Tíminn - 23.12.1960, Síða 1
Jólaösin nær hámarki
í dag - Þorláksmessu
Þessa mynd tók Ijósmyndari blaðsins í gær í Kjörbúð
SÍS í Austurstræti. Miki! ös var, og gera má ráð fyrir að
ekki verði hún minni í dag, en kunnara er en frá þurfi
að segja að Þorláksmessa rekur endahnútinn á jóla-
ösina. (Ljósm.: TÍMINN, K.M ).
Er einörð andstaða þjóð-
arinnar að bera árangur?
Fá fimmtán þús-
und fyrir róður
Róa á miðnætti og koma upp úr hádegi
daginn eftir að landi 2,500 krónum ríkari
Rsufarhöfn, 12. des. —
Tveir dekkbátar, sem v-éðan
róa, hafa fengið bráðgóðan
afla að undanförnu, en bessa
dagana hefur ekki gefið á sjó.
Bátarnir hafa fengið 5—6 t.
í róðri, bæði ýsu og þorsk.
Bátar þessir nota styttri
línu en tíðkast sunnanlands.
Þeir hafa verið með 36 stampa,
fjögurra strengja. Á hverj-
um bát eru 3 menn, og í landi
eru 2—3. Aflinn, sem gefur
um 15 þús. í aðra hönd skipt
ist því milli 5—6 manna Það
er góður jólaglaðningur.
Ýsan eykst.
Bátarnir íóru út á miðnætti
og komu aftur um tvöleytið
daginn eftir. Þeir róa stutt,
og aflinn er oftast fveir þriðju
hlutar þorskur, en afgangur-
inn ýsa. Það er sftirtektar-
vert, hve ýsan hefur aukizt,
síðan landgrunnið var friðað,
því áður var varla hægt að
segja aö það þekktist að fá
ýsu á grunnmiðum, og begar
hún fékkst voru það pölvað-
ir tittir. Nú fer hún öit va_x-
andi, stór og falleg. J.Á.
Samkvæmt frétt sem blað-
inu barst í gær frá NTB-frétta-
stofunni. virðist sem hin ein-
arða og almenna andstaða ís-
lenzku bjóðarinnar gegn
samningunum við Breta um
landhelgismálið sé farin að
bera árangur og kveða að eín-
hverju marki niður undir-
lægjuhátt íslenzku ríkisstjórn-
arinnar ( þessu mesta hags-
munamál! íslenzku þjóðarinn-
ar. Segja má þó að ekki sé
rétt að fuilyrða nokkuð í þá
átt á þessu stigi málsins og því
sé enn þörf á skeleggri bar-
áttu ístenzku þjóðarinnar fyrir
sæmd sinni og hagsmunum í
þessu máli Ef til vill hafa
Bretar lesið slíkan undirlægju-
hátt úr ræðum ráðherrans um
þetta mái undanfarnar vikur
að þeir hata talið sér óhætt að
ganga á lagið og gerast óbil-
gjarnari í kröfum sínum. Eftir
því sem fréttin hermir mun
viðræðunum verða naldið
áfram og íslenzka ríkísstjórn-
in virðist því enn hafa áform
um að hundsa vilja þjóðarinn-
ar í þessu máli. Enn er því rík
þörf einbeitts og samstillts
átaks þjóðarinnar svo ríkis-
stjórninni verði að fullu Ijóst
að þjóðin mun ekki þola neinn
undanslátt frá 1? mílna fisk-
veiðilandhelginni umhverfis
landið og að sigurinn í málinu
verði af henni hafður.
Hér fer á eftir fréttaskeyti
NTB:
Glasgow 22/12 (NTB). — Guð-
raundur f. Guðmundsson utanrík-
isráðherra íslands hélt heiraleiðis
til Reykjavíkur dag og mun
gefa íslenzku ríkisstjörninni
(Framhaid á 2. síðu).
Allflestum bjargaS úr olíuskipinu — bls. 3