Tíminn - 10.12.1960, Blaðsíða 5

Tíminn - 10.12.1960, Blaðsíða 5
TÍMINN, laugardaginn 10. desember 1960. 5 Útgetandi: FRAMSÚKNARFLOKKURINN. FrarrLKvæmdastióri *> I'ómas A.rnason ttit- stjórar Þórarmn Þórannsson <áb i, Andrés Knstjánsson Fréttastjóri: Tómas Karlsson. Auglýsingastj Egil) Bjarnason Skrifstofur i Edduhúsinu — Símar 18300— 18305. Auglýsingaslmi 19523 Afgreiðslusimi: 12323 — Prentsmiðjan Edda h.f Bretar draga makkið á langinn Hvorki Alþingi né þjóðin fá að fylgjast meS því, sem er að gerast í samningamakkinu við Breta. Það litla. sem af því fréttist, birtist fyrst í enskum blöðum, þvi að Bretar þykjast ekki þurfa að fara eins laumulega að og íslenzka stjórnin. Þeii gera sér orðið ljósan áhuga ís- lenzku stjórnarinnar fyrir því að semja, og fara því ekki neitt óðslega að. Það er gömul venja Breta, þegar þei£ finna að mótaðilinn er undanlátssamur, að draga samn- inga á langinn og nota dráttinn til að beygja andstæð- inginn sem mest. Það hefur meira að segja fregnazt, að Bretinr hafi hvíslað því að íslenzku ríkisstjórninni, hvort ekki væri heppilegt fyrir hana að ljúka samningum við íslenzka bátaútvegsmenn um útgerðarkjörin á næsta ári áður en auglýstar væru þær unaanþágur, sem hann ætti að fá til togveiða innan tólf mílnanna. Auðséð er á ýmsu, að mestu undanlátsmennirnir hér innanlands eru að gerast óþreyjufullir yfir því, hve seint gengur í samningamakkmu. Það er næstum eins og þeir séu farnir að óttast, að Bretar vilji ekki þiggja undan- þágurnar, þegar til kemur. Þannig birti Alþýðublaðið í gær ekki minna en fjögurra dálka fyrirsögn á útsíðu, þar sem segir á þessa leið: „Veldur útfærsian aflabrest- inum? 27% minni togaraafli“. Efni greinarinnar, sem fylgir á eftir, er bollalegging um það, að aflaleysið hjá togurunum stafi af útfærslu fiskveiðilandhelginnar úr fjórum í tólf mílur! Af grein Alþýðublaðsins verður ekki annað ályktað en að það væri hið mesta bjargráð til að auka afla tog- aranna að afnema útfærsluna alveg og leyfa ótakmark- aðar togveiðar aftur á þvi svæði, sem var friðað 1958. M. ö. o.: það væri hið mesta bjargráð fyrir íslenzka tog- araútgérð að semja við Breta um að minnka fiskveiði- landhelgina. Það er ekki undarlegt, þótt Bretar fari sér ekki neitt óðslega og reyni að „pressa“ íslenzku ríkisstjórnina sem mest, þegar þeir heyra slíkar undanhaldsraddir úr her- búðum hennar. Og vitanlega hafa undanhaldsræðurnar, sem Bjarni Benediktsson og Guðmundur í. Guðmunds- son fluttu á Alþingi í haust, sýnt Bretum það ljoslega, að þeir eiga við aðila, sem umfram allt vilja láta undan og semja. Sömu ályktun hafa þeir vitanlega dregið af hinu van- hugsuðu náðun á brezku xandhelgisbrjótunum, sem Bjarni Benediktsson veitti á síðastl vori. Sú ráðstöfun gat átt rétt á sér, ef það fylgdi með, að hún boðaði ekki neitt undanhald. Hins vegar var hún hrein skyssa, þegar ætl- unin var að ganga að samningaborðmu strax á eftir Við samningaborðið var aðstaðan sterkari, ef refsivóndur- inn hvíldi enn yfir höfðum lögbrjótanna. íslenzka ríkisstjórnin kunni sér hér ekki neitf hóf í undanhaldinu. Þess vegna ganga Bretar nú á ’agið og reyna að beygja stjórnina sem mest. Þeir draga þv’ samningana á langinn. En þetta á ísienzka þjóðin líka að hagnýtá sér. Liðsmenn ríkisstjórr.arinnar. sem ekki vilja undan- hald, eiga að reyna að Knýja hana tú að faila frá undan- haldsstefnunni, þótt seird sé. íslendingar eiga jafnframt að gera Bretum Ijóst, að knýji þeir ríkisstjórn íslands til undanhalds nú, þá jatnar það ekki deilur Breta og íslendinga, heldur getur aukið þær 1 framtíðinni, bvi að sérhverju undanhaldi í landhelgismálmu nú mun svarað með harðari sókn á næstu misserum fyrir nýrri útfærslu fiskveiðilandhelginnar — fyrir friðun alls landgrunnsins. Afkastamesti og víðfrægasti vísindamaður íslendinga í jólabókaflóði síðari ára ber mjög mikið á endurprentunum og sumum ærið óþörfum. En vitan- lega er endurprentun góðra bóka og nytsamra nauðsynlegur þáttur í bókaútgáfu sérhvers lands. Ferða- bók Þorvalds er öndvegisrit, sem sjálfsagt var og nauðsynlegt að endurprenta, en það er í mikið ráð- izt að endurprenta fjögurra binda ritverk og gera það vel úr garði, og þegar fyrsta bindið kom út, árið 1958, þótti ýmsum líklegt, að nokk- uð langt yrði að bíða fjórða bindis, sem með sinni ítarlegu nafnaskrá' er lykill að ritverkinu öllu. En á tveim árum hefur nú tekizt að koma út ritverkinu öllu, og mun mega þakka það bæði áhuga útgef- enda og afkastagetu Jóns Eyþórs- sonar, sem búið hefur bindin öll til prentunar. Meira er þó um vert, að útgáfan er heildarlega vel úr garði gerð, og þótt gamla útgáfan verði áfram sú, sem vísindamenn vitna til, eru í nýju útgáfunni margar skýringar og leiðréttingar, sem auka gildi hennar, og er hún því heppilegri til aflestrar öllum þorra fólks en frumútgáfan. Þess má geta, að í fjórða bindið hefur nú verið bætt inn, úr minninga- bók Þorvalds, kafla, sem fjallar um fyrstu rannsóknarferð hans, er hann fór með prófessor Fr. John- strup og fleirum til að kanna eld stöðvar í Suður-Þingeyjarsýslu sumarið 1876, árið eftir gosin í Sveinagjá og Öskju. En einmitt þessi fexð mun öðru fremur hafa ÞORVALDUR THORODDSEN beint áh-uga Þorvalds að jarðfræði og þá einkum eldfjallafræði og þó þetta væri um margt merkileg- ur vísindaleiðangur má líklega telja þetta mikilsverðasta árangur hans. Þetta ferðasögubrot á því mjög vel heima í Fexðabók. Vera má og, að einhverjir íslenzkir verk fræðingar eða aðrir sérfræðingar geti enn tekið undir eftirfar'a-ndi orð Þorvalds í þessari ferðasögu: „Hv-e oft heyrði ég ekki síðar, að fslendingar trúðu betur útlendum, ómenntuðum labbakútum, enskum féglæframö-nnu-m, búðarlokum eða slátrurum, en mér þegar um var að ræða um málma eða önnur jarð- fræðileg efni, sem ég hafði sér- staklega la-gt fyrir mig en þeir eðli lega ekkert vit höfðu á. Hve oft sá ég ekki s-íðar embættismenn og alþingismenn sý-na útlendum spjátr ungum lotnihg-u fyrir hvert speki- ox,ð'J um vísindi, sem út gekk af þeirra -munni, en sögðu um sama 1-eyti allt humbú-g og hégóma, sem ég var að fást við, af því ég var samlandi þeirra “...... Þótt sex til á-tta áratugir séu nú liðnir síðan Þorvald-ur Thor- oddsen lagði 1-eið sína um byggðir og öræfi fslands, exu lýsingar hans enn svo ferskar og í meginatriðum enn svo réttar, að hverjum þeim, er hyggst kynnast eihhverjum la-ndshluta eða landsvæði, hvort heldur af sjón eða sögu, er ráðlegt að byrja á því að lesa lýsingu við- komandi svæðis í Fexðabók Þor- valds. Hún og Flóra Íslands eru þ-au íslenzku öndvegisrit náttúru- fræðilegs efnis, sem öðrum fremur eiga eri-ndi inn á hvert heimili. Þann 6. júní 1955 voru lðin 100 ár frá fæðingu Þorvalds Thorodd- sen. Vel hefði hið opinbera þá mátt sýna minni-ngu hans meiri vott ræktarsemi en raun bar þá vitni, en því m-eir ber þá að þakka það, að ei-tt bókaforlag hefur1 með þess- ari fallegu útgáfu Ferðabókar, viljað heiðra afkastamesta og víð- frægasta vísindamann, sem ísl-a-nd hefur alið. Sigurður Þórarinsson. Þjóðraenningin er lifandi raeiður en ekki jólatré Mér sý-nist allt benda til þess, að bókaútgáfan nú fyr’ir jólin ætli sízt að verða minni að vöxtunum en undanfarin ár. Ekki skal það last- að. Þvert á móti. Og nýju bækurn- ar, s-em nú eru breiddar til sýnis í búðargluggunum, eru margar glæsilegar og gir’nilegar útlits likt og tízkumeyjar á dansleik. En bæk ur eru ekki allar þar sem þær eru séðar. Þær eru ofurlítið lúmskar og varasamai’, án þess að menn taki eftir því. Jafnframt því að vera bækur, eru þær líka hvort tveggja í senn sýnishorn af og próf steinn á menningarástand þjóðar- innar. Annars vegar sýna þær áli-t bóka- útgefendanna á menningarþrosk- anum hér, hvað þeim þyki arðvæn legast að bjóða þjóðinni og bera á borð fyrir hana. Hins vegar verður sala hinna einstöku bóka próf- steinn á bókm-enntasmekk fólksins og leiðir í ljós hvaða bækur það eru, sem fólkið kýs helzt að eign- ast og 1-esa. Bókin Aldamótamenn verður ó- hjákvæmilega slíkur prófsteinn á þjóðina og það sennilega fremur en aðrar bækur ársins. Hún lætur ekki mikið yfir sér að utanverðu. Kápan tekur þar ekki in-nihaldinu frarn að glæsileik, svo að. menn ginnist af henni. En þessi bók er brú — söguleg og menningarleg brú trl þess að tengja nútímann eðlilegum og ómissandi tengslum við hið merkil-ega vakningatíma- bil frá 1874 og fram á fyrstu tugi þessarar aldar. Þ-að má í senn telj- ast furðulegt og grátlegt á þessari JÓNAS JÓNSSON -mi-klu skólaöld, hva-ð við eru-m fá- fróð um þetta tímabil og þá ágætu brautryðj-endur, sem þá lögðu grundvöllinn að þeim framförum, svo að segja á öllum sviðum þjóð- lífsins, sem þessi kynslóð nýtur, og hefur byggt á og aukið við til þessa. Bókin-ni Aldamótamenu er ætlað að bæta úr þessari vöntun. Og hún gerir það að verulegu ley.ti og á að gengilegan hátt. Bókin verður í þrem bindum. Fyrsta bindið kom út í fyrra ,annað bindið nú og hið þriðja er væntanl-egt, að ári. M-un þá allt r’itið geyma æviágrip um það bil 70 forustumanna aldamóta tímabilsins — karla og kvenna — ásamt heilsíðumynd af hverjum þeirra urn sig. Hér er að sjálfsögðu ekki um að ræða tæma-ndi fróðleik um ævi og störf þessa fólks. Þetta er alþýðubók, en ekki sögulegt vís- indarit, enda hefði hún þá þurft að vexða jafnrhargar arkir og nú er hún blaðsíður. Slí-k rit, þótt ágæt geti verið, eru ekki alþýðlegt les-trarefni, heldur aðeins fyrir fáa fræðimenn að glugga í endrum og eins, og hæfa betur bókaskápnum en lestrarborðinu við rúmstokk- inn. Höfuðkostur þessarar bókar er að mínu viti sá, að hún er hæfi- 1-ega stór, öll-um viðráðanleg að eignast og veitir lesen-dunum að- gengilegan, skemmti-legan og gagn legan fróðleik um m-enn og mál- efni þess tímabils, sem við erum flest sorglega fáfróð um. Jafnframt vei-tir hún athugulum 1-esanda dýprr skilning á söguþróuninni og nútíma-num. Ég hygg að okkur hafi aldrei verið brýnni þörf á því en einmitt nú á þessum miklu breytinga og byltingatímum, þegar m-enning og ómenning annarra þjóða flæðir yf- ir okkur eins og gruggugt fljót í vorleysingum, að gera okkur grei-n fyrir því, hvað íslenzk menning er. Við þurfum að skynja og skilja, að hún er m-eira en ar'fur s-undurleitra hluta frá fortíðinni. Hún er sá forni, frjói, lifandi meiður, sem stendur'djúpum rótu-m í fortíðinni, hefur sitt svipmót og vaxtarlag, en á jafnframt það frjómagn, að stöð- ugt má á stofn og greinar græða nýja sprota til fegúrðar og fjöl- breytni. En í umróti yfirstandandi tíma, hef ég stundum ekki getað (Framhald á 11. siðui

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.