Tíminn - 19.01.1961, Page 8
8
TIMINN, fúnmludaglnn 19. janúar 1961
VETTVAMGUE ƧKUMA1
RITSTJÓRI: JÓN ÓSKARSSON
ÚTGEFANDl: SAMBAND UNGRA FRAMSOKNARMANNA
Heiðarlegur málfluíningur er
aðalsmerki góðs ræðnmanns
f Vettvangnum hefur áður ver
ið minnzt nokkuð málfunda-
námskeið F.U.F. í Árnessslu á
Flúðum í Hrunamannahreppi.
Námskeiðið hófst 19. nóvember
sl. og á tveimur fyrstu fundun-
um kenndi Örlygur Hálfdánar-
son, form. S.U.F., mælskulist og
ræðuflutning, en Hörður Gunnars
son, form. F.U.F. í Reykjavík,
skýrði fundaxstjórn og fundarregl-
ur.
Formaður F.U.F. i Árnessýslu,
Sigurfinnur Sigurðsson, var aðal-
forgöngumaður námskeiðsins, ann-
aðist hann undirbúning og stjórn-
aði því af miklum skörungsskap.
Á hann manna mest þakkir skilið
fyrir, hversu vel tókst til um nám-
skeiðið. Var námskeiðið mjög
fjölsótt miðað við, að þátttakend
ur voru mestmegnis úr eiinum
hreppi, og voru að jafnaði milli
20 og 30 manns á hverjum fundi.
Síðasta sunnudag var lokafund-
ur námskeiðsins og því slitið með
veglegu kaffisamsæti. Sigurfinnur
Sigurðsson setti fundinn og minnt
ist í upphafi Egils Thorarensens
kaupfélagsstjóra, sem látizt hafði
þá um morguninn. Bað hann við-
stadda rísa úr sætum í viiðingar-
skynl 1 við hinn fallna forystu-
mann í samvinnu- og félagsstarfi
Árnesinga.
Á lokafundinum voru mættir
fulltrúar frá stjórn Sambands
ungra Framsóknarmanna, þeir Ör
lygur _ Hálfdánarson form. S.U.F.,
Jón Ósfcarsson, varaform. S.U.F.,
Hörður Gunnarsson, form. F.U.F
í Reykjavík og Ingi B. Ársælsson,
foimaður skólanefndar félagsmála
Málfundanámskei($inu á Flúðum lokicS
ið haldnar, og um 200 umræðuefni
hefðu vei'ið tekin til meðferðar á
þeim sex fundum, sem haldnir
voru. Yfirleitt var sá liáttur á
hafður, að þátttakendur drógu
miða með einhverju málefni og
ræddu það síðan óundirbúið. Þessi
aðferð er vinsæl og oft skemmti-
leg, auk þess veitir hún drjúga
þjálfun fyrir byrjendur. Val um:
ræðuefna var mjög fjölskrúðugt
sín fyrstu spor á þessari braut.
Þeim hefði öllum farið mikið
fram, þótt námskeiðið hefði ekki
verið lengra. Hins vegar mætti
ekki láta hér staðar' numið, heldur j
halda áfram á sömu braut og,
stefna stöðugt hærra. Þetta nám-j
skeið hefði aðeins verið fyrir byrj
endur. Tilgangurinn hefði ver'ið
að koma mönnum upp í ræðustól
inn eða til að „brjóta ísinn“, eins
Þátttakendur í málfundanámskeiði F.U.F. í Árnessýslu,
ásamt fulltrúum frá stjórn S.U.F.
Stjórn F.U.F. í Árnessýslu: Svanur Kristjánsson, meðstjórnandi,
Gunnar Guðmundsson, gjaldkeri, Sigurfinnur Sigurðsson, formaður,
Gunnar A. Jónsson, ritari, Guðjón Emilsson, meðstjórnandi.
Slgurfinnur Sigurðsson.
\
skóla Framsóknarflokksins. Einn-
ig voru viðstaddir stjórnarmeðlim
ir F.U.F. í Árnessyslu frá Selfossi.
Sigurfinnur gerði stutta greiri
fyrir gangi námskeiðsins og kvað
það hafa tekizt framar vonum og
væri almenn ánægja ríkjandi með
al þátttakenda. Hann sagði að í
bað minus'ta 400 ræður hefðu ver
og má segja, að rætt hafi verið
um allt milli himins og jaröar, í
gamni/og alvöru á víxl. Til gam
ans má nefna: landhelgismálið,
timburmenn, frjálsar ástir, út-
varpið, kvennabúr, dráttarvélar og
ótal margt fleir’a. Þá voru einnig
teknir til umræðu einstakir þætt
ir þjóðmála. Á einum fundi voru
nemendur látnir mæla fyrir minni
hvors annars og varð að því mik-
il skemmtan. Nokkrar ræður voru
teknar á segulband, svo menn
gætu heyrt í sjálfum sér, til leið
beiningar og gamans.
Verður ekki annað sagt en að
námskeiðið hafi orðið þátttakend-
um til gagns og gleði og félags-
starfi F.U.F. í sýslunni til mikils
framdráttar.
Þessu næst flutti Ingi B. Ár-
sælsson erindi um félagsmálaskól-
ann, sem Framsóknarflokkurinn
mun setja á stofn um næstu helgi.
Útdiáttur úr erindi Inga birtist
á öðrum stað hér á síðunni.
Eftir erindi Inga fór fram æf-
ing eftir miðakerfinu og tóku gest
ii' námskeiðsins einnig þátt
Örlygur Hálfdánarson stjórnaði
æfingunni, sem var fjörug og
skemmtileg. Örlygur lét þess sér-
staklega getið, að þáttsakendur
hefðu tekið ótrúlega miklum
framförum frá því á fyrsta fund-
inum og þakkaði hann þetta einlc
um öruggri leiásögn Sigurfinns.
Að lokinni æfingunni þakkaði
Sigurfinnur peim Herði og Örlygi
fyrir aðstoð þeirra við námskeiðið.
Sagði Sigurfinnur, að hann væri
ánægður með árangurinn af þessu
fyrsta námskeiði og kvað það hafa
haft góð og bætandi áhrif á þátt-
takendur, sem allir væru að 'feta
og hann orðaði það. Þetta hefði
tekizt með ágætum og menn hefðu
fundið að þetta er ekki eins erfitt
og virzt gæti, heldur auðvelt og
skemmtilegt þegar á hólminn er
komið. Sigurfinnur brýndi það
fyrir þátttakendum, að hér mættu
þeir ekki láta staðar numið, held-
ur nota hvert tækifæri til að bæta
við þá reynslu, sem þeir hér hefðu
fengið og stefna sem hæst í þess
um efnum.
Síðan vár boðið til kaffidrykkju
og urðu fjörlegar umræður undir
borðum.
Hörður Gunnarsson flutti kveðj
ur og árnaðaróskir ungra Fram-
sóknarmanna í Reykjavík.
Örlygur Hálfdánarson hélt stutta
ræðu og færði F.U.F. í Árnes-
sýslu að gjöf fundarhamar frá
Sambandi ungi’a Framsóknarm.
Á hamarinn er letrað: „F.U.F. í
Árnessýslu. Gefinn í janúar
1981 af S.U.F.“
Örlygur lét þess getið til gam-
ans, að sá, sem smíðaði hamar-
inn, hefði látið svo um mælt, að
hamarinn myndi vel duga til að
þagga niðri í öllu íhaldi, utan
Framsóknar'flokksins og innan.
Örlygur sagði, að þessi hamar
væri sérstök viðurkenning frá
S.U.F. fyrir gróskumikið og öfl-
ugt starf F.U.F. í Árnessýs'lu, sem
m.a. með þessu námskeiði hefði
gefið öllum ungum Framsóknar-
mönnum gott fordæmi. Fyrir hönd
S.U.F þakkaði hann félaginu fyrir
þennan stóra skerf í stanfseminni
innan samtaka ungi'a Framsóknar
manna og kvað þetta sýna hvað
gera mætti þegar atorka og áhugi
færu saman sem hér hefði verið.
Að lokum þakkaði Sigurfinnur
gjöfina og beindi síðan nokkrum
•hvatningarorðum til námskeiðs-
manna. Brýndi hann fyrir þeim
mikilvægí þess að vera vel máli
farinn og hæfur ræðumaður, það
væri undirstaða allrar félagsstarf
semi. Bað hann menn notfæra sér
hvert tækifæri til að tala máli
sínu og halda fram skoðunum
sínum, en þess skyldu þeir ávallt
minnast, að óhlutdrægni og heið-
arleiki í málflutningi væri aðals-
merici hvers góðs ræðumanns.
Vettvangurinn fagnar hínu öfl
uga starfi F.U.F. í Árnessýslu og
vonar' að fleiri F.U.F félög taki
það til fyrirmyndar og láti ekki
sitt eftir liggja til að efla starf-
semi ungra Framsóknarmanna.
Það má geta þess hér, að í ráði
er að efna til námskeiða víða í
Árnessýs'lu, og innan tíðar mun
haldið námskeið í Rangáirvalla-
sýslu. — Stjórn S.U.F. er ávallt
reiðubúin til að leggja félögunum
lið í þessum efnum eftir fremsta
megni. J.Ó.
Látum einbeitni og samheldni
einkenna störí okkar
Á lokafundi málfundanám- \
skeiðsins á Flúðum flutti Ingi
B. Ársælsson stutt erindi um
félagsmálaskóla þann, sem inn- j
an tíðar mun hefjast á vegum ■
Framsóknarflokksins, en Ingi er'
formaður skólanefndar. Eftirfar-
andi er brot úr erindinu.
Rakti Ingi í stuttu máli aðdrag-
anda að stoínun skólans. skipulag
hans og starfshætti, og hið mikil-
væga menningar- og fræðsluhlut-
verk, sem honum er ætlað 'í sam-
tökum Framsóknarmanna.
| Sérstaka áherzlu lagði Ingi á,’
að utanbæjarmenn re.vndu eftir
niegni að hagnýta sér fræðslu
skólans og taka þátt í skólastarf-
inu, ef þeir væru á ferð í Reykja-
vík. Eins kvað hann ákjosanlegt
at fá ábendingar og tiilögur frá
þeim, sem exki gætu tekið virkan
þátt í skólastaiíinu vegna búsetu
^f jarri Reyiqavík. Slíkt mynd; j
skapa nánari tengsl og ' kynni!
milli rnanna úr fjarlægum byggð j
| arlögum. I
Enn fremur sagði Ingi: „Stofn-
un félagsmálaskólans er merkilegc
nýmæli í starfi ungra Framsókn-
armanna og raunar Framsóknar-
fiokksins í heild. Við ætlum skól-
anum að búa menn sem beztu
veganesfi á brautinni til framfara
og aukins skilnings og lausnar á
vandamálum samtíðarinnar. Við,
ungir Framsóknarmenn, verðum
a'ð leggjast hér á eitt og gera veg
þessa máls sem mestan. Ég er
raunar viss um, að þið, ungir
Framsóknarmenn í Árnessýslu.
munið ekki láta ykkar hlut hér
eftir liggja."
Að lokum fór Ingi nokkrum
orðum um stjórnmálaviðhorfið
hér á landi og lýsti hinum hat-
römu árásum íhaldsstjómarinnar á
lítskjör þjóðarinnar, einkum kvað
hrnn bændur og verkamenn hafa
orðið hart úti. Hann kvað það
von sína, að þessu afturhaldstíma-
bdi lyki sem skjótast og þegar
sæjust þess ýms merki að „nam-
ingjusól núverandi valdhafa væri
að hníaa til viðar.“
Ingi B. Ársælsson.
Að lokum sagði Ingi: „Góðir fé-
lagar, látum einbeitni og sam
heldni einkenna störf okkar öll
cg þá baráttu, sem við heyjum
fyrir hagsmunum okkar og hug-
sjónum. Þá mun okkur sigurinn
vís yfir öflum öfga og afturhalds
cg óvinum félagshyggju og fram-
fara.“