Tíminn - 09.12.1960, Blaðsíða 11

Tíminn - 09.12.1960, Blaðsíða 11
tT^WJvN’N, fSstndaginn 9. desember 1960, ti fmrnmmmmmmimmif. • • Spurningar til ráðherra Skipasmiðurinn Carl Broberg, sem er fæddur í Grænlandi en búsettur í Kaupmannahöfn, hefur ritað opið bréf til hins nýja Græn íandsmálaráðherra, M. Gram, skóla stjóra. Carl Broberg var sjálfur í framboði í þingkosningunum á Norður-Grænlandi en náði ekki kosningu. Bréfið er svohljóðandi: „Til Grænlandsmálaráðherrans: — Síðan Grænland fékk viður- kenningu sem hluti danska ríkis- ir.s hafa grænlenzkir kjósendur fengið tvo fulltrúa á danska þing- i:iu. Einu sinni hefur frambjóð- a.ndi dansks stjórnmálaflokks boð- ið sig fram við kosningar á Norð- ur-Grænlandi, en hinir græn- lenzku kjósendur vísuðu á bug Iþessari tilraun til að innleiða dönsk stjórnmálasjónarmið. Þing- folltrúar Grænlendinga hafa því h'ngað til forðazt að blanda sér í sérmál Danmerkur Við þessar kosningar lýstu fram bjóðendur í Grænlandi því yfir að þeir mundu standa til hliðar við danska ríkisstjórnmálastefnu, og á þessum forsendum hlutu þeir kosningu. Það er því undravert að þing- fulltrúi Norður-Grænlands hefur latið draga sig í dilk með þing- nxeirihluta núverandi ríkisstjómar og tekið á sig þá ábyrgð sem því fylgir. Þar sem þér hafið hvað eftir annað, eftir að þér voruð útnefnd- ur Grænlandsmálaráðherra, lýst því yfir í dagblöðum að þér séuð því mótfallinn að reka grænlenzka fiokkspólitík, leyfi ég mér að ieggja fyrir yður þessar spurn- ingar: 1. Munuð þér sem þingmaður Norður-Grænlands — öfugt við fyrirrennara yðar — greiða at- kvæði um sérstök dönsk mál? 2. Getið þér upplýst hvernig slikt getur samræmzt fyiri yfir- lýsingum yðar um að þér munið starfa óháður öllum flokkum? 3. Samkvæmt blaðaummælum rnun seta yðar í ríkisstjórninni veita danskri flokkspólitik áhrifa- aðstöðu í Grænlandi. Viljið þér | geras't ábyi'gur fyrir því að Græn- land verði i framtíðinni bitbein 1 stjórnmálaflokkanna?" Klúbburinn er nýjasti veitinga- og skemmtistaðurinn í Reykjavík og sá tíundi með vín- veitingaleyfi. Meðfylgjandi mynd er úr klúbbnum — þar er vistlegt, eldur brennur á arni og stólar þægilegir fyrir gestina að sitia í. En svolítið er það undarlegt að svo margir skemmtistaðir skuli geta þrifizt í þessum 70 þúsund manna bæ. Rússneskur Othello Rússar hafa nýlokið gerð ballettkvikmyndarinnar Othello. Stjórnandi er þjóðlistamaðurinn Vakhtang Chabukiani, vel þekkfur í heimalandi sínu. Hann fer einnig með hlutverk Othello í myndinni, og hefur verið sæmdur Leninorðunni fyrir frammistöðu sína þar. Með hlutverk Desdemonu fer dansmærin Tsignadze. Chabukiani hafði lengi gengið með Shakespeare í heilanum, segir í tímaritnu Soviet film, og loks gafst honum færi á að íklæða verk þess meistara búningi kvikmyndar. Myndin hér að ofan sýnir Chabukiani í hlutverki Othello. Offramieiðsia á mjólk Áætlað er, að árið 1965 verði offramleiðsla mjólkur og ir.jólkurafurða í Vestur-Evrópu. Þetta kemur fram í skýrslu, sem Matvæla- og landbúnaðarmálastofn unin hefur iátið gera. Framleiðslu- aukningin er meiri en fólksfjölgun ia í þessum heimshluta og verði þróunin hin sama og hún hefur verið undanfarin ár verða 20% framleiðslunnar umfram þarfir ■— þ e. a. s. 30 % í löndunum við Mið jarðarhaf, 25% i löndum Markaðs- bandalagsins, en töluvert minni verður offramleiðslan á Norður- löndum. „Trav-o-lator“ milli Bank Station og Waterloo Sta- tion i London. Hefur þetta samgöngu tæki verið kallað: „Trav o lator". Rafknúinn stigi hefur verlð lagður Útgangurinn er við Bank of England, sem Ilka er nefndur hið efnahags- lega hjarta brezka samveldisins. Tfu þúsund manns fara kvölds og morgna í þessum stlga up og niður að neðanjarðarbrautunum, sem eru hraðskreiðustu samgöngutækin. Að- elns þeir, sem hafa nægan tíma, nota sporvagna og bí|a. Stiginn er á ann að hundrað metra á lengd, hann flyt ur 10 þúsund manns á klukkustund og hraðinn er 180 fet á mínútu. Myndin er af þessum stiga eða „Trav- o-lator". Nautaat í London Brezkur myndhöggvari, George Erik, hefur valdið miklum óróa í London með því að kunngjöra að hann ætli að gangast fyrir að nauta- at verði haldið þar. — Allt er klappað og klárt, segir Georg Erik, sem er stofnandi og for seti Taurino-klúbbsins i London. — Nautaatið verður haidið hér næsta vetur, ég hef þegar samið við einn af beztu nautabönum Spánar. — Maðurinn er vitlaus, segir for svarsmaður dýraverndunarsambands ins, — brezk lög leyfa þetta ekki, og ef lögin stöðva hann ekki, þá gerum við það. Erik viðurkennir að lögin kunni að verða sér nokkur þrándur i götu, og segir að allt sé undir því komið hvernig dýraverndunarlögin frá 1911 verðl túlkuð. I lögunum segir að bannað sé í Stóra Bretlandi að „skaða eða lim- lesta útlend dýr". Erik segist ekki ætla að nota útlenda tudda til atsins. Auk þess segir hann ekkert Ijótt við nautaat, þvert á móti sé það mikil kúnst og bardagi þar sem teflt sé fram vitsmunum mannslns annars vegar og krafti uxans hins vegar. Þessl nautaatsvinur vakti svo mik inn áhuga dýraverndunarfélaga að þeir stofnuðu þegar sérstaka nefnd eða ráð til að vinna gegn nautaati. Málið hefur nú verið tekið upp í neðri delid brezka þingsins og aðstoð arinnanríkisráðherrann krafinn svara um meining dýraverndunarlaganna. Ráðherrann hefur nú gefið yfirlýs- ingu um að sá, sem gerist brotlegur við lögin, verðl sektaður eða tukt-- húsaður. 114 ár Kerling ein á Vestur-lndlandi eignaðist 17 börn, 150 barnabörn, 145 barnabarnabörn og 75 barna- barnabarnabörn áður en hún dó, en það var fyrlr skömmu, þá 114 ára gömul. Hún missti karlinn slnn fyrlr 21 ári. Átta barna hennar eru enn á lífL

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.