Tíminn - 23.10.1959, Blaðsíða 6
ö
T í M I N N , föstudaginn 23. október 1959.
L
Úfgefandl: FRAMSÓKNARFLOKKURINN
Kitstjóo-i og ábm.: Þórarinn Þórarinsson.
Skrifstofur f Edduhúsinu við Lindargötn
Símar: 18 300, 18 301, 18 302, 18 303, 18305 og
18 306 (skrifst., ritstjórnin og blaðamenn).
Auglýsingasími 19 523. - Afgreiðslan 12 323
Prentsm. Edda hf. Sími eftir kl. 18: 13 948
■N
Síðar gæti það reynzt oí seint
ÞA£> er bersýnilegt, a3 auð
stéttinni á íslandi dreymir
nú mikla drauma um auk-
in völd og meiri auðsöfnun.
Að visu treystir hún ekki svo
mjög á aukið fylgi flokks
síns. Það, sem hún treystir
á, er sundrung andstæðing-
anna. Tilgangur hennar með
kjördæmabreytingunni var,
að viðhalda sundrungu
þeirra í marga smáflokka,
og helzt að auka hana. í
kosningunum nú væntir hún
uppskerunnar.
Hið eina rétta svar íhalds-
andstæðinga við þessum fyr
irætlunum auðstéttarinnar,
er að sundra ekki kröftum
sinum, heldur fylkja sér sam
an um einn flokk, og þessi
flokkur á að vera Framsókn
arflokkurinn. Rökin fyrir
því eru meðal annars:
1. Framsóknarflokkurinn
einn er nú álíka stór og Al-
þýðuflokkurinn og Alþýðu-
bandalagið til samans. Það
sýna úrslit seinustu kosn-
inga. Hann er því lang-
stærsti og sterkasti flokkur
íhaldsandstæðinga.
2. Framsóknarflokkurinn
hefur sýnt það í verki, að
hann er traustasti og öflug-
asti andstæðingur íhalds-
ins. Á sama tíma og Alþýðu-
flokkurinn og Alþýðubanda-
lagið hafa tapað i viðureign
inni við Sjálfstæðisflokkinn
í Reykjavík, hefur Sjálfstæð
isflokkurinn farið halloka
fyrir Framsóknarflokknum í
str j álbýlinu.
3. Framsóknarflokkurinn
er nú eini andstæöingur
Sjálfstæðisflokksins, sem er
einbeittur og ákveðinn and-
stæðingur hans. Milli Sjálf-
stæðisflokksins og Alþýðu-
flokksins er nú svo náið sam
starf að það getur ekki nán-
ara verið. Ekki getur því Al-
þýðuflokkurinn orðið for
ystuflokkur íhaldsandstæð-
inga. Allir vita, að Einar Ol-
geirsson stefnir nú ekki að
öðru fremur en að komast í
flatsæng með íhaldinu og
Alþýðuflokknum, en hann
virðist nú ráða mestu um
stefnu Alþýðubandalagsins.
Alþýðubandalaginu verður
því ekki treyst til forystu
gegn íhaldinu.
FRAMSÓKNARFLOKK-
URINN EINN hefur þannig
öll skilyrði til þess, að vinstri
menn sameinist um hann og
skapi þannig sterkan vinstri
flokk, er sé fær um að halda
íhaldsöflunum og íhalds-
stefnunni i skefjum. Sein-
ustu kosningar bentu hik-
laust til þess, að fleiri og
fleiri vinstri menn gerðu sér
þetta ljóst. Þess vegna
efldist Framsóknarflokkur-
inn jafn mikið í þéttbýlinu
og raun bar vitni um.
Auðstéttin gerir sér það
líka vel ljóst, hver er aðal-
andstæöingur hennar í þess-
ari kosningabaráttu. Nær öll
um vopnum hennar hefur ver
ið beint gegn Framsóknar-
flokknum undanfarna daga.
Það má vera íhaldsandstæð-
ingum sönnun þess, hvaða
flokkur það er, sem íhaldið
óttast mest og telur sér
hættulegastan, og þeir eiga
því einmitt að efla og
styrkja.
VINSTRI MENN eins og
aðrir íhaldsandstæðingar,
hafa til ills deilt á undan-
förnum áratugum og fórnað
miklu starfi og góðum kröft
um til þess að rífa hvorir
aðra niður, í stað þess að
fylkja til gegn sameiginleg-
um andstæðingum. Vegna
þessa ófriðar og sundurleys-
is, er auðmannastéttin jafn
öflug og voldug og hún er í
landinu í dag. Þessi sundr-
ung — þessi klofningsstarf-
semi verður að taka enda,
annars eiga vinnustéttirnar,
bændasamtökin, v erkalýðs-
hreyfingin og samvinnu-
hreyfingin það á hættu, að
allir sigrar þeirra verði gerð
ir að engu, að ósvífin auð-
mannastjórn taki hér völd-
in eins og þvi miður hefur
víða átt sér stað, þar sem
íhaldsandstæðingar hafa
sundrað kröftum sínum..
Þess vegna veröa íhaldsand-
stæðingar nú að sameinast.,
Síðar getur það reynzt of
seint.
Flokknr íkaldsandstæðinga
FRAMSÓKNARFLOKK-
URINN sækir fram í þeim
kosningum, sem nú fara í
hönd, á margan hátt, sem
nýr flokkur, þótt hann eigi
farsælt 40 ára starf að baki.
Það er eindregnara takmark
hans nú en nokkru sinni
fyrr, að sameina bændur og
miðstéttir og verkalýð bæj-
anna undir eitt merki, líkt
og tekizt hefur hjá demo-
krötum í andaríkjunum og
sósíaldemokrötum í Noregi.
Þessar stéttir eiga ekki að
vera sundraðar, heldur að
standa saman. Til þess að
bera uppi þetta sameiningar
merki, hefur Framsóknar-
flokkurinn teflt ungum,
glæsilegum mönnum, sem
hvarvetna skipa nú baráttu
sæti á framboðslistum hans.
Framsóknarflokkurinn
gengur því öruggur og ein-
beittur til kosninagnna, sem
áttu samkvæmt áætlun and-
stæðinganna að veðar enda-
lok hans, en munu snúast
upp í það að marka nýja sig-
urgöngu í sögu hans, nýja
og margfalt öflugri baráttu
fyrir sameiningu íhaldsand-
stæðinga á^íslandi.
íhaldsand*stæðingar, frjáls
lyndir menn — og vinstri
menn um allt ísland! —
Verum ekki sundraðir á
sunnudaginn kemur. Fylkj-
nm okkur saman á sunnu-
daginn og myndum stærri
og öflugri flokk frjálslyndra
Ur útvarpsræðu Eysteins Jónssonar:
Efnal tiassm lálin eru i lúkom p
í verri hní ít en oft ast áði ur
Blekkingar og skrum stjórnarflokkanna um
efnahagsmálin er Ijótur kosningaleikur
Ljótur leikur er nú leik-
inn með efnahagsmálin 1
blekkingaskyni fyrir kosn-
ingarnar.
Ríkisstjórnin er svo ó-
skammfeilin að segja þjóð-
inni að hún hafi stöðvað
verðbólguna.
Það er stagast á að ríkis-
sjóður standi ekki mikið
ver en áður í bönkunum
þessa dagana og útflutn-
ingssjóður standi ennþá við
skuldbindingar sínar.
En því er þjóðinni ekki
sagt eins og satt er:
Að vísitölunni er haldið
kyrri á meðan kosninga-
baráttan stendur yfir, með
því að éta út greiðsluaf-
gang frá í fyrra, sem nú er
þrotinn og með því að sýna
bændum takmarkalausa
óbilgirni, sem þeir láta
ekki bjóða sér lengur,
fremur en hver önnur
stétt sem væri.
Að það, sem af er árinu
er afkoma ríkissjóðs 76
milljónum lakari' en í fyrra
og að ómögulegt er að
koma saman að óbreyttu
hallalausum fjárlögum.
greiðsluafgangur verður t.
d. ekki étinn nema einu
sinni.
Að útflutningsuppbætur
og niðurgreiðslur hafa ver-
ið hækkaðar svo gífurlega,
að óhugsandi er að tekjur
útflutningssjóðsins standi
undir útgjöldum vegna árs-
ins. — Bara síldaruppbæt-
ur einar hafa hækkað um
á milli 50—60 milljónir
frá því sem ráðgert var í
vor og var þó reiknað með
halla þá strax.
Að við þetta bætist, að
peninga er nú aflað með
svo gífurlegum forgangs-
innflutningi, lúxusvara og
þar með fylgjandi skorti á
nauðsynjum, að slíkt verð-
ur ekki endurtekið framar.
Að því fer því miður svo
fjarri að verðbólguhjólið
hafi verið stöðvað með
panik- og blekkingaráðstöf-
unum ríkisstjórnarinnar, að
með þeim er búið að koma
efnahagsmálunum í verri
hnút en oftast áður og í
því liggur hin þunga sök
stjórnarflokkanna, svo
og skruminu. Meinsemdin
er beinlínis látin grafa um
sig fram yfir kosningar. —
Innan um skrum stjórn-
arliðsins skortir heldur ekki
vitnisburði um, að þeim er
ljóst hvað raunverulega er
að gerast. Eða því skyldu
þeir þurfa að fylla ræður
sínar með setningum eins
og þessum: vandi framtíð-
arinnar í efnahagsmálum
er óleystur — efnahagsmál-
in eru það erfiðasta við-
fangsefni, sem framundan
er. — Því þetta, ef það væri
satt að allt væri í jafnvægi.
Enda kollvarpaði Gylfi Þ.
Gíslason hér áðan öllu því,
sem ráðh. Alþ.fl. voru að
segja mönnum í gærkvöldi.
Þetta er Ijófur leikur.
Giinnars þáttur Thoroddsens: 10. grein
Stjórnlaus bær - án skipulags
„Lygn strcymir Don“.
XX.
Fossvogslækurinn cr eins og
venjulegur lælcur, sakleysisleg-
ur og broshýr. Hann líður hægt
til sjávar út í Fossvoginn. End-
ur og gæsir eiga hreiður sín í
bökkum hans og litlir ungar
þeirra læra þar fyrstu sund-
tökin.
En Fossvogslækurinn gegnir
meira hlutverki en þetta. Eftir
að hin stóru úthverfi risu í
Bústaðahæðinni, raðhúsin og
Bústaðahverfi, hefur þessi litli
Jækur gegnt hlutverki skolp-
veitu frá þessum hverfum. Og
hvert haldið þið, að þessi
óþverri renni, beint út í Skerja
fjörð, þar sem baðstaður Reyk-
víkinga er„ í Nauthólsvíkinni.
Það er ekki ánægjulegt fyrir
æskufólk Reykjavíkur og aðra
fbúa bæjarins að stunda sjóböð
í Nauthólsvík og vita að frá-
rennsli úr salernum úr heilu
bæjárhveii’fi blandað sjónum,
þar sem það er að baða sig.
Hvar í veröldinni mundi slíkt
þolað?
Sundlaugarnar gömlu er sá
staður í bæjarlandinu, sem
flestum bæjarbúum þykir vænt
um, enda hafa þúsundir bæjar-
búa lært þar að synda og not-
ið hollustu af sundi og sólböð-
um.
Þessi. sælustaður bæjarbúa
hefur verið sorglega vanrækt-
ur. Hússkrifli það, sem við
laugarnar er, er varla mönnum
bjóðandi.
íhaldsandstæðinga en áður
hefur verið til á íslandi. Með
því stöðvum við bezt sókn
auðstéttarinnar og tryggj -
um bezt framfarir og lífs-
kjör alþýðunnar.
Mikið vandamál hefur skap-
azt þarna, sem er sveppagróður
sá, sem er þar, og hafa ýmsir,
er sækja laugarnar að stað-
aldri, fengið þarna illkynjaða
sveppi á hendur og fælur. í
sundhöllinni hefur ekki slíkt
komið fyrir og notar hún þó
heitt jarðvatn. Hvað segir yfir-
maður heilbrigðismála bæjar-
ins, borgarlæknir, um þetta?
Er ekki þarna einhver vanhirða
og sóðaskapur á ferðinni, því
að heita vatnið í Laugunum
ætti ekki að vera frábrugðið
öðru heitu vatni? Það er krafá
bæjarbúa, að borgarlæknir
gefi skýrslu tafarlaust um
þetta mál. Hann er yfirmaður
þessara mála og honum ber
'skylda til þess sem embættis-
manni bæjarins.
Opnu svæðin.
Vaxandi höfuðborg þarf að
hafa sín iungu — opin svæði,
og slíkt verður ekki gert nema
með skipulagi sem hefur verið
hugsað fram í tímann. Þessu
hefur verið lítill sómi sýndur
hór í bænum frá því á valda-
tímum Jónasar Jónssonar,
fyrrv. dómsmálaráðherra. Það
var hann, sem sá Landsspítal-
anum fyrir miklu svæði, sem
hann býr að enn í dag. Sömu-
leiðis Háskólahverfinu stóru
landrými og mun sú forsjálni
hans bjarga því um næstu
framtíð. Ennfremur sá hann
fyrir framtíðarstað fyrir vænt-
anlegri stjórnarráðsbyggingu í
hjarta bæjarins. Hvað hefur
bærinn sóð fyrir framtíðarstað
fyrir Menntaskólahverfi, sem
hæfir vexti hans um langa
framtíð?
Hvergi hefur bæjarstjórnin
komið auga á framtíðarstað
fyrir ráðhús, nema að henda
því í einu tjörnina, sem er í
bæjarlandinu, og er mesta
prýði bæjarins. Og flesta þá
staði, áfem ráðhús gat .sómt sér
vel á, er nú búið að eyðileggja
t. d. Háaleitishæðina, þaðan
sem útsýni er yfir nær allt
bæjarlandið. Þar er búið að
staðsetja blokkhús.
Tjarnargarðurinn, sem er
eini opni garðurinn í bænum,
hefur verið eyðilagður með
stórgrýtishaug, sem er svo
fáránlegur, að undrun sætir.
(Hann hefur líklega ekki kom-
izt í höfnina). Klambratúnið,
sem hefði getað verið fullkom-
inn skemmtigarður fyrir löngu
með trjágarði og blómabeðum,
er nú óþverrasvað. Kringum
þetta svæði var þó húsalina
ákveðin fyrir löngu.
Öskjuhlíðin að sunnan og
vestan er sá staður, sem er
skapaður af náttúrunnar hendi
fyrir skemmtigarð. í hana má
byggja stalla með trjágróðri og
blómabeðum og þar er fagurt
útsýni yfir Reykjanes, Snæfells
nes og Borgarfjarðarfjöll. Þess
'Um stað var enginn sómi sýnd-
ur fyrr en Björn Guðmundsson
sem var bæjarfulltrúi Fram-
sóknarflokksins, fór að skrifa
um það greinar í Tímann til
.að vekja athygli á staðnum.
Þá vaknaði íhaldið og lét sá þar
grasfræi, sem er til mikillar
prýði.
Það er vonandi, að bæjaryf-
irvöldin sjái sóma sinn í því,
að friðlýsa þennan stað og
gera hann að því sem náttúran
hefur skapað hann til að vera:
Fegursta skemmtigarð bæjar-
ins.
En það skal þakkað, sem vel
er gert. Austurvöllur er vel
hirtur blettur og lamparnir við
gangstígana eru til gleði fyrir
vegfarendur.
A.B.C.
Niðurlag næst.