Tíminn - 04.05.1960, Page 1
98. tbl. — 44. árgangur.
Miðvikudagur 4. maf 1969.
Baráttan í landhelgismálinu heldur áfram
og er nú komin dt fyrir 12 mílurnar
Myndin er tekin á barnaleikvelli í gær, og okkur sýnist stúlkan til hægri láta í Ijósi van-
þóknun á Ijósmyndaranum. (Ljósm. Tíminn K.M.).
Gott verð og áreitnislaus sala
íslenzkra togara í Bretlandi
Fjórir íslenzkir togarar
seldu afla sinn í Bretlandi í
gær og fyrradag. Fengu þeir
allir ágætt verð fyrir þann
fisk, sem seldist, en nokkuð
gekk úr af aflanum, vegna
þess hve veiði- og söluferðin
var orðin löng.
Stafaði ‘þetta af því, að sölukvóti
ís,. togara í Englandi í aprll var
fullnotaður. og urðu togararnir því
að bíða fram yfir mánaðamótin.
Liöndun fór frarn með friði og
spekt og mættu fslendingar engri
áreitni.
Þorkell máni seldi í Grimsby í
fyrradag og gær, 186,5 lestir fyrir
14392 sterlingspund. Bjarni Ólafs-
son seldi einnig í Grimsby í gær
183 lestir fyrir 11803 sterlings-
pund. Bjarni riddari seldi í Huli í
gær 138 lestir fyrir 9002 sterlings^
pund. Loks seldi Þorsteinn þorska-
bitur í Hull í gær 80 lestir fyrir
7054 sterlingspund, og er það
geysilega góð sala miðað við fisk-
niagn. Allíir höfðu þessir togarar
(Framhald á 3. síðu).
Sarntal viS Hermann Jónasson um
málalokin á sjóréttarráástefnunni
Hermann Jónasson kom heim frá útlöndum í fyrrakvöld.
— Tíminn átti stutt samtal við hann í gær og spurði hann
frétta af Genfarráðstefnunni og hvað hann áliti um horfurnar.
— Hvernig var heildarblærinn yfir ráðstefnunni?
— Hann var aðallega óhugnanlegur fyrir alla þá, sem
vonuðust eftir að þar væri hægt að sækja mál að eðlilegum
o.g heilbrigðum leiðum — með rökum. Áróðurinn og bak-
ferlin af hálfu andstæðinga íslands í landhelgismálinu voru
furðuleg. Það vru notuð blíðmæli og lof, hótanir og aðrar
aðferðir, sem ég ætla ekki að rekja. Árangurinn varð brátt
sá, að þótt andstæðingar íslands væru margir lélegir rök-
ræðumenn, jókst þeim fylgi með hverjum degi með vinnu-
brögðum bak við tjöldin — vinnubrögðum, sem voldugar ríkis-
stjórnir tóku þátt í. — Sumir þeir fulltrúar, sem töluðu í
byrjun ráðstefnunnar ákveðnast með 12 mílum — komu
síðar fram á fundinum og lýstu yfir því, að þeir hefðu fengið
fyrirskipun ríkisstjórna sinna
um að sitja hjá. En jafnframt
lýstu þeir yfir því, að ríki
þeirra mundu halda sig við 12
mílna iandhelgi eftir sem áð-
ur hvað sem samþykkt yrði.
— Allt var við það miðað að
fá % atkvæða ráðstefnunnar
með bræðingnum — hvernig
sem atkvæðin væru fengin.
Ný rá'Sstefna ólíkleg
— Heldur þú, að svona ráð
stefna verði brátt endurtekin
til þess að reyna að kveða
niður 12 mílna regluna?
— Ég held að engum detti
það í hug. Það er ljóst eftir
þessa ráöstefnu, að 12 mílna
reglan verður ekki stöðvuð.
Það var rétt, sem formaður
sendinefndar Bandaríkjanna
sagði áður en hann fór á ráðstefnuna, að ef ekki tækist að
stöðva 12 mílna regluna á þessari ráðstefnu, mundi hún
flæða yfir. — Einn af fulltrúunum á ráðstefnunni — gætinn
og hygginn — sagði við mig: — Bretar börðust gegn 6 mílum
á ráðstefnunni í Haag 1930. — Ef þeir hefðu samþykkt 6 míl-
ur þá, væru það alþjóðalög. Á ráðstefnunni í Genf 1958 hefðu
Bretar getað fengið samþykkt 6+6 og takmarkaðan sögu-
legan rétt, segjum 10 ár. Þeir neituðu. En þeir báðu um þetta
nú — og þá var það of seint.
Baráttan færist út fyrir 12 mílurnar
— Heldur þú, að þessi þróun haldi áfram?
— Ég er ekki i neinum vafa um það. Tæknin eykst mjög
hratt við fiskveiðar. Það eru að koma nýrri og fullkomnari
veiðiaðferðir. — Mönnum er því að verða Ijóst, að utan við
12 mílurnar verður einhver að hafa lögsögu; — ákveða með
hvaða tækjum megi veiða á hinum mismunandi svæðum.
Flestum finnst eðlilegast, að strandríkið hafi þessa lögsögu.
Þessa kröfu eru mörg strandríki þegar byrjuð að gera og
fylgja henni fast eftir.
(Framihaid á 3. síðu).
HERMANN JÓNASSON