Tíminn - 06.02.1960, Page 10
10
T í MIN N, laugardaginn 6. febrúar 1960.
i dag er laugardagurinn
6. febrúar
Tungl er í suðri kl 20,08.
Árdegisflæði er kl. 0,15.
Síðdegisflæði er kl 24.
Ekki get ég látið þennan dag
lfða án þess að vekja athygli
ykkar á eftirfarandi orðum,
sem gat að lesa í Morgunblað-
inu í fyrradag, eða 4. febrúar
s. L þar sem sagt er frá Varð-
arfundi kvðldið áður. en þar
flutti Ólafur Thors forsætis-
ráðherra eins konar fjallræðu.
Morgunblaðinu farast svo orð
um fundinn:
„Ræðu forsætisráðherra
var afburða vel tekið með
miklu og langvarandi lófa-
taki, fleiri tóku ekki til
máls, sem raunar var ekki
kyn eftir hina yfirgrips-
miklu framsöguræðu.
Var það mál manna, að fund-
ur þessi hefði verið með allra
glæsilegustu Varðarfundum."
Þið sjáið á lýsingunni, sem
auðvitað er þó aðeins saga en
ekki sjón, að þetta hefur al-
deilis verið samkoma. Lófatakið
langvarandi (eins og við ræður
Stalins) og ekki „kyn“ þó að
menn kynokuðu sér við að fara
í stólinn á eftir (það var líka
hjá Hitler og Stalin).
Eitt fei að minnsta kosti ekki
milli mála, af þessari iýsingu
að dæma, að þögn mikilli, reg-
inþögn, fimbulþögn, hefur
slegið á menn við boðskap for-
sætisráðherra, og er það ekki
heldur ..kyn“. Er svo að skilja,
að hér hafi orðið glæsilegasta
þögn, íem nokkru sinni hefur
orðið á mannfundi á landi hér,
eftir hina „ítursnjöllu" ræðu.
Tónlistarkynning
í Háskólanum
Tónlistarkynning verður í há-
tíðasal háskólams á morgun, sunnu
dag 7. þ. m. fcl. 5 stundvíslega.
Þar mun dr. Halllgiímur Helga-
son ræða um helztu stefnur og
straumhvörf í tónlist 20. aldar,
og fluitt verða af hljómplötutækj-
um háskólans verk eða kaflar úr
verkum efir þessa höfunda:
Debussy (Nuages), Sibelius (Svan
urinn frá Tuonela), Ravel (Bol-
ero), Schönberg, Bartók og Sjosta
kovitsj (úr 10. sinfóníunni).
Aðgangur að tónlisit'arkyniiing
unni er ókeypis og öHum heimill.
Leiðrétting
í afmælisgrein um Árna
Bjarnason í gær urðu tvær
villur. Hann er fæddur í
Pálsgerði (ekki Kálfsgerði)
og mððir hans er Sölvadóttir
(ekki Torfadóttir eins og
stóð í blaðinu). Er beðið vel-
virðingar á þessum mistök-
um.
GLETTUR
— Nei . . . væae maður . . . hver
sagði að þetta væri hundur???
DENNI
DÆMALAUSI
Úr kvölddagskránni
Hann: En hve þér hafið yndis-
fögur augu, ungfrú.
Hún: Mér þykir vænt um að yð-
ur skuli þykja þau snotur Ég fékk
þau í afmælisgjöf um daginn en
var að hugsa um að skipta.
Hann: Gefið mér nú ráð ungfrú.
Væri það óviðeigandi af mér að
kyssa á hönd greifafrúarinnar?
Hún: Mér íinnst það satt að segja
skökk staðarákvörðun.
Kennari: Nemendur góðir. Ef
við göngum út á tún kaldan og
bjartan vevrardag, hvað blasir þá
við okkur á báðar hendur?
Einn nemandinn: Vettlingar,
herra kennari.
MORGUN-
SPJALL
f dag hefst 16. vika vetrar.
Það er farið að halla vetri,
enda daginn töluvert tekið að
Iengja. Sama veðurblíðan helzt
og enn spáð þíðviðrL
Hins vegar mun það flestra
manna mál, að það sé jökul-
hlaup en ekki varleysingar,
sem gerist í stjómmálum
landsins þessa daga. Menn
spjalla um þetta og spyrja
hver annan, hver áhrifin
verði, hve kj,araskerðingin sé
mikil, og /áir munu kenna
botns í þeim hugleíðingum,
þrátt fyrir hina „ítursnjöllu“
ræðu forsætisráðherra á Varð
arfundi.
Menn segja, að þessar efna-
hagsráðstaf.anir séu hátt spil,
og það hmn verði mikið, ef
þær mistakast, sem allt bendii
til. — Þetta er eins og að segja
sóló á mjög Iéleg spil, sagði
greinargóður maður í gær.
— Já, langai trúlofanir eru
aldrei til góðs. Ég kynntist kon-
unni minni aðeins mánuði fyrir
brúðkaup okkar.
— Það kalla ég gott. Ég kynnt-
is't mimiii ekkert fyrr en mánuði
eftir brúðkaupið.
Frúin: Pétur, nú verður þú að
kaupa þér ný föt bráðum Þú getur
ekki gengið svona til fara lengur.
Eiginmaðurinn: — Ég veit það,
Soffía, en ég verð nú að spara
saman andvirði þeirra fyrst.
Frúin: — Já auðvitað, hvað ertu
búinn að spara mikið upp í þau
núna?
Eiginmaöurinn: — Ætli það séu
ekki svona þúsund krónur.
Frúin: — Það er fyrirtak, Pétur
minn. Það er einmitt nóg fyrir
kjólinn, sem ég er búin að hafa
svo lengi augastað á.
Hún: Heyrðu, elskan mín. Þú
hefur ekki mikla kímnigáfu.
Hann. Hvers vegna heldurðu
það?
Hún: Nú. þú getur staðið tímun-
um saman framan við spegilinn án
þess að þér stökkvi bros.
. . . . nú og þá varð ég að fá mér
rassvasa.
í dag kl. 12,50 er þátturinn
Óskalög sjúklinga, sem fiú Bryn-
dís Sigurjónsdóttir annast. Þetta
er elzti óska-
lagaþátturinn í
útvarpinu og
hefur nú verið
á sama tíma
hvern laugar-
dag á annan tug
ára og orðið
mjög vinsæll.
Ná vinsældir
hans l.angt út
fyrir sjúkrahús
vegginga, —
Bjöm R. Einars
son sitjómaði
þætti þessum
fyrst, en síðan hafa ýmsir geit
það, og nú síðast frú Bryndís
um nær þriggja ára skeið, og tek-
izt ágætlega.
Þættmum berast hundruð bréfa
á mánuði hverjum, en mest er um
óskimar um jólaleytið. Oftast er
óskað eftir vinsælustu daegurlög-
unum, en einnig mjög 'eftir góð-
um íslenzkum einsöngs- og kór-
lögum. Til eru einnig þeir, sem
biðja um kiassfeka músik.
En þessi óskalagaþátitur er mjög
vinsæll, og fáir myndu vilja fella
hann niður.
K K
I A
D L
D D
I I
Jose L.
Saiinas
2
— Vinur: Snúðu við. Varaðu þig á
birninum.
— Vara mig á hverpu?, spyr Kiddi
birninum?
— Eftir því að dæma, hvað þú ert
hræddur, hlýtur þetta að vera hræðileg-
asta dýr jarðarinnar.
•M
— É-g hef ekki séð grímuklædda mann
inn I marga mánuði. Ég hresstist hjá
dvergunum.
— Dvergarnir segja að þú sért orð-
inn heill heilsu. Axel læknir Mér líður
betur ,en ég veit ekki hvort ég get farið
að stunda læknisstörf.
— Ég skal sýna þér hvar spítalinn á
að vera-
— Skyndilega er hafin skothríð úr
skóginum.