Tíminn - 04.10.1960, Blaðsíða 16

Tíminn - 04.10.1960, Blaðsíða 16
Krustjoff er ekki viðræðuhæfur nú m Ekkert veríur af viíræíum milli þeirra Krústj- offs og Eise'nhowers að sinni. Hlutlausu þjóðirnar á 15. allsherjarþinqi SÞ hafa hvatt stórveldin til sátta. Fimm hlutlaus ríki, Indland, Indónesía, Ghana, Arabiska sambandslýðveldið og Júgó- slavía hafa lagt fyrir allsherjarþingið tillögu þess efnis, að þeir Eisenhower og Krústjoff hittist að nýju og ræði afvopnunarmálin og jafni með sér ágreiningsmálin. Krústjoff hefur ráðizt svo heiftarlega á Bandaríkin að menn telia fullvíst, að hann muni ckki fallast á neinar viðræður við Eisenhower. Augljóst er, að engar sættir vaka fyrir sovézka forsætisráðherranum. Nú hefur Hagerty bíaðafulltrúi Eisenhowers lýst því yfir, að Eisenhower setji enn sem fyrr sömu skilyrði fyrir viðræðum við Krústioff og áður m. a. þau, að látnir veirði lausir flugmenn þeir af RB—47 flugvélinni, sem skotin var niður yfir Barentshafi 1. júlí s. I.. og eru fangar í Sovétríkjunum. Eisenhower ieggur og á það áherzlu, að þýðingarlaust sé að ræða við Krústjoff með- an hann sýni engan vilja til samkomulags heldur ráðist með heift á Sameinuðu þjóðirnar og vilji greinilega aukna spennu í kalda stríðið. • Krústjoff á í miklum erfið- leikum með skap sitt á Alls- herjarþinginu. Hann hefur hvað eftir annað misst stjórn á sér, og varð forseti þings- ins að áminna hann og víta, er Macmillan forsætisráð- herra fluíti ræðu sína. KRUSTJOFF UDU ÞJÓ AMEIN- GAR Austur-Evrópuríkin geta sagt sig úr sam- tökunum og myndað sín eigin samtök í ágústmánuði s.l. til- kynnti forsætisráðherra Sovét: ríkjanna, Nikita Krustjoff, að hann myndi sækja 15. alls- herjarþing S.þ. í New York og skömmu síðar ákvað Eisen- hower forseti Bandaríkjanna að ávarpa þingið. Fleiri stór menni boðuðu nærveru sína á allsherjarþinginu, m.a. allir | leiðtogar kommúnistaríkja A- I Evrópu; Fidel Castro forsæt- isráðherra Kúbu, Nasser for- seti Arabiska sambandslýð- veldisins, Soukarno forseti Indónesíu, Nehru forsætisráð herra Indlands og síðast Mac millan forsætisráðh. Breta, svo einhverjir séu nefndir. Þag mátti því öllum verða ljóst, að 15. allsherjarþingiö yrði stórra tiðinda enda hef- ur farið svo. Forseti þingsins var kjörinn Frederick Boland 1 frá írlandi, og síðan voru 14 ný.ríki tekin í samtök S.þ. — Meðlimaþjóðir S.þ. eru núj orðnar 98 og ljóst að ríki Asíu j og Afríku geta nú haft geysi ] leg áhrif innan samtaka S.þ. i i Hinir tveir stóru ! Eisenhower forseti talaði' fyrstur þjóðaleiðtoganna áj allsherjarþinginu og var ræðu: hans vel fagnað. Forsetinn lagði áherzlu á afvopnun og friðsamlega sambúð og hjálp til handa vanþróuðum lönd-1 um. Sömuleiðis lýsti hann; yfir eindrec’-iu transti á Hammarskjcii d vegna aðgerða hans í Kongó og skoraöi á þjóðir heims að efla S.þ. — það væri eina vonin um frið í heiminum og traust og hald smáþjóðanna. Krustjoff forsætisráðherra flutti svo fyrstu ræðu sína daginn eftir ræðu Eisenhow-1 ers. Hann lagði áherzlú á af- vopnun eins og Eisenhower en að öðru leyti var málflutning ur þeirra ólíkur. Krustjoff fór höröum orðum um Bandaríkin og nýlendustefn, una en harkalegast veittist hann þó að Hammarskjöld framkvæmdastjóra S.þ. vegna aðgerða hans í Kongó, og vildi láta leggja niður em- bætti hans og skipa fram- kvæmdaráð þriggja manna í staðinn. Auk þess vék Krust oft að því, hvort ekki væri mál til komið að flytja aðal stöðvar S.þ, burt frá New York. I Krústjoff heldur sitt strik Að loknnm ræðum þessara tveggja komu í ræðustólinn á allsherjarþinginu m.a. Castro, Nasser og Tító. —j Castro varði mestum tíma sin um í þag að skamma Banda ríkin. Þeir Tító og Nasser for dæmdu nýlendustefnuna en réðnst ekki á S.þ. af sama offorsi og Krustjoff og Nass er þakkaði S. þ. í sambandi við Súez-deiluna og lýsti; trausti á samtökunum. Ein- kennandi var fyrir ræður full trúa Asíh og Afríkuríkja að þeir hvöttu stórveldin til sátta. Krustjoff sagði um ræðu Eisenhowers forseta, að hún hefði verið skynsamleg, en blöð ð Vesturlöndum og full trúar Vesturveldanna hjá S.þ. litu ræðu Krustjoffs ekki sömu augum. Hún olli miklum vonbrigönm. Hún var bein yfirlýsing um stríð á hendur S.þ. — allur boðskap ur Krustjoffs miðaði a'ð því að veikja samtökin og þar gætti hvergi óska um sátt of samlyndi. Mönnum var ekki fullljóst hvað vakti fyrir sovézka for! sætisráðherranum. Þaö var, þó fyrirfram vitað, að hann myndi ráðast að Hammar- skjöld og reyna að koma sér í mjúkinn hjá Asíu- og Afríku þíóðum Hann mun hafa vænzt þess, að ríki þessi: stvddu afstöðu sína í Kongó- j málinu og féllust á þær rök- semdir, að nýlendusinnar hefðu notað F',/imarskjöld í Kongó. Það hefur því vafa- lítið komið eins / reiðarslag yfir Krustjoff, aukaþing S.þ. samþykkti traust á Hammarskjöld vegna Kongó- málsins að tillögu ríkja Afríku og Asíu. En Krustjoff hefur haldið sínu til streitu og orö hans og athafnir á allsher j arþinginu síðustu daga sýna nú, hvað fyrir hon um vakir. Berserksgangur Er Macmillan forsætisráð- herra Breta hélt ræðu sína í s.l. viku og svaraði ræðu Krustjoffs, varð sovézki for- sætisráðherrann hvað eftir annað æfur af reiöi, barði í borðið og hrópaði yfir þing- heim svo Boland þingforseti varð as áminna hann. En s.l. sunnudag varpaði Krustjoff sprengju sinni svo um mun aði og segir Moskvublaðið Pravda, að ræða Krustjoffs á sunnudaginn hafi verið mjög hreinskilin. Með tilliti til þess, er ljóst, að Krustjoff óskar ekki að setja niður deilur og vill veikja samtök S.þ. Það var fyrst og fremst ofstopi, hefnda-rfýsn og ruddaleg ummæli, sem ein- kenndu þessa ræðu forsætis ráðherrans. Krustjoff réðist að slikri heift á Bandarikin og mönn um þykir í því felast óbeint neikvætt svar við framkom- inni tillögu fimm hlutlausra ríkja, að þeir hittist að nýju Eisenhower og Krustjoff. — (Framhald á 2 síðu) Þriðjudaginn 4. október 1960. 222. blað.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.