Tíminn - 18.02.1961, Page 6

Tíminn - 18.02.1961, Page 6
6 Nú er komið svo, aS bióðin er farin að sjá í tvo heimana með i ann srvokallaða aðalatvinnuveg, | sjávarútveginn, sejji er orðinn aðal j tapvegur þjóðlífsins, og á fleiri en! elna grein. Heimskan í þessum: v:nnubrögðum, eða þjóðfélagshátt-! um, er nú farin að segja til sín eftirminnilega. Rányrkjan á fisk- inum er orðm svo gegndarlaus, að engum dettur í hug að um nokkra fiskveiði geti verið að ræða, ef ekki eru notuð hin dýrustu og veiðnustu tæki og allrahanda að- stoðar notið um leiðbeiningar á fiskigöngum, sem m.a. af þessum sökum fara sífellt bverrandi. Þetta er saga rányrkjunnar hvar sem hún nær sér niðri, og það ^vita allir menn, að rányrkjan end-j ar í fullri þurrð, á þeim gæðum, j sem eftir er sótt með slíku offorsi. Hér eru heldur eigi íslendingar einir yið kolann. Jafnvel þúsundif veiðiskipa, frá ,mörgum þjóðum, hamast við að drepa fisk í Norður- Atlántshafi, og hjá öllum þessum veiðiþjóðum, og um borð í hverju skipi er sami andinn, veiða sem ro.est, hver sem tilkostnaðurinn er. Næst striði er þetta órökrænasía athæfi, sem um getur í lífj manna á vísindaöld, og endar eins og í stríði með algerri eyðingu. Það roætti ætla að þetta væri hverjum heilvifa manni ljóst, en þó virðist sem ekkert sé mönnum óljósara, roinnsta kosti hér á íslandi, en þessi staðreynd. Landhelgismálið með því, sem þeir kalla friðun miða og hrygningarstöðva, er þó eins og draumur fyrir daglátum, sem þó til lítils kemur að dreyma, þegar allur dagur í þessu máli er af lofti genginn, Því aldrei hrygn- ir sá fiskur á miði, sem drepinn er áður en hann kemst á bau. Fiskveiðiþjóðir verða því að fara að athuga sinn gang, takmarka veiði með félagssamþykktum, og hefja ræktun, jafnt og verntí, á fiskistofnum. Eg veit þó að ekk- ert er vitlausara erl segja íslend- ingum þetta í dag, því hér gildir það sama, sem hann Jón sagði við prestinn, þegar hann var að afsaka frafnhjátökuna: „Ef þú skil- ur ekki þetta, þá er ekki fil neins að segja þér það!“ En það þarf nú samt að segja þeim það, hvort TÍMIN N, laugardaginn 18. febrúar 1961. Orðið er frjálst: ^ Sjáyarútvegurinn sam þeir skilja það ekki, að sjáv- arútvegur á íslandi er búinn að vera. Fyrir því sá síðasta gengis- felling. Það er Ijóst mál, að prot hans er framundan og þjóðin þarf að búa sig undir ríkisgjaldþrotið í næstu framtíð. Engin þjóð stenzt það, að svokallaður aðalatvinnu- vegur hennar tapi árlega milli 500 og 1000 milljónum króna sem sjávarútvegurinn hefur sannarlega gert á þessu ári, þó svo kunni að vera að eitthvað af tekjum hans hafi farið sömu leið og baunirnar úi' poka bóndans, í músarholuna í veggnum, þá þarf þó að rjúfa vegginn til þess að ná þeim aftur, en þá hrapar líklega veggurinn á allan baunapokann. Hér hefur verið farin sama leið og í Nýfundnalandi — alltaf stærri skip, fleiri skip, dýrari veiðitæki, gengsfelling, gjaldþrot og sjálf- stæði þjóðarinnar varð, að gerast 10. fylkið í Kanada. Sá, sem ekki þykist skilja þetta hefur ekki skilningarvit að neinu gagni. Nú logar allt í deilum í þessum atvinnuvegi af því, að skilningarvit útgerðarmamna eru ekki skárri en það, að þeir finna á sér, að í raun og veru gefur þessi neyðaratvinnuvegur ekkert kaup goldið, og upp á það ætla þeir að reyna að fleyta skipunum, og eru þó engan veginn vissir um að sleppa skaðlausir. Er þá ekki annað fyrir hendi en ríkið taki að sér að borga sjómönnum lífeyri ' stíl við ellilífeyrinn og mundi það aldrei nema meira fé en ríkið verður á þessu ári að kasta í tap- hítina. Það dugar ekki að skipin dundi ekki á miðunum og það er ekkert vit í því, að útvegsmenn refji sig við að semja við sjómenn um kaup, sem þeir geta ekki greitt. Ekki dugar hitt heldur að heiðursamir . útgerðarmenn leggi sip í það, að láta meta fiskinn í gúanó til þess að sjómenn fái sem minnst kaup og selja okkur síðan fiskinn á fyllsta neyzluvei'ði og Þjóðverjum fyrir þriðjungi hærra SEX.TUGUR: Hans Rikharð Beck, Kollaleiru, Reyðarfirði Síðastliðinn fimmtudag, 16. febrúar varð Hans Ríkharð Beck á Kollaleiru í Reyðar- firði sextugur. Halns er fædd- mnsttuJ'/*' ‘ gn ! ur að Kollaleiru 16. fíbrúar 1901, sonur Þuríðar Eyjólfs- dóttur frá Sléttu og Kristins H. Beck frá Sómastöðum, en þau hjón bjuggu allan sinn búskap á Kolialeifú. Hans tók við búi eftir föður sinn. Hefur hann stækkað tún mikið og endurbætt allan húsakost allan á jörðinni, enda duglegur og vel verki far inn. Hans er kvæntur Hall- fríði Guðmundsdóttur. Eiga þau hjón fimm mannvænleg börn, eru þrjú þeirra uppkom in. Hans er greindur maður og jdagfarsprúður. Hann er fast- jur í skoðunum og hreinskil- iinn, glaðvær og gamansamur í sinn hóp. , Á þessum tímamótum munu margir vinir hans og kunningj ar senda honum og fjölskyldu hans hugheilar kveðjur og óska honum allra heálla á komandi tímum. K.E. Innilegar þakkir fyrir auSsýnda samúð við andlát og jarðarför Kristjáns Guðnasonar, Fáskrúðarbakka. Higinkona, börn og tengdabörn. verð en markaðsverð. En fyrst ég ] hef ekki minna vif á sjávarútvegi' er. landbúnaði, ef ég tek á því, j er rétt að ræða þetta nokkuði nánar. Við lifum á svokölluðum við- reisnartíma, og er þetta ákafléga huggunarríkt orð fyrir fallna menn, sem eiga evfitt með að standa upp. Hins vegar er þefta ckki ennþú orðin uppreisn, en til þess mun þó hafa verið stofnað með þessu snjalla orði. Togari heitir Sigurður og er verndaður ai gæsalöppum. Hann hlakkaði til að komast í þorskinn kiingum ís- land, og gerði ráð fyrir að hann yrði kappi mestur á þeim stöðum, enda hafði honum verið til þess ldð hið mesta atgerfi, allt upp í 17 milljónir króna. En áður en hann kæmisf á bessar slóðir kom við- reisnin, með 135% gengisfalli, og þar með óx afgerfi Sigurðar upp i 40 milljónir króna. Gengisfelling er svo snjöll í eðli sínu, að hún getur rýrt fastakapítal þjóðarinnar, svo að þessi 135% gengisfelling gerir það að verk- um, að 381 þús. kr. fasteign geta Bandaríkin keypt fyrir 10 þús. doll ara, eða 37.300 kr. á núverandi gengi. En skipin og vélarnar og rekstrarvörurnar hækka í íslenzk- um krónum um 135%. Á þessu skeri steytti nú Sigurð- ur. Nú þurffi hann 'að vátryggja sig fyri’r 23 milljón hærri upphæð. Greiða vexti af jafnhárri upphæð í atgerfi sínu, greiða 135% hærri upphæð fyrir allar rekstrarvörur, cg þurfti svo stóraukið rekstrar- fé, sem nú var í viðreisninni orðið þiiðjungi dýrara. Allt eru þetta biákaldar staðreyndir, sem skipta mörgum milljónum í þorskastríði Sigurðar. Svo var það undir hæl- inn lagf hvort Sigurður fengi 135% meira fyrir aflann. Ef til vill veiddi hann litijðiag fiwiaurinn færi j „guano r-Tfrvöí! . En hvernig sem dæmíð var reikn aé þá hafði útgerðarkostnaðurinn aukizt langt yfir 135%, og mun- aði þar mestu um vátryggingarupp hæðina, sem var algerlega nýr og þungbær skattur á útgerðina í landinu.Æengisfellingin var srvona snjöll. Hún gat aukið kapífalverðið á skipum, en minnkað kapítalverð í landinu, án þess að það kæmi á nokkurn hátt til hagræðis í rekstri þjóðarbúsins, enda hlýtur það að hækka til samræmis við verð rekstrar- og uppbyggingarvara m?ð 135% aukaverðlaginu. Svona snjallar efnahagsráðstaf- ar.ir segja sex, enda tók nú Sig- urður að segja söguna. Hann fór óðar I bili á flot og út á haf, hitti litinn fisk, sem fleiri bræður hans, og kom að landi, trúlega með þann stærsfa veiðiskaða, sem um getur í sögum frá dögum húkk- oi tanna hans Skúla I árdaga stór- útgerðar á íslandi. Sigurður var það vitur að hann fór ekkj aðra ferð á viðreisnarsjó, heldur batt sig við bryggju í Rvík og safnar eflaust lausaskuldum handa rík- ir.u til að lána. Þar trónar hann sinum siglutrjám eins hátt til him ins og hann getur, án þess að hann kveði eins og Bólu-Hjálmar „Vilj- irðu ekki orð mín heyra“, enda mundi hann þá breyta vísunni og segja: „eilíf náðin Thórsalig." Sigurður fer ekki oftar á sjó upp á íslenzka viðreisn, og ís- lenzka penir.ga. Hins vegra geta Englendingar keypt hann fyrir 7.200 þús. krónur, upp á umreikn- ing í íslenzkum kr. í sterlingspund, miðað við núverandi gengi á enska prndinu. Ekkert gat verið verra fyrir út- gerðina á íslandi en að hækka kapítalverð skipanna. Það hlaut alltaf að vtrða beinn skattur á starfsemina. Sigurður sannar þetta, saklaus til himins hrópandi, svo það má spara sér hagfræðilega út- reikninga í málinu. Reynslan af gengisfalli er alls staðar sú sama, gjaldeyrisvérðið skapar kapítal- verðið, sú röskun sem gengisfell- ing veldur á verðlagi leitar jafn- vægis við gjaldeyrisverðið, hvað sem hver segir, og verður að gera þ?ð, annars er allt í botnlausri kreppu og atvinnuleysi, og kaup- máttarleysið drepur atvinnufyrir- tækin hvert á eftir öðru. Það eru því allir fingurnir jafnir þegar í lófann kemur og engin viðreisn til fyrir sjávarútveginn. Dýitíðarkjaft urinn gapir — „og gapa mundi hann enn meira, ef rúm væri til“, en svo er ekki, því nú er allt í þrotum. Sigurður sannar þetta. Hann er dauður á íslandssjó, og boðinn til sölu erlendis. Hann lenti í brennipunkti' viðreisnarinn- ar, og saga hans er biblía sjávar- útvegs á íslandi í dag. Lögmál þeirrar biblíu er botnlaust tap — alltof mikið, en þó mismunandi cftir árferði, og veiðiheppni getur bjargað'einsfaka skipum. Saga síð- asta árs sannar þetta og fyrsta björgunarlínan, sem skotið er út I strandið, var að greiða hinar geigvænlegu váfryggingarupphæð- ir flotans úr ríkissjóði og hirða viðreisnarskuldahauginn inn á am- eríska contó. Það verður því að undirsti'ika það, sem áður var sagt. Þessi sjávarútvegur er bú- irn að vera og þessi viðreisn er skaðleg endileysa, sem þjóðin verð ur að drepa af sér. þótt of seint sé orðið, og þjóðin verði að búa sig undir ríkisgjaldþrot fyrir sína heimskulegu atvinnulífs- og fjár- málastefnu. Því það er ekki hægt r.ð bæfa fyrir viðreisnarsyndina. Þar dugar engin iðrun og fyrir- gefning fæst ekki, frekar en í „r.eði'i deildinni“. Eg hef oft varað þjóðina við þessari syndanna leið, en það er eins og hann Jón sagði, ekkj til r.eins að segja mönnum það, sem þeir ekki skilja. Nú geta þeir þreifað á Sigurði, en það virðist heldur eigi duga, svo hér virðist það hafa skeð, sem aldrei hefði verið tiúað í neinni sveit, að hreinir Bakkabræður yrðu kosnir í hreppsnefndina. iBenedikt Gíslason frá Hofteigi. M I N N I N G: Kristín Þórðardóttir Mel, Þykkvabæ I dag verður gerð að Hábæjar- kirkju í Þykkvabæ útför Kristínar Þórðardóttur, sem lézt að heimili sínu 10. þ.m. Fædd var hún að Jaði’i í Þykkva bæ 24. september 1876, dóttir hjón- anna Þórðar Einarssonar bónda þar og Kristínar Tyrfingsdóttur. Ólst hún upp á heimili foi'eldra sinna ás'amt 6 systkinum. Ung að aldri fór hún til dvalar utan heim ilis síns, enda dugleg og eftirsótt til starfa. Árið 1906 fluttist hún að Mel í sömu sveit og stofnaði þar heimili með eftirlifandi manni sínum Gesti Helgasyni, og hafa þau búið þar alla tíð síðan. Dugnaður þeirra var' frábær enda búnaðist þeim vel. Þau eignuðust 5 börn, öll hin mannvænlegusfu og gott fólk, sem erft hafa hæfileika og dugnað for- eldra sinna. Einn dreng ólu þau upp og var hann þeim eins kær og þeiira eigin börn, enda reyndist hann þeim góður og nærfærinn. Allt til þessa dags hafa tvö börn þeirra Helga og Felix verið að búi með foreldrum sínum og gert þeim ævikvöldð svo ánægjulegt, sem verða má. Eina dóttur um ferm- ingaraldur misstu þau og var þá sár harmur að þeim kveðinn. Melsheimilið er vel þekkt fyrir gestrisni og barnabörnunum þykir gott þar að vera. Svo er urn alla, sem þessu fól'ki kynnast. Þeim, sem eru minni máttar, er rétt Ijúf og líknandi hönd þeim til styfktar. Einng er þeim gott þar að dvelja, sem hraustir eru og harðgerir, því dugnaður og atorkusemi þessa fólks er víðkunn. í vitund minni, og að því er ég bezt veit, allra þeirra, sem kynnt- ust Kristínu vel, bera hana yfir alla meðalmennsku. Ekki var það vegna þess, að hún vildi láta á sér bera né sæktist eftir frama eða veg tyllum. Allt slíkt var hennj víðs fjarri. Hún vann verk sín kyrrlát og hógvær, en jafnan með þeim myndarbrag, sem einkenndist af meðfæddum eðliskostum hennar. Traust yar hún eins og bjarg, sem aldrel bifast þó að skruggur skelli á því. Erfiðleikum og sorg- um fékk hún að kynnast en ekki raskaði það sálarró hennar svo séð yrði. Gott var að eiga hana að vini. Ráð hennar voru holl og á- kvarðanir einbeittar og afdráttar- lausar. Fólki gat við fyrstu kynni fundizt viðmót Kristínar fremur kuldalegt, en við nánarl kynni reyndi fólk hana að því að mega ekkert aumt sjá, án þess að vilja um bæta. Ekki mun Kristín, frekar en títt var um fólk á hennar aldri, hafa eytt árum æsku sinnar tíl náms, heldur vinna hörðum höndum, en hverja stund, sem gafst frá dagsins önn, til lesturs og íhugunar, enda kunni hún góð skil á þvL sem hún las. Að sjálfsögðu hefur það verið henni gagnlegt, að umgangast og kynnast í æsku sinni heimilum, sem höfðu á sér menningarbrag. Það leyndi sér heldur ekki í fram- komu og háttum hennar, að hún hafði tileinkað sér það, sem gott var. Hún var 'hátíprúð kona, sem vel kunni að umgangast fólk af ýmsum stétíum. Þó aldurinn væri orðinn hár og líkamsþrótturinn horfinn, var andinn frjáls og fleygur. Ég og fjölskylda mín og svo mun um marga fleiri, söknum nú góðs vinar, en á minninguna um Kristínu mun aldrei slá fölva í vitund okkar. Dagf. Sveinbjörnsson. i

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.