Tíminn - 22.11.1960, Blaðsíða 3
T f MIN N, þriðjudaginn 22. nóvember 1960.
í engu verði
hvikað frá
12 mílunum
- ályktun Alþýðusambandsþings
um landhelgismálið
Alþýðusambandsþing gerði
eftirfarandi ályktun í land-
heigismálinu. Tillagan var
samþykkt með 219 atkvæðum
gegn 81 að viðhöfðu nafna-
kalli. 19 sátu hjá og 18 voru
f jarverandi. Tillagan var stíl-
uð til forsætisráðherra og af-
hentu forsetar þingsins Ólafi
Dönsk
akademía
Kaupmannahöfn í gær. —
Einkaskeyti til Tímans. —
Skv. opinberri tilkynningu
var í gær stofnuð dönsk aka-
demía og voru stofnendur
hennar 12 af þekktustu rit-
höfundum Danmerkur. Enn
hefur ekki verið tilkynnt
opinberlega um tilgang og
stefnu hinnar nýju aka-
demíu, verður það rætt á
næstunni, en fullvíst þykir,
að hún muni m.a. veita ár-
leg bókmenntaverðlaun. Rit
höfundurinn Bjarnhof hefur
verið kjörinn formaður aka-
demíunnar, en meðal ann-
arra stofnenda hennar má
nefna prófessorana Beix og
Rubon og rithöfundana Kar-
en Blixen, Tom Kristensen
og Kjeld Abel.
Thors ályktunina í gærmorg
un.
„Fulltrúar á Alþýðusam-
bandsþingi — fulltrúar alls
vinnandi fólks á sjó og landi
i öllum landshlutum, snúa sér
til ríkisstjómar íslands og
biðja hana — heita á hana —
kref j ast þess af henni, að hún
hætti þegar í stað öllum samn
ingsviðræðum við Breta um
fiskveiðilandhelgi íslands.
Þeim ummælum, sem mið-
stjórn Alþýðusambandsins
beindi á s.l. ári til brezkra
verkalýðssamtaka, beinum vér
nú til yðar, en þau voru þessi:
Öllum ætti að vera ljóst,
að óhugsandi er, að íslending
ar taki upp viðræður við
neinri aðila um víðáttu fisk-
veiðitakmarkanna og sízt af
öllu þann aðila, sem einn allra
hefur farið með ófrið á hend
ur íslendingum.
Krafa vor er sú, að í engu
verði hvikað frá lágmarksá-
kvörðun þings og þjóðar um
12 mílna fiskveiðalögsögu
kringum allt landið.
Aðgerðir íslendinga í þessu
máli eru byggðar á lagaleg-
um rétti og þó á enn ríkari
siðferðislegum rétti — rétt-
inum til að lifa í landi sínu.
Um þann rétt verður að sjálf
sögðu ekki samið við neina
þjóð.
Einhuga þjóð stendur að
baki yðar í landhelgismálinu
og brýnir yður með kjörorði
Jóns forseta: Eigi víkja.“
Þurrir stokkar virkj-
unar í Gönguskarðsá
Sauðárkróki í gær. — Hér er
nú svo að segja rafmagns-
laust, og er það á öllu orku-
veitusvæði Gönguskarðsár-
virkjunar og Laxárvirkjunar í
Húnavatnssýslu. Ástæðan er
vatnsleysi. Árnar eru nærri
þurrar. f gær seytlaði varla
nokkur dropi um stokka
Gönguskarðsárvirkjunarinn-
innar.
Varla þarf að taka það fram
að þetta hefur hinar alvarleg
ustu afleiðingar fyrir atvinnu
lífið, og raunar mannlífið
allt. Á Sauðárkróki var það
svo 1 gær, að rafmagnið var
tekið af kl. 7 um morguninn.
Straumur var á frá kl. 11—1,
kl. 5—7 og kom aftur kl. 11
um kvöldið. Höfðu Sauðár-
króksbúar þannig rafmagn í
aðeins 4 klst. þennan daginn,
en skömmtunin kemur að
sjálfsögðu jafnt niður á öllu
svæðinu. Allt atvinnulíf leggst
að mestu í dá við þessi ósköp,
iðnaður allur gengur ekki raf
magnslaus, og skrifstofufólk
vinnur ekki í myrkri. Vinna
í fyrstihúsum stöðvast. Þetta
ástand hefur verið síðan á
föstudag.
Vatnsleysið er skýlaust að
rekja til þurrviðra, og eru eng
ar líkur á að úr rætist af sjálfu
sér. Um það hefur verið talað
að taka í gang túrbínur Síld-
arverksmiðja ríkisins á Skaga
strönd og veita því rafmagni
sem nemur 1000 kv. inn á
kerfi virkjananna í Skaga-
firði og Húnavatnssýslum.
Gömul bókabúð
nýjum húsakynnum
Ær drepin
á Sandskeiði
Ökumaðurinn gaf sig fram
í gær
Aðfaranótt sunnudags var
ekið á kind á veginum milli
Sandskeiðs og Svínahrauns og
drapst kindin. í gær gaf sig
fram maður við lögregluna í
Reykjavík og kvaðst hafa ek-
ið á kindina.
Snemma á sunnudagsmorg-
un fóru nokkrir menn úr bæn
um að huga að fé í Svína-
hrauni. Óku þeir fram á inn-
yfli úr kind á veginum og
fundu kindina dauða utan við
veginn. Sýnt var að ekið hafði
verið á hana. Þetta var 4 ára
gömul ær, eign Gests Guð-
mundssonar að Reykjahlíð í
Reykjavík, og kom hann sjálf
ur að henni. — Eins og fyrr
segir gaf ökumaðurinn sig
fram við lögregluna síðdegis
í gærdag.
Washington, 21. nóv. — Það I
hefur nú komið í Ijós, í sam- j
bandi við hina naumu kosn-
ingu Kennedys, tilvonandi
Bandaríkjaforseta, og hinn
litla mun á heildartölu atkv.,
að hefði frumvarp það um
stjórnarskrárbreytingu, er
Henry Cabot Lodge og fleiri
þingmenn báru fram í öld-
ungadeild Bandaríkjaþings
fyrir nokkrum árum, verið
samþykkt, þá hefði John
Kennedy ekki náð löglegri
kosningu miðað við sama at-
kvæðamagn.
Stjórnarskrárbreytingin gekk
m.a. út á það, að yrði forseta-
efni í aðeins þriggja kjör-
manna meirihluta, en skv.
frumvarpinu var gert ráð fyrir
hlutfallskosningu í hverju
S.l. föstudag opnaði Al-
menna bókafélagið eigin
bóícabúð, Bókaverzlun Sigfús-
ar Eymundssonar í nýjum
og stórglæsilegum húsakynn-
um við Austurstræti 18 —
rúmum 14 mánuðum eftir að
byggingaframkvæmdir hófust
á þessum stað. Jafnframt flyt
ur Almenna bókafélagið bóka
afgreiðslu sína til félags-
manna í Reykjavík í þessa
nýju og fögru bókabúð.
Það er forsaga þessa máls,
að í ársbyrjun 1959 keypti A1
menna bókafélagið þessa elztu
bókaverzlun landsins og hef-
ur rekið hana siðan, fyrst í
hinu gamla húsnæði við Aust
urstræti 18, en síðan í júli í
fyrra í bráðabirgðalfúsnæði í
Morgunblaðshúsinu.
fylki, næði það forsetaefni
ekki löglegri kosningu.
Hefði frv. þetta verið sam-
þykkt og nú kosið skv. því,
hefði Kennedy fengið 266,64
kjörmenn, en Nixon 263,78
kjörmenn — og Kennedy
þannig tæpan þriggja kjör-
manna meirihluta.
Það þykir einnig sögulegt í
sambandi við afgreiðslu þessa
frumvarps, að Nixoon var á
móti því á sínum tíma, en
Kennedy greiddi ekki atkvæði.
Laugarássbíó er nú lokað
um stundarsakir. vegna á-
greinings við verðlagsefti? lit-
ið. Vegna rúmleysis er ekki
hægt að rekja tildrög þess nú,
en verður væntaniega gert f
blaðinu á morgun
Bókaverzlun Sigfúsar Ey-
mundssonar verður áfram rek
in undir sínu gamla nafni.
Hún er 88 ára um þessar mund
ir, var stofnuð 1 nóvembermán
uði 1872, en stofnandi hennar
var Sigfús Eymundsson, ljós-
myndari. Rak l^ann verzlun-
ina þar til 1. janúar 1909, að
Pétur Halldórsson keypti
hana. Að honum látnum tóku
erfingjar hans við rekstri
verzlunarinnar, og var Björn
Pétursson verzlunarstjóri. —
Verður hann einnig verzlunar
stjóri í þessari nýju og glæsi
legu bókabúð.
Byggingaframkvæmdir við
Austurstræti 18 hófust í júlí-
mánuði í fyrra. Er búið að
■múra kjallara og gang frá
fyrstu hæðinni, en alls á hús
ið að vera 6 hæðir. Stuðlar
h.f. eiga 30% af húsinu en
erfingjar Péturs heitins Hall-
dórssonar borgarstjóra eiga
70%.
Teikningar af húsinu og inn
réttingum hafa verið gerðar
á Teiknistofunni Tómasar-
(Framhald á 2. síðu).
Ný kjörbúð við
Sólheima
í gær tók ný verzlun í nýj-
um húsakynnum, til starfa að
Sólheimum 33 í Reykjavík. —
Verzlunin nefnist Heimakjör,
en eigendur hennar eru þeir
Jón Bjarni Þórðarson og Jó-
hann Gunnlaugsson. Þeir fé-
lagar hafa báðir áður fengizt
við verzlunarstörf í Reykjavík.
Heimakjör starfar í vistlegum
og rúmgóðum húsakynnum, og
er verzlunin vel búin í hví-
vetna. Arkitekt að húsinu var
Hákon Hertevig, en yfirsmið-
ur Júlíus Jónsson. Heimakjör
mun hafa á boðstólum allar
kjöt- og nýlenduvörur, og
kosta kapps um góða þjón-
ustu við viðskiptamenn. Húsa
kynni verzlunarinnar eru 200
fermetrar að stærð, verzlunin
sjálf á 113 fermetrum og að
auki vörugeymsla og vinnslu
salir ásamt rúmgóðum kæli.
Allur búnaður verzlunarinnar
er nýr og fullkominn að gerð.
J. Kennedy
hefði tapað
— ef frumvarp Lodge hefði verið samþykkt