Tíminn - 10.12.1960, Page 9

Tíminn - 10.12.1960, Page 9
TÍMINN, laugardaginn 10. desember 1960. 9 SigurSur Karlsson var einn af 6 fulftrúum IS|i'. félags verksmiðiufólks á Akureyri, á þingi Alþýðusambandsins, sem nýlega var haldið í Rvík. Sigurður er sfarfsmaður á UII arþvottastöð Gefjunar og læt- ur sig jafnan miklu skipta fé- lagsmál verkamanna. Frétta- maður Tímans náði tali af Sig urði og spjallaði við hann góða stund um Alþýðusam- bandsþingið og fleira, sem snertir stétt hans og starf Samvinnufélðgin samtökin hljdta Rætt við Sigurð Karlsson, starfsmann — Hvað voru margir fulltrúar á þinginu, Sigurður? — Rúmlega 330 víðsvegar að af landinu, þar af var um helmingur fulltrúanna úr Reykjavík — Var ekki Dagsbrún með hæsta fulltrúatölu? — Jú, hún sendi 34 fulltrúa. Iðja í Reykjavík átti 17 og Verka- kvennafélagið Framsókn 15 — Hvað voru margir frá Akur- cyri? — 20 frá 7 félögum, og mun það aðeins lægri tala en 1958. — Hver voru helztu verkefni Alþýðusambandsþings að þessu sinni, Sigurður? — Einkum voru það kjaramál- in og atvinnumálin almennt svo og skipulagsmál sambandsins sem hafa verið viðfangsefni síðustu þinga og þó enn óúfkljáð. Skipu- lsg Alþýðusambandsins hefur lítið breytzt frá því það var stofnað 1916, og held ég allir séu sam- mála um, að nauðsynlegt sé að breyta til um skipulag þess. Nefnd ir hafa starfað að málinu undan- farin ár, og norskur maður var fenginn til þess að gera tillögur um skipulagsbreytinguna, og eru tillögur hans til athugunar hjá stjórn ASÍ og milliþinganefnd, sem kosin var til þess að fjalla um málið. Þykir mér sennilegt. að brátt dragi að því, að menn komi sér saman um framtíðarlausnina, enda er tími til kominn, þar sem málið virðist hafa fengið allræki- legan undrbúnng. — Urðu umræður miklar um skipulagsmálin? — Jú, æði miklar, en þó meiri um annað mál, sem að nokkru var tengt þessu. Það var upptöku- beiðni Landssambands verzlunar- manna.'Beiðninni var synjað Synjunin var emmitt rökstudd ir.eð því, að skipulagsmálin væru enn í athugun, þó að hinu sé ekki að neita, að ekki voru allir þing- íulltrúar samþykkir synjun á þeim grundvelli né öðrum. En ég fyrir mitt ieyti tel ekki ástæðu tu: þess fyrir verzlunarmenn að firtast við þessum málaiokum, eada alrangt, sem mér virðist' sumir halda, að verzlunar- og sKrifstofufólk geti ekki átt aðild af- ASÍ eins og nú er. Félög verzl- Gef junar á Akureyri. ur.ar- og skrifstofufólks eiga líka sum hver aðild að sambandinu nú þegar, eins og t.d. félagið á Ak- meyri, og hefur það um árabil sent tvo fulltrúa á Alþýðusam- bandsþing. Að þessu sinni voru þeir Jón Aspar og Baldur Hall- dórsson fulltrúar á þinginu — Hvað er að segja um kjara- málin? — Eins og ég sagði áðan voru beu eitt helzta viðfangsefni þings- ir.s. Yfirgnæfandi meirihluti þing- f-illtrúa lýsti fyllsta vantrausti á aögerðir ríkisstjórnarinnar efna- hags- og atvinnumálum, en hitt var aftur eftirtektarvert. að ríkis- stjórnin átti mjög fáa formælend- ur Eg hef það fyrir satt að a drei hafi færri Alþýðuflokks- menn átt sæti á Aiþýðusambands- þmgi en nú, og við það bættist svo, að sumir þeirra munu hafa verið með öllu andvígir stefnu fiokks síns í efnahagsmálunum, og er það alls engin furða. Kjör laun þega hafa rýrnað stórlega í tíð núverandi ráðamanna ríkisins, og sé borin saman krónutala tíma- k-aups t. . í október 1958 og nú í ár. þá sést, að tímakaupið hefur beinlínis verið lækkað um meira cn eina krónu. Hins vegar hafa aiiar nauðsynjar almennings hækk að gífurlega í verði. Hafi tíma- kaupið 1958 verið miðað við þurft nrtekjur, þá sjá allir, að pað er ekki óeðlilegt, þótt launþegar uni i.'ír sínum hlut eins og hann er ár. Þessi einfaldi samanburður sýnir ljóslega, hve gífurleg kjara- skerðingin er. Þegar þar við bæt- ibt að atvinnuleysi er að skella á á ýmsum sviðum og þegar skollið á sums staðar, þá er heldui ekki að furða, þótt margir séu þeirrar skoðunar, að róttækra aðgerða sé þörf til varnar rétti verkamanna og annarra launþega. Eg fyrir mitt leyti tel, að hafi verkalýðssamtök- in einhvern tíma haft ástæðu til virkra aðgerða, þá hafi þau ekki siður ástæðu til þess nú — Telurðu pá nauðsynlegt að grípa ti! verkfalla? — Eg álít, að verkföll séu neyð- arúrræði. Verkamenn vilja auð- vitað heldur semja án þess að Sigurður Karlsson þurfa að grípa til verkfalla. Það ætti að vera auðskilið mál. En kjör verkamanna eru þannig nú, að það getur enginn heimilisfaðir framfleytt fjölskyldu af daglaun- um sínum. Þetta er þó ekki al- deilis í samræmi við kosningalof- erð stjórnarflokkanna í fyrra, þar sem annar lofaði „verðstöðvun" og hinn „hæ.ttum jífskjörum“! — Ei- ,ekki. Iðja fjölmersnasta stéttarfelagið á Akureyri? — Jú, og iðnverkamenn því vafalaust stærsta starfsstétt í bæn- um. — Og hverjar eru þessar verk- smiðjur, sem fólkið vinnur í? — Stærsítu verksmiðjurnar eru eign Sambamds ísl. samvinnufé- laga, þ. e. a. s. Ullarverksmiðjan Gefjun, Skinnaverksmiðjan Iðunn og Fataverksmiðjan Hekla. — Vinnur margt fólk í þessum verksmiðjum? — Á sjötta hundrað manns. — Á ekki Kaupfélag Eyfirðinga vcrksmiðjur? — Jú, KEA rekur ýmislega iðn- aðarstarfsemi, bæði eitt sér og í sameign við SÍS. — Er ekki „einokun" KEA og SÍS alveg ægileg á iðnaðarsvið- inu eins og öðru á Akureyri? — Hvernig dettur bér það í og alþýðu- að eiga samleið hug? spyr Sigurður undrandi. — Morgunblaðið segir það! — Einmitt það! En það er nú ekki allt satt, sem Morgunblaðið segir. Hið rétta er, að á Akureyri eru margar ágætar verksmiðjur í eigu einstakra manna og hlutafé- laga, og er ekki annað vitað en að þær blómstri prýðilega og búi í góðu nábýli við verksmiðjur samvinnuhreyfingarinnar. — Já, en er ekki anzi mikið kreppt að einstökum framkvæmda- mönnum á Akureyri? — A. m. k. eru samvinnufé- lögin ekki þrándur í götu fram- kvæmdamanna á Akureyri! Eins og ég sagði áðan, þá eru einstakir iðnrekendur tiltölulega fjölmennir á Akureyri og eiga sinn mikla þatt í því, ásamt feamvinnufélögun- rm, að gera Akureyri að mesta iðnaðarbæ landsins. Sama er að segja um verzlunina. Maður heyrir því ekki sjaldan haldið framaðKEA eir.oki' alla verzlun á Akureyri! Ailir, sem kunnugir eru á Akur- evri vita, að þetta er alrangt. Það er að vísu satt, að kaupfélagið drap niður á sínum tíma ýmsar al- danskar eða hálfdanskar verzlanir, — en hver saknar þeirra? Kann- ske Morgunblaðsritstjórarnir? Það vita allir, sem kunnugir eru á Ak- ureyri, að í bænum er sægur einka verzlana, sem keppa innbyrðis og við kaupfélagið um viðskipti við bæjarbúa. Ég kannast ekki við. að KEA haf einokun á einni einustu vörutegund, sem venja er að selja í búð. í sumum greinum hefur KEA eina búð á móti mörgum búð rm kaupmanna. Varla getur það íalizt einokun. — En heldurðu, að samvinnufé- lögin séu nokkuð betri „vinnuveit endur“ en aðrir? — Mér finnst samvinnufélögin hafa sérstöðu sem vinnuveitendur, þó að ég viti, að margir einstakir atvinnurekendur eru ágætir í alla stað sem yfrmenn og viðsemj- endur. — Hver er þá þessi sérstaða samvinnufyrirtækjanna? — Fyrst og fremst sú, að sam- vmnufyrirtækin eru í raun og veru almenningseign og þau á að reka með almetnningsheill fyrk- augum. Það fjármagn, sem í þau l’efur verið lagt, er til orðið fyrir samtök fjöldans, og þó að hlutur h\ers einstaklings sýnist lítill og kannske fjarlægur, þá er hann þó fyrir hendi. Þá er sá kostur við samvinnufyrirtækin, að þau eru „átthagabundnari", ef svo mætti sngja, enda leiðir það af tilgangi oí eðli samvinnunuar. Við Akur- cvringar höfum talsverða reynslu ai þessu. Vð höfum alltof oft á undanförnum árum mátt sjá á eftir duglegum ithafnamönnum úr bænum, og þeir hafa, eins og þeir hafa fulla heimild til, flutt nieð sér mikið fjármagn beinlínis, auk þess sem þeir hafa skilið eftir skarð í athafnalífi bæjarins — En er nokkuð betra fyrir verkamenn að semja við SÍS og KEA heldur en aðra vinnuveit- endur? — Ég þori að fullyrða, að ekki eru til betri viðsemjendui um kaup og kjör en forráðamenn sam vinnuverksmiðjanna. Það er óra- langt að leita þess, að til verk- falls hafi komið í samvinnuverk- smiðjunum á Akurevri. enda hefur verið unnið þar þó að allt hafi logað í verkföllum annars staðar. — Hafa ekki samningaviðræður staðið yfir milli Iðju og Vinnu- málasambands samvinnumanna nú í haust? — Jú, það er rétt, en þær liggja r.iðri um stund, en verða sjálf- sagt teknar upp aftur, og veit ég eaki annað en að gott samkomu- lag hafi ríkt á viðræðufundum. Það hefur m.a. áunnizt í bráða- birgðasamkomulagi milli aðila að nú er unnin eftirvinna í verksmiðj unum, alls staðar þar sem því verður við komið, til þess að bæta upp kjaraskerðingu íhaldsstjórn- arinnar, og mun svo verða, þar til semst um annað. —<• Nokkuð sérstakt, sem þú vildir segja að lokum, Sigurður? — Eg vil aðeins segja það, að mér finnst bændur, verkamenn og aðrir, sem vinna hörðum höndum, e:ga að hafa sem nánasta samstöðu. Samvinnufélögin og alþýðusam- +ökin hljóta líka alltaf að eiga samleið, því að báðar þessar hreyf ingar eru sprottnar af sömu rót og miða að því sama. Milli þeirra þarf því að ríkja góðvilji og gagn kvæmur skilningur. Verzlunar og atvinnusamtök almennings eru engu ógagnlegri en önnur samtök fjöldans, og verkamenn ættu hvað bezt að geta skilið gildi samstöð- unnar á þeim vettvangi sem öðr- um. v. ----------------------------rrr.r—..ri--------------^---n-n.r.^^«.n.rrrrnnnrnnnnnin||)t|<[iliL[ „Þetta er ekki háttur heiðariegra manna(( Undanfarna daga hefur maður nokkur, sem heitir Stefán Þor steinsson frá StóraFljóti, verið að skr'ifa í reyfarastíl, greinar í Vísi, auglýsinga og bæjarmálablað nokk urra sjálfstæðismanna í Reykjavík. Eru þetta eins konar fréttabréf, sem aðallega eru uppdiktaðar „Gróu“ sögur um Mjólkurbú Flóa manna og forystumenn þess. — Nú bregður svo undarlega við að inntak hinna síðustu pistla er aðallega í því fólgið að ráðast að mér persónulega, vegna þátttöku minnar í kynningarfundum þeim, er haldnir voru í M.B.F. á dögun um, og þá um leið rætt um það hvílíkt slys það hafi verið að ég skyldi hafa orðið alþingismaður í nokkrar vikur, jafn ómerkilegur maður, sennilega ekki „normal“. — Ég er alveg undrandi yfir því, að maðurinn skuli vera að eyða svona miklu púðri á jafn ómerki legan mann í hans augum. Satt að segja hélt ég að hann þekkti mig ekkert persónulega, frekar en að ég þekki hann ekki nokkurn skapaðan hlut. Þó hef ég ýmis legt um manninn heyrt, sem rök stuðning fær í skrifum hans. Þetta kemur líka berlega í ljós í skrifum mannsins í frá sögnum hans um fundina í M. B. F., sem eru ein reginvitleysa frá upphafi til enda og ekkert annað en, að maður gæti ætlað, hugarfóstur sjúks manns. Mig undrar því ekki þó að þeir, sem manninn þekkja hér austanfjalls, taki ekki hið minnsta mark á orð um hans eða skrifum, og finnist þau ekki svara verð. Ég gæti auðveldlega haft þann hátt á, en hins vegar vil ég sýna Stefáni þá kurteisi að láta hann vita að ég hef séð greinar hans og köpuryrði hans um mig. Ekki lasta ég þau, öðru nær, þau eru aðeins vottur þess að hann og hans líkar og þeir sem hann er að þjóna með þessum skrifum, virðast eitt hvað taugaóstyrkir, vegna þess að ég er orðinn starfsmaður hjá Kaup félagi Árnesinga. Það gefur mér vissulega tilefni til að ætla að ég geti orðið þar að einhverju liði og ætti að vera mér hvatning til starfa. — Svo ég víki aðeins að kynningar fundunum hjá M. B. F., þá voru þeir í alla staði hinir ánægjuleg ustu, og svo þó#tti öllum sem þang að komu, og er hægt í því sam bandi að vitna til manna, sem Stefán hefur miklar mætur á, svo sem Guðmund Erlendsson, hrepp stj. á Núpi, Sigmund Sigurðsson, Langholti, og bæta má við Páli Björgvinssyni, oddvita að Efira Hvoli, mætir menn og þekktir, er allir tóku til máls á fundum þess um, sem og fleiri. Er alveg víst að almenningur tekur miklu meira mark á orðum þessara manna, en manns, er hvergi hefur nærri komið, en þyk ist þó þess umkominn að kveða upp sleggjudóma. Þetta er ekki háttur heiðarlegra manna. Ef að Stefán frá StóraFljóti er að skrifa þessar „revíur". sínar í umboði einhverra mjólkurframleið enda, því í ósköpunum fær hann þær ekki birtar í þeim blöðum, sem bændur almennt lesa, eða er þeim ekki ætlað að sjá þær? Hvaða hlutver’ki eiga þær að þjóna í Reykjavík? Heldur maður inn að hann sé að vinna austan fjallsmönnum eitthvert gagn með þessu? Nei áreiðanlega ekki. Svona skrif gera ekki annað en setja „soramark" á þann er þau skrifar og þeim helzt til framdráttar, sem illa er um talað. Þess vegna skil ég vel, þó kunnugir álíti þau ekki svara verð. Þá vil ég aðeins minnast á per sónulegar árásir á mig, og vil spyrja: „Hvað veldur því að ég er allt í einu orðinn svona mikið hrak í augum Stefáns og hans umbjóð enda? Öðru vísi mér áður brá. Fyrir rúmlega ári síðan máttu þeir, er skrifa blöð sjálfstæðismanna vart vatni halda af samúð með mér, vegna þess að Framsóknarmenn hefðu farið illa og ómaklega með mig í sambandi við uppstillingu á lista til alþingiskosninga í Suður landskjördæmi, og meir en það, allur frambjóðendaskari þeirra sjálfstæðismanna um land allt flaut í tárum vegna þessa og barði sér á brjóst í mikilli vandlætingu. Ég hef áreiðanlega verið normal þá. Hverju á nú að trúa, forustuliði sjálfstæðisflokksins, eða Stefáni frá Stóra Fljóti? Ósfcar Jónsson

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.