Tíminn - 15.04.1961, Qupperneq 9

Tíminn - 15.04.1961, Qupperneq 9
N N, laugardaginn 15. april 1961. Leirkerasmíðin - hin ramm forna list - blómstrar enn að láta aðra vinna með mér og jþetta er svo dýr vara, að mér finnst ekki sanngjamt að frá mér j fari nokkur hlutur, sem er vafa- samur að gerð. Annafs er ég ekki listamaður, bara leirkeraismiður. Sko, ég vá gera hluti, sem fólk snertir á — ekki hluti, sem settir eru í skáp bak við gler. Nei, fólk á að handleika það, sem er fallegt og skemmtilegt. Þess vegna hef. ég kertastjaka í krúsarlokum og miðjum diskum og móta hanka á sem flesta hluti. Ég elska að hand- fjalla leirinn og stundum veið ég afckaplega reið þegar ég skoða; myndir af gömlum munum eftirj mig, mér finnst alltaf jþað nýjasta vera bezt. Fljúgandi diskur Liti — já, litina þekki ég og elska, en ég vil nota þá gætilega. Lítið á þetta ker. Lagið er gam- alt, eldgamalt og þess vegna hef Fljúgandi diskur eftir Killlkki Salmenhaara. Það er erfitt að móta postulín, ef það verður of hart, þá springur það. Það þarf feiknalega þolin- mæði til þess að vinna þetta, og ég hef fjórtán aldraðar konur mér til aðstoðar. Ungt fólk hefur ekki næga þolinmæði, það brýtur alttof mikið. Héma sjáið þér fullgerða skál, sem búið er að gljábrenna. Gtljáhúðin rennur yfir götin og svo herpist postulínið sjálft dá- lítið saman við brennsluna og þess vegna breytis't lagið á hverjum hlut örlítið í ofninum. Annars er gljáhúðun mín sér- grein og í eirgljá má fá dásamlega fjölbreytni. Hilkka tók upp skál með dumb- rauðum gljáa. — Er hún sprung- in? spurði hún. — Já, svaraði frú Kjellberg, annars væri hún ekki hér inni. Flestir þeir munir með eirgljáa, sem takast verulega vel, eru seld- ir á söfn. En það er ekki ég, sem| ræð því hvernig gljáinn verður. | Ég undirbý aðeins, — eldguðinnj j skapar gljáann. Hér er dásamlegt að vinna — líklega metur enginn það eins og vert er, að fá að sinna starfi, sem maður elskar. En ég er ósköp lé- leg húsmóðir, — synir mínir verða sjálfir að þvo nylonskyrturnar sín- ar, og ég þurrka helzt aldrei af heima. Uppi í hillu er einkennilegur vasi — þrír misháir hólkar, sem hallast saman. Ég fer að hand- fjalla grilpinn og frú Kjellberg hlær við. — Æ, fyrst vaið þetta til af mistökum, það hallaðist bakki í brennsluofni og nokkrir vasar svignuðu og fastust saman. Svo gerði ég tilraunir með þetta form og hafði gaman af — en kom þá ekki pöntun frá Ameríku á 20 sams konar vösum. Það var hræði- legt, síðan þoli ég ekki að hugsa um þá. Brennd dýr Frú Kjellberg sættir sig þá heldui' ekki við fjöldaframleiðslu. Hún segir að hvíta hríspostulínið eigi að standa á sterklitum dúkum til að njóta sín. Síðasta tilbrigði hennar er að setja svarta stein- tausstétt undir bolla og skálar, til þess að hvíti liturinn renni ekki1 um of saman við umhverifð. Næst lítum við inn til Michael1 .Schilkin, hann er lágróma og*fá-j talaður og virðist ekki of hrifinn í af að láta trufla sig. Á bor'ðinu hjá honum eru margar einkenni- legar styttur, stórar veggskreyt- ingar rísa með veggjum og hanga hér og hvar. Mest ber á upphleypt um dýramyndurn á óreglulega lög- uðum hellum. Á einum stað er aðeins búið að rista myndina í leirinn, eftir er að lita hana og brenna. Það verður oft að marg- brenna hellurnar til þess að fá rétta litinn, segir Schilkin næst-1 um hvíslandi — fyrst springa þær, svo verður að bæta hverri gljáhúðinni ofan á aðra og brenna — og brenna. Inni hjá Birger Kaipiainen blasa við svo sterkir litir, að það liggur við að þeir séu ónotalegir fyrir augað eftir mjúka liti SchHk ins. Þaina eru risastór föt með dökkbláum, gulum og grænum skreytingum og í þau felldir upp- hleyptir berjaklasar. Stóreflis j fuglar úr vír standa eins og beina grindur um allt. Sjálfur er lista- maðurinn líka all sérkennilegur, dökkt hárið gieitt fram á ennið og klippt eins og á hirðsveini frá miðöldum, augun stór og dökk, kúpt og gljáandi. Hann er haltur og gengur við staf, klæddur í grænan síðstakk. Fiskar í eltingaleik — Hérna er það nýjasta, sem ég hef gert, segir hann og dregur fram stóran fisk, þar sem spegill er felldur inn í leirinn og mislit ber fest á spegilinn. Þetta á að verða veggskreyting í nýtt, sænskt skip. Það verður næstum heill veggur með stórum og smáum fiskum, sem elta hver annan. Já, þessi mislitu ber eru mitt sér- kenni. Það er ekki langt síðan ég fann upp á að nota þau, en það er hægt að gera margt með þeim. Hilkka hvlslar að mér þegar við förum út, að Kaipainen hafi feng- ið einhver ósköp af verðlaunum, bæði fyrir vírfuglana og hin lit- skrúðugu leirföt. í síðustu vinnustofunni, sem við heimsækjum, er húsráðandi ekki heima. Hún heitir Rut Bryk og hefur hlotið mikla frægð fyrir margs konar veggflísar, sem hún skreytir ýmist með smágerðum ristum, eða fellir margvíslegar gljábrenndar myndir ofaná. Hilk- ka var ekki lítið hreykin er hún sagði mér, að Rut Bryk hefði ver- ið falið að gera hellur á heilan vegg í hina frægu Rosenthal postulínsverksmiðju í Þýzkalandi, og þó að tíminn væri naumur, skruppum við inn í safn verk- smiðjunnar til að skoða hellurnar, sem þar voru til sýnis áður en þær' yrðu sendar til Þýzkalands. Á leiðinni niður í lyftunni segir Hilkka mér, að Arabia tilheyri stórri samsteypu, sem heiti Wart- silá og eigi alls tíu fyriirtælki, þeirra meðal Notsjö glergerðina, sem félagið keypti 1950, eftir að stórbruni hafði orðið í glergerð- inni. f Notsjö er framleitt mkið af fallegum glervörum, sem einn- ig eru vinsælar hérlendis. Að lokum göngum við í gegnum 120 metra langan sýningarsal, þar sem sýnishornum af framleiðslu verksmiðjunnar er komið fyrir á borðum og hillum. Þarna er úr mörgu að velja af alls konar gler- vörum — eldföstum leir, kristalli, (Framhald á 15 síðu) Killikki ég aðeins notað liti til þess að| Ekki er hún nú aðeins leirkera- gefa því þann blæ, að það geti al- smiður — að minnsta kosti fékk veg eins hafa legið í jörð í mörg hún gullverðlaun á sýningu í New hundruð ár eins höndunum á mér. og orðið til í, Yor'k og Grand Prix á Triennale Þetta hérna er j í Milanó. nú minn fljúgandi diskur — erj hann ekki skemmtilegur? Ég teki Postlllín sjálf myndir af munum, sem ég bý til, hér eru nokkrar myndir, sem þér megið eiga. — Já, nú tala ég of mikið, ég veit það — stund- um get ég ekkert talað og tungan rís þversum í gómnum þegar ég ætla að tala sænsku. í gær kom eitthvert fínt fólk, en ég hleypti því bara ekki inn — þá gat ég ekki talað — en í dag komið þér, og þá tala ég of mikið. Og Kyll- ikki Salemhaara hlær andstuttum hlátri, veifar höndunum, gripur stórt fat með dásamlega bláum og gráum litum og segir: — Snertið það — takið á því — svona getur leirinn verið dá- samlegur. I næstu vinnustofu situr há- vaxin, miðaldra kona í röndóttum slopp og ró hennar er skemmtileg andstaða við kvikleika Kyllikki. Hún heitir Friedl Kjellberg, fædd í Austurríki og nam þar leirkera- smíð, en giftist Finna og fluttist ung til Finnlands og hefur starfað hjá Arabia síðan 1924. Á borðinu hjá henni stendur hvít skál úr ör- þunnu postulíni og á henni gata- munstur. — Já, þetta hefur nú verið mín sérgrein í tuttugu ár. í Vín sá eg fyrst krnverskt hrísgrjónapostulín og fór að velta fyrir mér hvernig það væri gert, og það tók mig mörg, mör'g ár að finna aðferðina. I ............| v ■» 1 Veggur til Rosenthal gerður af Rut Bryk.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.