Tíminn - 10.12.1960, Blaðsíða 10

Tíminn - 10.12.1960, Blaðsíða 10
10 HINNISBÖKIN í dag er laugardagurinn 10. desember. Tungl er í suðri kl. 5.41. Árdegisflæði er kl. 9.54. SLYSAVARÐSTOFAN é Heilsuvernd arstöðinnl er opln allan sólarhrlng inn NæturvörSur í Reykjavík vikuna 4. —10. des. er i Vesturbæjarapóteki. Næturlæknir í Hafnarfirði vikuna 4. til 10. des. er Kristján Jóhannesson. Listasafn Einars Jónssonar Lokað um óákveðinn tíma. Ásgrímssafn, Bergstaðastræti 74, er opið sunnudaga, þriðjudaga og fiÁmtudaga frá kl. 13,30—16. Þióðminfasat Isl nrf' er oplð é priðiudögum fimmtudög uil og laugardögum frá kl 13—lö. á sunnudögum kí 13—16 ÁRNAÐ HEILLA Hjónaband: í dag verða gefin saman í hjóna- band áf séra Árelíusi Níelssyni ung frú Jónina Guðrún Gústafsdóttir, stud. phil., Blönduhlíð 28, Reykjavík og Alfreð Guðnason, bifrciðasmiður, Varmadal, Stokkseyri. í dag verða gefin saman í hjóna- band ungfrú Sigrún Sigurðardóttir, Suðurgötu 59, Hafnarfirði, og Sigur- jón Ingvarsson, bifvélavirki, Garða- veg 5, Hafnarfirði. Messur á morgun Reynivallaprestakall: Messað að Saurbæ kl. 2 e. h. Sóknar prestur Hafnarf jarðarkirkja: Messa kl. 2. Aðalsafnaðarfundur að lokinni messu. Séra Garðar Þor- steinsson. Dómkirkjan: Messa kl. 11 f. h. Séra Jón Auðuns. Messa kl. 5 síðd. Séra Óskar J. Þor láksson. Barnasamkoma í Tjarnarbíói kl. 11 f. h. Séra Óskar J. Þorláksson. Háteigsprestakall. Messa í\hátíðasal Sjómannaskólans kl. 2. Barnasamkoma kl. 10,30 árd. Séra Jón Þorvarðarson. Neskirkja: Barnaguðsþjónusta kl. 10,30 árd. Messa kl. 2. Séra Jón Thorarensen. Hallgrímskirkja: Barnaguðsþjónusta kl. 10 f. h. Séra Sigurjón Þ. Árnason. Messa kl. 11 f. h. Séra Sigurjón Þ. Árnason. Messa kl. 2 e. h. Séra Jakob Jónsson. Ræðu efni: Hvað eigum vér að gera? Ellihelmlllð: Guðsþjónústa kl. 2 e. h.- Séra Bjarni Jónsson vígslubiskup annast. Laugarneskirkja: Messa kl. 2 e. h. Barnaguðsþjón- usta kl. 10,15 f. h. Séra Garðar Svav arsson. Flugfélag íslands: Millilandaflug: Millilandaflugvélin Sól'faxi fór til Osló, Kaupmannahafn- a.r og Hamborgar kl. 8,30 í morgun. Væntanlegur aftur til Rvíkur kl. 17,40 á morgun. Innanlandsflug: í dag er áætlað -ð fljúga til Akureyrar (2 ferðir), Egils- staða, Húsavíkur, ísafjarðar, Sauðár króks og Vestmannaeyja. Á rnorgun er áætlað að fljúga til Akureyrar og Vestmannaeyja. Loftleiðir: Leifur Eiríksson er væntanlegur frá Helsingfors, Kaupmannahöfn og Osló kl. 21,30. Fer til New York kl.1 23.00. J Ræða Thor Thors (Framhald af 8. síðu). um og það er langæskilegast að sú aðstoð sé veitt fyrir milligöngu Sameinuðu þjóðanna. Þetta felur í sér fjárhagslega aðstoð, og það er vitað, að slík aðstoð verður að vera í stórum stíl, og ennfremur, að fjárframlögin verða hér, eins og endranær, að koma frá hinum stærri og auðugri þjóðum heims- ins; og í allri auðmýkt verðum vér að segja, að þau framlög, sem eins lítil þjóð og ísland getur látið af mörkum, hljóta að vera af skornum skammti. Það mundi sannarlega vera mikið heillaspor fyrir allt mannkynið, ef sérhver þjóð vildi fallast á það af fúsum vilja að leggja til hliðar þótt ekki væri nema lítinn hluta af útgjöldum hennar til hernaðar, og láta það fé, jafnvel þó það væri ekki nema 1% árlega af þessum útgjöldum, renna til þess að skapa aukna vel- ferð og aukið atvinnulíf hjá þeim þjóðum beimsins, sem skemmra eru á veg komnar, og til að hjálpa nýlenduþjóðum í viðleitni þeirra tá að öðlast fjárhagslegt og efna- hagslegt sjálfstæði. Það er einnig öldungis víst, að þessar þjóðir þarfnast stóraukinnar tæknihjálp- ar á öllum sviðum, hvort sem það er til að styrkja atvinnulífið, bæta samgöngur og samgöngukerfi eða til þess að mennta nægilega marga af þegnum sínum til þess að verða fullfærir um að taka öfluglega við stjórn og stjórnaifari öllu að fengnu sjálfstæði. í þriðju grein efnismáls tillög- unnar segir: „Það má aldrei nota sem yfirskyn til að fresta veitingu sjálfstæðis, að þjóðirnar séu ekki nægilega viðbúnar á sviði tækni-: mála, efnahagsmála, félagsmála eða menntunar". Vér eium því sam mála, að ekki megi hafa slíkt að yfirskyni, en það er hins vegar jafnljóst, að algjört sjálfstæði get ur ekki komið skyndilega, án nauð synlegs undirbúnings, heldur verð ur það að þróast og þroskast smám saman, stig af stigi, eftir því sem aðstæður og ástand heimtar. f þessu sambandi erum vér einnig fylgjandi fimmtu grein efnismáls- ins, þar sem segr svo: „Það ber að stíga tafarlaus skref til þess í gæzluverndarlöndum og ósjálfstæðum löndum og í öllum öðrum löndum, sem enn hafa ekki náð fullkomnu sjálfstæði, að færa öll yfirráð og alla stjóm í hendur fólksins í þessum löndum, án nokk urra skilyrða eða takmarkana, í samræmi við frjálslega tjáðar ósk ir og vilja fólksins, án nokkurs mis munar vegna kynþáttar, tráar eða hörundslitar, í þeim tilgangi einum að gjöra fólkinu kleift að njóta fullkomins sjálfstæðs og frelsis. íslenzka sendinefndin óskar að leggja áherzlu á orðin: „tafarlaus skref“, sem þýða það, að sjálfstæði getur efcki komið skyndilega, eins og elding af himnum ofan, heldur fyi'ir þróun í framfaraátt. Þessi til- greindu orð þýða, að voru áliti það, að aðgerðir verði að hefjast tafarlaust, og fyrstu sporin beri að stíga þegar í stað. Leiðin til sjálfstæðis kann að reynast skömm fyrir sumar þjóðir, en nokkuð lengri vegna annarra. En það skiptir meginmáli, að öll- um þjóðum heims sé veitt von um þcð, og trygging fyrir því, að þær muni hljóta sjálfstæði og frelsi án allra tafa, svo að þær megi í trausti og með öryggi stefna fram á leið til aigers frelsis. fslenzka sendinefndin fagnar þessari yfirlýsingu um frelsi, og vér erum þakklátir þjóðum Asíu og Afríku, sem á raunhæfan hátt hafa tekið forystuna til að gjöra þ? hugsjón að varuleika, til að f-ytja boðun og ljós hamingjusams þ.ióðlífs og bættrai framtíðar öll- um þeim þióðum, sem nú eru kúg- aðar eða óánægðar, hvar sem er í heiminum. Vér treystum því, að þessi yfirlýsing um frelsi verði e/nlæglega og af öllum hug styrkt, etki aðeins í orði heldur og í verki af öllum þjóðum heims, og alveg sér í lagi af þeim þjóðum, sem enn hafa yfirráð yfir öðrum bióðum viðs vegar um heim Vér erum þeirrar skoðunar, að þessi yfirlýs- ing um frelsi eigi ekki aðeins við um þær þjóðir, sem nú í dag lúta enn stjórn aRi^rra þjóðia, heldur se það krafap -^ jíjar þjóðir, bornar og óborhar megi njóta fullkomins frjálsræðis án óeðli- legrar og óæskilegrar íhlutunar frá nokkurri annarri þjóð. Vér óskum þess, að kyndill frelsisins megi biitast og ljóma ir.eð öllum þjóðum heims En gleymum eigi því, hæstvirtir fund- TfMINN, ■ai-menn, að háleitar hugsanir og hafleyg orð og mikil loforð, eru til lítils gagns, ef þeim fylgir ekki sönn og einlæg framkvæmd Minnumst þess einnig, að jafn- framt því, sem engin þjóð á rétt á því að stjórna annarri þjóð, þá er það fyrst og fremst skylda hverr- ar einstakrar þjóðar að sfjórna sér s:álf, og að gæta örugglega og kröftuglega, af eigin rammleik, sins eigin sjálfstæðis, og að leiða sitt eigið fólk á veg til framfara, rnenningar og farsældar. Sérhver þjóð, og alveg sérstak- lega smáþjóðirnar, ættu að hafa hugfasta þá staðreynd, að sjálf- siæðisbaráttan endar ekk' með íormlegri viðurkenningu fullveldis- ins og hátíðahöldunum í sambandi við fengið frelsi. Nei, þvert á móti, baráttan fyrir raunverulegu sjálf- stæði hefst einmitt þá. Þá hafa þióðirnar sjálfar og af eigin ramm- laagardaginn 10. desember 1960. leik ýtt frá landi út á hið mikla haf alþjóðlegra stjórnmála. Hver þjóð verður þá að vera skipstjóri á sinni eigin fleytu og bjóða byrginn binum hættulegu háu öldum al- þjóðlegrar baráttu í refskák stór- veldanna; og aðeins með bví að shipshöfnin sé samstillt og einhuga og fær til skipstjórnar, er nokkur von til þess, að fleyið nái farsælli Gg þráðri höfn. Ef skipshöfnin er ekki samhuga og samvalin mun fleyið refca í strand. Nauðsyn býð- ur að vera vakandi og beita varúð og þrautseigju. fslenzka sendinefndin mun greiða atkvæði með þessari yfir- lýsingu um sjálfstæði og fr-elsi a:lra þjóða, ekki með neinni gremju né ásökunum í huga gegn nokkurri þjóð, heldur með einlæg- i.m og góðum óskum öllum þjóð- um til handa, bæði stórum og smáum. „Ef enginn hefur komizt til tungls ins, hvernig er þá hægt að segja að það sé búið til úr mygluðum osti?" DENNI DÆMALAUSI K K 1 A D L D D I I Jose L Salinas 125 D R r K I Falk 125 — Nú þekki ég þig. Þú reyndir að — Hvað segirðu um þetta, herra Moon? EFTIRLÝSTUR MORÐINGI — Buddy stela Súsönnu! Hvernig komstu út? — — Hamingjan sanna! Moon. Þig varðar ekkert um það. — Hann ætlar að skila stolnum dem- öntum á morgun, en þarf á þeim að halda í dag!! — Þú ert kaldur, en nú kemur þú á stöðina......... Þetta eru mínir menn, ég verð að fara varlega að þeim. — Eg sagði að demantarnir væru stoln ir, en ekki að ég hefði stolið þeim, með hvaða rétti ætlið þið að handtaka mig? — Hafið þið skipanir eða sannanir? Lítiði í reglubókina yfckar.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.