Tíminn - 09.04.1961, Page 5
Tf*Iífw
'n 9. apr
. '31.
Otgefandl: FRAMSÓKNARFLOKKURINN.
Framirvæœdastjóri: Tómas Arnason Rit-
stjórar: Þórarinn Þórarmsson (ábj, Andrés
Kristjánsson, Jón Helgason Fulltrúi rit-
stjórnar: Tómas Karlsson Auglýsinga-
stjóri: EgiD Bjarnason — Skrifstofur
í Edduhúsinu — Simar: 18300—18305
Auglýsmgaslmi: 19523 AÍgreiðslusimi:
12323 — Prentsmiðjan Edda h.f.
Alþýðuflokkurínn
ViS því mátti alltaf búast, að þa* myndi ekki standa
á Sjálfstæðisflokknum að vinna að því að aftur yrði horfið
til hifrna „gömlu, góðu daga“ fyrir ] G27, ef hann fengi að-
stöðu til þess. Sjálfstæðisflokkurinn hefur alltaf í raun
réttri verið flokkur hinna fáu ríku, þott hann hafi reynt að
auglýsa sig sem „flokk allra stétta“ til þess að afla sér
lýðhylli. Meðan hann vann með sér frjálslyndari
flokki, eins og Framsóknarflokknum, gat hann ekki held-
u.r fylgt íhaldsstefnu sinni, nema að takmörkuðu leyti.
Til þess að geta sýnt stefnu sína i verki, þurfti Sjálf-
stæðisflokkurinn annað hvort að fá hreinan meiri hluta
eða samstarfsflokk, sem var fús til að fylgja stefnu hans
í einu og öllu.
Þennan flokk hefur Sjálfstæðisflokkurinn nú fundið,
þar sem Alþýðuflokkurinn er.
Það hefði einhvern tíma þótt ótrúlega spáð um flokk
þeirra Jóns Baldvinssonar og Héðins Valdimarssonar, að
hann ætti eftir að verða hjálparhella afturhalds á íslandi
og ákafur fylgjandi þess, að aftur yrði horfið til þeirra
tíma, sem voru hér fyrir 1927, þegar flestir voru fátækir
og fáir ríkir — eða hjálpaði m. ö. o til þess að koma á
aftur því ástandi, sem þeir Jón og Heðinn unnu á móti.
Þannig er þetta samt orðið. Það ma langt leita til þess
að finna flokk, sem hefur færst eins langt frá uppruna
sínum og Alþýðuflokkurinn hefur gert. Það er líka harla
erfitt að finna flokk, sem kennir sig við alþýðu og telur
sig sósíaldemokratiskan og hefur svo samvinnu við aftur-
haldsflokk viðkomandi lands. Á Norðurlöndum og í Bret-
landi stendur aðalbaráttan milli alþýðuflokkanna annars
vegar og íhaldsflokkanna hins vegar. Hér eru þessir flokk-
ar í hinu innilegasta bandalagi.
Skýringin er sú, að foringjar Aiþýðuflokksins hafa
alveg horfið frá upprunalegri stefr.u flokksins, en hafa
það fyrir aðalmarkmið að vera í stjorn. Þeim er nokkuð
sama hver samstarfsflokkurinn er og nokkuð sama hver
stefnan er, sem fylgt er í það og það skiptið í dag geta
þeir unnið með Sjálfstæðisflokknum, en á morgun með
kommúnistum. Þannig gengu þeir beint úr stjórn með
kommúnistum til samstarfs við Siá'fstæðisflokkinn. Þá
voru þeir á móti her í landi, en nú vilja þeir hafa ner
um alla framtíð.
í dag styðja þeir hina ^ömmustu ihaldsstefnu og reyna
að hasla sér völl til hægri við sjálft íhaldið. Engin veit
hins vegar hvar þeir standa á morgun Eitt er víst: Hina
upprunalegu stefnu Alþvðuflokksins hafa þeir yfirgefið
og hafa ekki lengur neina skoðanalega kjölfestu. Eina tak-
markið er að vera í ríkisstjórn, hvað sem það kostar.
Togaraverkfallið
Það virðist nú komið skýrt í Ijós* að verkfall togara-
manna í Hull og Grimsby er fyrst og fremst kjaradeda.
Landhelgissamningurinn við íslendinga er aðeins notaður
sem skálkaskjól. Hann er notaður sem átylla til verkfalls,
en hinn raunverulegi tilgangur er að knýja fram kjara-
bætur.
Þetta er vel skiljanlegt. Þegar nánar er aðgætt, geta
brezkir togaramenn ekk’ verið óánægðir með landhelgis-
samninginn. Þeir hafa ekki aðeins íengið fram undan-
þágur innan tólf mílna markanna. heldur það sem beir
telja mestu skipta, þ. e. tryggingu íyrir því, að íslenzk
fiskveiðilandhelgi verði ekki færð írekar út í náhmi
framtíð. Fyrir þessu hafa þeir nú orð og yfirlýsingar
Soames sjávarútvegsmálaráðherra
Fólk, sem talað er um
UNDANFARNA daga hafa
staðið yfir í Washington við-
ræður milli þeirra Kennedys
forseta og MacMillans forsætis
ráðherra Breta. MacMillan er
fyrsti valdamaður vesturveld-
anna, sem Kennedy ræðir við,
en næst muu hann ræða við
Adenauer kanzlara, sem heim-
sækir hann til Washington.
Hins vegar mun de Gaulle ekki
fara vestur til viðræðna við
Kesinedy, heldur mun Kenne-
dy fara til fundar við hann í
París í lok næsta mánaðar.
Kennedy sýnir de Gaulle þann
ig mestan sóma og virðist Bret
um þykja nóg um.
Viðræður Kennedy við þá
MacMillan, Adenauer og de
Gaulle munu snúast fyrt og
fremt um samstarf vesturveld-
anna með tilliti til alþjóðamála.
Kennedy og ráðunautar hans
virðast fyrirhuga róttækar
breytingar á mörgum atriðum,
en vilja ná samstöðu vestur-
veldanna um þau áður en
Kennedy snýr sér að því að
ræða við Krustjoff, en yfirleitt
er búist við fundum þeirra síð
ar á árinu.
Á VEGUM Sameinuðu þjóð-
anna hefur starfað undanfarna
mánuði sérstök Kongónefnd,
sem hefur fyrst og fremst ver
ið ætlað það verkefni að vinna
að sáttum og friði í Kongó.
Formaður þessarar nefndar er
Jaja Wachuku, sem er aðalfull
trúi Nígeríu hjá S.Þ. Þótt
nefndin hafi enn getað litlíi
áorkað, er starf hennar talið
hafa verið til bóta. Þá þykir
Wachujcú hafa reynst all vel
sem formaður hennar og er
því spáð, að hann eigi eftir að
láta talsvert til sín taka á al-
þjóðlegum vettvangi. Eins og
kunnugt er, er Nígería lahg-
samlega fólksflesta ríkið í
Afríku.
ÞAÐ VAKTI athygli, að
kona mætti í fyrsta sinn á ný-
loknum forsætisráðherrafundi
brezka samveldisins. Þetta var
forsætisráðherra Ceylons, frú
Sirimaro Bandaranaike, sem
erfði sæti manns síns, eins og
kunnugt er. Hún er talin hafa
staðið sið stórum betur í því
starfi en búist hafði verið við.
Jaja Wachuku
fjf/n '1
fcv'
Frá viðræðufundi Kennedys og Macmillans.
/
'(
'/
'/
'/
/
/
/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
i
/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
’/
'/
'/
/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
'/
't
't
'/
'/
/