Tíminn - 04.10.1960, Side 5
TÍMINN, þriðjudagitm 4. október 1960.
Útgefandi: FRAMSÓKNARFLOKKURINN.
Framkvæmdastjóri: Tómas Ámason. Rít-
Stjórar: Þórarinn Þórarinsson (áb.), Andrés
Kristjánsson. Fréttastjóri: Tómas Karlsson.
Auglýsingastj. Egill Bjairnason. Skrifstofur
í Edduhúsinu. — Símar: 18300—18305.
Auglýsingasími: 19523. Afgreiðslusími:
12323. — Prentsmiðjan Edda h.f.
Lán ti! að borga okurvexti!
Erfiðleikar sjávarútvegsins um þessar mundir eru’
mörgum áhyggjuefni, og er nú ljóst að hann er á heljar-
þröm. Stjórnarliðið reynír ekki að bera á móti þessu en
hefur tilburði í þá átt að skella allri skuldinni á aflabr'est
og verðfall mjöts óg lýsis erlendis. Hins vegar sé ..viðreisn-
in“ sama hunangið og áður og hafi í engu brugðizt!
Alir, sem einhver kynni hafa af þessum málum, vitá
fullvel, að þetta eru staðlausir stafir. Aflabrestur varð ekki
meiri en oft áður á síldveíðum og verðfallið, sem að vísu
er nokkurt, var farið að segja til sín í fyrra og því um það
vitað, þegar ,,viðreisninni“ var skellt á. Það er heldur ekki
meira en svo, að „frambúðarkerfið" sem ríkisstjórnin
sagðist hafa komið á, hefði átt að þola slíkar sveiflur, ef
nokkur heil brú væri í því.
Útvegsmenn vita líka betur og hafa sagt áiit sitt berum
orðum á þá lund, að aðsfaða fil útgerðar hafi stórversnað
við síðustu efnahágsráðstafanir. Þetta er líka auglióst. Með
„viðreisninni“ var skellt á stórfelldum hækkunum vöru-
verðs til útgerðar með gengislækkun og söluskatti. Við
hættist svo lánatakmörkun og 12% okurvextir.
Útgerðarmenn á Austfjörðum gerðu um þessi efni v
mjög skynsamlega og rökstudda álýktun, en fengu aðeins
hina margfrægu kveðju Morgunblaðsins, að þeir væru
„samsafn fífla“ pieð siðferði á mjög lágu stigi. Við þá var
raunar sagt: Þegið þið fíflin ykkar, og er sú kveðja alveg
einstæð. Haraldur Böðvarsson, hinn kunni útgerðarmaður
á Akranesi, kemst þó einnig að þeirri niðurstöðu ; grein í
Mbl. s. 1. laugardag að útgerðin geti alls ekki borið 12%
vexti. Honum dirfist Mbl ekki að senda sömu kveðju og
útvegsmönnum á Austfjörðum.
Það er kannske ekki að furða, þótt ríkisstjórninni hafi
orðið nokkuð mikið um. er það liggur svona rækilega á
borðinu, að dómi útgerðarmanna sjálfra. hvílíkt gerræði
viðreisnin er. En þetta er nú eigi að síður staðreynd, sem
ekki tjáir á móti að mæla lengur, að útvegurinn er á heljar-
þröm vegna efnahagsráðstafananna. Þetta veit ríkisstjórn-
in bezt sjálf, enda er erfiðasta viðfangsefni hennar þessa
dagana að leita úrræða til bjargar.
Virðist nú auðsætt, bæði af skrifum Mbl og fregnum
úr stjórnarherbúðunum, að koma eigi á fót eins konar
kreppulánasjóðsstarfsemi fyrir útveginn til þess að bjarga
honum úr skuldum „hengingarvíxla' eins og Mbl. segir
s. 1. sunnudag.
Eins og Haraldur Böðvarsson segir eru 12% okurvext-
irnir einn allra versti bagginn á útgerðinni. En í stað þess
að viðurkenna það hreinlega og létta þeim af, virðist ríkis-
stjórnin hafa í huga, að afla útveginum eins konar kreppu-
lána, helzt með erlendri lántöku, til þess að hann geti
borgað okurvextina.
Þetta þýðir auðvitað ekkert annað en það að þegar á
fyrsta ári viðreisnarinnai. þegar styrkja- og uppbótarkerfi
átti að fullu að vera kveðið niður verður stjórnin að taka
upp nýtt stuðnings- og uppbótarkerfi í einhverri mynd.
Þetta er beiskur biti, svo að von er að stjórnarliðinu svelg-
ist á.
En óhætt er að fullvrða, að aldreí hefur blasað við i
Lslenzku efnahagslífi eíns ömurleg mynd og héi kemur
fram — og þaðan af síðu^ kennd við ,.viðreisn“, — og eru
okurvextirnir táknrænastir fyrir hrur^tefnuna. Með þeim
og fleiri aðgerðum setur ríkisstjórnin útveginn á heljar-
þröm og verður svo að grípa til eins konai kreppulána-
sjóðsstarfsemi, helzt með erlendri lántöku til þess að út-
vegurinn geti borgað okurvextina sem þjá hann mest!
Væri þá ekki skyns-mlegra að afnema okurvextina
þegar og snúast að því að afla útvegmum rýmra lánsfjár
með sæmilegum kjörum?
Frá vettvangi Sameinuðu þjóðanna:
eðalaldur í Evrópu hefur
hækkað ur 50 upp í 70 ár
Frá iokum síðari heimsstyrj-
aldar eða nánar tiltekið frá ár-
inu 1947 hefur heilbrigðis-
ástandið í Evrópu stórbatnað,
segir í sérstakri útgáfu af
„World Health", sem helguð
er Evrópu Tímaritið er gefið
út af Alþjóðaheilbrigðismála-
stofnuninni (WHO),
Skýrslurnar, sem vitnað
verður í hér á eftir eru byggð
ar á upplýsingum frá eftir-
farandi löndum og svæðum:
Englandi, Frakklandi, Hllandi
Ítalíu, Möltu, Norður-írlandi,
Portúgal, Skotlandi, Sviss og
Norðurlöndunum öllnm.
í þessum löndum lækkaði
dánartalan úr 11,9 á hverja |
1000 íbúa árið 1947 niður íl
10,7 árið 1957. Lækkunin nem |
nr 9,6 af hundraði. Dánartala
barna undir eins árs aldri
lækkaði á sama tíma úr 61,7
á: hver 1000 börn fædd lif-
andi niður í 35,22 árið 1957.
Lækkunin nemur 43 af hundr
aði.
Fyrir aldursflokka frá 1 til
9 ára nemur lækknn dánar-
tölunnar á árunum 1947—
1957 57,1 af hundraði; úr 3
dauðsföllum á hver 1000 börn
niðnr í 1,3. í sömu aldursfl.
hefur dánartalan af völdum
smitandi sjúkdóma lækkað
um 77,5 af hundraði; úr 0,71
á hver 1000 börn niður í 0,16
árið 1957. Dánartalan af völd
um berkla í öllum aldursfl.
hefur lækkað um 72,6 af 100
úr 0,73 á hverja 1000 íbúa árið
1947 niöur í 0,20 árið 1957.
í greinargerð sem forstjóri
Evrópudeildar WHO (í Kaup
mannahöfn), dr. Paul J.J. van
de Calseyde, skrifar í tíma-
ritig segir hann að heilbrigð
isástandið í Evrópu sé gott,
en eigi að síður sé einn mín-
us — hinn nýi kafli í sögu
læknavísindanna sem gefið
hefur verið nafnið „menn-
ingarsjúkdómar", nafn sem
sé dálítið villandi.
Hér er um að ræða krabba-
mein, hjartabilun og geö-
sjúkdóma. Dr. van de Cals-
eyde leggur áherzlu á, að
þessir sjúkdómar séu ekki endi
lega afleiðing tíðarandans
eða eins konar greiðsla fyrir
framfarirnar. Það er stað-
reynd að þessir sjúkdómra
eru tíðari en áður, en skýr-
1 ingin liggur m.a. í því að árið
1960 lifir hver Evrópubúi u.
þ.b. 20 árum lengur en Evr-
ópumenn gerðu að meðaltali
um síðustu aldamót. Þessi
hái meðalaldur er aftur þvi
að þakka, að Evrópa hefur að
miklu leyti útrýmt smitandi
sjúkdómum — einkum berk1
um, sem áður fyrr hjóu stór
skörð, einkum í yngri aldurs-
flokka.
Dr. van de Calseyde dregur
eftirfarandi ályktun: Meðal-
aldurinn hefur hækkað úr 50
upp í 70 á», og það er einmitt
í aldursflokkunum milli 50
og 70 ára sem krabbamein og
hjartabilun gerir mestan usla
— nú eins og áður.
Hvaða lönd hafa mesf
matföng?
Matvæla- og landbúnaðar-
stofnun S.Þ. (FAO) hefur
sent á markaðinn „Product-
ion Yearbook", sem m.a. gef-
ur yfirlit yfir hvað hver íbúi
í nokkrum tilteknum löndum
hefur að jafnaði að borða.
Áður en tölurnar um hita-
einingar eru tilfærðar er
samt rétt að geta þess, að út
reikningurinn er gerður á
grundvelli uppgjörs í mat-
vörubúðum það er að segja
hann tekur til þeirra mat-
vara sem íbúar umræddra
landa eiga kost á. Enn er að
„Production Yearbook" sem
og aðrar útgáfur Sameinuðu
þjóðanna og sérstofnana
þeirra er hægt að panta hjá
Bókaverzhm Sigfúsar Ey-
mundssonar í Reykjavík.
S.Þ. gera fyrsf um sinn engar
ráðstafanir t Malí
Sameinuðu þjóðunum hafa
borizt opinberar skýrslur um
vandamálin, sem skapazt hafa
í vestafríska Malí-samband-
inu, sem hlaut sjálfstæði ný-
lega. Frá báðum aðilum í
ríkjasambandinu — senegal
og fyrrverandi frönsku Súd-
an — hafa Hammarskjöld
framkvæmdastjóra borizt
greinargerðir. Er þar gerð
grein fyrir ástandinu, sem
1 skapazt hefur eftir að stjórn
Frá aöalstöðvum S. Þ. í New York.
geta þess, að þær matarbirgð
ir, sem eru á boðstólum gefa
ekki endanlega rétta mynd
af því hvað er borðað. Töl-|
urnar hafa þannig að geyma
talsvert magn af hitaeining-
um sem á hverjum degi fara
í öskutunnuna, t.d. sem mat-
arúrgangur.
Þegar þetta er haft í huga
sýnir yfirleitt að írland gefur
íbúum sínum kost á mestu
magni hitaeininga til dag-
legrar neyzlu, þ.e. 3,500. Næst
kemur Nýja Sjáland með 3,-
430 hitaeiningar á íbúa dag-
lega og síðan Danmörk með,
3,350 hitaeiningar.
Síðan er röðin þessi: Bret
land 3,260, Ástralía 3,200,1
Sviss 3,180 og Kanada 3110.1
Bandaríkin og Argentina ■
hafa hvort nm sig 3,100 hita!
einingar til daglegrar neyzluj
fyrir hvern íbúa, Noregur
hefur 3,080 og Finnland 3,070
; hitaeiningar.
! Meðal landanna sem yfir-
litið tekur til er Indland með
minnst magn hitaeininga eða
1,800. Pakistan hefur 2,010
hitaeiningar á íbúa.
| í Mið- og Suður-Ameríka
er Argentína næst með
3.100 hitaeiningar, í Afríku
og Asíu er Tyrkland hæst
! með 2.890 hitaeiningar á
I íbúa.
in í Senegal ákvað að draga
sig út úr ríkjasambandinu og
lýsa yfir sjálfstæði Senegals.
Greinargerðir eru undir
ritaðar af Madibo Keita for
sætisráðherra Malí-ríkj asam
bandsins (og leiðtoga Súd-
ans) annars vegar, og hins
vegar af Mamadou Dia for-
sætisráðherra Senegals.
Keita fer þess á leit að Ör
yggisráðið verði þegar kvatt
saman og herstyrkur frá S.þ.
sendur á vettvang. Mamadou
Dia lýsir því hins vegar yfir,
að þar ríki fullkomin ró og
regla. Hins vegar muni
stjórnin í Senegal „með á-
nægju taka á móti hverjum
beim sendimanni Sameinuðu
þjóðanna, sem vilji fullvissa
sig um sannleikann í málinu“.
Hann bætir við, ag lýðveldið
Senegal hafi ákveðið að
sækja þegar í stað um upp-
töku í S.þ.
Hinn 28. júní mælti Öryggis
ráðið einróma meg upptöku
Mali-ríkasambandsins í Sam
einuðu þjóðirnar. Það var
átta dögum eftir að ríkjasam
bandiö hafði hlotið fullt sjálf
stæði. Áður hafði landið haft
nálfstjórn innan franska
•,,'-iasambandsins.
f svari sínu til Keita for-
sætisráðherra vísar Hammar
(Framhald á 15. síðu).