Tíminn - 04.10.1960, Blaðsíða 6

Tíminn - 04.10.1960, Blaðsíða 6
6 TÍMINN, þriðjudaginn 4. október 1960. Sjötugur í dag: Þorsteinn Kristleifsson bóndi á Gullberastöðum Það líður óðum á æviskeið okk- ar, sem komnir vorum dálítið á legg, þegar nítjánda öldin hvarf í aldanna skaut. Einn af geðþekkustu og myndar legustu bændum Borgarfjarðarhér aðs á sjötíu ára afmæli í dag. Það er Þorsteinn á Gullberastöðum. Ekki skal ég leitast við að skrifa ævisögu þessa gamla, góða ná- granna mins, en fáeinum orðum skal hans minnzt á afmælisdaginn. Þorsteinn var fæddur að Uppsöl um í Hálsasveit 4. október 1890. En þar bjuggu foreldrar hans þá. Þau voru Andrína Einarsdóttir, bónda Einar'ssonar að Urriðafossi í Árnessýslu og fræðimaðurinn kunni Kristleifur Þorsteinsson Jakobssonar Snorrasonar prests á Húsafelli, síðar lengi bóndi á Stóra-Kroppi. Þar ólst Þorsteinn upp á því góða heimili hjá föður sínum og lengst af seinni konu hans Snjáfríði Pétursdóttur frá Grund í Skorradal. Þar í glöðum systkinahóp vand ist hann við fróðleik, lífsgleði, reglusemi og ræktar'huga við æsku hérað og fagurt mannlíf. Á yngri árum naut Þorsteinn skólagöngu í tvo vetur hjá Ólafi presti í Hjarðarholti í hans merka æskulýðsskóla, og sigldi þá nokkru síðar til Br'etlands og var þar við nám og störf um eins árs skeið. Hann var kennari í Reykholtsdal, Hálsasveit, Andakíl og Lundar- reykjadal nokkurt árabil. Einnig stundaði hann sjóróðra á Suður- nesjum á vertiðum i allmörg ár. Árið 1923 kvæntist Þorsteinn ágætis og myndarstúlkunni Krist- ínu Vigfúsdóttur á Gullberastöðum og hófu þau þá fyrstu árin búskap sinn í Reykholtsdal. En 1926 fluttu þau að Gullberastöðum i Lundar- reykjadal og hafa búið'þar far- sælu og laglegu búi síðan. Kristín var vel menntuð kona innan lands og utan og þó máske einkum frá hinu góða heimili, þar sem hún var uppalin hjá móður sinni og föður Sigríði Narfadóttur og Vigfúsi Péturssyni. Hún var kennax’i á ýmsum stöðum á sínum yngri árum, enda hafði hún lokið námi og prófi í Kennaraskólanum. Bæði hafa þessi hjón verið mynd arleg að vallarsýn, en þó einkum hugljúf, elskuleg og aðlaðandi í aliri viðkynningu. Ekki hefur þeim sjálfum orðið barna auðið, en þau hafa alið upp vandalaus börn og verið sérstak- lega elsk að börnum, enda börn mjög oft verið hjá þeim, bæði til lærdóms og dvalar. Óhætt er að segja, að nær því allir hafi elskað þessi góðu hjón, sem þeim hafa kynnzt — og þess meira, venjulega eftir því sem kynningin hefur ver- ið meiri. Hjónin á Gullberastöðum hafa jafnan undanfarna áratugi verið í allra fremstu röð myndarhjóna í Borgarfirði. Og býli þeirra ber ljósan vott um framfara og um- bótahug í mikilli túnr’ækt, skóg- rækt og góðum byggingum, sem eitt bóndabýli má prýða. Og er fag urt að líta heim að Gullberastöðum þar sem þessi heillandi bóndabær blasir móti sól og suðri við hlíðar rætur bratts Lundar’hálsins. En það sem einkum einkennir hjónin á þessum fríða dalabæ, það er greind þeirra, menntun og góð- vilji. Þar ræður ekki kotungshátt- ur í hugsun né þröngsýni rikjum. Þorsteinn hefur löngum verið heimakær og ekki ferðast mjög víða eins og nú er orðinn siður margra. En hann hefur jafnan ver ið lestrar- og fróðleiksfús og líka víðsýnn og frjálslyndur í hugsun. Enda hefur hann venjulega skipað sér í hóp þeirra, er unna samvinnu 'og samhjálp samtíðarmannanna og félagslegum framförum í hvívetna. — Hann hefur jafnan verið ákveð- inn andstæðingur þeirra yfirgangs stefna, sem einkennast af því, að hafa brennandi löngun til þess að græða sem allra mest á samferða- mönnunum með réttu eða röngu. Sveitungar Þorsteins hafa falið honum margvísleg störf fyrir al- menning, sem hann hefur jafnan leyst af höndum með trúmennsku og traustleika, enda nýtur hann trausts og vinarhuga hjá öllum, sem hann þekkja. Hann er síglaður í viðmóti, tal’svert gamansamur stundum og einn með skemmtileg ustu mönnum í umgengni. Megi Borgarfjörðurinn okkar eignast sem flesta hans líka. Til hamingju með afmælisdag- inn, þið góðu hjón á Gullberastöð- um, og þökk fyrir indæla viðkynn- ingu nú í nokkuð meira en hálfa öld. Vigfús Guðmundsson Stúlka Unglingsstúlka óskast til aðstoðar á heimili nú þegar, eða síðar Tilboð er gremi aldur, sendist í pósthólf 1093 merkt „Veturxl8“. ÞAKKARÁVÖRP Mínar beztu þakLir til allra þeirra fjær og nær er minntust mín með hlýjum handtökum veglegum gjöfum og skeytum á sextíu ára afmæli mínu 28. sept. s. 1. Lýður Skúlason Keidum. V*X*V*V*V*V«V*V*V*V*V*V»X»' V*V*V*‘ •V* v*v*v*v*v*v*v*v*v*v»v*v Heimilishjálp Tek gardínur og dúka í strekningu Upplýsingai í síma 17045. Söngskemmtun KETILL JENSSON heldur söngskemmtun í Gamla Bíó í kvöld kl. 7.15. •v*v*v*v*v*v RÁÐSKONA ÓSKAST á býli á Suðurlandi. Mætti hafa með sér barn, eða ung- ling. Fámennt heimili, Raf- magn o. fl. þægindi á staðn- um. Uppl. í síma 10368. LlNAN Við hljóðfærið: Skúli Halldórsson tónskáld. Aðgöngumiðasala í Bókabúð Lárusar Blöndals, Skóavörðustíg og hjá Eymundssen, Vesturveri. V‘V*V*V*V*V*V*V*V»V*V*V*V*V*V»V*V*V*V*V*V*V*V*V*V*V»V*V*^ Reykjavíkur heldur félagsfund í Framsóknarhúsinu uppi, mið- vikud. 5. þ. m. kl. 21 síðd. Fundarefni: 1. Kosningarnar. 2. Önnur mái. \ Stjórnin. Reykjavíkur Allsherjaratkvæðagreiðsla um kjör fulltrúa á 27. þing Alþýðusambands íslands fgr fram laugard 8. og sunnud. 9. okt 1960. Atkvæðagreiðslan fer fram á skrifstofu félagsins, Laufásvegi 8 og stendur frá kl. 2—10 e. h. laugard. 8. okt. og frá kl. 10—12 f.h. og 1—10 e. h. sunnud. 9. okt. Kjörstjórnin. Blaðburður Tímann vantar unglinga til blaðburðar um Hagana og Grímsstaðaholt AFGREIÐSLAN. Verzlunarmanua- félag Reykjavíkur efnir til fræðslufunda um verkalýðs- og atvinnumál á tímabilinu október—nóvember 1960 • Fyrsti fundurinn verður í Iðnó í kvöld 4 október og hefst klukkan 20,30 Rætt verSur um sögu, störf og skipulag AlþýSusambands íslands. RæSumenn: Hannibal Valdimarsson, forseti A.S.Í. Eggert Þorsteinsson, varaforseti A.S.Í. Verzlunarfólk fjölmennið. Stjórn V.R.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.