Tíminn - 14.08.1960, Page 9

Tíminn - 14.08.1960, Page 9
9 ['BtlflimT'frN, sujmudaginn 14. ágúst 1960. * ■■aww................ * — 111 ÁriS 1930 verSur ætiS tal- iS eitt hiS merkasta í sögu íslendinga vegna Alþingishá- tíSarinnar og tilefnis hennar. ÞaS verSur líka lengi í minn- um haft vegna þess. aS þá komst ísland eiginlega í fyrsta sirvn í augsýn heims- ins, ef svo mætti segja. Hing- aS kom þá meiri fjöldi er- lendra gesta en nokkru sinni áSur á sama tima, og þá var í fyrsta sinn ritaS um ísland svo nokkru næmi í heims- blöSunum. Margur erlendur maSur hefur þá fengi'ð fyrstu vitneskju sína um ísland. En sú heimsókn sem mest var Þessi mynd sýnir Graf Zeppelin svífa yfir Vestmannaeyjar. Margt báta var í höfninni og einnig nokkur erlend tekið eftir þetta srimar á íslandi sk'P- Vestmannaeyingar nutu hinnar tignarlegu sjónar ekki síSur en Reykvíkingar. Á lognkyrrum og sólríkum júlímorgni sveif risaloftskipið inn yfir bæinn Þrjátíu ár liSin frá heimsókn Zeppelins greifa til Is- lands, - Atburður, sem er einstæSur í sögu þjóðarinnar fyrir réttum þrjátíu árum, gerð- ist þó nokkru eftir hátíðina, eða fimmtudagmn 17. júlí. Það var koma þýzka loftskipsins Graf Zeppilin. Hún hefur orðið ís- lendingum minnisstæð, og víst er um það, að hún fékk Reykvíkinga og fólk um meginhluta Suður- lands til þess að líta til himins þennan sólfagra og kyrra sumar- morgun. Skeyti frá Hornafiríi Það hafði heyrzt á skotspónum nokkru áður, að Þjóðverjar hyggðust senda hið nýja og vold- uga loftskip sitt Graf Zeppilin, sem athygli vakti um allan heim, í flug norður yfir höf þegar hag- stæð veðurskilyrði fengjust þetta sumar, og vegna alþingishátíðar- innar ætti það að fljúga yfir ís- land í heiðursskyni við íslend- inga. En enginn vissi með vissu, hvort af þessu mundi verða, eða hvenær þess væri von. Menn hugsuðu töiuvert um flug þetta sumar, því að hér voru tvær flug- vélar, og það var í frægðarsögur íært af..Jjíúlunni, að hún hefði á eihum 'degi flogið frá Reykjavík austur til Seyðisfjarðar og þaðan til Akureyrar, ails rúma 1400 km. að því er talið var. En fimmtudagsmorguninn 17. júlí var sólskin og kyrra í Reykja vík — afbragðs þurrkur. Verk- stjórarnir kölluðu fólk sitt í skyndi til að breiöa saltfiskinn á stakkstæðunum á Skólavörðu- holti og víðar, og Önn ríkti í • bænum. Þá barst allt í einu sú fregn með símskeyti austan frá Hornafirði, að þar sæist mikið loftskip fara yfir og stefna vest- ur á bóginn. Auðsætt virtist, að hér væri „Zeppi“ á ferð og mundi ætla til Reykjavíkur. Nokkru siðar kom önnur fregn sama efms frá Vík í Mýrdal, að þar færi ioftskipið yfir. '.V.V.V.W. I ■■■■■■■■■■■■■ ■ ■■!■■■! ji Safnrit danskrar Ijóðagerðar alltíj í frá 1800 gefið út í haust \ í haust byrjar að koma út á vegum bókaútgáfu Hans Reitzel í Kaupmanna höfn mikig safn danskra ljóða, og nefnist það Den danske lyrik. Fyrstu tvö bindin geyma stórt úrval danskra ljóða frá tímabil- inu 1800—1870, og verður þar að finna ljóð skálda eins og Staffeldt, Oehlens clager, Ingemann, Blicher, Poul Möller, Heiberg, Chr. Winther, Hauhc, Grundt- vig og Aarestrup. Þessi bindi verða 640 blaðsíður og ljóð in þétt sett í tveim dálk- um á síðu. F. J. Billeskiov Jansen sér um þessa útgáfu og verður verð beggja bind- anna í kápu 57 kr. d. Það hefur verið erfitt fyrir danska Ijóðavini að afla sér yfirgripsmikilla safna danskra ljóða. Jan- þessu, og eiga bindin alls son prófessor hyggst nú bæta úr því með safni að verða fjögur, tvö hin síð ari um danska ljóðagerð eftir 1870. Nokkur styrkur frá hálfopinberum sjóðum mun veittur til þessarar út gáfu. Myndin sem hér fylg ir er kápumynd fyrsta bind is hins danska ljóðasafns. rffc ' ,Í-V.VWAV.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V,.,.V.V.V.V.V.V.V.V.V.,.V.V.V.VV.,.V.V.V, Síminn hríngir Nú reið á að koma fregnunum um bæinn til þess að fólk væri viðbúið, þegar risinn svifi yfir. Ekki var tími til að gefa út fregn miða fyrir dagblöðin, og ekki var gripið til þess ráðs að senda kall- ara um bæinn, heldur var brugð- ið á harla óvenjulegt ráð. Ólafur Kvaran bæjarsímastjóri var feng- ínn til að láta símastúlkur sínar hringja í sem allra flest númer bæjarbúa og tilkynna beim, að loftskipið væri að koma. Það var annríki á stöðinni, og ekki vannst tími til að hringja til allra, en fregnin flaug auðvitað, og innan lítillar stundar var þetta á flestra vörum, Menn tóku að horfa til iofts og safnast saman uppi á Skólavörðuhæð og víðar. þar sem hátt bar, einnig kom fólk út á svalir eða kleif upp á núsþök, og börn, konur og karlar góndu upp í loftið gangandi með fiskbörurn- ar, fengu hálsríg eða hrutu um steina. yfir Reykjavík Ekki leið á löngu þangað til þeir, sem stóðu á Skólavörðuhæð með sjónauka, sáu sólina blika á eitthvað : loftinu sunnar. Vífil- fellsins. Þerta hvar. sem snöggv- ast bak við Vífilfellið en kom brátt í Ijós aftur norðar. við það. og fór bá ekk? milli mála, að þetta var otffarið og stefndi til rorðurs. Hélctu menn fyrst, að það ætlaði að fljúga yfir Þing- völl, en brátt breytti bað stefnu og sveif inn yfir bæinn yfir Rauð- hólana og lækkaði flugið veru- lega. Þótti mönnum þetta tilkomu- mikil sjón, og þessa stundina var ekki unnið í Reykjavík. Skrif- stofufólkið henti frá sér penn- um og bókum og þaut út, hús- mæður og börn sömuleiðis. Brátt beyrðust dunur vélanna. Þegar loftfarið sveif lágt inn yfir bæ- inn var kiukkan 15 mínútur yfir ellefu, segja þeir sem mundu eft- ir því að líta á klukku. Fólk þótt- ist sjá opna glugga og fólk innan við þá horfa yfir bæinn. Yfir miðbænum var þýzkum fána varpað niður úr lof'tfarinu, og þandist hann út og sveif hægt til jarðar. Loftfarið sveif síðan lágt út yfir flóann, stefnu á Akranes. En brátt sneri skipið við og kom aft- ur inn yfir bæinn Voru þá flest- ir saman komnir á Arnarhóli. Loftfarið flaug enn tvo hringi yfir bæimi en hélt síðan suð- austur yfir Skerjafjórð og hvarf áður en langt leið Það flaug þó yfir Vestmannaeyjar lágt og vak'ti svipað uppþot þar og í Reykja- vík og þó öllu meira, þar sem menn voru óviðbúnir komu þess. Þegar ioftskipið kom inn yfir Reykjavík öðru sinni, lyfti Súlan sér til flugs af Reykjavíkurhöfn og flaug tíl móts við risann að fgana honum. Þótti það skrífið að sjá litlu „fluguna" sveima um- hverfis Graf Zeppelin. Fánar blöktu viða um bæinn. einnig þýzki fánirn á nokkrum stöðum. Skipin flautuðu ákaft í höfninni. Skipzt á skeytum Tryggvi Þórhailsson forsætis- íáðherra sendi flugforingjanum á Graf Zeppelin, herra Lehmann, eftirfarandi skeyti: „f nafni hinnar íslenzku þjóð- ar býð ég yður, herra kommand- ant, velkominn til fslands. Ég bið yður að flytja stjórn Þýzka- lands alúðarþökk fyrþr þá miklu .-æmd, sem hún sýnir íslandi með því að senda Graf Zeppelin til Islánds til þess að bera enn nýja kveðju frá Þýzkalandi á þúsund ára afmæli íslenzka ríkisins. Hin fámennasta af hinum germ önsku þjóðum tekur fúslega kveðju frá hinni fjölmennustu. Heill fylgi íör yðar herra komm- andant, hingað til fslands og heim aftur til Þýzkalands. Berið bróðurkveðiu frá íslandi til Þýzkalands". Lehmann foringi fararinnar svaraði þegar með öðru skeyti: „í nafni farþega og skipshafn- ar á loftskipum þakka ég yður, herra forsætisráðherra, hinar vin samlegu og hlýju kveðjur yðar, og sendi yður hinar beztu ham- ingjuóskir í tilefni af alþingis- hátíðinni og óskir um farsæla framþróun og framtíð íslands. Hinar hlýju kveðjur yðai mun- um við srmvizkusamlega flytja þýzku þjóðinni". Alexander Jóhannesson, próf- essor, formaður Flugfélagsins, sendi foringja loftskipsins einnig heillaskeyii og þakkaði honum komuna. Þessi atburður, sem er þrjátíu ára um þessar mundir verður ís- xendingum jafnan minnisstæður, enda var hann einstæður. Þetta var í fyrsta og er í eina skiptið sem íslendingum hefur gefizt kostur á að sjá slíkt farartæki fljúga yfir ísland, og litlar líkur eru til, að það eigi eftir að ske, því að saga loftskipanna í þeirri mynd, sem einna glæsilegust varð í gerð Graf Zeppilins varð ekki löng, og aðrir loftfarar tóku við. Á þotuöld er ekki líklegt, að tign- arlegir og hægfara loftrisar svífi yfir höf og lönd í iíkingu við ferð Graf Zeppiiin. Það verða því að- eins þeir íslendingar, sem áttu þess kost að líta til lofts þar sem ferð loftskipsins bar yfir þennan sólríka júlímorgun sem geta frá því sagt, að þeir hafi séð risaloft- skip svífa yfir ísland.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.