Tíminn - 22.03.1961, Síða 12
12
T1MIN N, miðvikudagírm 22. marz 1961,
Ja fyrob L •". jJyrotwr J/brótívr ji'ri"'*;
RITSTJORI: HALLUR SÍMONARSON
Ármann J. Lárusson var í sér-
flokki í Landsflokkaglímnnni
Fjórtánda landsflokkaglím-
an var háð að Hálogalandi í
fyrrakvö'd fyrir troðfullu húsi
áhorfenda og er þetta ein
mesta aðsókn, sem verið hefur
að glímumóti hér á landi.
Bendir það til þess, að mikill
og vaxindi áhugi sé nú að
myndast fyrir íslenzku glím-
unni hér á landi og er það </eI.
AAeðal áhorfenda voru búnað-
arþingsmenn, sem mótstjórnm
hauð á glimuna.
Glímudeild Ungmf. Reykja
víkur sá um glímuma, og setti
Lárus Salómonsson hana með
stuttu ávarpi, en þátttakend
ur gengu fylktu liði inn á
keppnisvöllinn undir íslenzk
um fána. Fánaberi var Ár-
mann J. Lárusson.
Ármann • sérflokki
Síðan hófst gliman undir
stjórn Gunnlaugs Briem, en
yfirdómari var Ingimundur
Guðmundsson. í 1. flokki
voru keppendur sjö og var
talsveröur spenningur um úr
slit. Það sýndi sig þó hins
vegar fljótt að Ármann J.
Lárus-son var þar í algerum
sérflokki — eins og áður und
anfarin ár — og sigraði hann
hvern keppinaut sinn létti-
lega. Glima Ármanns var fjöl
breytileg og maðurinn er
mjög sterkur og brögðóttur.
Sennilega hefur enginn ís-
lenzkur glímumaður borið
eins af keppinautum sínum
um langt ár/bil eins og Ár-
mann hefur gert nú, og spurn
ingin er: Höfum við átt betri
glímumann? Kempu eins og
Svein Guömundsson, sem
varð í öðru sæti í flokknum,
lagði Ármann á broti úr sek
úndu.
Skjaldarhafinn, Kristmund
ur Guðmundsson, Á* virtist
ekki vel upplagður að þessu
sinni, og ólíkt var nú að sjá
glímu hans og í Skjaldarglím
unni á dögunum. Kri-stmund
ur gekk heldur ekki alveg
heill til leiks, og meiðslin á-
gerðust, þegar líða tók á, og
varð hann að hætta glím-
unni. Hannes Þorkelsson j
gekk einnig úr glímunni vegna i
meiðsla.
Um annað og þriðja sætið
í flokknum kepptu Sveinn
Guðmundsson og Kristján
Heimir Lárusson. — Glíma
þeirra var snörp. Sveini
veitti betur lengi framan af,
og lagði Kristján að því er
virtist réttilega, en dómararn
ir voru á annarri skoðun. Síð
an fór Kristján að sækja á,
og virtist vera að leggja
Svein, sem tókst að snúa sig
úr bragðinu, og Kristján féll
þá snögglega á eigin bragði.
Sveixm glímdi yfirleitt vel,
nema gegn Ármanni, þar sem
hann féll á fyrsta bragði, og
kom engum vörnum við.
Kristján Heimir er sterkur
vel, en ekki léttur glímumað-
ur að sama skapi, og mikill
munur er á þeim bræðrum
sem glímumönnum.
Úrslit í 1. flokJci urðu þessi:
íslandsmeistari Ármann
J. Lárusson, UMF Breiða-
blik 4 v.
2. Sveinn Gúðm.son Á. 3 v.
3. Kristján Lárusson B. 2 v.
Þetta var i sjöunda sinn i
röð, sem Ármann J. Lárussón
sigrar í Landsflokkaglím-
unni og verður íslandsmeist-
ari, og í áttunda sinn alls.
\
Og Trausti einnig
Sama er aö segja um keppn
ina í 2. flokki. Þar var Trausti
Ólafsson, Á. einnig í algerum
sérflokki og lagði hann keppi
nauta sína mjög létt, auk þess
sem hann glímdi með miklum
ágætum. Guðmundur Jóns-
son vakti einnig athygli fyrir
skemmtilegar glímur, en hann
skorti öryggi Trausta.
Úrslit i 2. flokki vj'ðu þessi:
1. Trausti Ólafsson Á., 5 v.
2. Guðm. Jónsson, UMFR 4 v.
3. Hilmar Bjamas. UMFR, 3 v.
í 3. flokki voru keppendur
aðeins þrír. Sigurvegari varð
Reynir Bjarnason, UMFR, sem
lagði báða keppinauta sína
örugglega, en glímur í þess-
um flokki vorú heldur lítilfjör
legar.
Kapp í drengjunum
Þá var einnig glímt í tveim
ur drengjaflokkum 16—19
ára, og 16 ára og yngri. Mikið
kapp var í drengjunum, og
Hér sjást þrír fyrstu menn í 1. flokki í Landsflokkaglímunni. Til vinstri er
íslandsmeistarinn Ármann J. Lárusson, þá Sveinn Guðmundsson og til
hægri Kristján Heimir Lárusson. Þetta er í fyrsta skipti, sem Ungmenna-
félagið Breiðablik hlýtur íslandsmeistara í íþróttum. Ljósmyndir. TÍM-
INN, GE.
oft sáust góðar glímur i þess
um flokkum.
Keppnin var mikill sigur
fyrir nemendur Sigurðár
Greipssonar. úr Ungmennafé
laginu Samhygð, en drengir,
úr þessu félagi sigruðu í báð-1
um flokkum.
í eldri flokknum sigraði
Sigurður Steindórsson i þriðja
sinn í röð. Sigurður hlaut
þrjá vinninga og var vel að
sigiVnum kominn. Næstur var
Jón Helgason, Á með tvo vinn i
inga og þriðji Gunnar Ingv-'
arsson, Á., sem vakti athygli
í Skjaldarglímunni með því
að leggja Svein Guðmunds-
son, og hlaut hann einn vinn
ing.
í yngri flokknum var keppn
in enn tvísýnni. Þriðji sonur
Lárusar Salomonssonar, Lár-
Gunnlaugur og Pétur leika
með Val gegn Heim í kvöld
— Leikurinn vift sænska litSií hefst kl 8,15
a<S íþróttahúsinu í Hálogalandi
Traustl Ólafsson, Á, varð íslands-
meistari I 2. flokki og hlaut fagran
verðlaunabikar að launum, þar sem
hann slgraði í 3ja sinn í röð í þess-
um fiokkt.
Sænska handknattleiksliðið
KEIM kom til Reykjavíkur í
t ærkvöldi og fyrsti leikur liðs
ins verður í kvöld að Háloaa-
iandi gegn gestgjöfunum Val,
sem styrkja lið sitt með lanos-
fiðsmönnunum, Gunnla^gi
Hjálmarssyni, ÍR, og Péfri
Antonssyni, FH, en þeir eru
báðir Valsmenn, þó þeir keppi
ekki með Val í handknattleik.
Leikurinn hefst klukkan 8 15.
Búast má við að þessi -leúur
geti orðið skemmtilegur. þótt hins
vfgar sé ólíklegt að Val takizt að
s anda hmum ágætu Svíum snún-
i5g, þótt þe:r stýrki lið sitt mikið
n;eð þessum tveimur mönnum
Að öðna leyti verður Valsliðið
þannig skipað. í markinu er lands-
liðsmaður’.nn Sólmundur Jónsson
og varamarkmaður er Stefán Háll
grímsson. I vörninni leika Geir
Hjartarson, Baldvin Baldvinsson og
Valur Benediktsson, sem er fyrir-
1 ði Vals, og jafnframt gamall
lsndsliðstnað-ar í handknattleik I
framlínunni eru Árni Njálsson,
Hilmar Magnússom, • Guðjón Sig-
urðsson, Gylfi Hjálmarsson (bróðir
Gunnlaugs og Gylfi Jónsson. ;
Dómari leiknum verður Hannes
I. Sigurðsson Annað kvöld munu
Svíarnir taka þátt í hraðkeppni,
' oy á föstudagskvöldið leika þeir
Ivið Reykjavíkurmeistara Fram
us að nafni, keppti í þesrsum
flokki, og var talinn sigur-
stranglegastur. Hann féll í
glímu við Svein Ármann Sig
ui'ðsson frá Samhygð og
meiddist i öxl og varð aö
hætta. Þegar öllum glímum
í þessum flokki var lokið voru
tveir jafnir og efstir og aðrir
tveir jafnir í þriðja sæti. Úr-
slitaglímur þurfti því til. Um
fyrsta sætið glímdu Steindór
Steindórsson, Samhygð og
Sigtryggur Sigurðsson, 14 ára
drengur úr Ungmf. Reykja-
víkur. Var það snörp viður-
eign, en Steindór sigraði að
lokumi Um þriðja sætið
kepptu Sveinn Ármann og Jó
hann Einarsson, Á. og sigraði
Sveinn. Úrslit urðu þessi:
1. Steindór Steindórss. 5 + 1,
2. Sigtr. Sigurðsson 5 + 0
3. Sveinn Á. Sigurðsson 4 + 1
4. Jóhann Einarsson 4 + 0
Þótt keppendur væru mjög
margir gekk glíman fljótt fyr
ir sig og var þeim til sóma,
sem um hana sáu.
Að glímunni lokinni afhenti
Guðjón Einarsson, varafor-
seti íþróttasamb. íslands, sig
ur'vegurunum verðlaun.
hsím.
Tottenham
í úrslit
Á laugardag fóru fram
i undanúrslit í ensku bikar-
keppninni. Tottenham sigr-
aði Burnley með 3—0 i Birm
ingham og voru áhorfendur
70 þús. Smith skoraði tvö
fyrstu mörkin, en Jones hið
þriðja. Leicester og Sheff.
Utd. gerðu jafntefli í Leeds.
[ Hvorugt liðið skoraði mark.
I T AÍlynniví