Tíminn - 29.07.1960, Side 11
TÍMINN, fítet»dagÍ3»ji 39. jólí 19€0.
11
Þar vilja
í klassikina
Innanbúðarmaður þessa
dagana í verzluninni Fáfnir
við Bergstaðastræti er Við-
ar Alfreðsson, trompetleik-
ari. Viðar er vel þekktur
hljóðfæraleikari meðal
unga fólksins hér í höf-
uðborginni og úti á landi
síðan hann lék með hinum
ýmsu danshljómsveitum.
Hann lék lengi með hljóm-
sveit Gunnars Ormslev og
ferðast m. a. með henni til
Norðurlandanna og Rúss-
lands. Fréttamaður lagði
leið sína í Bergstaðastrætið
og leit inn til Viðars.
Inni var Viðar að reyna
að selja konu einni bama
kerru og notaði við það
orðalag sölumannsins, dá
samaði kerruna, lakkið,
hjólin, áklæðið, endinguna
og síðast en ekki sizt verð
ið sem auðvitað var óvenju
sanngjarnt. Svo fór kon-
an með kerruna en Viðar
stóð eftir með peningana
og tuttugu óseldar kerrur,
sem hann á eflaust eftir að
selja eins og heitar lumm-
ur.
— Nei, ég hef ekki not
fyrir barnavagn . . . nei,
alveg ómögulega . . • já,
ég veit að verðið er lágt
. . . nei, ég get ekki geymt
hana til þess tíma þegar
not verður fyrir vagninn
. . . . já, já . . . . annars er
ég kominn til að spjalla
við þig, en ekki til að
kaupa barnavagn . . . ein-
mitt ég er frá Tímánum.
— Eg hef í rauninni frá
engu sérstöku að segja.
Ekki jazz
— Hvenœr komst' þú
heim, Viðar?
—. Ég kom í lok júni og
verð fram í septemberlok,
skólinn byrjar aftur í byrj
un október.
— Hvað heitir tónlistar
skólinn sem þú nemur við?
— Hann heitir Staatl-
iche Hochschule Fúr Musik
og er í Hamborg.
— Þú ert búinn að vera
þarna lengi.
— Jú, að vísu, ég er bú-
inn að \era þarna s.l. tvö
árin og aðalnámið er
trompetleikur og svo tón-
frœði, heyrnarfrœði, tón-
listarsaga og m.fl.
— Þett-a er auðvitáð ekki
skóli fyrir jazzista?
—Nei, þetta er skóli fyr
ir þá er œtla að leggja
stund á leik í sinfóniu-
hljómsveitum, músik-
kennslu og þess háttar.
— Ert þú alltaf sami
jazzistinn og áður fyrr.
— Nei, ég er að fá meiri
og meiri áhuga fyrir klass-
ískri músik.
— Nú þykir mér týra.. . .
þú sem ekki hafðir nokk-
urn áhuga fyrir slíku áður
en þú fórst.
— Já, ég hlustaði aldrei
á klassíska músik í útvarp
inu t.d., og þegar ég heyrði
hana þá bölvaði maður í
hljóði. Það er nú þann-
ig með klassikina að mað
ur verður að venjast- henni
og læra að meta hana, svo
er maður alla daga í þessu.
Allir í klassik
í þessu hringdi síminn
og Viðar svaraði: Verzlun
in Fáfnir, góðan daginn
. . . barnakerrur . . . nú, já,
hjól . . . já, ég á eitt sem
er 1,6 . . . nú, eru þau fjög
ur . . • já . . . það má búa
til gúmmí á hjólin . . . já,
hvít . . . segjum það . . .
hvert á að senda þetta . . .
tilbúið á morgun . . . takk
fyrir.
— Hvað eru margir nem
endur í þessum skóla?
— Ætli það séu ekki um
600, við alls konar hljóm-
listamám.
— Átt þú langt í land
með skólann?
— Nei, hálft eða eitt ár,
til að komast í sinfóníu-
hljómsveit úti, annars get
ur maður verið við nám
í tónlistarskólanum alla
ævi ef maður hefur áhuga.
— Svo þú ætlar að gerast
hljóðfæraleiðari erlendis?
— Það er ekki gott að
segja enn, kannski maður
verði eitthvað úti.
— Setjast að í Þýzka-
landi'?
— Nei, það vil ég ekki,
ég vildi gjarna komast í
einhverja sinfóníuhljóm-
sveit, t.d. á Norðurlöndun
um. Annars er samkeppn-
in mjög hörð úti í Þýzka-
landi, þar vilja allir kom
ast i klassíkina, svo Þjóð-
verjar eiga fáa góða jazz
ista, en þetta er alveg
öfugt t.d. í Svíþjóð.
— Viltu ekki fara til
Rússlands og gerast hljóð-
færaleikari þar?
— Nei, þangað fer ég
ekki aftur.
10 kon»ertar
— Hefur þú leikið með
sinfóniuhljómsveitum i
Þýzkalandi?
— Já, ég hef spilað með
hljómsveit í Hamborg, 10
konserta. Okkur sem erum
í skólanum er gefið tœki-
fœri til að leika með. Á
einum konsertanna léum
við t. d. 9. sinfóniu Beet-
hovens og þá var með okk
ur 100 manna kór og í
hljómsveitinni voru 70
menn og það var stórkost-
legt,
— Er enginn skóla-hljóm
sveit?
—Jú, við komum alltaf
saman á fimmtudögum og
föstud. Við héldum skóla-
konsert áður en ég fór, i
tilefni 10 ára afmœlis skól
ans og tókst hann mjög vel
og við fengum góða kritík
í blöðunum. Hafðu mig af
sakaðan það er komið fólk
i búðina . . . jhm.
Hér er ViSar meS hljóSfærið sitt.
Það er ekki Fiedel Costro, sem þið sjáið þerna, heldur Harry Vandenberg, sem er Banda-
ríkjamaður og ku hsfa yndi af bítlugum Skeggið sem hann er með hér á myndinni er bara
bíílugur sem hann safnar á sig með því að líma þetta litla búr á hökuna á sér í búrinu er
svo bíflugnadrottning og á fáum mínútum safnast þúsundir af bíflugum svo í kringum það
og það á vel við Harry.
Frá Menntaskólamim
að Laugarvatni
Umsóknum um skólavist næsta vetur verður veitt
móttaka til 20. ágúst.
Umsóknum skal fylgja landsprófsskírteini og
skírnarvottorð.
Skólameistari.
BÆNDUR!
Ný Vicom Lely hjólmúgavél ti1 sölu.
Upplýsingar Leirvogstungu um Brúarlana
«‘V*"V*‘V«V»V*V*V*‘V»X»V»V