Tíminn - 10.12.1960, Blaðsíða 3
MINN, laugardaginn 10. desember 1960.
De Gaulle vann sigur
þegar á fyrsta degi
— þrátt fyrir alvarleg átök og vel undirbúnar
mótmælaaígercJir a'ndstæ'Singa hans
París—Algeirsborg, 9.12-
De Gaulle Frakklandsforseti
kom í dag til Alsír til þess að
vinna stefnu sinni í Alsiirmál-
inu fylgi. Hann fór flugleiðis
með Caravelle-þotu, sem lenti
snemma í morgun í Zenata-
Tlemchen, en fór þaðan með
þyrlu til Ain Temouchent.
Andstæðingar de Gaulle, sem
einkum eru í hópi eigin landa hans
í Alsír efndu í dag til víðtækra
mótmælaaðgerða í öllum helztu
borgum landsihs, m. a. Algeir’sborg,
Oran og Ain Temoychent. Til mik
illa átaka kom í öllum þessum
borgum á miili hers og öfgamanna
en í Algeirsborg hafði herinn tek
ið við allri stjórn borgarinnar.
Einnig efndu andstæðingar forset
ans til allsherjarverkfalls, sem tal-
ið var algert.
Misjafnar móttökur
Er de Gaulle kom til Temochent
fékk hann vægast sagt blandnar
móttökur, þúsundir andstæðinga
hans kölluðu hann svikara og
heimtuðu thann í gálgann, en aðrar
þúsundir fögnuðu honum lengi og
innilega.
Forsetinn lét þetta ekkert á sig
fá og gekk meðal fólksins og tók
í hendur þess. Andstæðingar hans
létu bilbug á sér finna við hina
óttalausu framkomu forsetans. Eitt
sinn tók de Gaulie með annarri
hendinni í hönd Serkja, en með
hinni í hönd Frakka í Alsír og
sagði: Þannig verður Alsír framtíð
arinnar — báðir eru þeir Alsírbú;
ar og eiga að lifa saman í friði. í
ræðu sagði forsetinn, að hann
væri þess fullviss, að fólkið báðum
styðja áform hans um sjálfsákvörð
unarrétt Serkja — þeir væru fjöl
mennir í Alsír og yrðu að fá aukih
áhrif í stjórn landsins.
Serkir fögnuðu forsetanum
De Gaulle var mjög fagnað af
Múhameðstrúarmönnum, sem veif
uðu fagnandi til forsetans og réttu
fram hendur sínar.
Eins og fyrr er sagt kom til al-
varlegra átaka í Algeirsborg og
Oran, þar sem andstæðingar for-
setans höfðu þaulskipulagt mót-
mælaaðgerðir. í báðum borgunum
voru hundruð manna handteknir,
allmargir særðust, en ekkr er vit
að til þess að nokkur hafi beðið
bana. í Algeirsborg settu öfga-
menn upp götuvígi eins og þeir
gerðu í uppreisn Lagaillai’des og
Ortiz s. 1. vor, en þeir voru hraktir
á brott af franska hernum, sem
ók skriðdrekum um göturnar. í
Oran kom einnig til alvarlegra
átaka^og var fjöldi manna handtek
inn. í grjótkastinu í Algeirsborg
voru margar verzlunairúður brotn-1
ar og annað tjón unnið á mann1
virkjum. í kvöld var orðið kyrrara
á götum borganna, en hermenn
stóðu hvarvetna á veiði. Þeir beittu
þó á einstaka stað táragassprengj
um gegn öfgamönnum, sem reyndu
að efna til frekari1 uppþota.
Tvíþætt verkefni
í rœðu, sem de Gaulle flutti yfir
frönskum liðsforingjum í Alsír í
dag, skoraði hann á franska herinn
að sýna þjóð sihni og líkisstjórn
fulla hollustu. Hann sagði, að verk
efni hans í Alsír væri tvíþætt, í
fyrsta lagi að tryggja þar frið og
öryggi borgaranna, en í öðru lagi
efla bróðurhug á milli franskra
manna og Múhameðstrúarmanna
til þess að takast mætti að skapa
nýtt Alsír. Það var skoðun frétta-
manna í Alsir í dag, að þrátt fyrir
blandnar móttökur hefði de Gaulle
strax á fyr'sta degi unnið mikils-
verðan sigur. Öfgamönnum hefði
ekki tekizt að koma af stað neinum
stórfelldum átökum og þrátt fyrir
hih kröftugu mótmæli í stórborgun
um yrði að telja de Gaulle sigur-
vegara dagsins.
De GAULLE
stefnufastur sem fyrr
Yfirmaöur uppl.þjónustu
S.Þ. á Norðurl. hérlendis
Nýkominn frá Kongó og flytur fyrirlestur rnn
KongómáliS og S.Þ. á mánudaginn
Hérlendis er nú sfaddur
Hugh Williams, yfirmaður
upplýsingaþjónustu Samein-
uðu Þjóðanna á Norðurlönd-
um. Hefur Williams skrifstof-
ur í Kaupmannahöfn, en hing-
a3 kom hann frá Kongó, þar
sem hann hefur dvalið frá júlí-
lokum í sumar, við endur-
skipulagningu útvarps Kongó-
manna. Williams er frá Nýja-
Sjálandi. Fór hann frá Kongó
fyrir átta dögum, sama daginn
og Lumumba var handfekinn.
megin Miðjarðarhafsins myndi bæri1 honum að vinna að því
Ljónin selja
Ejósaperur
— til styrktar vaingefnum
Lionsklúbburinn Baldur í
Reykjavík hyggst afla fjár
fyrir Sfyrktarfélag vangefinna
á all nýsfárlegan hátt. Munu
félagar klúbbsins ganga í hús
nú um helgina og seíja Ijósa-
perur. Verða perurnar seldar
á venjulegu búðarverði en sá
hluti verðsins, sem venjulega
væri smásöluálagning, rennur
til Styrktarfélags vangefinna.
Að sjálfsögðu geta meðlimir
klúbbsins, sem eru um 40 calsins,
ekki farið í öll hús í bænum, en
þeir munu fara svo víða, sem þeir
geta. Virðist þetta tilvalið tækifærj
fyTÍr fólk til að byrgja sig upp af
ljósaperum, nú þegar skammdegið
er sem dimmast og jólahátíðin
fram undan.
Styrktarfélag vangefinna • var
stofnað 23. marz 1958 af áhuga-
nænnum. J því eru nú á 6 liundrað
félagsmenn og er formaðui þess
Hjálmar Vilhjálmsson, ráðuneytis-
s'ijóri. Félagið hefur umfangsmikla
starfsemi og rekur skrifstofu á
SkóLavörðustíg 18 í Reykjavík.
Áætlað er, að a.m.k. 600 van-
gefnir þyrftu hælisvist, en aðeins
um 150 vistmenn komast á þau
hæli, sem fyrir hendi eru, en þau
eiu í Kópavogi, Skálatúni í Mos-
íellssvei't og Sólheimum í Gríms-
ntsi. Er því brýn þörf á miklum
framkvæmdum. Félagið hefur und-
r.nfarin tvö ár haft happdrætti til
iiáröflunar, rvo og merkjasölu o.
fl. En betur má, ef duga skal. Enn
þarf stór átök til úrbóta í bessum
eifiðu málum Meðal framkvæmda,
sem félagið stendur að nu, má
nefna: 1) Starfsmannahús í Kópa-
vogi í byggingu. 2 Dagheimili í
Safamýri í Reykjavík, verður fok-
helt um næstu áramót. 3) Starfs-
mannahús í Skálatúni er að verða
fokhelt.
Styrktarfélag vaugefinna hefur
átt því lán; að fagna að njóta
skilnings og velvilja bæði almenn-
irgs og stjórnarvalda, og vona fé-
lagarnir í Lionsklúbbnum Baldri,
að enn verði sama raun á, og að
am þessi jói logi sem víðast á þeim
llósum, sem hjálpa til að hlú að
þeim. sem minnstir eru.
poldville hefur löngum verið bit-
bein valdhafa landsins, sem mjög
hafa óttazt að hún yrði notuð til
að æía landslýðinn upp á móti sér.
■Williams sagði að í júlí í sumar
hefðu kaplar stöðvarinnar verið
skornir í sundur og steinsteypu
hellt yfir. Ekki hefði útsending þó
stöðvazt nema í einn dag vegna
þessa. Kvaðst hann hafa undrazt
hversu Kongómönnum hefði tekizt
íð halda stöðinni gangandi, en að-
eins einn hvítur maður hefði verið
eftir, — starfsmaður á tónlistar-
deild.
Lærir íslenzku
Williams er fæddur 1907. Hann
hlaut menntun sína í Nýja-Sjálandi
cg Bretlandi og lagði einkum
síund á tungumál. 1940 réðst hann
til BBC og frá 1942—1945 var hann
yíir þeirri deild brezka útvarpsins,
sem annaðist útvarp til Frakk-
Samkvæmishand-
bókin Gletta
Út er komin lítil og smekkleg
hók, sem nefnist Samkvæmishand-
bíkin Gletta. Útgefandi er
Skemmtisagnaútgáfan, Reykjavík,
en sá sem tók bókina saman lætur
ekki nafns síns getið. Honum hefði
þó verið það óhætt, því bókin er
á margan hátt skemmtileg, og er
í henni marga dægradvöl að finna.
f bókinni eru ýms töfrabrögð og
samkvæmisleikir, sumir kunnir,
aðrir lítt þekktir, þar er kennd
aðferð til að spá í spil, og loks eru
diaumaráðningar. Er viðbúið, að
bók þessi verði víða um hönd
höfð, þar sem fólk kemur saman
um hátíðarnar.
Gin- og klanfa-
veiki í Nnregi
Kristianstad — NTB - 9. 12.
Gin- og klaufaveiki er nú kom
in upp hér við bæinn og einnig
í fylkinu. Á búgarði hér skammf
við bæinn hefur ölium búpeningi
verið slátrað og óttast er, aS sjúk
dómurinn hafi breiðzt út á fleiri
búgarða í nágrenninu. Nákvæm
gæzla verður við bæi þessa a.
m.k. næstu tíu dagana.
og árið eftir varð hann yfir-
útvarpsfulltrúi samtakanna. 1955
varð hann yfirmaður upplýsinga-
þjónustu S.Þ. í Sydney og gegndi
því starfi þar til hann fluttist til
Kaupmannahafnar í aprílbyrjun í
vor, sem yfirmaður upplýsinga-
þjónustu S.Þ. á Norðurlöndum.
Williams talar m. a. dönsku og
er nú að læra sænsku, norsku og
íslenzku. Hann er gíftur og fjög-
urra barna faðir.
Flytur erindi um Kongó
Næstkomandi mánudagskvöld
mun Hugh Williams flytja erindi
um Sameinuðu Þjóðirnar og
Kongómálið. Verður erindi þetta
fiutt á ensku í fyrstu kennslustofu
háskólans og hefst kl. 20.30, Eru
allir velkomnir meðan húsrúm
leyfir. Félag Sameinuðu Þjóðanna
lands. 1945 réðist Williams til S.Þ. gengst fyrir þessum fyrirlestri.
Olíubíll stjórn-
laus á hálkunni
Ra'nn út á ýmsar hli'Sar oar skóf hli'S úr leigubíl
Hugh Williams
— frá Kongó til íslands
Á fundi með fréttamönnum í
gær kvaðst Hugh Williams vera
þakklátur íyrir að hafa fengið
tækifæri til að heimsækja ísland.
\ ar honum sýnd kvikmynd um
í.dand, sem Kjartan Ó. Bjarnason
befur gert að tilhlutan utanríkis-
ráðuneytisins, en Gísli Guðmunds-
son sett saman. Er sagt frá mynd
þessari í frétt á öðrum stað í blað-
Skáru á kapalinn
Williams ræddi Kongómálið
r.okkuð og sagði frá reynslu sinni
þar í landi. Útvarpsstöðin í Leo-
Klukkan rétt um hálf sex í
fyrrakvöld missti ökumaður
stórrar olíuflutningabifreiðar
frá Shell stjórn á bíl sínum
sem gerði hinar furðulegustu
æfingar áður en hann nam
staðar, m. a. stórskemmdi
olíubíllinn leigubíl, sem þarna
átti leið um.
Lenti á leigubíl
Tildrög voru þau, að olíu-
bíll var á leið suður Suður-
götuna. Þegar hann átti
skammt eftir ófarið • að
Reykj avíkurvegi, tók ökumað
ur eftir strák, sem lá 1 göt-
unni. Til þess aö afstýra slysi
sté ökumaður þegar á heml-
ana en svo flughált var að það
dró ekkert úr ferðinni.
Var að smala kartöflum
Þá sleppti ökumaður heml
unum og snarbeygði til hægri.
Við það snerist bíllinn á hálk
unni og rann út á hlið áfram
til suðurs, vænan spöl. Síðan
lenti framendi hans á mjög
nýlegum leigubíl og spændi
nánast úr honum hliðina,
snerist síðan yfir til vinstri
og rann þannig áfram unz
hann nam staðar úti í vistra
kanti götunnar.
Það er frá pilti þeim, sem
í götunni lá, að segja, að hann
hafði verið sendur fyrir heim
ili sitt þeirra erinda að ná í
kartöflur. Þær missti hann
niður þarna á götunni, og
var að smala þeim saman er
Shellbílinn bar að. Hann
slapp alveg, og sömuleiðis
kartöflurnar hans.