Tíminn - 29.01.1960, Page 12
Stærsta olíumálverk gert
hérlendis, fjórtán fermetr-
ar, sett upp í þrettán hlut-
um á veggflöt 1 fundarsal
bæjarstjórnar í Skúlatúni 2,
mestumtalaða málverk hér
og í Danmörku síðan í
haust.
Fréttamaður blaðsins kom að
máli við Jón Engilberts, list-
málara, hofund bessa stórvirkis',
þar sem hann var að vinna að
uppsetningu málverksins ásamt
tveimur smiðum inní Skúlatúni
í gær.
— Þú virðir þetta fyrir þér,
sagði Jón, og vísaði frétta-
manni til sætis á áheyrenda-
bekk í hæfilegu færi við mál-
verkið, sem þekur vegginn
andsælis til hægri með flöttum
fiskum og lukt, sem rninna á
svipmyndir úr frystihúsum og
stórfiski neðra og báti, sem rís
í öldufaldi, spannað í trollgarn
og net. og síld í körfu, lögð
s’ilfurplötum til að magna ný
áhrif í hvítan grunnlit án þess
að brjóta hann, og sá guli
sveigður upp- í horn til vinstri,
afmarkast af drúpandi fugli og
boglínum niður með sterkri
sveiflu andæft með beinum
línum og ískuldi djúpanna hið
neðra, en rauð nótt kveikt að
ofan og mögnuð blárri and-
stæðu án þess að rjúfa heild
. verksins'.
— Erfiðast er að stækka
skissurnar í réttum hlutföllum
og samræmi í lit, sagði Jón,
þegar fréttamaður hafði horft
á málverkið um stund. — Mað-
ur verður að kunna myndina
utanað, vita hvar á að byrja
Jón Engilberts, til vinstri, viS uppsetningu málverksins.
jávarkantata i lit
,og þekkja áframhaldið, sérstak
lega þar sem vinnuplássið er
lítið og engin tök á að stilla
|upp verkinu i heild.
.1 — Hvað ertu búinn að vinna
lengi að þessu, Jón?
— Tæp tvö ár. Unnið fram á
rauðar nætur og byrjað kjöl-
dreginn á morgnana.
— Og þetta er stærsta mál-
verkið hér.
— Já, mér er ekki kunnugt,
að neinn hafi gert stærra oliu-
málverk.
— Það næststærsta, það er
eftir þig?
— I Búnaðarbankanum, já
það er næststærst. Lofthæðin í
sýningarsal Den frie í Kaup-
mannahöfn var varla nóg fyrir
þetta, þegar ég sýndi þar í
haust.
■— Þeir hafa séð það.
— Já, það var sjónvarp og
mikið að snúast.
— Þú sýndir með Kammer-
aterne?
— Já, ég hef verið með í
þeim félagsskap. Meðlimur frá
þvi ári eftir að Kammeraterne
var stofnað. Það er lífseigt fé-
lag, sem heldur sínar föstu
sýningar. Það hefur ekki
slokknað út af eins og mörg
hliðstæð fyrirtæki í Danmörku
og raunar hér.
j
Umboðslaunin fari fyrir blla
en sé ekki skilað til banka
AlþýðufelaðiíS bendir á þessa nýju leiti til gjald-
eyrissvika í þjónustu ríkisstjórnarinnar
AlþýðublaSið reynir með
blekkingum að afsaka það
lineyksli, að ríkisstjórn Al-
þýðuflokksins hafi á s.l. ári
aflað sér tekna í Útflutnings-
sjóð með því að örfa og að-
stoða við ólöglega meðferð
erl. gjaldevris 1 sambandi við
óeðlilega mikla útgáfu gjald-
eyrislausra bílleyfa.
Skýrslur um bílaleyfin liggja í
ráðuneyti Gylfa Þ. Gíslasonar við-
skiptamálaráðherra og staðfest-
ingu um gjaldeyrisbrask í sam-
bandi við bílleyfi er að finna í
réttarskjölum hjá sakadómara. í
stað þess að afla sér upplýsinga á
þessum stöðum, birtir Alþýðublað
ið fjarstæður, eins og t.d. þá, að
gjaldeyrisiaus bílleyfi hafi fyrst
verið veitt 1954 í ráðherratíð Ey-
steins Jónssonar.
Hið sanna í máiinu
er þettar
t {jfjá s.i: áratugi hafa verið
veitt gjaldeyrislaus léyfi fyrir tak-
markaðri tölu bíla á ári, en ávallt
lögð áherzla á, að takmarka slíkt
við löglega 'fenginn gjaldeyri, bæði
til sjómanna og annarra ísiend-
inga ef vinna fyrir erlendum gjald-
eyri. Nokkuð þarf og að veita af
slíkum leyfum vegna sölu á bif-
reiðum frá erlendum sendiráðum
hér. Getur tala slíkra leyfa verið
smávægilega breytileg frá ári til
árs cg á slíkt ekkert skvlt við þá
stefnubreytingu sem tekin var um
leið cg ríkisstjórn Alþýðuflokks-
ins tók við völdurn í iok ársins
1958.
305% aukning
Á árunum 1954 til 1958, eða í
5 ar voru t. d. veitt gjal’deyris-
laus levfi fyrir 244 bil'um á ári
miðað við meðaltal þessara ára’.
Hins vegar voru sams konar leyfi
veitt á árinu 1959 fyrir 755 bílum
Aukningin er því 305%, eða rúm-
iega þrefölduð tala eins og Tím-
inn hefur áður skýrt frá og skýrsl-
•ur sanna.
Ölum er Ijóst, að þessi gífur-
lega aukning stafar af iþví, að rík-
isstjórnin taldi sig þurfa að fá
auknar tekjur af háum sköttum
•sem eru á bílleyfunum. Það er og
vitað, að slí’k leyfi hafa verið veitt
í stórum stíl á s.l. ári til aðila
er ekki eiga til gjaldeyri fyrir bíl
og þess vegna eru þessi leyfi ávallt
til sölu. Þá er það og sannað með
réttarranns'ókn, að óleyfileg gjald-
eyrisráðstöfun á sér stað í ríkum
mæli í sambandi við umrædd leyfi.
Framanritað eru allt staðreynd-
ir, sem ekki þýðir fyrir Alþýðu-
Framhald á 2. síðu.
Kongo fær sjálf-
stæSi 30. iání
NTB—Brussel, 27. jan. —
Ákveðið var á Kongó-ráðstefn
unni í dag, að Kongó skuli fá
s.iálfstæði 30. júlí n.k.
Fulltrúar innfæddra létu undan
með þá kröíu sína, að Kongo fengi
sjálfstæði 1. júni. Fulltrúar Belga
töldu að tíminn væri of naumur,
m. a. þyrí'tu að fara fram kosn-
ingar.
Farþegi í eldflaug
Þessi undurfagra ungmey, sem er svona gáfuleg til augnanna, heitir
ungfrú Sam. Henni var skotiö í eldflaug 10,950 metra í loft upp í tilrauna-
skyni. Síðan sveif hún tiljarðar i hylki var bjargað úr sjó i þyriivængju «
10 mílna fjarlægð frá skotstaðnum og hafði þá verið aðeins 10 mínútur á
leiðinni. Ungfrúin var við bezfu heilsu. Bandarískir vistndamenn hötðu
sent hana f þessa kynnlsferð tlt þess að rannsaka hver áhrif það hefðl »
liffærastarfsemi hennar að þeytast í ioft upp með 630 metra hraða á sek-
úndu. Og rarmsóknin tókst í alia staði vei að þvi er víslndamennirnir tegja-
Lög séu sett um vernd
minja ©g minnismerkja
Á stjórnarfundi Bandalags sem hafa sérstakt listgildi eða
íslenzkra iistamanna var ný- minjagildi fyrir þjóðina.
lega samþykkt svohljóð.andi r
áiyktun:
„Stjórn Banc'iilags íslenzkra If O
lisíamanna vill af því tiiefni, ö ÖÍ ¥iiSÖI.lS
spellvirki var framið á opin-
beru líkneski í Reykjavíkur-
í'jörn,, skora á rfkisistjórn ís"
lands að flytja nú á Alþingi
frumvarp til laga um sérstaka
vernd minja og minnisme'rkja
með sama liætti cg tíðkast með
ö'ðrum meimingarþjóðum“.
1 bréfi frá ritara Bandaíagsins
'til for.sæ'tKrráðherra og mennta-
málaráðherra um ály'ktunina
segir:
„í þessu sambandi viljum vér
einkum benda á giidandi lcg um
„Den:kmalschutz“ í Mið-Bvrópu-
löndum, þar sem ósnertanleiiki
mihja og minnismerkja er lög-
ve'rndaður séiytaklega og ævar-
andi, þ.e. húsa og staða, opin-
berra minnismerkj'a og verka,
o f
inflúensa
eeisar
NTB. — London, 8. jan. — Skæð
inflúenza geisar nú um gjörvallt
meginland Evrópu. í París hafa
menn tekið veikina svo hundruð-
um þúsunda skiptir síðustu daga
og veikin hefur farið sem eldur í
sinu iun hvert landið á fætur
öðru. Til Svíþjóðar barst veikin
frá Finnlandi. í sumum löndum
hefur orðið að loka skólum og á
mörgum heimilum liafa allir
heimilismenn lagzt í rúmið.
Vísir er me'ð fáránlegar blekk
ingartilraunir í gær í því skyni
að reyna að eigna ríkisstjórn
Ólafs Tliórs heiðurinn af fyrir-
hyggju og ákvörðun um smíði
hins nýja varðskips, Óðins.
Segir Vísir, að „sk'riður hafi
komizt á málið í tíð stjórnar
Ólafs Thórs.“
Þetta er fjarstæða eins og
öllum er Jjóst. Stjórn Ólafs
sat allan sinn tíma frá 1953
til 1956 án þess að gera nokk-
uð í múlinu þrátt fyrir gefin
loforð Sjálfstæðisflokksins. En
rétt þegar Ólafur var að hrökkl
ast frá hljóp Bjarni Ben. til
og bar fram heimildartiUögu'
handa ríkisstjórninni um smiði
varðskips. Þessa tillögu sam-
þykktu auðvitað allir flokkar,
en auðvitað var hún til einskis
aðeins yfirlýsing um vilja,
sem öll þjóðin vissi að var
fyrir hendi en engin úrræði,
a'ðcins „heimild" handa þeim
sem á eftir kæmi. Tillagan var
því aðeins til þess að sýnast
eins og flest annað, sem íhald-
ið gerir.
Það kom í hlut stjórnar Her-
manns Jónassonar að leysa
málið, afla fjár til framkvæmd-
arinnar og semja um smíði
skipsins á sem stytztum tíma,
og það er áðgerðum hennar að
þakka, að varðskipið er nú
koinið.