Tíminn - 04.05.1960, Síða 4

Tíminn - 04.05.1960, Síða 4
TÍMINN, miðvikudaginn 4. maí 1960. Ný kvikmynd Fellinis vekur mikla reiði yfirstéttarinnar í Róm Federico Fellini hefur með siðustu mynd sinni „La dolce Vita“ kastað sér út í barátt- una. í fvrri myndum sínum, sérstaklega ;,La Strada“, hafði hann einkum áhuga á hinu himneska, en nú er hann kominn aftur niður á jörðina og ræðst nú af alefli á hina ítölsku yfirstétt, æsiblaða- mennskuna og hinn endalausa og viðurstvggilega dans í kringum gullkálfinn. Hneykslí Þetta hafa að vísu aðrir kvikmyndamenn gert á und- an Fellini án þess að höfðað hafi verið mál á hendur þeim. En ástæðan fyrir látunum út af þessari mynd Fellini er sú, að kvikmyndin lýsir ýmsum stærstu hneykslum í ítölsku næturlífi síðustu ár- in og það hefur auðvitað far ið fyrir hjartað í ýmsu hátt- settu fólki. Aðalpersóna mynd arinnar er blaðamaður frá einu hinna mörgu skemmti- blaða, og er hann leikinn af Marcello Mastroianni. Þótt þessi blaðamaður viti vel, að það sé rangt, að þetta líf sé tilgangslaust er honum ekki 1 hug að gera neitt við því. Hann veit fyrst að hann hefur gert vitleysur, þegar honum hafa orðið sömu mis- tökin á dag eftir dag viku eftir viku mánuð eftir mán-( uð. Kannske ár eftir ár? ! I Skemmtileg frumsýning j „La dolce Vita“, sem þýðir „Hið glaða líf“ og fer Anita| Ekberg með aðalhlutverkið. Nokkrar persóinur myndar- innar bera sama nafn og það fólk, sem var viðfiðið nokkur stærstu hneykslismál Rómar! borgar hinn síðustu árin, en1 þó eru að mestu notuð dul-; nefni. En atburðir myndar-J innar hafa verið mjög um- talaðir í blöðunum áður, þann ig að það er ekki erfitt fyrir glöggan kvikmyndahúsgest að geta sér til um það, við hvað er átt. Það mun hafa verið mjög skemmtilegt áj ifrumsýnángu. Eftir að ljós ' hafði verið kveikt, gat fólk bent á nokkrar persónur myndarinnar, sem sátu með al þess. Daginn eftir fengu málflutningsmenn nóg að gera. „Leyndarmál Rómar“ Greinilegasta sönnunin fyrir því, a& Fellini hefur komið við veikan blett meí' mynd sinni er sá áhugi fyrir „leyndardómum Rómar“ sem hefur breiðzt yfir aúa Ítalíu. Rómverjar eru bæði glaðir og móðgaðir í senn yfir því, að gestir utan af landi krefjast þess gjarnan að komast í kynni við hið glaðværa líf, sem „La dolce Vita“ lýsir á svo beizkan og áhrifamikinn hátt. Er tigna gesti ber að garði næturklúbba er litiö á þá eins og þar væri fjandinn sjálfur og amma hans á ferð, og væru nógu kjarkmikil til að halda áfram leiknum og léttúðinni. Nótt í Róm Ferðamenn ganga frá næt urklúbbi til næturklúbbs, til allra skemmtistaða, sem þeir finna í ferðamannabækling- um í þeirri von, að eitthvað óvenjulegt muni gerast. En þeir hafa ekki árangur sem erfiði. Hinn frægi Maurizio Arena liggur veikur í botn- langabólgu og þeir 'Renato Salvatore, sem hefur staðið fyrir slagsmálum að nóttu til á Via Veneto er upptekinn við það að leika í kvikmynd Federico Fellini um ævi hans, en hún ber tit- ilinn: „Það var nótt í Róm“. Anita Ekberg hefur lokað sig inni í villu sinni, og ferða- mennirnir snúa heim þreytt ir, úrillir og leiðir. íbúft í næturklúbb En það er einn aðili, sem vinnur að því baki brotnu að hjálpa ferðamönnum og um leið sjálfum sér. Hárgreiðslu kóna frá Piazza de Spagna hefur séð biðraöirnar fyrir utan kvikmyndahúsin, þar sem kvikmynd Fellini er sýnd, og hún hefur breytt hinni risastóru íbúð sinni j nætur- klúbb. Verzlunarmaður frá Norður-Ítalíu hefur leigt sér íbúð milli Café de Paris og Rosatti. Þar hafa stúlkur ver ið ráðnar, sem eiga að fara út öðru hverju og láta gestina vita, að þær séu reiðubúnar til að. sýna þeim nektardans, hvað skeður sjaldan, þar sem lögreglan fylgist með þeim og sér um það, að allt sé í röð og reglu. Via col Vento Að lokum hafa nokkur veit ingahús boðið listamönnum áð koma og borða ókeypis, gegn því skilyrði að þeir séu nógu afkáranlegir í klæða- burði. Hvað hinir „réttu“ segja, allir þeir sem hafa lagt efni í „La dolce Vita“ er ekki vitað með vissu. Það eitt er vitað, að þeir hafa hefnt sin með þvj að kalla mynd Fellinis „Via col Vento“. „Á hverfanda hveli“, ve.gna þess, að það er skoðun þeirra að myndin sé alveg eins leið inleg og hin bandaríska mynd sem ber þetta nafn. ítalski rithöfundurinn Al- berto Moravia hefur skrifað skrifað eftirfarandi um „La dolce Vita“: I nýraunsæisstíl „Frá stílrænu sjónarmiði er „La dolce Vita“ mjög at- hyglisverð, þrátt yrir það, að Fellini haldi henni aUtaf á sama plani getur hann þó skipt um áherzlur. Og sumir kaflarnir eru í hreinum ný- raunsæisstefnustíl. í mynd- inni er mikil tilhneiging til skopstælingar, ekki minnst í þvi atriði, þar sem aðals- mennirnir halda drykkjugild ið og í enda myndarinnar. Þar sem siðaskoðun Fellini kemur aftur á móti inn í, eins og t. d. þegar hin fagra stúlka (Anoul Anouk) vill að eins elska í rúmi vændiskonu eða í kraftaverkaatriðinu, (sem tæknilega séð er mjög fullkomið) eru brögð Fellini mjög nýraunsæiskennd. Það er illt, að Fellini skuli að lokum koma með unga stúlku inn í myndina, stúlku, sem brosir til blaðamannsins. Myndin hefur alls enga þörf fyrir slíka skírskotun til sak leysisins“. Auglýsing um sveinspróf Sveinsnróf í þeim iðngreinum sem löggiltar eru, fara fram í maí og júní 1960 — Meisturum og iðnfyrirtækjum ber að sækja um próftöku fyrir þá nemendur sína sem lokið tiáia námstíma. Um- sóknir sendist formanni viðkomanai orófnefndar, ásamt venjulegum gögnum og prófgjaidi. Reykjavík, 30. apríl 1960, Iðnfræðsluráð 1.*V*'V*X.*V*X*'V*'V.*‘V*V»‘V*V»V Framkvæmdastjóri óskast Hlutafélagið Steingrímur, Hólmavík óskar að ráða til sín framkvæmdastjóra nú þegar. Þekking á útgerð nauðsynleg Allar uppiýsingar gefa Björg- vin Bjarnason, sýslumaður, Hólmavík og Þorgeir Guðmundsson, kfstj., Hólmavík, V«VV«V*V'V*V* SÖNGSVEITIN FILHARMONIA Söngvarar, konur og karlar, sem áhuga hafa á að gerast kórfélagar og njóta vilja söngkennslu á vegum félagsins, gefi sig fram næstu daga við stud. med. Lúðvík Albertsson í síma 32080 eða við söngstjóra kórsins, dr. Róbert A. Ottósson. Félagið Fílharmónía TILKYNNING frá Síldarútvegsnofnd til síldarsaltenda á Norður- og Austurlandi. Þeir, sem ætla að salta síld norðanlands og austan á þessu sumri, þurfa að sækja um leyfi til Síldar- útvegsnefndar. Umsækjendur þurfa að upplýsa eftirfarandi: 1. Hvaða söltunarstöð þeir hafa til umráða. 2. Hvaða eftirlitsmaður verður á stöðinni. 3. Tunnu- og saltbirgðir. Þeir, sem ætla að salta síld um borð í veiðiskipum, þurfa einnig að senda nefndinni umsóknir. Nauðsynlegt er, að tunnu- og saltpantanir fylgi söltunarumsóknum. Umsóknir sendist skrifstofu vorri á Siglufirði fyrir 15. maí n, k. SÍLDARÚTVEGSNEFND. ÞAKKARÁVÖRP Innilegar þakkir vottum vi3 öllum þeim, er auðsýndu. okkur samúð og hlýhug við andlát og jarðarför Sigurlaugar Sigurðardóttur frá Árbakka, Skagaströnd. Vandamenn. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vináttu við andlát og jarðarför föður okkar, tengdaföður og afa, Jóns B. Stefánssonar, frá Hofi, Eyrarbakka, Tryggvagötu 20, Selfossi. Börn, tengdabörn og barnabörn. Faðir okkar t Páll Pálsson. fyrrum bóndi að Stærri-Bæ í Grímsnesi, lézt að heimili sínu, Sigtúni 39, 3. þessa mánaðar. Jarðarförin auglýst síðar. • Börn hins látna. Margrét Hjartardóftir, Sólvallagötu 26, andaðist í Sjúkrahúsinu Sólheimum, þriðjud. 3. mal, s.l. Lára Jóhannesdóttir.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.