Tíminn - 19.01.1961, Blaðsíða 1
/
wiii'jjg
Áskriftai'síminn er
1 2323
15. tbl. —5í. árgangnr.
FiitíintiuTagur 19. janúar 1961.
II iC.iir
Friðarsamningar í Alsírdeilunni
Fjarar
Ölfusá
í
Jakastíflan er enn í Ölfusá, en
allmikið vatn er nú tekið að renna
undir hana, og er hinn mikli haf-
sjór beggja megin árinnar mjög
tekinn að fjara. Þó voru gífurleg
fiæmi enn undir vatnj í gærkvöldi.
Tekur það áreiðanlega talsverðan
tíma, að flóðið sjatni til fulls.
Enn var vatn á vegum, bæði frá
Kaldaðarnesi og Arnarbælishverfi,
og er talið, að vatnið á Kaldaðar-
nesveginum hafi tekið í mitti, er
það var mest. Það var mishermi,
sem sagt var í gær, að mjólkurbíl-
ar hefðu komizt ferða sinna þeim
megin árinnar. Þeir komust ekki
aö Kaldaðarnesi fyrr en í dag.
Bláðið birtir hér tvær mjöidir,
sem teknar voru frá EgilsstoBum
í Ölfusi í fyrradag. Á stærri mynd-
inini sést, hvar bændur eru að
leggja af stað með mjólk á báti
yfir að Auðsholti. Venjulega er
aðeins lítill iækur á milli þessara
bæja. — Minni myndin er tekin
út um stofuglugga á Egilsstöðum.
Dökka röndin fjarst á myndinni
er íshröngl í Ölfusá.
. ......t ^,-íV , }( ’>//* y v-,,v/ ,< i
Á skotspónum
★★ Nokkur brögð munu vera
að því að strákar geri sér
að leik að stela brotajárni
frá einum brotajárnssalanum
og selja öðrum, Er ekki
ósjaldgæft, að sama brota-
járnssalanum hafi þannig
boðizt sami járnklumpurinn
til kaups oftar en einu sinni. \
Leynilegar viðræður
þegar taldar hafnar.
\
París—NTB 18.1:
Franska ríkisstjórnin hefur
aS lokum látið í sér heyra eftir
samningstilboð serknesku út-
lagastjórnarinnar og í tilkynn-
ingu, sem út var gefin í dag
að loknum stjórnarfundi í
París, sagði m. a., að serknsku
uppreisnarleiðtogunum hefði
nú sýnilega snúizt hugur og
virtist nú sem þeir vildu
styðja að því, að friður kæm-
ist á í Alsír. Samtímis berast
þær fregnir frá París, að eftir
því sem næst verði komizt hafi
ríkisstjórn De Gaulle og serk-
neska útlagastjórnin þegar
haft leynilegt samband sín á
milli með það fyrir augum að
hefja formlegar viðræður um
friðarsamninga í Alsír.
í yfirlýsingu stjórnarinnar segir
ennfremur, að hún tíafi veitt því
athygli, að ólgan í Alsír fari nú
mjög minnkandi, segja megi að
friður ríki í öllum helztu héruðum
landsins og spennan í stórborgún
um fari minnkandi. Það sé enn-
fremur ánægjuleg þróun, sem þeg
ar sé greinileg í Alsír, að hinir
serknesku íbúar landsins taki vax
andi þátt í stjórn lándsins, einkum
í bæjar- og sveitarfélögum. Það sé
ætlun stjórnarinnar að flýta fyrir
þessari friðsamlegu þróun og veita
Alsírbúum sjálíum fullan sjálfs-
ákvörðunarrétt um öll málefni sín.
Eins og kunnugt er sendi útlaga
(Framhald á 2. síðu.)
Tilngrös dafna við
áburð á öræfum
85 hesta uppskera af hektara í Hvítárnesi
Rannsóknir á gróðurfari á
hálendi landsins og tilraunir
með friðun og ræktun, er þar
hafa verið gerðar í fimm ár,
benda til þess að breyta megi
miklu af öræfum landsins í
gróið land. Fullnaðarályktanir
má þó ekki draga af þeim til-
raunum, sem gerðar hafa ver-
ið, þar eð þær eru ekki nógu
víðtækar til þess.
Þessar tilraunir benda einnig til
þess, að með áburðargjöf geti al-
gengustu túngrös þrifizt og gefið
dágóða uppskeru á hálendinu, upp
í sex hundruð metra hæð yfir sjó
að minnsta kosti í Hvítárnesi,
sem að vísu er ekíki nema 430
metra yfir sjó, hefur vallarfox-
grasið gefið uppskeru, er svarar til
85 hestburða af hektara, en af há-
liðagrasi svaraðj uppskeran þar til
52 hestburða, túnvingli 49 hest-
burða og vailarsveifgrasi 45 hest-
burða.
Frá þessu segir Sturla Friðnks
(Fi'amhald á 7. síðu).
Nýstofnað
flugfélag
í siðasta Lögbirtingar-
blaði er tilkynning til hluta-
Félagaskrár Reykjavíkur,
að nýtt flugfélag hafi verið |
stofnað hér. Heitir félagið
Flugsýn h.f., og er tilgang-
ur þess að annast flug-
kennslu og leiguflug. Stofn-
endur eru Stefán Magnús-
son, Ragnar Jón Magnús-
son, Jón H. Júlíusscn,
Hörður Eiríksson og Svava
M. Þórðardóttir. Hlutafé er
alls 40 þúsund krónur
Mjög mikil síld-
veiði í FaxafSóa
Fjöldi báta fékk mikinn afla, og Ví<Sir 2, sem fann
síldargönguna, Iandatii yfir 2000 tunnum í gær
Mjög mikii síldveiði var í
gær í Faxaflóa um klukku-
stundar siglingu út af Skaga.
Víðir 2 frá Garði fann fyrst
síldargönguna í fyrrakvöld og
tilkynnti hann þegar öðrum
bátum um hana. Fiöldi báta
fékk í gær mikinn afla á þess-
um slóðum, og lönduðu sumir
tvívegis, eins og t. d. Víðir 2,
sem kom með 630 tunnur til
Akraness í gærmorgun og var
væntanlegur þangað með
1400 um ellefu leytið í gær-
kvöldi.
Síldin er mest á 2—3 faðma dýpi
og samkvæmt mælingum er um
mikið magn að ræða. Mælzt hefur
torfa frá 3—38 faðma dýpi. Síldin
(Framhald á 2. síðu.)
Nýjar ábyrgðSr ríkíssjóðs — bls. 3
msKssmmæm