Tíminn - 14.08.1960, Blaðsíða 16

Tíminn - 14.08.1960, Blaðsíða 16
Snnnudaginn 14. ágnst 1960. 180. blað. Enginn er verri þótt hann vökni Nú breytum við út af venjunni og íátum myndirnar vera aðaluppistöðu þessarar 1. Það er gaman að leika sér inn við Elliðaárvog, þar sem sléfíur sjórinn gjálfrar við ströndina og er svo kyrr, að maður sfendur á höfði í honum ef maður lífur niður fyrir fœtur sér — það er að segja, þegar vaðið hefur ver- ið úf í. Enda er þarna oft þröng á þingi, þegar sólin skín og allt er grín, eins og stendur f kvæðinu. Etnu sinni bar svo við, að Þorvaldur Ágústsson var staddur þarna inn frá með myndavélina sína, þegar margt krakka var að leik í flæðarmálinu. En þar voru líka tvær stelpur, og þær hafa víst ekki vitað um myndavélina hans Þorvaldar, því þá hefðu þær passað sig á því að gera ekki neitt sem gæti laðað auga Ijósmynd- arans. 2. Grandlausar fyrir því, að nokkur hefði áhuga fyrir þeirra athæfi annar en þær sjálfar, tóku þær höndum saman og lögðu af stað vað- andi þvert fyrir litla vík inn úr voginum. Það var afskap- lega spennandi og gaman að finna sjóinn leika um fæt- urna og vita ekki nákvæm- lega hvað yrði undir fæti í næsta skrefi. En þær fóru hægt og héldust f hnedur. 3. Loks nálgast þær land hinum megin, og er ekki annað sýnna en þær muni ná því heilu og höldnu, En — „lofaðu engan dag fyrir sól- arlagsstund" — allt í einu fer önnur stúlkan að riða og hallast og — hvað nú??? 4. Jú, það fer ekki milli mála, hún hefur dottið á hendurnar í sjóinn, en það verður varla séð, hvorri verður meira um það, þeirri sem detfur eða þeirri sem sfendur. Sem betur fer varð ekki slys á mönnum, en föt- in urðu óneitanlega dálítið blaut. 5. En hvað um það, ekki tjóar að sakast um orðinn hlut. Hafí maður dottið er ekkert að gera annað en sfanda upp aftur, en í þetta sinn þorir sfallan ekki annað (Framhald á 15. síðu). 1. mynd 4. mynd 5. mynd

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.