Tíminn - 06.02.1960, Side 2

Tíminn - 06.02.1960, Side 2
2 T f MIN N, laugardaginn 6. febrúar 1960. i nn Cnsnt1 Nú er miður þorri, en fæstir gætu látið sér detta vdllvl lilllll 9IICX7I þag j hug, meg þvj ag einbiína á veðrið. Ef svona veður hefði að staðaldri verið á þorranum, hefði málshátturinn um að þreyja þorrann og góuna sennilega aldrei orðið til. Þessa mynd birtum við hér til þess að minna á, að ekki er allur þorri úti enn, og möguleiki er fyrir því að harðnað geti í ári, en þessi mynd var tekin snemma á þorranum, þegar örlítill snjór var sjáanlegur. Það þarf enga skarpskyggni til að sjá, að myndin er tekin við kirkjutröppur, því snjórinn er ótroðinn, vegna þess að flestir fara að dæmi þessa manns, að ganga framhjá kirkjutröppum í stað þess að ganga upp þær. Ljósm.: Gunnar Sverrisson. Fréttir frá landsbyggðinni Skortur á sjómönnum Bolungarvík, 30. jan. — Logn og heiðríkt er í dag, en nokkurt frost. Stöðuigt róið héðan þessa daga og sæmilegur afli, 5—8 tonn á bát á dag. — Togarinn eir nýkom- inn úr Þýzkalandsför. Var með Mótmæla lífs- kjaraskerðingu Menningar- og friðarsamtök kvenna hafa sent blaðinu eft- irfarandi tillögu, sem sam- þykktar voru á aðalfundi sam- takanna 26. jan. s. 1. og er blaðinu ijúft að birta þær: Aðalfundur Menningar- og /riðarsamtaka íslenzkra kvenna. haldinn í Reykjavík þriðjudag- inn 26. janúar 1960, mótmælir eindregið .allri lifskjaraskerð- ingu og vill benda á að hundruð milljóna króna gjaldeyristekna hafa verig dregnar ólöglega úr þjóðarbúinu, eins og staðfest hef ur verið með lögsóknum. Fyrir því skorar fundurinn ó Alþingi og rikisstjórn að ganga að þess um aðilum áður en gripið verði til þess ráðs að skerða lffskjör launþega. 75—76 toonn, þar af 14—15 tonn aí sfld. Selgi aflann í Cuxhaven fyrir um 56 þús. mörk. Sfldin seldist illa, enda ekki ný. Togar inn stundar nú togveiðar. Á heim leiðinni frá Þýzkalandi kom hann vð í Færeyjum og ætlaði að taka þar menn, sem búig var að ráða á hann, en varð að fara við svo búið, þar sem samningar höfðu enn ekki tekizt milli útgerðar- manna og sjómannasamtakanna. En fyrir bragðið er togarinn ekki fullmannaður. Einn bátur, Gullfaxi, etundar hér rækjuveiðar, en veiði hefur verið frekar treg upp á siðkastið. — Nýlokið er vélstjóranámskeiði á ísafirði. Þátttakendur í því voru 14, þar af 4 héðan úr Bolungar- vík. ÞH Bændafundur í Lundi Kópaskeri, 20 jan. — Bænda- fundur var haldinn í samkomuhús inu í Lundi um síðustu helgi. Var það annar slíkur fundur, sem haldinn er hér í vetur. Fleiri eru ráðgerðir. Rædd eru aðallega ýmis konar innanhéraðsmál. Að fund- unum standa engin formleg sam tök en á fyrsta fundi ej-u menn koenir til þess að undirbúa næsta fund og svo koll af kolli. Þykja fundir þessir góð tílbreyting og er almenn ánægja með þá. Tíðarfar hefur verið hér ákaf- lega gott til síðustu helgar. Þá kólnaði en snjóalítið er og bflfært um allar sveitir. Fé er að sjálf- sögðu á húsi en er beitt. Þ.B. Þurfa að vera hraust og stautfær í ensku Undanfarin þrjú ár hafa 25 íslenzkir framhaldsskólanem- endur á aldrinum 16 til 18 ára hlotið styrki til náms við bandaríska menntaskóla Hafa þeir farið til Bandaríkjanna fyrir milligöngu íslenzk-amer- íska félagsins, en það hefur annazt alla fyrirgreiðslu hér heima fyrir stofnun þá, er styrkina veitir, American Field Service. Nú hefur American Field Ser- vice ennþá í hyggju að gefa ís- lenzkum framhaldsskólanemend- um kost á eins árs námsstyrkjum við bandariska menntasókla á skólaárinu 1960—61. Styrkir þess ir nema ókeypis skólagjöldum, húsnæði, fæði, sjúkrakostnaði og ferða'lögum innan Bandaríkjanna. Meðan dvalið er vestra búa nem- endurndr hjá bandarískum fjöl- s-kyldum í námunda við viðkom andi skóla. Ætlazt er til þess, að nemendur greiði sjálfir ferðia- kostnað frá íslandi til New York og heim aftur. Ennfremur þurfa þeir að sjá sér fyrir einhverjum vasapeningum. Þurfa að vera hraust Svo sem áður er geitið skulu umsækjendur um þessa styrki vera framhaldsskólanemendur á aldrinum 16 tfl 18 ára, jafnt piltar sem stúlikur, þeir þurfa að hafa góða námshæfilei'ka, vera vel hraustir og geta talað eitthvað í ensku. Umsóknareyðublöð fyrir áður- greinda styrki verða afhent £ skrifstofu íslenzk-ameríska félags ins, Hafnarstræti 19, næstu daga frá k'l. 5,30 til 6,30. — Þurfa þau að hafa borizt þangað aftur eigi síðar en 15. febrúar. Taflsveit Hreyfils Norðurlandameistari Aðalfundur Taflfélags s.f. Hreyfils var haldinn 29 okt. s.l. í skýrslu stjórnar kom fram, að starfsemi félagsins hafði verið blómleg á árinu, og má þar m.a. nefna þátt- töku fjögurra manna skák- sveitar í sveitarkeppni Nor- rænna sporvagnastjóra í skák, er fram fór í Khöfn á s.l. vori. Sveit Hreyfils varð Norð urlandameistari í Helsinki 1957 og einnig í Khöfn 1959. Þá höfðu félagsmenn keppt við ýms skákfólög og starfshópa í höfuðstaðnum og nágrenni hans. Monratkerfi Vetrarstarf félagsins hófst með innanfélagsskákmóti og var teflt eftir „Momtratkerfi" í einum flokki, og varð Anton Sigurðsson skákmeiistari félagsins að þessu sinnl. Skrifstofustúlka Skrifstofustúlka vön vélritun óskast. Málakunnátta æskileg. Eiginhandarumsókn, þar sem getið sé menntunar og fyrri starfa sendist. Upplýsingar ekki gefnar í síma. Fiskifélag íslands Jörð til sölu Jörðin Undhóll, Óslandshlíð, Skagafirði, er til sölu og laus til ábúðar nú þegar Góðir greiðsluskil- málar, ef samið er strax. Upplýsingar veittar í síma 17282 og hjá undirrituð- um eiganda jarðarinnar. Sölva SigurSssyni, Holtsgötu 31 Rvík. Innanfélagsmót Nú stendur annað mót yfir inn- am félagsins, sem er frábrugðið venju að því leyti að hver kepp- andi hefur aðeins 30 mínútur til umhugsunar í hverri sikák. Á þessu móti er keppt um tvenn verðlaun sem gefin eru af tveim fyrktækj um, önmur af Bifreiðum & Lamd- búnaðarvélum ,og hin af Gúmmí- vinnustofu Reykjavíkur. Á siðast láðnu ári gáfu tvö önnur fyrirtæki verðlaun í þessu skyni, en það voru Hrafn Jónsson & Co, og bfla verkstæðið Drekinn. Eru félag> menn mjög þakklátir þessum fyr- irtækjum fyrir skilmimg þeirra og velvilja er fram kemur í þessum höfðinglegu gjöfum. Ýmsar keppnir Þá hafa farið fram skákkeppn- ir við starfsmenn frá Pósti, síma og útvarpi á 30 borðum sem lauk með sigri hinna opinberu starfs mamna 14y2 v. gegn 15% v. — Einnig var keppt við Taflfélag Keflavíkur á 17 borðum og Lauk þeiirri viðureign með jafntefli. Þá eru fyrirhugaðar fleiri keppnir félagsins út á við, svo sem við Hvamneyrimga, Bankamenm o.fl. Þess má geta að Hreyfill sendi tvær sveitir í flokkakeppni stofn ana, er Skáksamb. íslads hefur gengist fyrir og nú stemdur yfir. Stjórnarkjör í stjóm féiagsims eru: Formað- ur Magnús Einarsson; varaform Dómald Ásmundsson; litari Þórir Davíðsson; gjaldkeri Óskar Lárus son og áhaidavörður Vflhjálmur Guðmundssom. Kvikmyndasýn- ing Germaniu í dag verður kvikmyndasýning á vegum félagsins Germaníu í Nýja Bíó og verða þar sýndar eins og endranær frétta- og fræðslu myndir. Kvikmyndasýningin hefst kl. 3 e.h. Aðgangur er ókeypis og öll- um heimill, bömum þó eimungis i fvlgd meg fullorðnum.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.