Tíminn - 23.12.1960, Side 3

Tíminn - 23.12.1960, Side 3
TÍMINN, föstudaglnn 23. desember 1960. Flestum af Pine Ridge hefur verið bjargað 5 manna er þó saknatS . ,tíw York 22/12 (NTB). Óttast er, að a m. k. 5 af áhöfn bandaríska olíuflutn- ingaskipsins Pine Ridge hafi týnt lífi, er skipið brotnaði í tvennt í óveðri í gær undan austurströnd Bandaríkjanna. Menn þessir féllu ' sjóinn, er skipið brotnaði og varð ekki bjargað. Hinir nær þrjátíu af áhöfn skipsins héldust við á framhluta þess fyrst í stað en komust síðar yfir á affurhlut- ann enda sökk framhluti skips ins fljótt. í dag var hægt að hefjast handa um björgunarstarf. Þyrla frá bandarísku flug- móðurskipi hefur þegar bjarg að 13 manns og vonast var til að búið yrði að bjarga öllum áður en myrkrið skall á. Óttast um afdrif 5 manna Nbrska olíuflutningaskipið Tvennt meiðist í bílveltu Á laugardaginn varð um- ferðarslys í Ölfusinu, og slösuð- ust þar tvær manneskjur. Þar var sendibíll úr Hveragerði á leið austur að Selfossi, en rétt austan við Varmá missti öku- maður vald á bílnum, sennilega vegna hálku, með þeim afleið- ingum að bíllinn stakkst út af og valt. Kona, sem í bílnum var, og 5—6 ára barn, sködduðust eitthvað, m.a. mun konan hafa viðbeinsbrotnað. Aðkomubíll kom sendibílnum á réttan kjöl, og fór með slasaða fólkið til Hveragerðis. Þaðan var það flutt til Selfoss og loks heim til sín. — Bíllinn er mikið skemmd ur. Artemis kom fyrst á slysstað inn. Samkvæmt frásögn skip stjórans á norska skipinu voru allir skipverjar Pine Ridge á framhelmingi þess, er það brotnaði, en er sá hluti tók að sökkva reyndu menn að ná til hins hlutans en nokkrum tókst það ekki og svömluðu þeir í sjónum. Frá Artemis varð engri björgun yið komið vegna veðurofsa en flugvél frá bandarísku strandgæzl- unni, sem komin var á vett- vang varpaði niður gúmmíbát um og björgunarhringum og svo virtist, sem skipverjar næðu til þeirra. Svo skall myrkrið á og í birtingu voru þessir fimm menn horfnir en þeirra er þó leitað enn, í þeirri von að þeir kynnu í gúmbát- unum að hafa hrakið undan vindi frá skipinu. Þessi leit hefur þó ekki borið árangur ennþá. Ekki ber saman tölum um, hversu margir voru á skipinu. í fyrstu var ætlað, að þeir væru 37 eða 39 en nú hefur út gerðarfélag það, sem átti skip ið sagt svo frá, að áhöfnin hafi verið 35 manns. Skipstjóri á Pine Ridge var Clark Saw- eyer og tók hann við skipinu, sem er 17 ára gamalt, í nóv. sl. — Saweyer er 42 ára að aldri. •"VV*-V*X*A.*V>-V«'V*-VV«-VV«X .-V VARMA PLAST Viðskipíasamn- ingnr Islands og Spánar Hinn 29. nóvember s.l. var í Madrid undirritaður viðskipta- samningur milli Islands og Spánar. Samningurinn er gerður á grundvelli frjálsra viðskipta í samræmi við starfsreglur Efna- hagssamvinnustofnunar Evr- ópu. Af Islands hálfu önnuðust þeir Agnar Kl. Jónsson sendi- herra og dr. Oddur Guðjóns- son samningsgerðina, en þeim til aðstoðar var Ole Lokvik, að- alræðismaður íslands í Barce- lóna. Undirritaði sendiherra samn- inginn fyrir íslands hönd, en fyrir Spán undirritaði utanríkis ráðherra Spánar Senor Fern- ando Maria Castiella. Þá hefur verið gert sam- komulag milli þjóðbanka land- anna um greiðslugrundvöll samkvæmt ofangreindum samn ingi. (Frá utanríkisráðuneytinu) Ingemar og Floyd slást 20. marz New York 22.12. (NTB). — Hnefaleikakapparnir Eloyd Patt erson og Irigriiar Johansson munu hittast í þriðja sinn í ein vígi um heimsmeistaratitilinn í þungavigt 20. marz n.k. Slags- málin fara fram á Miami Beach á Flórída í sal, sem rúmar 18 þúsundir manna og er gert ráð fyrir, að hvert sæti verði setið er þeir félagar gera upp reikn- ingana einu sinni enn. Sem kunnugt er sigraði Johansson Patterson 1959 en hins vegar hefndi sá síðarnefnd.i fyrir sig á þessu ári. Hafði hann æft vel og dyggilega en Johansson lagzt i leikaraskap í Hollywood og ekki þjálfað sem skyldi. WUTWWffEMFm Mótmæla stötívun þýzkra skipa Bonn 22.12 (NTB). Stjórn V,- Þýzkalands hefur sent frönsku stjórninni formleg mótmæli vegna þess, að frönsk skip hafa stöðvað þýzk á Miðjarðarhafi hvað eftir annað s.l. vikur. Seg- ir í mótmælaorðsendingunni, að aðferðir sem þessar geti haft alvarlegar afleiðingar í för með sér um sambúð Vestur-Þjóð- verja og Frakka. Vestur-þýzka stjórnin segist harma það, að áfram sé haldið að stöðva þýzk skip á Miðjarð- arhafi þrátt fyrir fyrri aðvar- anir og mótmæli. Segist Bonn- stjórnin kunna illa slíkum end- urteknum móðgunum við hinn þýzka fána og hagsmuni vestur þýzkra útgerðarmanna. Bonn- stjórnin segist vona, að at- burðir sem þessir endurtaki sig ekki og muni hún krefjast skaðabóta. Franska stjórnin segir að- gerðir þessar nauðsynlegar til þess að hafa hendur i hári yopnasmyglara til Alsír. Kóngafólk fjölmennir til brúÖkaups Astridar London 22.12. (NTB) Tilkynnt hefur verið opinberlega í Lund únum, að Anthony Armstrong Jones maður Margrétar prins- essu verði viðstaddur brúðkaup Astridar Noregsprinsessu og Johan Martin Ferners 12. jan- úar n.k. í tilkynningu frá höll Bretadrottningar segir hins veg ar, Margrét prinsessa muni vera við brúðkaupið sem full- trúi drottningarinnar systur sinnar. Margrét prinsessa er ný- komin frá brúðkaupi Baldvins Belgíukonungs. Annars mun margt höfðingja vera við brúðkaupið svo sem Margrét ríkisarfi Dana, Mar- grét Svíaprinsessa, Bertil Svía- prins, Charlotte prinsessa í Lúx emborg og fleiri og eru þá ó- taldir greifar og annar háaðall. Atvinnulíf Belgíu lama'S Brussel 22.12. (NTB). Með hverjum degi, sem líður, verð- ur ástandið hér í landinu alvar- legra vegna verkfallanna, sem nú eru um gjörvallt landið. Heita má, að allt atvinnulíf sé lamað í öllum stærstu borgum landsins. Hundruð skipa liggja í Antwerpen án þess að fá af- greiðslu. Járnbrautarsamgöng- ur hafa nær lagzt niður eink- um í suðurhluta landsins. Kenn arar hafa lagt niður vinnu og nær engir eru nú í vinnu hjá raforku og gasstöðvum. Enn er ekki vitað, hversu lengi verk fall þetta kann að standa en það er gert í mótmælaskyni við stefnu stjórnar Eyskens í efna- hagsmálum. Stjórnin hefur orðið að grípa til mikilla skatta álagninga og skyldusparnaðar og segir Eyskens forsætisráð- herra þetta nauðsynlegt verið hafa til þess að rétta við efna- hag landsins eftir missi Kongó. Sagði forsætisráðherrann og, að reynt hefði verið að dreifa byrð unum réttlátlega á íbúa lands- ins. w Á myndinni sjást Jón Gunnarsson, kaþólski biskupinn á íslandi, systir Hiidegarvis og Eugene Clemens, hinn kaþólski prestur Varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli. Myndin var tekin nýlega er systrunum af Landakoti og St. Jósefsspítalanum í Hafnarfirði var boðið til Keflavíkurflugvallar. Systrakór undir stjórn sr. Jóseps Hacking söng, og Jón Gunnarsson, biskup flutti raeðu þar sem hann þakkaði varnarliðsmönnum m.a. þann áhuga og skilning, sem þeir hefðu jafnan sýnt á óeigingjörnu starfi þessara kvenna. Hætta á ferðum í Laos vegna erlendra afskipta Vientiane 22/12 (NTB). Forsætisráðherrann í Laos, Boun Oum prins sagSi á blaða- mannafundi í dag, að sovézk- ar flugvélar héldu áfram að varpa niður hergögnum til Kong Laes höfuðsmanns og hinna kommúnistasinnuðu Pathet Lao herja, sem héldust við í skógum landsins. Forsætisr'áðherrann kvað heri þessa vera í u. þ. b. 60 km. fjar- lægð frá höfuðborginni. Kong Lae studdi á sínum tíma stjórn Souv- anna Pouma en var hrakinn frá Vienfiane af herjum Poumi Nos- avans, sem styrktur er af Vestur- veldunum. Forsætisráðherrann sagði, að Sovanna Pouma væri velkominn aftur til Laos en hann hefur flúið :til Kambodia. Sagði Oum prins, að Souvanna Pouma vildi landj sínu vel. í Washington hefur talsmaður bandaríska utanríkisráðuneytisins farið hörðum orðum um vopna- sendingar Rússa til Laos og sagt, að það athæf; geti ieitt til mikilla vandræða. Tassfréttastofan i Moskva ræðir i einnig um Laos í dag og segir. að landið geti orðið önnur Korea. Ekki er þó Rússum þar um að kenna heldur Bandaríkjunum og Suð-aust.ur-Asíubandalaginu, sem hafi byrjað ólögleg afskipti af innanríkismálum landsins og sent þangað hergögn til þess að koma í veg fyrir sættir stjórnmálafor- ingja þar._________________ Lögin úrDeleríum Búhónis á nótum Úf eru komin á nótum lögin úr hinni þjóðkunnu revíu Del- eríum Búbónis, eftir þá Jónas og Jón Múla Árnasyni. Lögin eru útsett af Car! Billich I nótnakveri þessu er að finna eftirfarandi lög með tilheyrandi textum: Söngur Djáknans, Söngur jólasveinanna, Einu sinni á ágúst- kvöldi, Allt á okkar valdi, Ljúf- Jmgshóll, Sérlegur sendiherra. Ást- ardúett, Brestir og brak og loks Kátt er um jólin. — Ef að líkum laetur munu .margir kaupa þetta nótnakver og þá mun sannast hið fornkveðna: Eninga meninga, Múl- arnir græða peninga .... Opift hús Blaðamaður Tímans átti í gær erindi upp á Þjóðminjasafn, en er hann kom þangað, brá honum held ur en ekki í brún. Þar var allt slökkt og ekki nokkurn mann að sjá, en allar dyr ólæstar. Þar gat því hver sem vildi gengið út og inn að vild með hvað sem honum þóknaðist að hafa með sér. Bíllmn snerist í gær varð all'h&rður árekstur á gatnamótum Flókagötu og Rauðar- árstígs. Þar lenti saman tveimur smábílum, kom annar sunnan Rauð arárstíg, en hinn vestan Flókagötu. Var áreksturinn allharður, en þó dró það úr honum að annar bíllinn snarsnerist á hálkunni við höggið. — Þess má geta, aö annar bíllinn var keðjulaus á eggsléttum dekkjum. Flautið varlega í gærkveldi lenti jeppabíll á fólks bíl á Kirkjutorgi, vegna þess að hvellt og harkalega var flautað á ökumann jeppans. Honum brá við og leit aftur. Rétt í sama bili lenti hann á fótksbíl, sem var fyrir fram an. Fótksbíllinn dældaðist, en jepp inn var óskaddaður. Kom á lögreglustöftina Um fjögurleytið í gær kom lítil snáði, 4 á*ra, inn á lögreglustöðina Ekki mundi hann hvar hann átti heima, né kunni önnur deili á sjálf- um sér en fomafnið eitt. Lögreglan lýsti eftir foreldrum snáðans í út- varpi í gærkveldi og skömmu síðar kom fósturfaðir hans og sótti hann.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.