Tíminn - 07.10.1959, Side 1

Tíminn - 07.10.1959, Side 1
ESID U týnda ættingja, bls. 6 Þeir sömdu frið....... bl. 3 Allt á floti í Skeiöarétt, bls. 3 Opið bréf, bls. 8 [þróttir, bls. 10 43. árgangur. Reykjavík, miðvikudaginn 7. október 1959. 216. blað. Hver man til sinna Leikir íslenzkra barna hafa löngum verið fábrotnir, og mest notazt við þau föng, sem komu næsfum sjálfkrafa upp i hendur þeirra. Feður skáru fugla úr ýsu- beirsi har.da börnum sínum, og völur og leggir voru litaðir alla- vega og þénuðu sem kindur og hross. Margur slíkur reiðskjóti var spenntur í greipina milli vísi- fingurs og löngutangar og siðan var farin þeysireið um baðstof- una. í dag er risinn upp mikill iðnaður, sem sér börnum fyrir leikföngum. Enginn dómur skal á það lagður, hvort vélgerð leik- föng standi framar hinum, en það er von okkar, að margur myni tit sinna daga, þegar hann sér myndina tii hliðar. Hún var tekin austur á landi fyrir skömmu. „Féð‘‘ hefur verið réttað og það hefur raðað sér upp við hindrun- ina. Kindahornin æru sýnilega enn í fullu gildi sem leikfang og verða það vonandi enn um sinn. (Ljós- mynd: Tíminn). Verulegur samdráttur í verzlun vegna skattpíningar á almenningi Mikil mæðiveiki Reykjaneshölfi í Niðurskurði sauðfjár úr Reykjaneshólfi lauk að mestu 26. sept. Alls var slátrað um 7400 fjár, en eftir eru nokkr- ar kindur, sem slátrað verður í lok sláturtíðar. Fénu var öllu slátrað í slátur- húsi Kaupfélags Króksfjarðar, Króksfjarðarnesi, en þangað var það flutt á bifreiðum. Áður hafði liokkurt svæði umhverfis slátur húsið verið girt traustri girðingu af öryggisástæðum. Lungu og önn ur innýfli, sem ekki var hægt að nýta, voru jafnharðan flutt á af- girt svæði og grafin þar. Ekkert fé verður fekið aftu,- í hólfið á þessu hausti og má segja, ag eftir ástæðum sé það ekki óheppilegt, þar sem heyfengur þænda er með minna móti vegna hinna miklu og langvarandi óþurrka í ágúst og september. Þó una margir bændur féleysinu ilfa, þrátt fyrir væntanlegar afurðatjónsbælur. Mæðiveikin útbreidd Við athugun í sláturfénu kom í ljós, að mæðiveikin var all út- breidd í hólfinu, eða alls á 7 bæj um. Mögnuðust var hún í Miö- húsum og á næstu bæjum, Börm um og Seljanesi. Alls verður á þessu hausti slátr að 12500 fjár í sláturhúsi kaup- félagsin.s, og er það mildum mun meira en nokkru sinni áður. — Sláturvinna hófst 7. sept. og mun ljúka upp úr næstu helgi. Allt kjöfið hefur til þessa verið flutt á bilum til frystingar á Akranesi og Reykjavík, og hafa flutningar gengið að vonum, Um síðustu Flokkskaffi Framvegis verður afgreitt miðdegiskaffi í Framsóknar- liúsínu frá klukkan 3—5 á daginn. helgi hófst söltun kjöts Noregsmarkað. fyrir ÓÓ. Hækkun útsvars og skatts um 30 millj. og kaup- lækkun stjórnarílokkanna draga stórlega úr kaup- getu fjölmargra launamanna Það er nú komið á daginn, að verulegur samdráttur er orðinn í verzluninni hér í bænum vegna minnkandi kaupgetu manna. Þegar líður á haustið eykst verzlunin venju- lega frekar en að hún dragist saman. Skýringuna á þessum samdrætti í verzluninni nú, þvert ofan í reynslu fyrri ára, er meðal anjiars að fiima í þeirri skattpíningu, sem er á almenningi. BLAÐAÐ I UTSVARSSKRANNI Ýmsu munar á Benediktssonum Þótt útsvarsskráin sé ekki í ætt við fagurbókmenntir, þá er liúnj engu að síður hið forvitnilegasta rit . Og hún er mjög upplýsandi,' þótt ekki séu lesnar nema nokkr- ar línur í lienni. Til dæmis ber svo við, þegar flett er upp í henni, þar sem samankoninir eru fjórir alnafnar, að einn þeirra kemst sýnu betur frá útsvarinu, miðað við tekju- skatt, en hinir Benediktssynirnir Sá, sem þannig ber af í þessum efnum af alnöfnunum er Bjarni Benediktsson, ritstjóri Morgun- blaðsins. Bjarni Benediktsson, ritstjóri Morgunblaðsins er efstur af þeim fjórum. Honum er gert að greiða 38.612,00 kr. í tekjuskatt, en ekki nema 29.900,00 kr. í útsvar. Þann- ic/ er útsvar lians 8.712,00 kr. lægra en tekjuskatturinn. Bjarni Benediktsson, blaðamaður, nú ritstjóri Útsýnar, hefur 3572 kr í tekjuskatt, en útsvar hans nem- ur 10.700,00 kr. og cr því rúmum sjö þúsund krónum liærra en tekjuskatturinn. Þriðji alnafninn er Bjarni Benediktsson, verka- maður. Ilann hefur 2848,00 kr. í tekjuskatt og 9200,00 í útsvar. Og fjórði aluafninn, Bjarni Bene- diktsson, fyrrverandi póstmeist- ari. Hann liefur 363,00 kr. í tekju skatt og 900,00 kr. í útsvar. Hinir þrír alnafnar Bjarna Benediktssonar, ritstjóra Morg- unblaðsins eiga það sammerkt, að þeir bera hærra útsvar en tekju- skatt. Ri|tstjóri Morgunblaðsins (Framhald á 2. síðu) Þess sér að sjálfsögðu stað, að nú er lagt þrjátíu milljónum króna meira á einstaklinga í sköttum og útsvörum en áður. Til viðbótar þessari hækkun kemur svo sú kauplækkun, sem stjórnarflokkarnir lögbundu um síðast liðin áramót. Afturkippurinn Hjá verzlunum er almennt við- urkennt, að viðskiptin séu minni en á sama tíma undanfarin ár. Þessarar tregðu fór að gæta fljót- lega eftir að almenningur fór að finna fyrir hinum raunveruilega þunga útsvars og skattgreiðs'lna að áliðnu sumri, enda urðu þá stórfelldar hækkanir á vikulegum og mánaðarlegum útsvarsgreiðsÞ um af kaupi fjölmargra manna. Af þessum sökum er auðvelt að sjá skyldleikann með þeirri skatt- píningu, sem nú á sér stað hér í Reykjavík, og þeim samdrætti, sem orðið hefur í verzluninni. Þar haldast í hendur hækkunin sem stjórnarflokkarnir stóðu fyrir á útsvörum og skatti, og kaup- lækkunin. Búizt við aukningu Þeir sem vig verzlun fást höfðu búizt við því, að aukning yrði í verzluninni þegar líða tæki á haustið, eins og árin á undan. — Ýmislegt var til að rökstyðja þessa skoðun, enda var sumarið í sumar gott tekjusumar fyrir marga, eins og síldveiðarnar benda til, svo eitthvað sé nefnt. Það kom því verzlunarmönnum (Framhald á 2. síðu) Loftfimleikar í sambandi við hina miklu árlegu flugsýningu í Farn- borough í Hampshire í Englandi gengst brezki flug- herinn alltaf fyrir flugsýningu. Hér sést eitt atriði úr þeirri sýningu: Hunter-þoturnar hafa í sameiningu myndað þetta þykka reykský og steypa sér síðan til jarðar. Myndin er tekin á æfingu sem haldin var áður en sjálf sýningin fór fram.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.