Tíminn - 22.05.1960, Blaðsíða 5

Tíminn - 22.05.1960, Blaðsíða 5
TÍMINN, sttjumdaginii 22. maí 19€0. 5 Útgefandi: FRAMSÓKNARFLOKKURINN. Framkvæmdastjóri: Tómas Árnason Rit- stjórar: Þórarinn Þórarinsson (áb.), Andrés Kristjánsson. Fréttastjóri: Tómas Karlsson. Auglýsingastj.: Egill Bjarnason. Skrifstofur i Edduhúsinu — Símar: 18300—18305. Auglýsingasimi: 19523 Afgreiðslusími: 12323. — Prentsmiðjan Edda h.f. Alþýðuflokkurinn Jóhann Hafstein hefur farið illa að ráði sínu. í ræðu, sem hann flutti fyrir nokkru í neðri deild Alþingis, lét hann svo ummælt, að betra væri fyrir íhaldið og væn- legra til framgangs kreppustefnu stjórnarinnar, að hafa Alþýðufl. sér við hönd, en þótt það hefði hreinan flokks- meirihluta. Þetta má vera rétt en er nöturleg yfirlýsing eigi að síður og ekki nærgætnisleg við bandamanninn. Alþýðuflokkurinn á annað og betra skilið af íhaldinu en svona opinskáar þakkir þessa dagana. Þeir, sem nokkuð þekkja feril Alþýðufl. í íslenzkri pólitfk og muna baráttu hans meða-n hún var enn í sam- ræmi við nafnið, sem hann ber, undrast óefað flestir afstöðu hans nú í seinni tíð. Fyrrum var Alþýðufl. um- bótasinnaður, barðist ótrauður fyrir hagsmunum þeirra og rétti, sem skuggamegin sátu í mannfélaginu, veitti ihaldinu mörg högg og stór, ávann sér hylli frjálslyndra manna. Nú hefur hann gengið íhaldmu svo rækilega á hönd, að það telur sér jafnvel meira traust í honum til framkvæmda á hreinræktaðri íhaldsstefnu, en eigin flokksmönnum. Hvað kemur til að svo mjög og illa hefur skipt um farnað þessa flokks, spyrja menn? . Ólög fæðast heima“. Þeir menn, sem til forystu völdust í Alþýðufl. á fyrstu 20—25 árunum af ævi hans, voru baráttuglaðir hug- sjónamenn. Þeir skipuðu sér undir merki flokksins af því að þeir trúðu á tilgang hans og stefnumið og þeir völdust þar til forystu vegna hæfileika sinna og mann- dóms. Þeir litu ekki á þátttöku í stiórnmálum sem leið til makræðis og lífsþæginda, heldur töldu sig þjóna þess fólks, sem treysti þeim til mikilla verka og góðra. En árin hafa liðið og þessir menn horfið af sviðinu með eðlilegum hætti. Við hafa tekið aðrir menn og yngri, sem eiga sárafátt sameiginlegt með hinu gamla herfor- ingjaráði frá árum hinnar árangursríku baráttu við í- haldið, annað en það, að teljast til flokks, með sama nafni. Tímarnir breytast og mennirnir með. Stefnur breyt- ast einnig og meira en það, þær hverfa. Málsvarar Al- þýðufl. eru auðvitað ekki ógreindari menn en gengur cg gerist. Þeir finna að skýringa er þörf á hinum hast- arlegu umskiptum. Og þá þykir álitiegast að segja að Alþýðuflokkurinn íslenzki, Alþýðuflokkur íhaldsins, hafi ekki annað gert en að fylgja leiðsögn bræðraflokkanna út í hinum stóra heimi Þeir séu yfirleitt að hverfa frá þjóðnýtingu. Þetta er á vissan hátt rétt, en þó ekki nema hálfur sannleikurinn. Þótt verkamannaflokkar annars staðar dragi orðið allmjög í efa gildi þjóðnýtingar, þá hafa þeir ekki þar fyrir horfið í arma íhaldsins. Þeir telja sig enn sem fyrr höfuðandstæðing þess og stefna þeirra varðandi áætlunarbúskap sé alger andstæða hinnar skefjalausu samkeppnisstefnu. Hér hefur það hins vegar gerzt, að um leið og íslenzku Alþýðuforingjarnir missa trúna á þjóðnýtinguna. þá tapa þeir áttum. Þeir finna ekkert málefni, enga hugsjón til að berjast fyrir. Ólán Alþfl. er ekki öðrum flokkum að kenna. Það liggur í trúleysi forystuliðsins á tilgang jákvæðrar hugsjóna- baráttu. Það skilur ekki manninn. sem finnur lífsfyll- ingu í því, að plægja og sá til þess að seiða fram gróður úr lífvana hrjóstri. Það vill bara tma ávexti af aldin- trjám. Og í Ijósi þessara staðreynda verða skiljanleg þau viðbrögð hinna pólitísku skipbrotsmanna Alþfl. að hverfa til þess haglendis þar sem bezt sýnist til beitar. V«V*V.VV.V'.N.v Krustjoff á blaðamannafundi ☆ Myndlr þær, sem hér fylgja, eru frá blaðamannafundinum, er Krustjoff hélt í París. Á efstu myndinni sjást þeir Gromyko utanríklsráðherra og Malinoffski marskálkur sitt til hvorrar hand- ar honum. Hinar myndirnar skýra sig sjálfar. ☆ '/ '/ '/ '/ '/ '/ '/ / ’t '/ '/ '/ '/ '/ '/ '/ '/ '/ '/ '/ '/ '/ '/ '/ '/ '/ '/ '/ '/ '/ / '/ '/ '/ '/ '/ '/ '/ '/ '/ '/ '/ '/ '/ '/ '/ '/ '/ '/ '/ '/ '/ '/ '/ 't '/ '/ '/ '/ '/ '/ '/ '/ '/ '/ '/ ? '/ '/ '/ '/ '/ '/ '/ '/ \/ '/ '/ '/ '/ '/ '/ '/ '/ '( '/ '/ / '/ '/ > / '/ '/ '/ '/ ■'/ '/ '/ '/ 't '/ \

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.