Tíminn - 22.10.1960, Síða 3

Tíminn - 22.10.1960, Síða 3
TÍMINN, laugardaginn 22. október 1960. 3 Aðalfundur Skógræktarfélags íslands var settur í gærmorgun í Tjarnarcafé. Mun fundurinn standa næstu daga og verða þar rædd ýmis helztu mál félagsins. Þá munu fundarmenn sitja boð landbúnaðarráðherra og fara í ýmsar kynningarferðir. — Kosið var í nefndir í gær og relkningar lagðir fram. f gærkvöldi sátu fundarmenn kvöldverðarboð Skógræktarfélags íslands og Skógræktar fél. Reykjavíkur. — Myndin hér að ofan var tekin af þingheimi í gærmorgun. Nánar í blaðinu á morgun. (Ljósm. TÍMINN, K.M.) Bretar eiga kjarnorkubát Fjölbreytni í vetrardagskrá Á vetrardagskrá Ríkisútvarpsins eru bæíSi gamlir kunningjar og nýtt efni Vetrardagskrá ríkisútvarps- ins er nú að hefjast að nýju, og verða í henni nokkrar breyt ingar, þótt að flestu leyti sé hún svipuð því sem verið hef- ur. Hin merkasta nýjung er sú, sem TÍMINN sagði frá í skotspónafrétt í gær, að kvöld fréttatíminn verður færður fram um hálfa klukkustund, og hefst lestur kvöldfrétta kl. 7,30 í stað 8, sem verið hefur. Tími síðari kvöldfrétta verð- ur óbreyttur. Af nýjum þáttum má nefna „Efst á baugi“, þar sem fjall að verður um nýjungar og ann að fréttakyns utan lands og innan. Sá þáttur verður í um sjá Heimis Hannessonar og Haraldar J. Hamars blaða- manna, en þeir eru orðnir þekktir með þjóðinni fyrir þátt sinn „Heima og heiman“. Sá þáttur verður á föstudög- um. Íslandslýsing Þá er „Við, sem heima sitj- um“, og þá verður fjallað um áhugamál húsmæðra og ann- arra, sem dvelja að staðaldri heima hjá sér, og verður sá þáttur í umsjá frú Svövu Jakobsdóttur. „Við, sem heima sitjum“, verður tvisvar í viku, á þriðjudögum og fimmtudög um. Á sunnudögum eftir há- degisútvarp verður þátturinn „íslandslýsing“, í umsjá dr. Sigurðar Þórarinssonar. Einn ig verða nýir skemmtiþættir endrum og eins og mun Flosi Ólafsson byrja. — Svavar Gests mun láta til sín heyra á ný eftir hátíðar með nýjan þátt, og er ekki að efa, að marga fýsir að vita hvað hann hefur nú á prjónunum. Leikrit Þar má til nýmæla teljast að flutt verða í vetur 6 ís- lenzk leikrit, eitt í hverjum mánuði, en áður hefur íslenzk um leikritum, sem flutt hafa verið í vetrardagskrá ekki ver ið skipað í flokk eins og nú verður gert. Þessi leikrit verða 6 og við val þeirra verður sneitt sem mest hjá þeim leik ritum, sem kunnust eru og oft hafa áður verið leikin. Hið fyrsta þessara leikrita verð- ur Hrólfur eftir Sigurð Péturs son, og af hinum má nefna Mann og konu eftir Emil Thoroddsen (eftir sögu Jóns Thoroddsens), Jón Arason, eftir Matthías Jochumsson og Sverð og bagal eftir Indriða Einarsson. — Af erlendum leik ritum má fyrst nefna þríleik Eugene O’Neills Mourning Becomes Electra, sem í ís- lenzkri þýðingu Árna Guðna- sonar magisters hefur hlotið nafnið „Eigi má sköpum renna“. Barnatímar Yfir veturinn eru barnatím ar hvern einasta dag, og eru nokkur ár síðan sú regla var upp tekin. Á sunnudögum byrja þeir kl. 17,30 og standa í 55 mín., en á virkum dögum hefjast þeir kl. 18.00 og taka 25 mín., en á laugardögum bæt ist þar við tómstundaþáttur barna og unglanga. Kvöldvökur Kvöldvökur verða á fimmtu dögum, og þar flutt margs- konar þjóðlegt efni. Þar undir kemur lestur fornrita, svo og vísnaþættir. Andrés Björns- son les eina af biskupasögum, Lárentíussögu Kortssonar, og Sigurður Jónsson frá Hauka- j gili sér um vísnaþáttinn. Þá hefst „Spurt og spjallað í útvarpssal“ undir stjórn Sig urðar Magnússonar á ný, með líku sniði og í fyrra. Raddir skálda, Á bókamarkaðnum, íslenzkt mál og Daglegt mál. Vettvangur raunvísindanna og Á vettvangi dómsmála. — Skákþáttur og Bridgeþáttur; Myndlist og leiklist, og loks verður Morgunleikfimi tekin upp að nýju, undir stjórn Valdimars Örnólfssonar. Einn ig mun útvarpið kappkosta að flytja sem marfbreytilegast efni á sviði tónlistar. Barrow, 21. okt. (NTB). — Fyrsta kjarnorkuknúna kaf- bát Breta var hleypt af stokk unum í dag. Elisabet drottn- ing skýrði kafbátinn Dread- nought og er hann 3500 lest ir að stærð. Skipa.smíðastöðin var fán- um skréytt og allrar varúðar gætt að ekki væru nema út- valdir viðstaddir athöfnina. Nú verður kafbátur þessi reyndur og gefist hann vel munu Bretar smíða fjölmarga kafbáta af sömu gerð. Dreadnought kostar sem svarar 800 milljónum norskra króna. -Honum mun ekkert frekar vera - ætlað að hafa vetnisvopn innanborðs. Bát- urinn er teiknaður og smíðað ur í Bretlandi en aflvélar hans eru frá Bandaríkjunum. Ekki hefur allt verið látið uppi um kafbátinn en talið er að hann geti farið með 25 mílna hraða og siglt sem svarar umhverfis jörðina án þess að koma upp á yfirborðið. 4. tónleikar Ramm- ermúsíkklúbbsins Kammermúsíkklúbburinn hélt 4. tónleika sína á þessu ári í sam- komusal Melaskólans kl. 21 í gær- kvöldi. Voru það þrileikstónleikar og léku Björn Ólafsson á fiðlu, Jón Nordal á píanó og Gunnar Eg- ilsson á klarinett. Kammermúsíkklúbburinn heldur sex tónleika á ári hverju Fjöl- breytni í efnisvali hefur verið mikil. Á 5. tónleikum klúbbsins ieikur kvartett Björns Ólafssonar | en á síðustu tónleikum þessa árs verður leikinn Brandenborgar- konsert nr. 5 eftir I S Bach, en klúbburinn mun sennilega ljúka fuitningi þeirra á næsta ári. Verða þá tekin fyrir cónverk fyrir smærri hbómsveitir eftir aðra n eistara m.a Vivald og Corelli. Það hefur vakið furðu erlendra tónlistarmamna, að ! jafn lítilli borg sem íteykjavik skuli hafa starfað Kammermúsikklúbbur í fjögur ár. í milljÓRaborgum er lendis hafa þeir fyrr átt sitt enda- dægur og hafa ekki getað státað af jafnhárri meðlimatölu. Hins veg &• væri æskilegt að með!imat-alan væri hærri, þannig a? fleiri nytu tónleika klúbbsins. Mikð af ungu fólk hefur komið í Kammermúsík- kiúbbinn nýlega. HvatS höftiingjarnir hafast a'ð: Sendiherra Rússa fleygt út i Bonn Bonn 21.10. (NTB) Sovézka sendiherranum í Bonn, Andrei Smirnow. var í dag kastaö út úr Beethoven?salnum í Bonn, er hann greip frammí fyrir Ludvig Erhard fjármálaráð- herra Vestur-Þýzkalands, þar sem hann var að halda ræðu á vegum þýzk-afrískra sam- taka. Þýzka stjórnarvöld hafa lýst því yfir, að þau harmi þennan atburð sem sé þó ekki það sama og að þau afsaki hann á nokkurn hátt. Fulltrúar frá nær 20 Afríku þjóSum voru í salnum er Erhardt flutti ræðu sína og Smirnow þaut upp úr sæti sínu og kallaði til hans nokk ur orð á bjagaðri þýzku með hnefann á lofti. Einn af starfs mönnum gekk þá aö sendiherr anum og henti honum á dyr. Stóðst ekki mátið Erhardt var að tala um heimsvaldastefnu Sovétríkj- anna, er Smirnow sá ástæðu til að grípa framí fyrir hon- um. Erhardt sagði, að heims valdastefna Sovétríkjanna væri skelfileg staðreynd og þegar Smirnow var borinn út úr salnum kallaði Erhardt á efitr honum. — Eg er ekki hingað kominn til að tala við þig, heldur vini mína frá Afríku. Er .Smirnow var kominn út úr fundarsalnum hópuðust blaðamenn að honum og spurðu hvað hann hefði hróp að til Erhardts. Hann kvaðst hafa sagt, að Afríkubúar Vitina‘8 gegn grísku leiÖtogunum Yassiada 21/10 (NTB) Fyrrum aðstoðaiforsætisráðherra Tyrk- lands, Fuat Koprulu, sagði við réttarhöldin í máli fyrrv. stjórnar leiðtoga í Tyrklandi í dag, að hann áliti, að Menderez fyrrum forsæt- isráðherra og Zorlu fyrrum utan- ríkisráðherra hefðu skipulagt ó- eirðirnar gegn grískum mönnum í Miklagarði 1955. Koprulu sagði að hann hefði í fyrstu haldið, að kommúnistar hefðu staðið fyrir þessum óeirðum en sagðist síðar hafa komizt að því, að það var Menderez að und- irlagi Zorlu, sem var valdur að óeirðunum. Zorlu neitaði framburði Kop- rulu en Menderez krafðist þess, að Koprulu legði sönnunargögn á borðið. Cemal Gursel hershöfðingi, sem stóð fyrir byltingunni í Tyrklandi, hefur skipað Farhy Ozdilek að- stoðarforsætisráðherra, en það þýðir að hann fer með æðstu völd landsins að Gursel fjarverandi. Ozdilek er hershöfðingi og tók virkan þátt í byltingunni gegn stjórn Menderez á sínum tíma. Forsetinn talar Paris 21/10 (NTB) DeGaulle Frakklandsforseti félt mikla ræðu tryggðu bezt sjálfstæði sitt með samvinnu við Sovétríkin en ekki Þjóðverja, sem drepið hefðu 20 milljónir Sovétborg- ara á styrjaldarárunum. Gleymt og grafið Mönnum þykir sem fram- koma sovézka sendiherrans minni nokkuð á Krustjoff. Nú hafa þýzk stjórnarvöld eins og fyrr segir harmað atburð þenn an og talsmaður frá sovézka sendiráðinu sagði, að atburð- ur þessi myndi engin áhrif hafa á sambúð landanna. Síð ar tilkynnti svo blaðafulltrúi vestur-þýzku stjórnarinnar að atburður þessi væri gleymdur af hálfu bæði Sovétríkjanna og Vestur-Þýzkalands. Ólafur vann Mendivil Þær fréttir bárust blaðinu í gærkvöld' frá skákmótinu í Leipzig að Lundin hefði unnið Gunnar en Ólafur unnið dr. Mendivil. Aðrar skákir fóru í bið. Gunnar Guðjónsson form. Verzlunarráðs Á fyrsta ,undi hinnar nýkjörnu stjórnar Verzlunarráðs íslands í dog, var Gunnar Guðjónsson, stór kaupm., endurkjörinn formaður raðsins. Sigurður Ó. Ólafsson, al- (Framhald á 2. síðu). í París í dag. Hann lagði mikla áherzlu á lausn Alsírmálsins og sagði að það væri tóm fjarstæða að tala um franskt Alsír. Alsír- búar yrðu að fá sjálfákvörðunar- rétt. Hann sagði, að það væru að- eins nokkrir menn með einkasjón- armið sín, sem stæðu í vegi fyrir að ekki væri hægt að binda endi á ástandið í Alsír. Þá lagði forsetinn, að ef frum- varpið um kjarnorkuher Frakka næði ekki fram að ganga, yrði þingið rofið og efnt til nýrra kosn- inga. Forsetinn sagði þetta frum- varp til þess fallið að efla Atlants hafsbandalagið, enda væri Frökk- um það skylt. Kommúnistaríkín veríJa ekki me$ New York 21/10 (NTB) Full- trúi Tékka hjá SÞ, Miroslav Nac- valac réðst í dag heiftarlega á að- gerðir SÞ í Kongó og einnig á Dag Hammarskjöld persónulega. Sagði tékkneski fulltrúinn, að kommún- istaríkin vildu ekki veita aðstoð því samsæri, sem verið væri að framkvæma í Afríku. Menn vestan hafs skoða ummæli þessi svo, að kommúnistaríkin muni ekki verða með í að leggja fram fé á vegum SÞ til uppþygg- ingarstarfs í Kongó. Getur þetta haft mikla erfiðleika í för með sér. UJM UR UEm m

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.