá fyrra ári, sem var goít tekju
ár. Sézt bezt á þessu, að sa'nn-
igirni í garð hins almenna skatt
greiðanda situr ekki í fyrirrúmi
hjá stjórnarflokkunum.
Tóm umslög
Ekki þykir stjórnarflokkunum
nóg gert með því að sýna fyllsta
tillitsleysi í álagningu útsvara og
skatta, heldur er líka beitt
fyllstu hörku við innheimtu skatt
anna. í þeim mörgu tilfellum, þar
sem útsvörin hafa hækkað, hafa
•fyrirframgreiðslurnar verið hluf-
fallslega alltof lágar. Afleiðingin
er svo sú, a?j í vissum tilfellum af einhverjum misskilningi.
stappar nærri að menn séu launa ______________________________
lausir þessa síðustu mánuði árs-
ins. Stafar þet'ta af því að um
stórhækkaðar greiðslur er að
ræöa eftirf að álagning var
kunngjörð í ágústmánuði.
MiðaSi á gæsir
en drap álítir
Tveir ungir menn voru hand-
teknir um helgina fyrir álftadráp,
sem þeir frömdu rétt fyrir ofan
Miðdal í Mosfellssveit. Voru fimm
álftir á tjörninni og féllu þær all
ar fyrir skotum hinna veiðiglöðu
félaga. Bóndinn í Miðdal kærði
þetta athæfi piltanna til lögregl
unnar í Reykjavík, sem handtók
þá kumpána. Við yfirheyrslu gaf
skyttan þá skýringu á atferli sínu
að meiningin hefði verið að skjóta
gæsir, en skotin lent í álftunum
Sigldi að bryggju
me8 tundurdufl
F
a
þilfari
Um heigina bar það lil tíðinda
á Fiateyri, að togarinn Guðmund
ur Júní lagðist að bryggju með
tundurdufl á þiifari. Hafði duflið
komig í vörpuna, er togarinn var
að veiðum í svonefndum Þverál,
slutt út a fVestfjörðum. Togarinn
fór frá bryggju eftir stutta stund
og lagðist við akkeri aillangt út
á firði. Sérfræðingur kom síðar
flugleiðis með landhelgisflugvél-
inni Rán og ónýtti duflið, en áður
höfðu skipverjar yfirgefið skipið.
Blaðað í útsvarsskránui
Ekki er sama hver Olafurinn er
ÞaS er fróðjegt að blaða í
gegnum útsvarsskrána og' það
þótt menn Iesi ekki nema eina
opnu þar.
Á þe(rri opnimni, sem nafn
Olafs Thors stendur, eiga allar
stéttir sína fulltrúa. Það er
ekki ófiróiðjlegt áð sjá hvernigj
útsvörin og skattarnir leggjast
á þá.
Þar er veikamaður, Ólafur
Sigurðsson. Hanu liefur 4716 kr.
í tekjuskatt og 10.000 kr. í út-
svar. Þar er sjómaður, Ólafur
Sigurðsson. Hann hefur 6680
kr. í tekjuskatt og 13.900 kr. í
útsvar. Þar er bílstjóri, Ólafur
Sigurjónssou. Hann liefur 2846
kr. í tekjuskaft og 9500 kr. í
útsvar. Þar er skrifari, Ólafur
Sigurþórsson. Hann hefur 5656
kr. í tekjuskatt og 13.000 kr. í
útsvar. Þar er lögregluþjónn,
Ólafur Símonarsoii. Hann hefur
3595 kr. í tekjuskatt og' 11.500
kr. í útsvar. Þar er prentari,
Ólafur Stefánsson. Hann hefur
6701 kr. í útsvar og 13.700 kr.
í útsvar. Þar er rafvirki, Ólafur
K. Sveinsson. Hann hefur 2161
kr. í tekjuskatt, en 13100 kr. í
útsvar. Þar er úrsmiður, Ólafur
Tryggvason. Ilann hefur 5120
kr. í tckjuskatt og' 13.4)00 kr í
útsvar.
Þannig liafa allir þessir menn
og aðrir á þessari sömu opnu,
að tveimur undanskilduin frá
tvisvar til þrisvar sinnum liærra
útsvar en skatta.
Annar af þessuiii tveimur er
Ólafur TlicJrs, formaður Sjálfý
stæðisflokksins. Hann hefur
9776 kr. í tekjuskatt, en 9300
kr. í útsvar.
Hinn er fátækraíulltrúi og
háttsettur maður lijá Reykjavík-
urbæ, Ólafut Sveinbjörnsson
V'krifstofustjóri. Hann hefur
29.150 kr. í tckjuskatt og 18.700
kr. í útsvar.
Svo segir Bjarni Benediikts-
son í Mbl., að þáð sé aðeins
„rógur Þórarins", að forystu-
nienn og gæðingar Sjálfstæðis-
flokksins njóti útsvarshlunn-
inda.
Stórfellt
smyglmál?
Blaðið hefur frétt á skot
spónum, að í rannsókn sé
umfangsmikið smyglmál í
sambandi við Keflavíkur-
völl, og séu Verktakar Suð-
urnesja við það riðnir.
Rannsókn mun hafa hafizt
í málinu fyrir helgi.
Mun hér vera um að
ræða flutning verulegs
magns af byggingarefni —
einkum til innréttinga og
raflagna — út af vellinum.
Annars hafði blaðið ekki
nánari fregnir af máli
þessu í gærkveldi, en vafa-
laust verður frá því skýrt
af opinberri hálfu innan
skamms.