Tíminn - 15.05.1960, Page 11

Tíminn - 15.05.1960, Page 11
 11 Hann ók frá Jerúsalem til Kaupmannahafnar Björgúlfur Gunnarsson við bílinn slnn. Það skeður ósjaldan að íslendingar fari í ferðalag um hálfan eða allan hnött- inn, með skipum, flugvél- um og járnbrautarlestum. Hitt er aftur á móti sjald- gæft að íslendingur aki einn síns liðs frá Jerúsaiem til Kaupmannahfanar, sem er 5600 km. löng leið. Fréttamaður frá blaðinu hitti Björgúlf Gunnarsson, starfsmann hjá S.þ. í lönd- unum fyrir botni Miðjarð- arhafs, en hann er nýkom- inn heim til sumarleyfis- dvalar. Björgúlfur hefur starfað þar suður frá hátt á ann- að ár á vegum Sameinuðu þjóðanna. Áður en hann fór starfaði hann hjá Upp lýsingaþjónustu Bandarikj anna og er mörgum kunnur síðan. Hingað til lands kom hann fljúgandi fyrir viku síðan og er fréttamaður ætlaði þá að ná tali af honum var hann kominn austur á Eyrarbakka og auðvitað akandi. Eftirfar- andi viðtal náðist við hann í fyrradag er hann leit inn á ritástjórnarskrifstofuna. — Gekk ferðin ekki vel Björgúlfur? — Jú, það var ekki hægt að búast við því betra. — Hvenær lagðir þú af stað frá „landinu helga“ heim á leið? — Eg lagði af stað frá Jerúsalem 13 apríl s.l. og var kominn til Kaup- mannaha’fnar 25. apríl. — Hvernig bíll var þetta sem þú komst á. — Eg kom á Fólksvagn inum mínum og hann hóst aði ekki alla leiðina hvað þá meira. Eg er búinn að eiga hann í eitt ár og það hefur aldrei sprungið hjá mér allan þann tíma. — Þú hefur þó alltaf orð ið benzínlaus einhversstað ar á leiðinni? — Nei, ekki einu sinni það. í rauninni er þetta góð auglýsing fyrir Fólksvagn- inn, hve endingargóður hann er. — Bílinn komstu með þér heim? — Já, hann kom með Gullfossi frá Höfn, en ég flaug. Ekið um níu lönd — Um hvaða lönd fórst þú? — Eg lagði af stað frá Jerúsalem og fór um Jór- daníu, Sýrland, Tyrkland, Búlgariu, Júgóslavíu, Ítalíu Sviss, Þýzkaland og Dan- mörk. Dagleiðin hjá mér var svona frá 500 uppí 700 km. það eru engin ósköp. Frá Tyrklandi til Ítalíu var ég í samfylgd með tveim öðrum Fólksvögnum. Það var ágætt að vera með þeim. — Eru vegir ekki steypt ir eða malbikaðir alla leiö ina? — Jú, svo til alveg, það var einstöku sinnum sem ég ók eftir malarvegum. Það er mikill munur að aka eftir þjóövegunum úti heldur en hér. — Þurftir þú aldrei að stytta þér leið með ferjum eða lestum? — Jú, yfir Bosborussund fór ég á ferju. í Sviss þurfti ég að fara með bílinn í lest gegnum St. Gottard fjall garðinn og svo með ferju frá Þýzkalandl til Dan- merkur, nú og ekki má gleyma að bíllinn var ferj aður milli Danmerkur og íslands. — Hvernig datt þér i hug að fara í bíl alla þessa leið á öld þotunnar? — Ja, fyrst og fremst fór ég nú bara af ævintýralöng un og svo til að litast um. Eg gæti vel hugsað mér að fara þetta aftur i bíl. Ann ars ætla ég að skilja bíl- inn hér eftir og fljúga til baka. — Hvenær ferðu? — Eg geri ráð fyrir að (íramhald á 15 síðu). Númeraspjaldið á Fólksvagnlnum. FERRO (Framhald af 8. síðu). — Kannsbe er það satíra um tæknina? ' . — Eða gagnstætt. Ég vil gjarn- an vinna með tækninni. En það höfðar til fólksins, sem er orðið tækninni að bráð á margan hátt. „Fucky Strike" Við göngum fram eftir salnum þangað sem Ferró hefur hornað með lausum skilvegg; þar er mál- verk á báðum veggflötum, gert með þeim ólíkindum að hornið hverfur, þegar staðið er fyrir miðju, Ííkt og myndin væri á ein- um og sama fleti. — Það er brotið upp hornið, segir Guðmundur, — það myndast rúmverkan kringum hana af þessu. Myndin heitir „auglýsingaskrif- 'stofa „Fucky Strike“. Öðrum meg in kemur fram mannsandlit, hin- iim megin apaandlit og undriritað- ur spurði hvort maðurinn væri forstjóri auglýsingaskrifstofunnar. — Þeir geta náttúrlega verið það báðir. Svo eru þarna nokkrar auglýsingar, sem eru tekinar beint up úr tímaritum. — Þú vilit kannski meina, að auglýsingabrjálæði nútímans og allt hans fargan leiði til þess að mennirnir verði eins og apar? — Já, hún getur táknað það. Eins og þessi stóra þarna á veggn um hinum megin. Þar er nokkurs konar skipulag eins og við höfum í dag. Það gæti verið stór skrif- stofubygging, þar sem veggirnir eru opnaðir og maður sér í gegn. — Og þessir, sem maður sér þarna inni í skápum eða hillum, eru það einstaklingarnir? — Það eru einstaklingar. Þeir eru líkir en hafa þó dálítinn per- sónuleika. Þeir geta ekki hreyft sig, hafa ekki svigrúm til þess, gætu þó ef til Vill hoppað út. En þeir geta ekki leikið sér sín á milli, ekki meðan þeir eru þarna inni. — Og þetta hér? — „Lifandi lungu“. Ég hef notað anatómíu mannsins. Þetta eru lungu með göngum á milli, líkist dáldið því, sem þeir kalla „highways" í Bandaríkjunum, nokkurs konar metróar eins og maður hefur líka í cirkusum. — Eins og þeir gangar sem liggja um mannslíkamann. — Já, já, já. Æðarnar eru full- ar af ýmsum persónugerfingum, sem vildu gjarnan komast á hreyf- ingu, en það er allt nokkurn veg- in' stopp. — Það er kannske nokkurs kon ar blóðsegi, blóðseginn í mannlíf- inu? — Eða við getum kallað það heldur: að koma sér fyrir, svona á réttum stað, ha. Magaborg — Hvar eru „magamenn"? (VISITEURS DES ENTRAILLES) — Þessi græna, það er maga- anatómía. — Magarnir eru alltsvo.... ? — Þetta er einn magi. ef lapp- irnar væru hérna að neðan, þá væri höfuðið hér að ofan. — Og þetta eru þeir einstakl- ingar, sem grasséra í þessum eina og sama .maga? — Já, en þeir hafa líka mismun andi persónuleika og stærð. Það væri líka hægt að byggja borg út frá maga-anatómíu. Þú getur ímyndað þér, hvort það væri ekki stórkostleg borg, þar sem gengið væri útfrá innri gerð magans. Það verkar allt rétt í maganum. — Ef það væri fært út í arki- tektúr. '— Þar væri engin misfella. Kerf ið er fullkomið. Það hlyti að henta fyrir okkur. Umsjón með tilfinningum — Og þetta er? — „Tilfinningaprófessor“. — Er það prófessor, sem skil- greinir tilfinningar eða býr þær til? — Já, eða sér um tilfinningar. Prófessorinn hefur vald á ein- 'hvers konar handfangi.... — og þá þjappast fólkið saiman eða tvístrast eftir hans vild, segir Guð mundur. — Hann semsagt spilar með tilfinningar manna. — Uum, þarna ertu réttur. — Jæja, loksins. Sama fyrirtækiS , Við höldum áfram. — Þetta er „Skóli New-par- York-is“, eða New York — Paris. Þar eru þrjár fígúrur að verki, dinosaurus, sem lætur buna úr málningardós, slettir og skeinir allt með fótunum á sér, sá geómet ríski dregur upp vinkla og hálf- mána í miðið og ultra-tasche-ist- inn til vinstri. — Hann opnar á sér magann, segir Guðmundur, og hleypir úr honum á dúkinn. — Og hvað er París og hvað er New York? — Það er allt það sama. Þess vegna blanda ég nafninu saman. Þetta er allt sama fyrirtækið. Dans and'itspartanna — Og hér eigum við eftir.... — Já, þú sérð þetta andlit hérna í miðju, sem er uppleyst, nokkurs konar höfuðkúpa án tanna og munns. Þarna eru tenn- urnar, þetta auga, og munnurinn hérna. Þetta dansar svona út af fyrir sig og skemmtir viðstöddum. — Nú, það hefur einhvern tíma verið sagt: eftir höfðinu dansa lim irnir, en eftir hverju dansa þessir innbyrðispartar höfuðsins? — Það getur vel verið þeir dansi eftir þvf að ná saman aftur og komast á sinn stað. í eldlínunni Nú göngum við fram í skálann og lítum að síðustu á mósafkina. Þar kennir margs, nýs og gamals. — Það er alltaf gaman að fást við mósaík. Það er eins og að fara í sumarfrí. Ég held því utaf fyrir sig og geri ekkert annað á meðan. — Þú notar skeljar og kóral- greinar. — Já, þetta eru hlutir, sem ég hef fundið við Rauðahafið; hér eru koparsteinar úr námum Saló- mons konungs og grjót, sem óg tíndi á landamærum fsraels. — Varstu þá ekki í eldlínunni við grjóttínsluna þar? — Maður er alltaf í eldlínunni ef hægt er.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.