Tíminn - 23.12.1960, Side 2
2
TÍMINN, föshidaginn 23. d«»Mnljpr<1960.
Saud Arabíukonungur
skipar nýja stjórn
Hefur sjálfur tögl og hagldir. Taldi Faisal óhollan
og hefur nú í hótunum vi(J hann
Amman 22.12. (NTB) Ferða |
menn, sem komið hafa til Ka
iro frá Saudi-Aarabiu segja, j
að Faisal krónprins hafi ekki j
sig og stjórn sína heldur hafi
Saud konungur þvingað hann
til þess að gera það, en sem
kunugt er af fréttum hefur
Saud konungur nú tekið aft-
ur alræðisvald í landinu en
hluta af valdi sínu afsalaði
hann til krónprinsins 1958.
Þá segja fregnir frá Kairo
einnig, að konungur hafi i
hyggju að svipta Faisal rétti
til ríkiserfða. Faisal er talinn
vinsæll, einkum meðal ungs
fólks í landinu, sem hann hef
ur stutt til mennta. Konung-
ur mun hafa verið óánægður
með fjármálastefnu Faisals,
sem m.a. vildi draga úr óhófs
lifnaði konungsfjölskyldunn-
ar. Jafnframt mun konungur
hafa haft Faisal grunaðan um
að standa fyrir hreyfingu,
studdri af Nasser'forseta Ara
biska sambandslýðveldisins,
sem miðaði að því að steypa
honum af stóli.
Konungurinn ræður
Talið er, að Faisal muni
brátt halda til Evrópu og leita
sér lækninga. Hann hefur
þjáðst af magasári og þegar
gengist sex sinnum undir upp
skurð. Faisal mun hafa ætlað
að fara til Evrópu nefndra er
inda þegar í byrjun þesa árs,
en segið því á frest ti þess að
koma í framkvæmd fjármála-
áætlunum sínum í landinu.
Faisal var auk þes að vera
forsætisráðherra og utanrík-
is- landvarna- og fjármála-
ráðherra. Andstæðingar hans
voru fyrst og fremst s.n. frjáls
lyndu prinsar I konungsfjöl-
skyldunni og nú hefur kon-
ungur gert einn þeirra, Talal,
að fjármálaráðherra. Þá vek
ur það og athygli, að konung
ur hefur skipað auðsveipan
fylgismann sinn í embætti ut
anríkisráðherra og þykir það
benda til þes, að konungur
er hlynntur Vesturveldunum.
Konungur verður sjálfr for-
sætisráðherra en f emb-
ætti þau, sem nefnd eru,
hefur hann skipað menn í
stöður innanríkis- atvlnnu-
samgöngu- og menntamála-
ráðherra.
Skrautflugeldar
1 öllum regnbogans litum,
stjörnurós b.ys og sólir í
miklu úrvali.
Símj 13508.'
Kjörgí.rði Laupavegi 59
Austurstræti 1.
Einörð andstaiSa
(Framhald af 1. síðu).
skýrslu um viðræður þær, sem
fram hafa farið milli hans og
brezku stjórnarinnar um híð 2
ára gamla fiskveiðistrið, sem fs-
land og Bretland hafa háð.
Ekki liggja fyrir neinar full-
komnar upplýsingar um viðræður
þær, sem Guðm. í. Guðmundsson
átti við brezku stjórnina. í Lond-
on eru menn heldur svartsýnir á
lausn deilunnar en talsmaður
brezka utanríkisráðuneytisins
neitar ákveðið, að viðræðurnar
hafi farið út um þúfur og full-
yrðir að þeim verði haldið áfram.
Brezka stjórnin hafði þó vænzt
þess nú, að Guðmundsson féllist
á viss grundvallaratriði en þær
vonir hafa ekki rætzt, sagði tals-
maður þessi jafnframt.__________
Næg og stöftug atvinna
Hólmavík, 6. des. Héðan róa 3
þilfarsbátar og 2—3 trillubátar.
Undanfarna daga hefur ekki gefið
á sjó en hins vegar eru bátar úti í
dag. Gæftir hafa annars verið ein-
muna góðar til þessa og aflabrögð
með lang bezta móti. Þökkum við
það hiklaust friðuninni og hér má
enginn til þess hugsa, að slakað
verði til í þeim efnum. Samning-
ar um að hleypa Bretum inn fyrir
12 mílumar eru algerlega for-
dæmdir.
Næg og stöðug atvinna er hér
og hefur verið og er það fyrst og
fremst fiskinum að þakka.
Nokkúð svalara.:ér í yefíri þessa
síðustu daga. Enginn , verulegur
snjór er kominn en þó hefur í
fyrsta skipti á þessum vetri fennt
niður að sjó. Man enginn til þess
að slíkt hafi dregizt fram á jóla-
föstu fyrr en nú. H. S.
Fréttir M landsbyggðinni
Snjór til fjalla en föl
í byggft
Neskaupstað, 7. des. — Veður
hefur lengst af verið ágætt, hér í
haust, þótt nóvember væri nokkuð
úrkomusamur. En svo kólnaði um
síðustu mánaðamót og hefur verið
mjög umhleypingasamt það sem
af er desember. Kominn er tölu-
verður snjór til fjalla en hér niður
við sjóinn er aðeins föl. Vegir eru
því fær'ir hér niðri en Oddsskarð
ófært orðið og er þess ekki að
vænta að það verði opnað á ný í
vetur. — V.S.
Mikið um skipakomur
Neskaupstað, 7. des. — Bátar
hafa ekki1 róið síðasta hálfan mán
uðinn. Hefur verið slæmt í sjó.
Flestir eru þeir nú farnjr að búa
sig á vetr'arvertíð. Afli var ágætur
í haust og vinna því yfírdrifin.
Síðan róðrar hættu hefur einkum
verið unnið að því að pakka salt-
fisk og útbúa skreið til útflutnings.
Óvenju mikið hefur verið um
skipakomur hingað í haust. Hafa
þau sótt fisk og fiskafurðir. Síldar
mjölið er búið að selja og flytja
út meginið af því. Einnig er að
mestu lokið útflutningi á þeirri
síld, sem söltuð var hér í sumar
og það sem eftir er, fer bráð-
lega. — V.S.
MagnaÖur þurrafúi
Neskaupstað, 7. des. — Sextíu
tonna bátur, Björg frá Eskifirði
hefur' verið í viðgerð hér í dráttar-
brautinni undanfarið hálft annað
ár. Kom svo magnaður þurrafúi
upp í bátnum að segja má að orðið
hafr að endurbyggja.hann að mestu
leyti. Er því nú nýlokið. — V.S.
Eins og i Egyptalandi
Fáskrúðsfirði, 8. des. — í dag
er hér haglél, þrumur og eldingai
rétt eins og í Egyptalandi í gamla
daga. Ekkert stundaður sjór núna
utan hvað einn bátur fór í útilegu
í gær. Hér er því lítið að gera
eins og er. Bátar'nir fara að sjálf-
sögðu strax út þegar veður skánai
svo, að róandi verði. Annars hefui
verið hér 'mesta leiðrndatíð á ann-
an mánuð og sjaldan gefið á sjó
þann tfma. Fram að því var indæl
istíð og ágætisafli, einkum á minni
bátana, svo er útfærsla landhelg-
innar fyrir að þakka.
Snjór er lítill hér niðri' en dá-
lítil storka. Sæmilegt jarðlag þó
fyrir sauðfé. Fjallvegir aMir teppt
ir og verður ekkert komizt á bíl
héðan úr sveitinni nema til Stöðv
arfjarðar. — S.Ó.
Hundra'b minkar lágu
Kárastöðum, 7. des. Hér í sveit
er nú búið að taka lömb og flestir
munu vera í þann veginn að taka
fullorðið fé. Heimtur voru góðar
í haust enda lítið vart við tófu en
hún á það til, að reynast hér skæð.
— Herferðin gegn minkimum hef-
ur gengið allvel. Mun búið að
vinna um 100 dýr í ár. Við höfum
minkahund og er hann atkvæða-
skepna við þessar veiðar.
skepna við þessar veiðar. G. E.
Hægt aí selja meira
Kárastöðum, 7. des. Veiði í Þing-
vallavatni hefur verið með minna
móti í haust svo að Samband ísl.
samvinnufélaga, sem unnið hefur
sæmilegan markað fyrir murtu í
Sviss, fékk ekki svipað því það
magn, sem seljanlegt var. Veiðin
er mjög misjöfn frá ári til árs.
Nokkur brögð eru að því, að
net hafi tapast í vatninu. Festist í
þeim gróður og dregur þau í kaf.
Oftasi er þó hægt að slæða þau
upp aftur. G. E.
HBNAR HEIIV8SÞEKKTU
SAUMAVELAR
Automatic gerð 320 er skemmtileg vél,
sem auðveldlega saumar hnappagöt, bætir,
rykkir, fellir og faldar.
Gerð 201 er létt og hentug í meðförum,
saumar beinan saum greitt og áferðar
fallega.
Gerð 185 er minni vél á lágu verði, þægi
leg fyrir allan venjulegan saum.
w.mmv.vóv.w,
JWWWUVIWUWUWW
Gerð 306 er zig-zag vél, hentug til að ganga
frá saumum og gera hnappagöt, auk þess
saumar hún fallegt beint spor.
4 GERÐIR
ív.w.w.v.v.-.-.-.w.w.w.-.w.-.w.v.-.w.-.::vaw.waw.s-.w.w.w.vvw.%w.w.vw.w.%-.w.v.w.v.-.w.'.v.w.%v.w.v.w.v.v
:: :: ::
!■ f-—nrnimriinr.-iiii i -—■* *■■«-»«-«>■«— !• KoiPÍð 9g prófíð
SINGER
saumavélarnar sjálf
Þær létfa yður saumaskapinn
Spara tíma 02: peninga
S I NGE R fæst með
hagstæðum greiðsiuskilmálum
AUSTURSTRÆTI