Tíminn - 15.04.1961, Síða 10
10
T f MI N N, ^aginn 15. aprfl 1961.
i
M’NMSBÖKIN
í dag er laugardagurinn
15. apríl (Olympiades)
Sumarmál — 26. vika
vetrar hefst.
Tungl í hásuðri kl. 12,15. —
Árdegisflæði kL 5,23.
Slysavarðstofan i Hellsuverndarstöð-
innl. opin allan sólarhringinn. —
Næturvörður lækna kl. 18—8. —
Slml 15030
Næturvörður þessa vlku í Vestur-
bæiarapóteki.
Næturlæknir í Hafnarfirðl:
Ólafur Einarsson, slmi 50952.
Næturlæknir í Keflavík: Arin-
bjöm Ólafsson.
Minjasafn Reykjavikurbæiar, Skúla-
túm 2. opið daglega frá kl. 2—4
e. h., nema mánudaga
Bæjarbókasafn Reyk|av(kur, stmi
12308 — Aðalsafnið. Þingholts-
stræti 29 A Útlán: Opið 2—10,
nema laugardaga 2—7 og sunnu-
daga 5—7 Lesstofa: Opin 10—10
nema laugardaga 10—7 og sunnu-
daga 2—7
Þjóðmlnjasafn fslands
er opið á sunnudögum, þriðjudögum,
fimmtudögum og laugardögum kl.
1,30—4 e. miðdegi.
Ásgrímssafn er lokað nokkra daga.
Messur
Dómklrkjan:
Messa kl. 11 f. h. (ferming) Séra
Ósíkar J. Þorláksson. Messa kl. 2 e.
h. (ferming). Séra Jón Auðuns.
Mafnarfjarðarkirkja.
Messa kl. 2. Ferming. Séra Garðar
Þorsteinsson.
Krutsjoff
(Framhald af 5. 6Íðu).
tiltölulega frjálslegum grunni,
sem hafa skal hagstæð áhrif á
hlutfallið milli framleiðslu og
markaða bæði með tílliti til kaupa
landbúnaðarins á vélttm og sölu
landbúnaðarins á afurðum hans.
Sérstök nefnd mun annazt þetta
söluskipulag, sem svo er nefnt.
Mun hún gera samning til nokk-
urra ára í senn.
Þrátt fyrir þetta verður þó talið
nauðsynlegt, að hafa fjölda eftir-
litsmanna, sem fylgjast skulu
með því, að samyrkjubúin afkasti
eins og til er ætlazt. Þetta segir
m.ö.o., að enda þótt reynt skuli
að veita nýju lífi í landbúnaðinn,
sé allt efnahagskerfið þann veg
vaxið, að það megni ekki að vekja
nægilegan áhuga til þess að hefja
landbúnaðinn úr því dauðaástandi,
sem hann nú er í eftir að hafa
árum saman verið borinn áfram
til þess að reyna að flýta fyrir til-
komu eilífðarríkis kommúnism-
ans.
Tíminn mun leiða í ljós, hvort
gagnrýni Krútsjoffs ber þann á-
vöxt, að stökkþr'óun verði nú í
landbúnaðinum. Hitt er þó víst, að
það er nauðsynlegt, ella blasir sú
hallærislega staðreynd við augum,
að Sovétríkin með 30% íbúa sinna
við landbúnaðarstörf geta ekki
mætt eftirspurninni eftir landbún-
aðiarvörum heima fyrir. f Dan-
mörku er sjötti hluti þjóðarinnar
við landbúnaðarstörf. Við fram-
leiðum nægilegt magn til innan-
landsneyzlu, og ekki aðeins það,
við flytjum út landbúnaðarvörur,
sem nemur tæplega tvöföldu því
magni, er við neytum innanlands.
Einnig þetta talar skýru máli um
ástandið í sovézkum landbúnaðar-
málum og gagnrýni Krútsjoffs er
vel skiljanleg.
Neskirkja: |
Ferming kl. 11 og altarisganga.
Séra Jón Thorarensen.
Bústaðasókn.
Bamasamkoma í Háagerðisskóla
kl. 10,30 árdegis. Séra Gunnar Áma
son.
Klrkja óháða safnaðarins:
Fermingarmessa kl. 2 e. h. Séra
Bjöm Magnússon.
Fríklrkjan í HafnarfirSi:
Messa kl. 2. Ferming. Séra Krist-
inn Stefánsson.
Hátelgsprestakall:
Messa í Hátíðasal sjómannaskól-
ans kl. 2. Barnasamkoma kl. 10,30
árdegis. Séra Jón Þorvarðarson.
Hallgrímskirkja:
Messa kl. 11. Ferming. Séra Sigur-
jón Þ. Ámason. Messa kl. 2. Ferm
ing. Séra Jakob Jónsson
Laugarneskirkja:
Messa kL 10,30 f. h. Ferming, alt-
arisganga og messa kl. 2 e. h., ferm
ing, altarisganga. Séra Garðar Svav
arsson.
Mosfellsprestakall;
Skátamessa að Lágafeili kl. 2. —
Séra Bjarni Sigurðsson.
Skipadeild SÍS:
Hvassafell er á Reyðarfirífi. Fer
þaðan i dag til Bremen, Hamborgar
og Aahus. ArnarfeU fer væntanlega
í dag firá Rotterdam áleiðis til Aust-
fjarða. Jökuifell er væntanlegt til
Tönsberg á morgun frá Xrándheimi.
Dísarfell fér í gær frá Rvik til Aust
fjarða. Litlafell fór frá Akureyri í
gærkveldi til Rvikur. Helgafell átti
að fara f gær frá Rotterdam áleiðis
til Rvíkur. Hamrafell kemur til
Amuay á morgun frá Rvfk.
Sklpaútgerð ríkfsins:
Hekla er í Rvfk. Esja fer frá Rvík
síðdegis 1 dag vestur um land í
hringferð. Herjólfur fer frá Vest-
mannaeyjum kl. 21 í kvöld til Rvik-
ur. Þyrill er á Austfjarðahöfnum.
Skjaldbreið kom til Rvíkur í gær
frá Breiðafjarðarhöfnum. Herðu-
breið er á Austfjörðum á norðurleið.
í dag verður til moldar borinn
aldursforseti þeirra Fljótamanna,
Guðmundur Bergsson, fyrrverandi
bóndi á Þrasastöðucn í Stíflu.
Guðmundur heitinn varð níræð-
ur hinn 11. janúar sl. og birti
Tíminn afmælisgrein um hann eft-
ir Hannes á Melbreið.
Guðmundur ól allan sinn aldur
á Þrasastöðum, bjó þar sjálfur
um langt skeið en dvaldi síðari
árin í skjóli sonar síns og tengda-
dóttur. Guðmundur var góður bú-
þegn og hinn gegnasti maður í
hvívetna.
— Akkuru viljiði ekki gefa mér
tvíburabróður?
DENNI
DÆMALAUSI
Loftlelðir:
Laugardag 15. apríl er Snorri
Sturluson, væntanl’egur frá Ham-
borg, Kaupmannahöfn og Gautaborg
kl. 22,00. Fer til N. Y. kl. 23,30.
ÝMISLEGT
Gönguför á Hengil:
Ferðafélag íslands efnir til göngu-
ferðar á Hengil á morgun, sunnu-
dag. Verður lagt af stað í bílum frá
Austurvelli kl. 9 árdegis. Nú er
skíðafærið fínt í Henglinum.
KR0SSGATA
294
Lárétt: 1. í klaustri, 6. eða, 10. heið
...., 11. hreppa, 12. mannsnafn, 15.
undir eins.
Lóðrétt: 2. farartæki (þf.), 3. gróf
ull, 4. sveitaþorp, 5. nafn á hryssu,
7. stuttnefni, 8. bókstafur, 9. elskar,
13. flík, 14. ekelfiskur.
Leiðrétting
f grein um Eirík JónssOn í Vorsa-
bæ hér í blaðinu fyrir nokkrum dög
um misprentuðust tvö ártöl. Eiríkur
var fæddur 1891 en ekki 1889, og
Áshildarmýrarsamþykktin var gerð
1496 en ekki 1946.
Lausn á krossgátu nr. 293:
Lárétt: 1. París, 6. argasta, 10. F. Ó.
(Friðrik Ól.), 11. ið, 12. Frakka<r, 15.
Alpar.
Lóðrétt: 2. agg, 3. íss, 4. Saffó, 5.
viðri, 7. rór, 8. auk, 9. tía, 13. all,
14 kúa.
Jose L
Salmaí
— „X-tréð“! Þetta hlýtur að vera stað-
urinn! Jibbí!!!
— Þrettán skref í vestui'átt!
— Pankó! Sæktu hakann!
D
R
r
K
I
Lee
F al k
204
— Ég get ekki einu sinni staðið á
þessu tré. Mig svimar ef ég lít niður . .
ég get þetta ekki.
— Veriði ekki að pína hann til þess.
— Á ólympíuleikjum skógarins getur
enginn hætt við íþróttagrein. Þú sagðist
vera stærri og hraustari en þessir ná-
ungar. Áfram með þig.
— Ég get það ekki, ég get það ekki ...
Gúrkinn er svo ruglaður og skelfdur,
að hann tekur ekki eftir bandinu, sem
er hnýtt um mitti hans.