Tíminn - 11.10.1959, Blaðsíða 1

Tíminn - 11.10.1959, Blaðsíða 1
Er þetta rétt- læti og réttvísí Enn fréttist ekkert um það í gær, að dómsmálaráðherra ætlaði að bæta fyrir embætt- isglöp sín og láta alla fulltrúa húsnæðismálastjórnar víkja, meðan réttarrannsókn stend- ur yfir á gerðum hennar. Egg ert og Ragnar sitja þar enn. Þjóðin mun telja erfitt áð sætta sig við slíkt réttarfar. RannsóknLn hlýtur að snúast um það, hvort misferli hafi átt sér stað í lánveitingunum eða ekki — það er aðalatriði málsins. Um starf húsnæðismálastjórnar eru hins vegar allir nefndar- menn samábyrgir vegna þess, að engiii lánveiting fer þar fram nema allir nefndarmenn sam- þykki hana og undirriti. Ráð- herra gerir því ekki alla nefnd- armenn jafna fyrir lögunum — (Framúald á 2. síðu) Lengi tekur sjórinn við, segir máltækið, og er þá stundum átt við góða matarlyst. Hrafnar hafa löngum verið taldir í gráðugra lagi og þessum virðist ekki illa í ætt skotið. Blaðað í útsvarsskránni SMJÖRSKAKA ELOISGÆÐINGS ÍHALDSINS Að þessu sinní birtum við hæstu gjaldenur af þeim, sem bera Jóhanes nafnið í út- svarsskránni. Meðal þeirra er Jóhann Þ. Jósefsson, fyrrverandi alþingismaður og ráðherra. Sýnilegt er á afstöðunni milli skatts hans og útsvars, að hann fyllir ekki lengur hóp þeirrta, sem hlunnindanna njóta í Sjálfstæðisflokknum, enda íar- inn að gamlast og hættur að sitja á Alþingi fyrir flokkinn. Jóhann Rönning, framkvæmdastj. 12397 22400 Jóhann Björnsson, verkamaður 16700 25000 Jóhann Hafstein, bankastjóri 48146 37400 Jóhann Jóhannsson, hljómsveitarstj. 20523 27100 Jóhann Þ. Jósefsson, fyrrv. alþm. 44591 51500 Jóhann Sigurbjörnsson, stýrim. 12503 21300 Engan þarf að undra, þótt Jóhann Hafstein, bankastjóri, hafi lægra útsvar en skatf. Hann hefur frá fyrstu afskiptum af stjórnmálum verið sérlegur gæðingur Sjálfstæð isflokksins, nokkurs konar eldisgæðingui' hans, og flokkurinn hefur gripið undir svuntu sína eftir margri smjörskökunni handa honum. Þetta er sú sísðasta, sem vifað er um. Ætla Fjallabaksleið á bílum Allt situr við sama á Mýrdals- sandinum, og er talið ómögulegt að nokkuð rætist út fyrr en flóð- ið sjatnar eittlivað. Fregnir frá Vík hermdu, að mjög mikið hefði runnið úr veginum kringum brúna á Blautukvísl, eða um 60 metra bil hvorum megin. f gær var verið að svipast um eftir möguleikum til að komast annars staðar austur úr, en engar niður- stöður voru komnar frá því. Tveir stórir flutningabílar frá Olíufélaginu verða innlyksa í Kirkjubæjarklaustri, en í gær- morgun lagði stór „trukkur“ frá Olíufélaginu af stað frá Reykja- vík og ætlaði að freista þess að komast Fjallabaksleið austur, og fylgja síðan olíubílunum til baka sömu leið. Ein uggvænleg tor- færa er á þeirri leið, Jökulkvísl, en ef allt hefur gengið að ósk- um, hefur „trukkurinn“ komið til Skaftártungu í gærkvöldi. All- ir flutningar hafa að sjálfsögðu lagzt niður, en rcynt verður að bjarga þeim afurðum, sem áður voru fluttar suður með því, að salta gærurnar og frysta slátrið, svo lengi sem frystigeymslur geta við því tekið. V.V. Þegar Bjarni úthlutar íbú($alánum: 24 lán til sama manns Sjálfstæðisflokkurinn taiar nú fjálglega um það, að tafar laust verði að afla fjár í Byggingasjóð til hjálpar þeim þús- undum fólks, sem er í vandræðum. Hann hefur þó fellt og barizt gegn öllum tillögum Framsóknarmanna á þessu ári til þess að efla sjóðinn. Svo kemur hann hálfum mánuði fyrir kosningar og segir að féð verði að útvega þegar en getur ekki bent á nokkra leið til þess. Féð á bara að koma. Flramsólknarmenn lögðu tll á- j kveðnar og tryggar fjáröflunarleið ir,. m.a. með því að veria tekju- afgangi ríkissjóðs frá fyrrai álri eins og áður í þessu skyni, og einnig var bent á ákveðnar leiðir í tillögu Þórarins Þórarinssonar. Þetta kolfelldi íhaldið og hjálpar- flokkar þess allt saman. Nú kem- ur íhaldið hins vegar og segir: Féð verður að koma, en það veit enga leið til að afla þess. Þetta er s'vívirðilegt kosningaskrum og: grár ieikur við húsbyggjendur. | Þessum herrum hefði verið nær að standa eins og menn að fjár- j öflun fyrir sjóðinn í tíma, en' kasta ekki fé því, sem átti að fara til hans, í eyðsluhít. Útlán Bjarna En hvernig er þá lánaútvegun Bjarna Benediktssonar varið, þeg-: ar hann hefur undir höndum fé, j sem fara á til íbúðalána. Ferill hans í því efni er allt annað en fagur. 'Svo er mál með vexti, að sam- arformaður. Eitt árið, sem sjóður inn innti þessa skyldu af hönd- um, lét Bjarni sjóðinn veita ein- um og sama manninum 24 íbúða- lán, og taldi svo að með þessu hefði hann innt af hendi skyldu kvæmt lögum um íbúðalán skal sína við að hjálpa fátækum hús- að ráða sjálfir, hverjum þeir veita lán af fé því, sem þeim er skylt eftir lögum að leggja til kerfis-j ins. Ein lánsstofnana þeirra, sem ber að inna þessa skyldu af hönd- um, er Sparisjóður Reykjavikur. Þar er Bjarni Benediktsson stjórn byggjendum. Þessi maður var vild arvinur Bjarna og gæðingur og forystumaður Sjálfstæðisflokksins. Hann fékk einn 24 lán, tekin frá jafnmörgum fjölskyldum, sem 'biðu og vantaði þau sárlega. Þetta er lánasiðferði Bjarna Bene diktssonar. HÁ BOÐ í GRIPI ÞJÓÐSKÁLDANNA Á listmunauppboði Sigurð- ar Benediktssonar í gær var fjörlega boðið í gamla muni þjóðskálda, og einnig fóru málverk Ásgríms, Kjarvals og Þórarins B. Þorlákssonar á allhátt verð. Beislisstengur úr nýsilfri, fyrrum eign Gríms Thomsens skálds voru slegnar á kr. 2500 og pappírshnífur hans fór á þúsund kr. Betur gerði þó blekbytta hans, því að hún var slegin á kr. 2800 . Borðvínsflaska Gríms fór á kr. 650. Enginn vildi hins vegar bjóða í dyratjöld barónsins á Hvítárvöll- um, og vakti það dálitla undrun. Stofusófi Matthíasar Jochumsson ar þótti girnilegri og var hann sleg inn á kr. 2500. Þá fór mahogni- slofuborð Einars Benediktssonar á kr. 2600. Af málverkauppboðinu er það helzt að nefria, að Þingvallamynd eftir Ásgrím, olíumálverk 80 sinn- um 115 sm. fór á 21 þús. kr. og minni Þingvallamynd eftir hann á 17 þús. Sögulegasta flugferðin í tilefni af 40 ára afmæli flugs á íslandi hinn 3. sept. s. 1. tilkynnti Tíminn, að hann mundi efna til verðlauna fvrir frásögn af skemmtilegustu og sögulegustu flug ferðinni með íslenzkum farkosti innan lands eða utan. Verðlaun eru tvenn, flug- ferð til Kaupmannahafnar og nokkur dvöl þar og flugferð innan lands á hvaða á- ætlunarleið sem er Handrit merkt dulnefni, en ásamt nafni í lokuðu umslagi skal hafa borizt blað- inu fyrir 15. nóv. Lengd frásagnar sé ekki yfir tvær síður í Tímanum en gjarnan styttri. Góðar ljósmyndir auka gildi frásagnarinnar. Rifjið nú upp sögulegustu flugferðina og skrifið skemmtilega grein — til góðra verðlauna er að vinna.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.