Tíminn - 24.02.1960, Blaðsíða 7

Tíminn - 24.02.1960, Blaðsíða 7
TÍMINN, miðvikudaginn 24. febrúar 1960. 7 TT / Einn vinsælasti þáttur útvarpsins núna er þátturinn „Nefndu lagið". Umsjónar- maður er háðfuglinn og hljómsveitarstjórinn Svavar Gests, með honum er hljóm- sveit hans og Jónas Jónasson eða 25 hjón frá félagsskapnum1 „Kátt fólk“ og 25 bílsfjórar frá ■ Hreyfli og konur þeirra. Hver I gestur hafði númeraðan miða og dr'ó Svavar úr þeim s'ex númer og | •skyldu handhafar þeirra síðan keppa tveir og tveir saman. Keppn in fer þannig fram, að þáttakend ur eiga að reyna að þekkja lög er hljómsveitin leikur. Sá kepp- andi er fleiri lögin þekkir, reynir síðan við þrjú aukalög. Af þeim á hann að þekkja tvö til að hljóta aukaverðlaun. Verðlaunin eru mis háar peningaupphæðir, sem fara eftir getu keppandans. Þrír karlar — þrjár konur Keppendur í þetta sinn voru þrír karlmenn og þrjár konur. Konur'nar voru allar húsmæður, en karlarnir vorú: gosdrykkjafram leiðandi, verzlunarmaður og leigu bílstjóri. Ekki verður rætt hér um getu þeirra, þar sem þættinum hef ur þegar verið útvarpað. Eins og mönnum er kunnugt er Svavar hinn mesti háðfugl og notfærði hann sér það óspart þama bæði í orði og verki. Ég á enga peninga Eitt af uppátækjum Svavars í þessum þætti var að láta ungan mann, Magnús Jónsson að nafni, aka með leigubíl frá Hreyfli í hálftúna og segja bílstjóranum síðan að hann ætti ekki „krónu“ U1 að greiða fyrir ferðina. Um það leyti, sem útvarpinu frá þætt inum var að ljúka kom Magnús aftur og sagðist honum svo frá: „Jæja, ég tók náttúrlega leigu- bílinn og bað hann að aka mér upp á Karlagötu 13, já,já, hann gerði það. Eg ræddi auðvitað við Bjallan, sem mlkið kemur við sögu I þættinum. hann um góða veðrið og hann var anzi aimennilegur bílstjóri, og svo bað ég hann að aka mér niður í bæ, þegar við vorum komnir þang ag segi ég: Eg er nú a'lveg blank- ur. Þá segir hann: Tekur þú þér bíla, þegar þú ert alveg blankur? Já, það geri ég stundum. Og hvað ertu að hugsa um að gera, segir hann. Eg var að hugsa um, hvorf ég fengi þetta ekki alveg frítt, segi ég. Þá segir hann: Ja, ég verð að fá einhverja tryggingu hjá þér. Eg er ekki með neina | tryggingu, segi ég. Og hann stein | hélt bara kj . . . og ég segi: Hvað | ætlar þú að gera í þessu? Nú, auð ; vitað verð ég að skrifa þetta. Þá segi ég: Gætir þú ekki lánað mér fimmtíkall líka? Ertu bara alveg vitlaus maður, segir hann. Fimm- tíukall er ekki svo mikið, segi ég og þá fór hann eitthvað að röfla. Nú, svo sagði ég honum frá þessu öllu, en hann vildi bara alls ekki trúa mér. Þá borgaði ég honum með peningunum sem þú lézt mig hafa hér frammi á gangi! Eftir þáttinn sendi Svavar bílstjóranum blómvönd í þakklætisskyni. „Gvuð hvað ég hló" Þannig gengur þáturinn, Nefndu lagið. Alls staðar finnur Svavar auman blett sem óhætt er að gera gaman úr. Enginn er óhultur fyrir honum og hann er ekki ó- hultur fyrir neinum. Óhætt er að fullyrða það að enginn fór heim úr útvarpssal þetta kvöld í slæmu skapi og líklegast er það sama ag segja uniíþá, jessétu við viðtækið | heima. Einni konunmi varð að iorði er hún gekk út: „Gvuð hvað — Þú þekklr auðvitað öll lögln? — Nel, ekkert. ég hló, mér er hlátri". ilit í maganum af jhm. Magnús — lánaðu fimmtíukall? þulur. Fréttamaður frá blað- inu brá sér niður i útvarpssal s. I. sunnudagskvöld og fékk að vera við upptöku á þætti þeim er þá var fluttur. Þar voru fyrir um 100 gestir, t- "7? wr rr “7,7 „SéS heí ég köttinn syngja á bók“ Þegar nokkrir blóðhund- ax sluppu nýlega úr Ware- falgelsinu í Georgíuríki í Bandaríkjunum, voru hund- arnir eltir uppi og fangaðir með hjálp fanganna í falg- elsinu. ★ í Honolulu fékk borgar- stjórinn nýlega, kæru frá Veðrið var ekki gott Tveir Englendingar flækt ust dögum saman yfir slétt una. Þeir töluðu ekki or'ð. Loks á fjórða degi segir annar þeirra: — Það er meiri blessuð blíðan í dag. Hinr. leit fjandsamlega á hann og sagði: — Hef ég kannske sagt að veðrið væri gott. íbúum hverfis við spítala nokkurn, vegna þess að þeir höfðu ekki svefnfrið fyrir þeim hávaða, sem starfs- menn spítalans gerðu. ★ í indíánaþorpi í ríkinu Tennessee, hefur verið ráð- inn stúdent frá háskóla í bænum Memphis til að kenna Indíánum að gera örvar, sem á að selja ferða- mönnum. f Detroit fékk bíleigandi 10 dollara sekt fyirir að keyra á annan bíl af gáleysi, þótt eigandi hins skaddaða bíls skýrði frá því fyrir rétt- inum, að miklu betra væri nú að aka bílnum en fyrir áreksturinn. ★ Verzlunarmálaráðuneytið í Washington hefur efnt til ritgerðarsamkeppni. o? eiga þátttakendur að -krIf im efnið: „Hvers wegn.-: ég v:I heldur vera heima á sumr- in“. Fyrstu verðlaun eru ferð til Puerto Rico. ★ Rannsókn hefur leitt í ljós, að þeir þingmenn full- trúadeildar Bandaríkja- þings, sem karlkyns eru, tala helmingi lengur en þingkonurnar. Grace talar mikið um börnin sín Hin fagra greifafrú af Monaco hefur gaman af því að tala um börn sín, Car- olínu og Albert. Hún hefur sagt þessa sögu af börnum sínum: — Á afmælisdaginn fær Carolina litla alltaf fjölda heillaóskakorta, og henni þykir mjög vænt um þau og límir þau inn i albúm. Afbert prins fær einnig mörg kort. Honum þykir líka vænt um þau en hann fer öðruvísi ag með þau. Hann étur nefnilega kortin. Anægjulegar upptökur Það tekur lengri og lengri tíma að gera svo nefndar stórmyndir. Ein þeirra, s«m byggir á fortíðinni nefnist Spartakus, og er Kirk Dou glas framleiðandi hennar. Hann leikur sjálfur aðal- hlutverkið ásamt hinni bráð fallegu Jean Simmons, og er hún nýlega kom inn i búningsklefa sinn stóð kampavínsflaska á borði hennar, og vig hana var festur bréfmiði með orð- sendingu frá Kirk, svohljóð andi: — Eg vona að upptaka nr 2 verði eins skemmtileg og upptaka nr. 1. Svarar spurn- ingum Rússneski rithöfundurinn Ilja Ehrenburg hefur fengig nýja atvinnu. Hann svarar spurningum í æskulýðsmál gagni einu rússnesku. Æsku lýðurinn getur snúið sér til hans með vandamál sín póli tízk móröls'k og kynferðis- leg og hann reynir að leysa úr vandamáium unga fólks ins, að sjálfsögðu eftir fræðisetningum kommúnism ans. Vatnahestur til Eisenhowers Það er ný gjöf á leið til Eisenhowers for'seta, sem þegar á álitlegt safn gjafa. Þessi gjöf er dálítið sérstæð — flóðhestur kemur frá Tubman forseta Liberíu. — Þetta er ungur flóðhestur, kar'lkyns, 2% árs, sem vegur 110 kg. En fullorðinn vegur hann 250 kg. Af þessum sök um er dálítið erfitt að hafa hann í Hvíta húsinu, en hann mun ekki líða neinn skort í dýragarðinum í Was- hington. Ekki svona myndir Fyrsta myndin af nakinni konu, sem sézt hefur í blaði í Sovétríkjunum f mörg ár, birtist nýlega í blaðinu „Sovétkultur" sem dæmi þess, hvað fólk á ekki að horfa á. Myndin er tekin sem dæmi þes’s, hvað ekki er þess virði ag mynda. Myndir af fólki, sem vinnur eða er í alvarlegum samræðum. eru betri, heldur „Sovétkultur“ áfram. Myndin af hinni nöktu konu var dauf og óskýr.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.