Tíminn - 09.04.1961, Qupperneq 9

Tíminn - 09.04.1961, Qupperneq 9
itW I N N, ggnnudagiim 9. aprfl 1961. C» ivm AILmSrg ár eru liðin. ÞórCur Sveinbjörnsson er horfinn til hœrra embættis í höfuðstaðnum, og nýr sýslumaður, Páll Melsteð, kominn að Hjálmholti. Jóni litla Jónssyni, sem þar fæddist forð- um, hefur verið fengið uppeldi að Læk í Hraungerðishreppi hjá Guðmundi bónda Eyjólfssyni, en sonur vinnukonunnar á Langs- stöðum, Gunnlaugur Bergsson, hefur alizt upp hjá móður sinni. Eai nú er Ingibjörg Jónsdóttir ekki lengur vinnukona. Hún er húsfreyja á Langsstöðum. Sköanmu eftir að hún átti Gunn- laug, tók þar við búsforráðum maður austan úr Rangárþingi, Sigurður Jónsson, og hann gekk lithi síðar að eiga Ingibjörgu. Búskapurinn er samt ekki á marga fiskana og heimilishættir undarlegir. Börn þeirra eru hjá- rænuleg, enda er það í samræmi við uppeldishættina. Einn son sinn hefur Sigurður bóndi reynt að lækna af stami með því að löka hann inni I dimmum kofum og troða honum inn í kýrvömb á blóðvelli. En þrátt fyrir öll þau úrræði, sean Sigurði á Langsstöðum eru tfltæk við bamauppeldið, hefur honum ekki auðnazt að koma tauti við stjúpson sinn, Gunulaug Bergsson. Hann er fyrir löngu orðixm nafntogaður í sveitinni, þótt fyrir annað sé en hálfsyst- kini hans. Hann gerðist snemma ófyrirleitinn, og fólk kann marg- ar sögur af prettum hans og skálkabrögðum. Eitt sinn tók hann upp á því að leika draug. Hann skar hálsböndin af kúnum á Langsstöðum og ger'ði ýmis konar annan óskunda, þegar dimmt var orðið, í því skyni að hræða móður sína og systkini. Þegar á hann var gengið, harð- neitaði hann, að hann væri vald- ur að þessari ókyrrð. Sigurður var þó ekki trúgjarnaii en svo, að hann tók Gunnlaug og húð- strýkti, svo „sem frekast mátti á hann leggja“. Þá meðgekk piltur að lokum, að draugagang- urinn væri af sínum völdum, H. Snemma gætti þess, að Gunn- laugur hafði löngun til þess að berast meira á í klæðaburði en títt var á Langsstöðum. En orð fór af því, hve þar væri mikill durnar'abragur á öllu, þótt fólk kallaði efcki allt ömmu sína í þeim efnum. Á hinn bóginn átti drengurinn ekki margra kosta völ, og fór þá svo, að hann lenti á viðsjárverðri braut í viðleitni sinni til þess' að eignast plögg, sem hafin voru yfir heimilisbrag- inn á Langsstöðum. Haustið 1841 bar það til tíð- inda, að Sigurður bóndi á Langs- stöðum kom að Laugardælum og heimti Bjarna hreppstjóra Sím- onarson á tal við sig. Erindi hans var að kæra Gunnlaug, stjúpson sinn, er þá var á átjánda ári, fyr- ir þjófnað. Sneri hreppstjórinn sér þegar til Páls' sýslumanns í Hjálmholti, og spratt nú mikil og flókin rannsókn af lítilli rót. Um þessar mundir bjó í Arn- arstaðakoti í Hraungerðishreppi kona, sem hét Kolfinna Björns- dóttir. Hún átti tvítuga dóttur, Gróu Jónsdóttur að nafni. Þegar Gunnlaugur kom fyrir réttinn, skýrði hann svo frá, að Gróa í Arnarstaðakoti hefði vitað af mislitum pjötlum, sem Ingibjör'g á Langsstöðum ártti í kistli. Eitt sinn að vetrarlagi, er Sigurður var við sjóróðra og Ingibjörg í slógferð niðri á Eyrarbakka, hefði Gróa komið með lykil, sem gekk að kistlinum. Sagði Gunn- laugur, að þau hefðu tekið úr kistlinum danska borða og tvær lófastórar pjötlur af bláu klæði. Sumt kvað hann Gróu hafa farið með heim til sín, en annað hefði saman við Gunnlaug að sælda. Ingibjörg og Sigurður á Langs- stöðum staðfestu framburð Vola- hjónanna. Við framburð Langsstaðahjóna vitnaðist einnig, að fundizt höfðu í fórum Gunnlaugs bláir og gul- ir bandhnyklar, gulur lopi og blá ull og vettlingar með mis- litum böndum. Þau sögðu enn- fremur, að hann sæti oft um nætur og í hjáverkum við ullar- vinnslu sjálfur og stoðaði ekki, þótt um væri vandað. Loks hefði hann fengið móðursystur sína til þess að prjóna á sig vettlinga og borgað með smjörklípu, sem hún hélt, að hann hefði dregið af viðbiti sínu. IV. Fimmtánda desember voru enn yfirheyrslur í Hraungerði, og linnti sýslumaður ekki rann- sókn í það skipti, fyrr en klukk- an hálfátta um kvöldið. Gunn- laugiir hafði setið þar á rúmi hjá öðru fólki, en nú kom í Ijós, að hann var horfinn. Var þá gaddur úti og jivassviðri. Menn voru send ir í allar áttir að leita pilts, og fannst hann nokkru síðar hálf- dauður af kulda í fjósi í Sölv- holti. Eftir þessa ferð . gerbreytti Gunnlaugur framburði sínum. Hann sagði nú, að fólkið í Arn- arstaðakoti og Vola hefði alls ekki verið í vitorði með sér og allar sögur sínar um það væru ósannar. Þegar hann strauk frá Hraungerði, hefði hann ætlað að Ásakoti í Flóa til Páls bónda Arnbjarnarsonar og Guðnýjar Jónsdóttur, konu hans, sem hefðu verið frumkvöðlar að þessu öllu. En þeirra kvaðst hann ekki hafa þorað að geta vegna þess, að Páll hefði hótað sér hengingu, ef hann þegði ekki. En það væri Ásakotslykill- inn, sem gengi að skemmunni á Langsstöðum. Nú hafði Sigurður á Langsstöð um lengi grunað Pál um að stela fr'á sér og jafnvel borið það á Drjúghentur stjúpsonur á Langsstöðum Tveir útilegumenn hann sjálfur falið í rúmi sínu, og þar fann móðir hans það. Ekkert kvaðst hann samt hafa meðgengið fyrir henni. Alllöngu síðar fóru Langsstaða hjón í erfisdrykkju barns að Bollastöðum í Flóa. Sagðist Gunnlaugur þá hafa hitt mæðg- urríar í Arnar’staðakoti og þær spurt, hvort Langsstaðahjón væru ekki farin í begravelsið. Þegar hann játti því, hefðu þær beðið sig að hjálpa sér um dá- lítið af ull og rófum. Hefði Kol- finna sagzt ætla að senda Gróu með honum og launa honum ó- makið síðar. Hefði Gróa þá enn komið með lykilinn, og þau hnuplað dálitlu af ull, sem þau tróðu í úlpubol, og fáeinum gul- rófum. Enn sagðist hann hafa hitt Gróu milli bæja 3. desember og hún þá spurt, hvort stjúpa hans hefði orðið vel til í beiningaferð, er hann hafði farið austur á æskustöðvarnar í Rangárvalla- sýslu. Gunnlaugur kvaðst hafá sagt, að hann hefði komið með nokkuð af vorull og fáeina klipp- inga, en þá hefði Gróa tjáð hon- um, að hún ætlaði að koma til hans um nóttina. Um þessar mundir bjó í Vola Jón nokkur Bjarnason. Kona hans hét Guðfinna Einarsdóttir. — annar þáttur Þr'emur dögum áður en Gunn- laugur taldi sig hafa átt þetta síðasta tal við Gróu í Arnarstaða koti, hafði móðir hans sent hann að Vola að leita lamba. Sagðist honum svo frá, að þá hefði Guð- finna beðið sig að útvega dá- lítið af rúgi, ull, rófum, fiski og lýsi, og myndi honum verða feng inn lykill. Jón bóndi hefði bætt tóbaki við þennan óskalista og heitið þóknun seinna. Aðfaranótt 4. desember hefði Gróa svo komið á glugga um háttatíma. Gunnlaugur sagðist hafa farið út til hennar, og hefði hún skilað því frá Kolfinnu, móður sinni, að hana vanhagaði um spaðkjöt og murtu, og ætti það, ásamt öðru, sem hann tæki, að fara austur að Vola. Kvaðst hann síðan hafa tekið dálítið af haustull, baunablöndnum rúgi, gulrófum, þorskhausum, murtu, fiski og lýsi og falið í tóftar- broti á túninu, ásamt ull og sex bandhnyklum frá Gróu. Sagðist Gunnlaugur hafa átt að koma skilaboðum að Vola, en það dreg- izt fyrir sér í nokkra daga. En þá fann Sigurður á Langsstöðum fólann og sýndi tveimur vitnum, sem hann kvaddi til. Dálítið af tóbaki hafði Gunnlaugur og falið í rúmi sínu. III. Þessi frásögn gaf auðvitað til- * efni til mikilla rannsókna, og voru mæðgurnar í Arnarstaða- koti fyrst yfirheyrðar. Saga þeirra var öll á annan veg en Gunnlaugur vildi vera láta. Þær sögðu, að Gróa hefði hjálpað Gunnlaugi að vefa bryddingar- band, og Gunnlaugur hefði boð- ið Kolfinnu að láta henni í té ljósmeti, því að hún ætti hjá sér fyrir bandið. Kolfinna á- minnti hann þá um, að hann mætti ekki taka lýsið frá for- eldrum sínum í leyfisleysi. Hann sagði það væri ekki þaðan. Kom hann með lýsið, þegar barnið á Bollastöðum var jarðað', og hafði þá einnig meðferðis ull, er hann vildi fá unnið úr. Kolfinna vildi ekki verða við því, en hann kom aftur og fékk þá ósk sína uppfyllta. Stuttu síðar afhentu þær mæðgur honum þrjá band- hnykla, sem unnir höfðu verið úr ullinni. Önnur viðskipti sögðust þær mséðgur ekki hafa átt við Gunn- laug, og vildu ðivorki þær né Gunnlaugur breyta framburði sínum í neinu atriði. Á svipaða lund fór með fólkið í Vola. Guðfinna hafði átt við hann viðskipti um vinnslu á ull, en Ingibjörg á .Langssíöðum hafði komið og spurzt fyrir um það og orðið af deila á milli þeirra húsmæðranna. Meira hefðu þau Volahjón ekki átt hann við kirkju í Hraungerði. Þótti því seinni saga Gunnlaugs trúlegri hinni fyrri. Gunnlaugur sagði, að samband sitt við Pál hefði hafizt 1839, er hann bjó í Vola. Fyrst hefði Páll fengið spýtur úr heygarði, en síðan sagðist haun hafa tekið handa honum tvo ljái úr orfurn á engi. Enn hefði Páll tekið ístöð úr hnakki á næturþeli, og seinna sagðist Gunnlaugur hafa aðstoð- að hann við að ná í hamar, öxi, mat, ull, ábreiðu, viðarkol og hrífuskaft. Loks hafði Páll kom- ig og sótt hey í sekk. Þegar Ingi- björg fór slógferðina á Eyrar- bakka, hefði Guðný, kona Páls, komið með lykil að skemmunni, en þegar hún kom inn, hefði henni orðið að orði: „Ekki er nú matarlegt hér inni“. Fyrir ómakið sagði Gunnlaug- ur', að Guðný hefði gefið sér þráðarhnykla, rauðan og græn- an, til þess að vefa úr sokkabönd. Þegar Bollastaðabarnið var jarð- að hafði Páll komið með lykla að skemmunni og kistlinum, tek- ið korn, ull, rófur og fisk, en skilið eftir sumt af ullinni til vinnslu og lýsi í dalli til ljós- metis við þá vinnu, ásamt nokkr um hnyklum, er áttu að vera ó- makslaun. Loks hefði hann skilið eftir lykil og beðið sig að „vera nú drjúghentan". Öllu þessu neitaði Páll. Eigi (Framhald á 13. síðu.)

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.