Tíminn - 21.05.1960, Síða 5

Tíminn - 21.05.1960, Síða 5
TÍMINN, Iaagardagiun 21. mai 1960. 5 Útgefandi: FRAMSÓKNARFLOKKLiRINN. Framkvæmdastjóri: Tómas Árnason Rit- stjórar: Þórarinn Þórafrinsson (áb.), Andrés Kristjánsson. Fréttastjóri: Tómas Karlsson. Auglýsingastj.: Egili Bjarnason. Skrifstofur í Edduhúsinu. — Símar: 18300—18305. Auglýsingasími: • 19523. Afgreiðslusími: 12323. — Prentsmiðjan Edda h.f. Rógburður hatursins Á forsíðu Mbl. í gær gaf að líta fyrirsögn, sem náði yfir alla síðuna og hljóðaði á þessa ieið: Nýtt afbrot Olíufélagsina upplýst í greininni, sem fylgir svo á eftir, segir frá því að fyrrv. forstjóri Hins ísl. steinolíufélags, sem er systur- félag Olíufélagsins, haf: orðið uppvis að þeirri sök að flytja stóra fjárhæð bandarískra dollara til Sviss rétt áður en hann lét af starfi hjá félaginu Mun hér vera um nokkurn hluta þess fjár að ræða, sem Haukur hefur látið araga frá félaginu og leggja á sérreiknmg á undanförnum árum. Mun þessi inneign í Sviss nema um 3 millj. ísl. króna. Rannsóknin hefur ekki, svo kunnugt sé, leitt annað í ljós en að Haukur hafi verið hér einn íslenzkra manna að verki, og það, sem hér hefur gerzt, sé raunverulega það, að reynt hafi verið að draga stóríellt fé frá fyrirtæk- inu með sviksamlegum hætti. Fyrirsögn Mbl. og skrif þess benda hins vegar til þess, að hér hafi stjómendur félagsins verið að verki í því skyni að vinna í þágu félagsins. Nýtt afbrot Olíufélagsins upplýst, segir Mbl. með stærsta letri sínu. í samræmi við þetta hefði átt að segja frá fjársvika- máli bæjargjaldkerans í Vestmannaeyjum á þessa leið: Nýtt afbrot Vestmannaeyiabæiar upplýst. Slík blaðamennska fordæmir sig vissulega sjálf. Og hún sýnir bezt, hve langt þeir Morgunblaðsmenn ganga í ósönnum og ósvífnum málflutningi, ef þeir gera sér minnstu vonir um að geta eitthvað náð til fyrirtækja, sem tengd eru samvinnuhreyfingunni. Svo takmarkalaust er hatur þeirra í garð hennar. Bjarna-brek Bjarni Benediktsson hefur nú loks svarað fyrirspurn á Alþingi um Lögbirtingablað og Stjórnartíðindi. Stjórn- vizka ráðherrans nýtur sín vel í þessu litla máli Dóms- málaráðuneytið hefur haft innan sinna dyra útgáfu Stjórnartíðinda og rekið hana illa og með ærnum kostn- aði. Útgáfa Lögbirtingablaðs hefur farið fram annars staðar á ódýran og hagkvæman hatt fyrir ríkissjóð. Lengstum hafa verið greiddar um og innan við 11 þúsund krónur á ári fyrir hvort tveggja, ritstjórn og fjárhald blaðsins, en tvö síðustu ár 36 þúsund krónur á ári saman- Jagt til tveggja manna Fyir miklu minni vinnu við út- gáfu Stjómartíðinda hafa á sama tíma verið greiddar um og yfir eitf Hundrað þúsund krónur á ári. Og reiknings- skilin voru þannig, að ríkisendurskoðunin varð að benda dómsmálaráðuneytinu bréflega á-að taka sér reiknings- hald Lögbirtingablaðs til fyrirmyndar. Hvaða ályktun dregur svo Bjarm dómsmálaráðnerra af þessu? Að flytja skuli rekstur Lögbirtingablaðs inn fyrir dyr dómsmálaráðuneytisins svo að unnt verði að viðhafa þar sams konar ráðsmennska og við Stjórnartíð- indin. Það skiptir ekki mikiu máli, hver les prófarkir af Lög- birtingablaði og Stjórnartíðindum. En þetta litla mál varpar skæru ljósi á virmubrögð Bjarna Benediktssonar. Það mun kosta hið opinbera nokkra tugi þúsunda á ári að óþörfu að fóðra pólitískan vildarmann sem hann hefur rekið í hús eftir sínum sérkennilegu leiðum, — þótt hann kunni að verða neyzlugrannur fyrst, meðan á hann er liorft. ERLENT YFIRLIT Ayub Khan - einvaldi Pakistans Stjórn hans er sú íarsælasta, er Pakistan hefur haft til þessa MEÐAL þeirra, sem hafa komið við sögu flugnjósnamáls- ins, er Ayub Khan, einvaldi Pa- kistans, en hann hefur sent Bandaríkjastjórn mótmæli vegna þess, að njósnaflugvélin, er Rússar klófestu, kom frá flugstöð í Pakistan. Ayub Khan lýsti yfir því, að stjórn hans hafi verið algerlega ókunnugt um þetta, og myndi hún ekki hafa leyft þetta og myndi ekki heldur gera það í framtíðinni. Fyrir Bandaríkjastjórn er það síður en svo ánægjulegt að fá þessa áminningu frá einum helzta bandamanni sínum í Asiu, en hann átti hins vegar ekki á öðru völ, ef hann vildi ekki gerast meðábyrgur í flug- njósnamálinu. Líklegt ætti að telja, að þetta geti orðið til þess, að Bandaríkjastjórn taki framvegis meira tillit til banda manna sinna en hún hefur gert undanfarið. EINS og nú standa sakir, er Ayub Rhan tvímælalaust einn áhrifamesti og merkilegasti bandamaður vesturveldanna í Asíu. Hann tók við stjórn Pa- kistan í otkóbermánuði 1958, þegar hún var komin í fyiUsta óefni. Margar stjórnir höfðu þá farið með völd síðan landið varð sjálfstætt 1947, og yfir- leitt haldið áfram að síga á ógæfuhliðina hjá "'estum þeirra. Verkefnið v :a hið erfiðasta. Landinu skipt í tvennt, Vestur-Paklstan og Austur-Pakistan, og liggur Ind- land á milli landshlutanna. Sam búðin milli landshlutanna hef ur verið erfið, enda ekkert ann að sem bindur þá saman en sameiginleg trúarbrögð, Múham eðstrú, — en eins og kunnugt er, var Pakistan aðsfcilið frá Indlandi eingöngu vegna þess, að Múhameðstrúarmenn vildu ekki mynda ríki með Hindúum. Múhameðstrúarmenn voru öfl- ugastir vestar og austast í Ind landi og er skipting Pakistan þannig tilkomi.n Til viðbótar tvískiptingu landsins hefur kom ið örðug sambúð við Indverja, og það leitt til mikils herkostn aðar. Þegar landið, varð sjálf stætt, var ekki fyrir hend. nein heildarstjórn, en flokkarnir komu sér saman um að skipa þing og stjórn, án kosninga. Ætlunin var að kveðja fljótlega saman þjóðkjörið stjórnlaga- þing. Úr því varð þó aldrei. Flokkunum kom hins vegar mis jafnlega saman, stjórnarskipti urðu því tíð, festa varð lítil í framkvæmdum, en óreiða óx og ýmis konar spilling. Haustið 1958 vofði yfir ný stjórnar- kreppa, þegar herinn ákvað að skerast í leikinn undir fcrustu Ayub Khan, er var yfirmaður hans. Síðan hefur hann verið einvaldur Pakistans. AYUB KHAN ÞAÐ ER yfirleitt álit kunn- ugra manna, að stjórn Ayub Khan hafi tekizt vonum betur. Hann byrjaði á því að hreinsa til í ráðuneytunum og refsa þeim, er gert höfðu sig seka um misbeitingu í embættisferli sínum. Tekið var upp strangt verðlagseftirlit og gjaldeyris- eftirlit og leiddi það bráðlega til lækkaðs verðlags og batn- andi ojaldeyrisafkömu Þá hófst stjórn hans handa um skiptingu stórjarða og hefur þvi máli mið að talsvert áleiðis. Stjórn hans hefur beitt sér fyrir ýmsum fleiri umbótum, er hlotið hafa vinsældir meðal almennings, en mesta afrek hennar þykir þó það, að ö' embættírfærsla er nú ólífct heiðarlegri en áður. Þá hefur Ayub Khan hafizt þanda um að koma á lýðræði í landinu. Ayub Khan telur þó vonlaust að svo stöddu, að koma á lýðræðisskipulagi að vest- rænni fyrirmynd. Til þess skorti þjóðina reynslu og kunnugleika á slfkum .stjórnarháttum. Því verði að byrja á byrjuninni og fikra sig síðan áleiðis. Þessa byrjun telur hann vera þá að koma upp sveitar- eða héraðs- stjórnum, er fari með stjórn ým issa mála heima fyrir. Þegar festa sé komin á það kerfi, geti komið fylkisþing, síðan lands- þing o. s. frv. Þegar því marki sé náð, verði betra að taka amerísk„ stjórnarkerfið en hið brezka til fyrirnv ' Fyrsta sporið í bessa átt var stigið á síðastliðnum vetri, þeg ar kosnar voru 80 þús. sveita- stjórnir í Pakistan. Þeir, sem voru kosnir í þær, hafa svo síð- an verið látnir greiða atkvæði um, hvort þeir styddu Ayub Khan sem yfirmann ikisins og mátti heita að hann hlyti stuðn- ing þeirra einróma. f dag er því Ayub Khan traustari í sessi en n-okkur fyrirrennari hans hefur verið. Síðan Ayub Rhan tók við stjórninni hefur talsvert batn- að sambandið milli landshlut- anna, og sambúðin við Indland hefur færzt í miklu friðsamara horf en áður. AYUB KHAN er enn tiltölu- lega ungur maður eða verður 53 ára á þessu ári. Hann er kominn af bændar"‘*--r„ ætlaði upphaflega að fara menntaveg- inn, en ákvað síðar að fara í herinn. Hann stundaði um skeið herskólamám í Bretlandi, gekk síðan í brezka Indlandsherinn og var í honum öll stríðsárin og tók meðal annars þátt í Burmastyrjöldinni sem herfor- ingi. Þegar Pakistan stofnaði sjálfstæðan her. komst Ayub Rhan þar fljótt í háa stöðu. Árið 1951 varð hann æðsti yfir- maður hans. Ayub T<han er sagður bera þess mörg merki, að hann hafi orðið fyrir sterkum brezkum áhrifum. Hann er þægilegur í viðmóti, laus við allan asa og yfirlæti, en reynist fastur fyrir. er á reynir. Hann hefur efcki fengið á sig orð sem neinn yfir- burðamaður, en jafnan reynzt farsæll og athugull í störfum. og má vel vera, að það sé ein- mitt þeir hæfileikar. sem koma nú bezt stiórnanda í landi eins og Pakistan. Þ. p. / ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) í ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) t ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) i ) ) ) / 'r ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) ) Fjánveitiinganefnd hefur nú lofcið við að fjalla um þmgsálykt- unartill. Þórarins Þórarinssonar um endursaup seðlabankans á fra'mleiðslu og hráefnavíxlum iðnaðai'ins Nefndin fclofnaði um r iál'ið og fer hér á eftir áli't iriinnihlutans, Ingvars Gíslasonar, Damíels Ágústínussoniar og Páls Þorsteinssonar, sem sat i nefnd- :nni í forföllum Halldórs Ásgríms ronar: „Við undiiritaðir höfum ekki getað fallizt á afgreiðslu meiri- Endurkaun íðnaðarvíxla 1 hluta fjárveitingan. á till., þar sem lagt er tffl, að henni verði vísað frá með rökstuddri dagskrá. Vic teljum þvert á móti sjálf- sagt, að Aiþingj lýsi énn viljaaf- stöðu sinni til þessa máls og samþ. t'h. eins og hún liggur fyrir. enda ólíkiegt að þingið hafi aðra skoð- un á nauðsyn endurkaupa iðnað- srins en það hafði vorið 1958. Er það álit okfcar að ríkisstjómim o him sérstaka mefrnd er fjallar n um lánamaj iðnaðarins, hljóti a taka verulegt tffllit til skýlauí vilja Alþingis i þessu efni o væri sambvkkt þessarar till. þi iíkleg til bess að herða á ríki sijóminni tii skjótra aðgerða lánamálum iðinaðarins.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.