Tíminn - 29.07.1960, Síða 3
Cí
TafaMbItN. N, föstudagina 29. júlí 1960.
tlii
Rlchard Nixon forsetaefni repúblikana ásamf konu sinni Pat Nixon. Koma
þau til me3 a3 búa í hvita húsinu?
Richard Nixon for-
setaefni Repúblikana
Cabot Lodge sennilega varaforsetaefni.
Norðurlandaráð
('Framh. af 1. síðu).
velli hinnar sameiginlegu norrænu
menningar sem þetta stórkostlega
uppbyggingarstarf hefur verið
unnið. — Þessi sönnun þess
liversu menningarviljinn getur
sigrazt á örðugum kringumstæðum
getur orðið okkur uppörvun. Norð-
urlandaþjóðirnar allar saman eru
l.'tlar í samanburði við hinar stóru
þjóðir og heimsvcldi þeirra, en
jafnvel á tímum alþjóðlegra sam-
steypna geta þær haft sérstöku
gegna í heiminum.“
Róttækra aðgerSa þörf
Ohlin drap síðan á samstarf Norð-
urlanda og starf Norðurlandaráðs
síðan síðasti fundur þess var
haldinn og taldi að ekki hefði
orðið svo ágengt sem skyldi. Rakti
hf.nn nokkur dæmi þess og hvatti
til aukins samstarfs, einkum á
sviði menningarmála. Máli sínu
lauk hann á þessa leið: „Ég vil
leggja áherzlu á að sem betur
fer hefur norrænt samstarf skilað
rnikilvægum árangri á ýmsum
sviðum. Mér koma t.d. í hug fé-
lagsmálalöggjafir og samnorræn
lagagerð. Hér er steini bætt við
setar fundarins, Bertil Ohlin, Nils
Hensvald, stórþingsforseti, Fager-
holm ríkisþingsforseti og Erik
Eriksen fyrrverandi forsætisráð-
h.erra. Þá var einnig kjörið í
nefndir.
f almennu umræðunum sem
fram fóru á árdegisfundinum tóku
margir til máls, þar á meðal allir
forsætisráðherrar Norðurlanda,
nema Erlander, sem talaði fyrstur
á síðdegisfundinum. Umræður
stóðu fram eftir degi og töluðu
fulltrúar allra landanna. Ræddu
menn einkum hugsanlega efnahags
samvinnu Norðurlanda og aðild
þeirra að fríverzlunarsvæðum Evr-
ópu, starfssvið Norðurlandaráðs
og hversu samstarf Norðurlanda
yrði aukið og bætt. Á síðdegis-
fundinum taiaði Gylfi Þ. Gíslason
af hálfu íslendinga. Lýsfi hann
sérstöðu íslendinga sem hindraði
þátttöku þeirra í fríverzlunarsvæð
unum, en lýsti þeirri von sinni að
fyrr eða síðar kæmist á sameigin-
legur /.arkaður Evrópu sem fs-
lcndingar gætu átt aðild að.
Öðrum dagskrármálum var flest
i m vísað til nefnda og fundi slitið
kl. 6,30. f gærkvöldi sátu þing-
slein í norrænar byggingar sem n*®nn veizlu ríkisstjórnarinnar að
tilkomumiklar verða. Engu að síð
ur er ekki ástæðulaust að benda á,
að þróunin á öðrum sviðum sem
varða Norðurlandaráð viiðist sfík
r,ð róttækra aðgerða verður þörf
á næstu árum til að koma í veg
fyrir stirðnun. Okkur sem sitjum
í ráðinu ber að ræða þegar í stað
hvað unnt sé að gera. Við höfum
ýmis bein viðfangsefni að fás-t
við á venjulegan hátt. En hitt er
samt ennþá þýðingarmeira, ef okk
ur tekst að marka stefnuna fyrir
betra skipulag norræns samstarfs.
Aðeins með því móti getum við
skapað þá samsföðu sem veitir
þjóðum okkar hlutdeild í hinum
sameiginlega norræna menningar-
auði. Og þetta er megintilgangur
hinnar samnorrær.u stefnu, —
miklu frekar en fiarhagsávinning-
ur.“ Að svo, mæltu bauð Bertil
Ohlin þingmenn og aðra gesti vel-
komna og iýsti áttunda þing Norð
uilandaráðs sett.
Kosningar og umræSur
Að ræðu forsetans lokinni fór
fram kosning fundarforseta, og
var Gísli Jónsson, formaður ís-
lenzku fulltrúanefndarinnar kjör-
inn. Síðan flutti Gísli Jónsson
ræðu.
Að ræðu forseta lokinni hófust
umræður urn dagskrá og var á-
kveðið hvaða mál skyldu tekin
fyrir. Einnig voru kjörnir varafor-
Hótel Borg.
Richard Nixon varaforseti
Bandaríkianna var kjörinn for
setaefni repúblikanaflokksins
við forsetakosningarnar í
baust á flokksþingi repúblik-
ana í Chícago í gærkveldi.
Ljóst var þegar við fyrstu at-
kvæðagreiðslu, að Nixon átti
miklum meirihluta að fagna
á flokksþinginu. Aðeins eitt
ríki, Louisiana, lýsti yfir and-
stöðu við Nixon, en er fulltrú
um fylkisins varð ljóst hið
mikla fylgi hans, sneru þeir
við blaðinu og varð kjör Nix-
ons einróma. .
Richard Nixon er 47 ára að
aldri eða lítið eitt eldri en
John Kennedy, sem er 43 ára
gamall. Hann hefur tekið
opinberan þátt í stjórnmál-
Engin síld
gær
Þ
I
Veðrið
mcð
Engin síldveiði var á vest-
ursvæðinu og bræla á mið-
unum i gær.
gekk þó niður
deginum og var útlit fyr-
ir veiðiveður 1 nótt. — Á aust
ursvæðinu var skárra veður,
og einhver skip köstuðu út
af Gerpi, en veiðifregnir
höfðu ekki borizt þaðan í gær
kvöldi. í fyrradag og fyrri-
nótt fengu 18 skip samtals
9740 mál á austursvæðinu.
Aflahæst voru: Ólafur Magn
ússon KE, 1030; Hólmanes SU
950; Gullfaxi NK 600; Blíö-
fari SH, 600; Sigrún AK, 650;
Páll Pálsson ÍS, 600; og Hag
barður ÞH, 650.
Ræðir Kampmann
handritamálið?
Getgáta danska biaðsins Aktuelt
Einkaskeyti
í tilefni af fundi Noröur-
landaráðs í Reykjavik, segir
Aktuelt m.a. í dag að Reykja
vík bætist nú í hóp gestgjafa
ráðsins síðust hinna norrænu
höfuðborga. Þingið stendur í
hinni nýtízkulegu háskóla-
byggingu, og rædd verða fjöl
mörg samnorræn vandamál,
segir blaðið, sem rekur síðan
helztu viðfangsefni þingsins.
í greininni segir ennfremur,
að hinir erlendu gestir þings
ins muni að sjálfsögðu koma
á Þingvelli þar sem fyrsta lög
gjafarþing Norðurlanda kom
saman, og lýkur siðan með
þessum orðum: íslendingar
eiga margt annað til minja
um sögu sína en göfugustu
minjarnar eru varðveittar 1
Kaupmannahöfn. Það eru hin
frægu handrit, skrifuð af ís-
lendingum og fyrir íslend-
inga. Handritamálið er ekki
til umræðu á þinginu, en
skyldi það ekki verða tekið
upp í óformlegum viðræðum
Dana og íslendinga? Öll skjöl
um málið eru með í ferðinni,
— í farangri Viggo Kamp-
manns forsætisráðherra.
— Aðils.
um sl. 14 ár fyrst sem þing-
maður f ulltrúadeildarinnar,
síðar öldungadeildarinnar og,
varaforseti hefur hann verið
s.l. átta ár, eða allan valda-1
tíma Eisenhowers forseta.
Allt frá því að farið var að j
ræða um forsetaefni við for- J
setakosningarnar í nóvember j
hefur Nixon verið talinn lík
legastur til framboðs af,
hálf u repúblikana. Aðeins!
einn keppinautur hefur ver- j
ið tilnefndur, þ.e.a.s. Nelson
Rockefeller, en hann gaf ekki
kost á sér þegar til kom.
HarSskeyttur og umdeildur
Nixon hefur fyrst og fremst
haft afskipti af utanríkismál
um, en upp á síðkastið hefur
hann einnig haft töluverð af
skipti af innanrikismálum,
einkum þar sem hann hefur
vitað fylgi repúblikana veik-
ast. Það var t.d. talinn póli-
tiskur leikur að hann tók af
skarið með lausn verkfalls
stáliðnaðarmanna s.l. haust,
og fékk iðjuhölda til að fall
ast á verulega kjarabót þeim
til handa.
Nixon er mikið umdeildur
I heimalandi sínu og almennt
talinn íhaldssamur, enda þótt
hann hafi nú haft forgöngu
um samþykkt róttækrar
stefnuskrár fyrir repúblik-
FJlífir óþurkar
Dalvík. 27. júlí. — Hér hefur
verið mikil óþurrkatíð undan
farnar tvær vikur. Eiga menn
hér mikið hey úti, sem liggur
undir skemmdum Horfir til
vandræða, ef ekki rætist úr
innan skamms. ^iílmi.
Tvísýn lands-
keppni Finna
og Svía
Helsinki, 28.7.—NTB. — Finn
ar og Svíar heyja landskeppni
í frjálsum íþróttum á olymp
iska leikvanginum í Helsinki
í dag og á morgun. Eftir
fyrri dag keppninnar hafa
Finnar hlotið 103 stig en
Svíar 102 stig. í mörgum
greinum náðist góður árang
ur. Finninn Valkama stökk
7.63 metra í langstökki. Svi-
inn Dan Waern vann 1500
metra hlaupið á 3:45.0 mín.
Sviar áttu fyrsta mann í 400
m. grindahlaupi, 200 metra
hlaupi, kúluvarpi og há-
stökki en Finnar áttu fyrsta
mann í 10 km. hlaupi, 3000
hindrunarhlaupi og unnu
4x400 m. boðhlaup.___
WisfvRir í
ki^IIaranum
Þær voru helztu fréttir lög
reglunnar í gær, að óvenju
mikið fylliri hefði verið i bæn
um. Klukkan fimm voru allar
mannageymslur í kjallaran-
um orðnar fullar, svo það
varð að flytja þá heim'sem
lengst voru komnir að sofa
úr sér til þess að rýma fyrir
nýjum gestum, sem þurftu
að hreinsa úr sér vímuna.
HENRY CABOT LODGE
—varaforsetaeíni?
ana í kosningunum. Hann á-
vann sér þó nokkra hylli með
heimsókn sinni til Moskvu á
s.l. ári, er honum þótti vel
takast í samskiptum sínum
við Krustjoff. Nixon er harð
ur baráttumaður og ógjarn
að láta hlut sinn — mun og
ekki af veita í baráttunni um
forsetaembættið við John
Kennedy.
Lodge varaforsetaefni?
Næsta verkefni flokksþings
ins er að velja varaforseta-
efni. Nixon mun miklu' ráða
um val manns í þá stöðu en
almennt er talið að Henry
Cabot Lodge, aðalfulltrúi
Bandaríkjanna hjá S.Þ. verði
fyrir valinu. Einn annar hef
ur heyrst þó nefndur sem
varaforsetaefni og er það
öldungadeildarþingmaðurinn
Morton frá Suðurríkjunum.
Telja margir repúblikanar að
það sé sigurstranglegt fyrir
flokkinn að hafa suðurríkja-
mann í framboði sem varafor
setaefni. Likurnar fyrir vali
Lodge eru þó taldar yfirgnæf
andi.
Vél Steingríms
trölla, bilaði
Vestmannaeyjum, 28. júlí. —
Varðskipið Albert kom hingað
í dag með togskipið Steingrím
trölla frá Hólmavík í eftir-
dragi. Steingrímur trölli
hafði orðið fyrir vélarbilun
út af Ingólfshöfða. Voru þeir
nýkomnir á miðin og höfðu
ekki kastað trolli og því eng-
in afli í skipinu. — Unnið er
nú við að rífa upp vél Stein-
gríms trölla. en ekki var enn
vitað, er siðast fréttist.
hversu alvarleg bilunin var.
þ.e. hvort panta yrði vélar-
hluta að utan. Ef bilunin er
ekki alvarleg, er búizt við að
unnt .verði að ljúka henni í
Vestmannaeyjum á 3—4 dög
um. —Sigurgeir.